Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Flensa dauðans!!!!!!!

30. mars 2008 klukkan 18:09
Fór til læknis á miðvikudaginn....fannst þetta orðið ágætt og frekar erfitt að anda.... dómur; "flensa...... verður orðin góð um eða uppúr helgi!!!!"

Jeh wright!!!!

Hef ekki orðið svona veik í 100 ár að minnsta kosti!!!

Með hita, beinverki, ógleði og eins og bróðir minn orðaði það svo skemmtilega: með bæði Gullfoss og Geysi!!!! Andþrengsli og hrikalegann hósta!!! Eyrnaverk og tannpínu. Vantaði bara hálsbólguna, þá held ég að ég hefði getað verið með allar 15 pestirnar sem eru að ganga í einu!!!

Þegar ég var orðin svo mikið þreytt á því að geta ekki andað (þorði ekki að taka svefntöflu til að geta sofið smá, af því að þá gæti verið að ég myndi gleyma að anda!!!!).......... fór ég aftur til læknis á föstudaginn........ dómur; "lyfseðill uppá pensilín og púst!!!!......... og verður vonandi orðin góð eftir helgi.........annars VERÐUR þú að tala við lækni!!!"

Vildi svo að fyrri læknirinn hefði bara verið svo elskulegur að gefa mér pensilín og púst strax!!!!!

Er eiginlega orðin hitalaus......... en er ennþá með frekar mikið "tynd mave" og er það ekki útaf páskaeggjaáti!!!!!

Var annars að tala um það við góða vinkonu mína um daginn að mig langaði að skella mér til Póllands með henni Jóninu Ben í svona úthreinsun....... langaði svo til að prófa svona hreinsun á ristlinum og svona algert detox!!!!  Nú er ég búin að prófa það....... án Jónínu Ben og Póllands.......hef ekki svitnað svona í mörg ár svo ekki er mikið eftir af óhreinindum í húðinni og er ég orðin gjörsamlega "hrein" innvortis........ alveg detoxuð!!!!!.............. eins og einhversstaðar segir: careful what you whish for!!!!!

ég
Frú Megabeib

32 igen!!!!

25. mars 2008 klukkan 14:49
Takk fyrir afmæliskveðjurnar......... jú jú frúin orðin 32 ára einusinni enn!!!!  Mér skilst að það sé í áttunda skiptið í ár!!!

Ég er ekki búin að kveikja á tölvunni í maaaaaarga daga!!!

Ég fór og lék ferðamenn með öllum pólverjunum og vinahjónunum mínum og börnunum okkar öllum......... skoðuðum þar sem flekaskilin sjás.......... þetta er fyrir þá sem skilja landafræði........ Ameríkuflekinn og Evrópuflekinn!!!  Mæli með þessu fyrir alla sem fá útlendinga í heimsókn......... þetta er alveg upplifun......... eins að fara niður að vitanum....... ekki endilega klifra upp að honum, það er þó hægt......... en fara og klífa klettana þar sem er þvílíkt fuglabjarg....... bara upplifun fyrir útlendinga............. og börnin mín og alla Pólverjana...... ójá, þeir eru víst útlendingar!!!!!

Svo var öll fjölskyldan í kaffi á Páskadag.......... það var dásamlegt............ ekki svo mikill tími til að hugsa!!!
Var svo heppin að ég á ofvirka vinkonu sem kom og hjálpaði mér að undirbúa allt saman........... hvar væri ég án hennar?????  Svo kom hin ofvirka sem þarf að hafa stjórn á þessu og gekk frá að stórum hluta.......... hvar væri ég án hennar?????

Ég geri ekkert annað en pikka inn vitleysur......... enda með bullandi hita og á að liggja í rúminu.......... mér finnst það bara leiðinlegt!!!!  Vantar núna tölvuna hans Ása þar sem ég gat legið í rúminu og verið á netinu!!!  Sakna hans þó meira en tölvunnar!!!!  Sérstaklega núna..... þegar það eru hátíðisdagar eins og páskar, þá á nefnilega fjölskyldan að vera saman og eins þegar það eru afmæli.. þá á fjölskyldan líka að vera saman!!!!! 

Það er bannað að kommenta á stafsetningarvillur........... enda þetta skrifað í hitamóki......... skrítið að ég er með líkamshita 36,4°c venjulega.......... núna sýnir mælirinn 38,3°c, hvað er ég þá með mikinn hita????  Er eiginlega alveg sama um hitann ef ég losnaði við beinverkina............. sem eru verstir í kjálkunum!!!! Enda tala ég ekki mikið núna!!!!!

Er farin uppí rúm og undir sæng og horfa á eitthvað í sjónvarpinu.......... eða bara sofa!!!

Segi bara: gleðikona í háska, því það er of seint að segja gleðilega páska!!!!!

kv.

ég
Frú Megabeib

Ég get.......

17. mars 2008 klukkan 12:34
.............ALLT!!!!!

Fékk þessa tilfinningu á föstudaginn.  Við fórum á páskabingóið hjá Oddfellow og eins og það var erfitt síðast þá var það mun auðveldara núna.  En það var jafn gaman og börnin jafnánægð. Alveg dásamlegt.......... kveið nefnilega alveg ferlega fyrir að fara........ eftir síðustu reynslu.......... en þetta tókst og svona líka rúmlega það.......... og ég fékk nákvæmlega þessa tilfinningu ...... jess ég get ALLT!!!!  Fyrst ég gat þetta!!!!

Þarf að hringja á Dalvík. Tala við einhvern hjá stjórnsýslunni því mig vantar að vita hvort það eru frjálsar íþróttir eða unglingavinna eða hvað er um að vera fyrir börnin mín í sumar....... annað en að leika sér í fjallinu og fjörunni......... það var einhver að hræða mig með því að Dalvísk börn væru víst ekki mikið öðruvísi en Reykvísk börn...... þau væru bara meira og minna inni í playstation og öðru sjónvarpsglápi!!!!  Það kemur þá bara í ljós....... ekki satt????

Nú er komið páskafrí og framundan er ein ferming, ein að baki og svo páskaeggjaát!!!!  Börnin mín vildu alveg endilega kaupa páskaegg handa pabba sínum......... fannst mér það bara dáldið mikið sætt.......... og við keyptum eitt nr. 2 handa honum........ ætlum við svo að borða þau öll saman fyrir hann!!!  Bara ferlega eðlilegt........ eða hvað??? Mér finnst allavega ekki neinn skaði skeður þó við kaupum handa honum páskaegg og við borðum það...... nema kannski að ég hef örugglega ekki gott af því!!! Nú bíða okkar 6 páskaegg......... 2 handa hvoru barni, eitt sem þau völdu sér og annað sem þau unnu í Bingóinu......... 1 handa mér og 1 handa Ása!!!! 

Ju já steingleymdi að segja ykkur það............ haldið þið ekki bara að greinin mín hafi birst í blaðinu á föstudaginn!!!!  Er að hugsa um að skrifa fleiri greinar!!!! Svo svakalega margt sem ég hef að segja....... eða þannig!!!!

Munið að njóta lífsins...........

ég
Frú Megabeib

Flagð undir fögru skinni.

15. mars 2008 klukkan 00:45
Jæja þá er ekki annað að gera en hætta þessu helvítis væli endalaust og stanslaust............ og hætta að láta þessa manneskju pirra mig meira í lífinu!!!! 

Væri þó alveg til í að sýna ykkur bréfið sem hún sendi mér, þar sem hún gjörsamlega "drullar" yfir mig......... en það er víst allt í lagi, að drulla yfir mig. Í fyrsta lagi er þetta hún sem ávallt hefur rétt fyrir sér sem er að segja hlutina og í öðru lagi af því að þetta er bara bréf til mín persónulega, ekki skrifað inná mína "geggjuðu" bloggsíðu þar sem allir geta lesið...... hvar sem er á landinu........ eða heiminum!!!! 

Verst hvað þetta segir miklu meira um þessa ákveðnu persónu en nokkurntíman mig sem henni finnst þó vera ástæða til að "drulla" svona yfir, hóta og kallar mig lygara og þjóf!!!!  Það er auðvitað skiljanlegt að hún megi þetta þar sem, jú eins og ég áður sagði...... hendes kongelige hojhed HÚN er að rita og tjá sig prívat og persónulega við mig!!!! 

Það sem mér eiginlega finnst dáldið mikið spaugilegt er að hún heldur því fram fullum fetum að hún hafi gefið mér fullt af hlutum......... jeh wright............ alveg á kristaltæru að svo er ekki........hefði verið hægt að útkljá hnífstungumálið án þessa að fara að mínum óskum....... þá hefði hún pottþétt gert það!!!!! Ekki eyri eða hlutur sem hún hefur "gefið" mér...... enda sér það hver heilvita maður með allar sellurnar í gangi að það gerir enginn......... ég hefði ekki "gefið" henni neitt ef ég hefði verið í hennar sporum, hversvegna ætti hún þá að vera að "gefa" mér fullt af hlutum???!!!!!  Þannig að "einstök góðmennska" hennar........ er annað hvort komin af þvílíku samviskubiti eða að ekki var hægt að gera hlutina öðruvísi sökum þess að þeir hefðu þá komið henni enn ver!!!!  Og hef ég trú á seinni kostinum......... veit ekki hvort hún hafi samvisku!!!! 

