Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Ég

Djöst blogging aránd!!!

26. október 2007 klukkan 14:02

Hjá okkur gengur lífið sinn vanagang.  Þó erfitt sé að samlaga breyttum aðstæðum heimilislífinu..... reynum við okkar besta og þetta er nú allt að koma..... svona með kalda vatninu!!!!

Eiginmaðurinn er alveg ofboðslega þreyttur og fara geislarnir ekkert voðalega vel í hann.  Sefur hann og sefur!!!  En það er víst fylgikvilli og ekkert við því að gera.  Geri mitt besta til að reyna að sætta mig við það....... gengur frekar illa...... en æfingin skapar meistarann ekki satttt????

Hef ég tekið upp þann sið að taka símann af á kvöldin...... svo við fáum næði...... þegar maðurinn er vakandi....... og svo líka börnin okkar fái smá athygli...... svona áður en þau fara að sofa....... og svo ég fái ró og frið...... þurfi t.d. ekki að vera að svara símasölufólki!!!!
Er þetta svakalega stórt, erfitt og mikilvægt skref fyrir mig....... taka símann af!!!!!  En þetta gefur ofboðslega mikið.

Eins með að þiggja þá hjálp sem endalaust er verið að bjóða mér........ en ég er að verða klárai í því...... þáði t.d. kökurnar frá svilkonunum í afmæli sonarins og fékk eyrun lánuð hjá hjúkkunni og svona ýmislegt sem mér er að takast!!!!  Er ég nú bara frekar stolt af mér...... verð að segja það!!!!!

Annars er ég alveg óendanlega heppin........ ég hef mömmu og pabba hérna hjá mér til að hjálpa mér með ALLT.  Alger forréttindi!!!!  veit ekki hvernig ég færi að ef þau væru ekki hérna!!!!  Hjálpa mér við að þvo, elda mat og sinna börnunum........ alveg rosalega heppin.......... já bara svona heimskulegann hlut eins og versla eða tæma uppþvottavélina!!!!  Sé það alveg fyrir mér að ég myndi nú bara sleppa þessum hlutum ef þau væru ekki hér!!!!!  Óendanlega þakklát fyrir að hafa þau!!!!

Takk fyrir alla orkustraumana.
Takk fyrir að vera svona dugleg að kvitta, þó ég sé ekki dugleg að blogga.
Takk fyrir að hugsa til okkar, við metum það mikils.
Jákvæðar hugsanir gera svoooooo mikið.

Knús til ykkar, allann hringinnnnnnnn......

ég

Frú Megabeib

Ţá er balliđ byrjađ!!!!!

16. október 2007 klukkan 12:37
Fórum í morgun í fyrstu geislana....... mikið er tæknin öll orðin flott.... mikið er ég þakklát að við skulum vera að standa í þessu núna (fyrst við þurfum að vera að standa í þessu á annað borð) en ekki fyrir 10 til 15 árum!!!!  Þetta er orðið svo fullkomið og flott!!!

Þarna beið gríman eftir okkur....... tilbúin til niðurfestingar!!!!!  Alger snilld!!!!

Sjálf geislunin tekur ekki nema mínútu á hvorri hlið!!!!  Þannig að allt ferlið tekur ekki nema 10-15 mín.  Eins og einhver sagði; þá fer mestur tími í það að finna bílastæði!!!!!

Förum svo í þetta á hverjum morgni út vikuna og næstu viku líka, samtals 10 skipti í allt........ og þá verður þetta dautt og úr sögunni svo við getum farið að einbeita okkur að öðrum málum!!!!!

Annars er alveg yndislegt haustveður úti núna..... laufin í öllum regnboganslitum og fuglarnir syngja og sólin skín.  Dásamlegt að vera til!!!!!

Framundan er afmælið hjá einkasyninum.... er það á laugardaginn..... erum við ennþá að reyna að finna út hvernig við ætlum að gera þetta......... hvernig er best að halda uppá afmælið hans........ á að bjóða bekknum...... fjölskyldunni eða bæði eða öllum eða engum........... þetta er dáldið flókið!!!!  En það kemur í ljós þegar nær dregur!!!!

Jú og nafnið á nýjustu Leiknisdóttur Kvien er ofsalega fallegt og alveg í þeirra anda!!!!  Ylva Mist.  Þó svo ég hefði nú alveg verið sátt við Lillý Óla!!!!  En ........ já hmmmmmmmmmm svona er það nú bara!!!!!!  Fæ ekki að ráða og stjórna þar eins og í svo mörgu öðru!!!!!

Er annars að æfa mig í að stjórna ekki öllu....... því er eiginlega búin að komast að því að ég get það ekki!!!!!!!!!  Skrítið að ég þurfi að verða svona gömul til að komast að því!!!!!  Nema hvað..... er að æfa mig í svo mörgu þessa dagana!!!!!  Er semsagt í æfingabúðum!!!!

Er til dæmis að æfa mig í að skrifa oftar hérna inn svo hægt sé að fylgjast með okkur, svo það þurfi ekki allir alltaf að vera að hringja í okkur!!!!  Er dáldið uppgefin á símtölum þessa dagana!!!!  En þetta er svo erfitt, því allir meina svo vel....... og svo er ég viss um það ef enginn hringdi og allir vildu gefa okkur næði, þá færi ég að pirra mig á því að engum þætti vænt um okkur og enginn hefði neinn áhuga á því hvernig okkur liði...... skiljið þið mig........ erfiður línudans þetta...... en ég er að æfa mig...... ætla að geta gengið línuna á enda!!!!  Með ykkar hjálp að sjálfsögðu!!!

