Endalausir dagar!!!
Hann var sérstakelga erfiður afþví að í gær var akkúrat eitt ár síðan við hjónin stóðum og settum upp hringana í annað sinn. Hringa sem við fórum og létum breyta og laga í tilefni dagsins. Hétum svo hvort öðru ævarandi tryggð og ást og umhyggju og að við ætluðum að verða gömul saman og spila Backammon fyrir framan pýramítana.
Ég hata líf mitt!!!!
Útförin var alveg einstaklega falleg og var NÁKVÆMLEGA eins og ég vilid hafa hana, fyrst ég þurfti að vera að jarða manninn minn á annað borð.
Kórinn stóð sig vel. Mér brá reyndar dálítið þegar byrjað var að syngja Vegbúann, átti einhvernveginn von á whisky rödd KK, en ekki svona fallegri og tærri tenór rödd!! En hann söng þetta einstaklega vel........ og já bara allur kórinn!!!
Oddfellowarnir voru flottir þar sem þeir stóðu við kistuna.
Kistan var NÁKVÆMLEGA eins og ég vildi hafa hana, skreytt með origamifuglunum hans Kristófers sem við, ég og börnin hjálpuðumst að við að búa til kvöldið áður. Og svo með eldrauðu hjarta úr rauðum rósum frá okkur. Alveg ofboðslega falleg.
Séra Bjarni stóð sig líka, enda ekki við öðru að búast........ hann er alveg frábær prestur!!!
Svo þegar allir löbbuðu út, vá hvað þetta var flott!!!! Afhverju tekur maður ekki myndir í jarðarförum??? Þetta var svo flott og svo glæsilegt. Fullt af virðingu og ást og umhyggju.
Veislan (eins og dóttirin kallar erfidrykkjuna) var stórkostleg. Þvílíkt hlaðborð hef ég aldrei á ævi minni séð!!!! TAKK KÆRLEGA FYRIR ALLIR SEM KOMU AÐ ÞVÍ AÐ GERA ÞETTA AÐ FLOTTASTA HLAÐBORÐI SÖGUNNAR!!!! Veit ég að hann Ási minn hefði farið nokkuð margar ferðirnar til að fá sér af sem flestum sortum, eins mikill nautnaseggur og hann var. Takk fyrir þetta var alveg í hans anda.
Það var svo gott að sjá svo mörg andlit sem ég hef ekki séð í svo mörg ár og önnur andlit sem komu langt að. Mér þykir virkilega vænt um það. Takk fyrir.
Er núna að fara á fund með Vinnumálastofnun........ það er víst ekki hægt að koma sér undan því lengur.
Var bara að velta því fyrir mér hvað ég á að gera við öll fötin og kökudiskana sem eru hérna hjá mér!! Gat ekki hugsað mér að skilja þetta eftir og svo færi það á eitthvað flakk og fólk fengi ekki aftur diskana sína og fötin (sko kökufötin!!!).
Er ekkert heima um helgina...... er að fara að hjálpa Gunnari ofvirka bróður mínum að flytja....... horfa á frænku mína kveikja á jólatrénu í Reykjanesbæ........ horfa á einkadótturina syngja í aðventumessu og fleira og fleira.......... verð lítið heima á morgun ......... er víst að fara á eitthvað námskeið............ svo ætla ég í bíó með börnunum mínum í boði Önnu vinkonu og svo út að borða.
Ég myndi keyra þetta út til ykkar en hver einasti diskur, skál og fat er ómerkt!!!!
Dóttur minni finnst fyrir löngu kominn tími á að taka upp jólaskrautskassana og fara og skreyta!!!! Mig langar ekki að hafa jól!!!! Ætli ég nái ekki í kassana í dag....eða á morgun...... eða hinnnnnnn........eða hinnnnnn.......... eða hinnnnnnn.........
Þangað til næst..........
ég


