Gleðileg jólin!!!
Jú jú þau koma víst, sama hvort maður er undir þau búin, langi til þess eða hafi áhuga á því að halda jól!!!!
Við erum búin að:
* skreyta jólatréð.
* pakka inn öllum pökkunum.
* fara að leiðinu með ljósakrossinn og pornóljós.
* kaupa allt í matinn.
Þá held ég að það sé upptalið.
Við eigum eftir að:
- búa til jólagrautinn.
- taka kalkúninn úr frystinum.
- skúra.
- þurrka af.
- ryksuga.
- leggja á hátíðarborðið.
- skipta á rúmunum.
- finna til jólafötin á alla fjölskylduna.
Ætla ekki að:
/ skúra.
/ þurrka af.
/ ryksuga.
Verð að:
# elda kalkúninn.
# búa til jólagrautinn.
# leggja á borð.
# finna til föt.
Annað sem til fellur, verður gert eða látið eiga sig!!!
Erum að hugsa um að fara í kirkju á morgun annað kvöld. Höfum aldrei gert það áður, en þar sem þessi jól verða öðruvísi en öll önnur jól, þá er alveg eins gott að breyta eins mikið útaf vananum og hægt er........ svo þá skellum við okkur í kirkju. Við skreyttum líka tréð fyrir mööööörgum dögum, erum vön að gera það á Þorláksmessu. Er búin að pakka inn öllum pökkunum, er vön að gera það aðfaranótt aðfangadags. Fór í partý í gær og drakk of mikið kaffi (hmmmm)...... (er þar af leiðandi frekar framlág í dag!!!!)............ hef ALDREI farið í partý svona nálægt jólum áður...... veit ekki hvort ég geri það aftur!!! En það var samt gott og gaman. Er búin að þrífa bílinn, man ekki eftir að hafa gert það áður.
Njótið jólanna og hvers annars, og munið að jólin koma, hvort sem ykkur líkar betur eða verr, þess vegna er um að gera að gera að vera ekki að stressa sig á neinu........ frekar nýta tímann í að vera saman og njóta hvers annars.......... það er alveg hægt að þrífa og skúra á jóladag....... eða seinna!!!
Jólaknús allann hringinn á ykkur öll!!!!!!
ég