Maðurinn minn er að leggja sig núna, þarf svo lítið til að hann verði þreyttur..... því hann hefur enga orku, því hann er svo latur við að borða!!!!!  En við erum að vinna í þessu og plan dagsins er að borða borða borða...... eins mikið og hann getur!!!!

Þannig að nú ætla ég að nota tímann og gera eitthvað leiðinlegt eins og skúra eða taka til....... eitthvað sem ég vil ekki vera að dunda mér við þegar hann er vakandi og hress og vill spjalla!!!!!

Þangað til næst;  sem verður vonandi fljótt!!!!!

ég
Frú Megabeib

Á sjó........

13. október 2007 klukkan 19:21
..... nei nei nei við erum sko ekkert á sjó hérna megin Atlantshafsins!!!!!!!!!  Thi hihhihihi

Eiginmaðurinn fór í mótasmíði í gær..... hefði viljað vera með myndav´leina með mér til að geta tekið myndir af þessu......... hann fékk svona grímu eins og Hannibal Lecter eða Gunnar í Byrginu....... fer eftir því hvernig þið lítið á þetta!!!!!!!!!! 

Þá er komið mót af hausi karls og ekkert því til fyrirstöðu að byrja geislun, jú nema bara að það er helgi og þeir geisla ekki um helgar!!!!!  Þannig að við byrjum bara eftir helgi.... reyndar ekki fyrr en á þriðjudag....... það er alveg auðsjáanlegt á öllu að það er sko ekki ég sem stjórna þessu!!!!!

Á morgun er okkur boið í skírn!!!!!  Hlakka til.... verður spennó...... nafnið er nebblega leyndó!!!!  Annars finnst mér Lillý Óla ver ferlega flott...... en ég er víst ein um að finnast það!!!!!!

Gosi er búinn...... tókst að sjálfsögðu að redda þessum höttum þó tíminn hafi verið knappur!!!!!

Duglega fólkið mitt í Sönderborginni kom til pabba míns í dag og pakkaði niður og þreif íbúðina.  Núna er bara eftir að henda í gáminn og mála..... svo getur hann komið heim!!!!  Og hann er svo heppinn að Gunnar ofvirki bróðir minn er á leiðinni út til hans á morgun til að hjálpa honum við að mála og henda í gáminn!!!!!

Mikið er gott að eiga svona góða að...... takk allir fyrir hjálpina!!!

Munið að vera góð við hvort annað.
Munið að lífið er dýrmætt, njótið þess!!!!

Þangað til næst;

ég
Frú Megabeib

Takk, takk, takk, TAKK, takk, TAKK!!!!!!!!!

06. október 2007 klukkan 14:30
TAKK FYRIR!!!!!!!!

Jú jú ..... búin að opna pakkann......... Takk kærlega fyrir okkur!!!  Við hjónin sátum hér og héldumst í hendur og felldum tár, og börnin horfðu á okkur og spurðu hvað væri eiginlega að!!!!  Við komum þeim í skilning um að þetta væru gleðitár!!
Við erum svo þakklát, og glöð, og ánægð og ÞAKKLÁT!!!!
Takk fyrir okkur!!!!!!

Í pakkanum var: Geisladiskurinn "Látum sem ekkert C" með Halla, Ladda og Gísla Rúnari og ........ já og vitið bara hvað......... Leikhúsmiðar!!!!  Miðar á showið hans Ladda!!!!!!!!!!!!!!!  Alveg frábært!!!!  Miðar fyrir alla fjölskylduna!!!!  Þetta er stórkostlegt!!!!!!!  Þá getum við farið og hlegið saman fjölskyldan!!!!  Og krakkarnir séð Ladda (þau vita ekki hver hann er... spáið í það!!!)

Og frá hverjum er pakkinn?????

Frá frábæru vinunum okkar sem við kynntumst í Sönderborginni...... eins og Elma sagði; eins gott að við fórum þarna út í nám og kynntumst þessu frábæra fólki!!!!  Þið eruð ÖLL alveg dásamlega ÆÐISLEG!!!!

Takk enn og aftur fyrir okkur!!!

Við erum svo þakklát fyrir alla vini okkar sem við eigum. 
Við erum svo þakklát fyrir fjölskylduna okkar.
Við erum svo þakklát fyrir alla sem senda okkur góða strauma.

Allir vinir okkar nær og fjær, þið eruð dásamlega æðislega frábær.
Takk fyrir að vera til og takk fyrir að styðja okkur og senda okkur jákvæða strauma.
Takk fyrir að vera með okkur í baráttunni...... gott að hafa svona sterkt og gott lið á bakvið sit.
Takk fyrir ALLT....... ALLIR!!!!

Sniff sniff......... nú get ég ekki skrifað meira í bili........ þarf að fara í sturtu....... því við erum að fara í afmæli....... ÖLL fjölskyldan!!!!

Knús og kossar til ykkar ALLRA frá okkur ÖLLUM!!!!!

Over and out

ég
Frú Megabeib

Pakkinn............

02. október 2007 klukkan 19:26
.................. er enn óopnaður!!!!!!!!!!


Kv.

ég
Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar