Morgunstund gefur gull í mund????
Ekki veit ég hver það var sem fann upp þetta fína máltæki, en það hefur sko pottþétt verið AAAAAA manneskja!!!! Ekki svona BBBBBB manneskja eins og ég.......... eða Þ,Æ eða Ö manneskja!!!! Ég veit ekki hvaða mund þetta er sem verið er að gefa gull í ......... en held ég geti bara alveg verið án þess ef ég á að vera alveg hreinskilin!!!!
Í einhverju bjartsýniskasti um daginn, þegar mér datt allt í einu í hug að fara að leita mér að vinnu, komst ég að því að það væri bara alveg FRÁBÆR hugmynd að skella sér í viðtal hjá Hagvangi klukkan 9 í morgun!!! Jú jú ég sagði það......... í bjartsýniskasti!!!!
Sem þýddi að ég þurfti að fara á fætur og klæða mig og fara út í íííííííííískaldann bílinn minn og keyra í morgunumferðinni, í snjónum, í frostinu og allt!!!!
En komst lífs af.
Og komst heim aftur með viðkomu í bakaríinu........... þannig að nú er vatnið að sjóða í teið mitt og rúnstykkin standa klár á borðinu...... best að reka mömmu framúr rúminu........... og svo er bara að hella sér í verkefni dagsins!!!
Ætla að byrja á því að skrifa "things to do" lista!!!!
Snakkes ved;
ég