En ég hef lært heilmikið af samskiptum mínum við þessa kvenpersónu....... og ætla ég að setja það í sarp reynslunnar og reyna að muna að oft leynist flagð undir fögru skinni!!!! Og að fólk getur verið alveg yfirmáta tillitslaust og upptekið af sjálfu sér.

Mér finnst reyndar svolítið undarlegt að hugsa til þess að ef hún hefði haldið rétt á spilunum í upphafi í stað þess að vaða þetta áfram eins og naut í flagi á frekjunni og yfirganginum........ þá hefði þetta ALDREI gengið svona langt........ hafðu aldrei þurft að ganga hvorki eitt né neitt....... eða jú ég hefði gengið.......... í burtu!!!!!

Var ég ekki að tala um að hætta að láta hana pirra mig??????

Aha.......... nú er því lokið!!!!!!!

Góðar stundir.

Over and out:

ég
Frú Megabeib

Dagur eitt punktur.........

12. mars 2008 klukkan 23:27
.................... er í dálítilli baráttu við sjálfa mig...........

............á ég að læsa síðunni eða ekki???????

...................... á ég að hætta að blogga eða ekki??????


Mér hafa borist hótanir þess efnis að ég eigi að gæta orða minna á síðunni!!!! 
Hef aldrei vitað annað eins rugl.......hvað hef ég sagt sem ég ekki má????

Ég get staðið við hvert einasta orð sem ég skrifa hérna inn............ og ef það er einhverjum sem ekki líkar skrif mín........ er þá ekki bara spurningin um að hætta að lesa bloggið mitt?????? 

Skil heldur ekki hvernig nokkrum getur dottið í hug að halda að þeir geti stjórnað því hvað mér finnst og hvað ég eigi að skrifa!!!!! 
Það eina sem ég virkilega kæri mig ekki um er að vita af því að manneskjur sem hóta mér og rengja mig og gera mér lífið leitt, eru að lesa bloggið mitt!!!!! 

Á ég þá ekki bara að læsa síðunni?????


Þangað til ég kemst að niðurstöðu í baráttunni, langar mig að bjóða ykkur að hlæja með mér........ eru hátalarar algert skilyrði!!!!




Góðar stundir;

ég

Frú Megabeib

Er eðlilegt.......

07. mars 2008 klukkan 11:26
.................. að vakna með púls uppá 120 slög á mínútu????

Er alveg að verða búin að fá nóg af þessum hraða hjartslætti og þessum leiðindar hjartsláttartruflunum!!!!

Enn snjóar hér á Klakanum........... er eiginlega líka alveg að verða búin að fá nóg af snjónum.......... búin með "skafa bílinn" pakkann í ár!!!!

Er dáldið "down" sef illa og dreymi mikið.......... er eiginlega líka búin að fá nóg af því!!!

Helgin framundan....... vona að hún verði ljúf og góð .......... eða þannig........

Góðar stundir.

ég
Frú Megabeib

Jawoll!!!!!!

05. mars 2008 klukkan 17:13
Nóg að gera á heimilinu!!!!

Hafði það af að taka til í flotta tölvuskápnum mínum ............... lööööööööngu kominn tími á það.......... þurfti að losa mig við óþarfa drasl sem var að þvælast þarna fyrir mér.

Nú er ég búin að því!!!!

Ég þurrkaði ekki af.......... tók frekar til í skápnum og þurrkaði rykið af í honum!!!!!

Reyndar er ég nýbúin að þrífa alla gluggana í stofunni, og flesta veggina líka!!!!  Sjónvarpið og græjurnar!!!!  Þetta er sko meira en að segja það!!!!
Ástæðan er ósköp einföld..... ég var með kerti sem logaði hjá honum Ása mínum og haldið þið ekki bara að kertið hafi ósað svona andstyggilega mikið!!!!  Veggurinn sem það var upp við varð svartur, sem og myndirnar sem héngu á veggnum.  Sjónvarpið var orðið undarlegt á litinn, velti því fyrir mér að henda því bara í staðinn fyrir að þrífa það...... þá hefði ég ástæðu til að eignast flatskjá!!!!  En tókst að vera rausæ, því það er ekkert að þessu fína PHILLIPS sjónvarpi, og þreif það hátt og lágt. 
Vatnið í fötunni var í alvörunni SVART eftir að hafa þrifið gluggana, en þeir eru svaka fínir núna og hleypa sólarljósinu óskertu inn svo rykið sem kemur um leið og maður er búinn að snúa sér við, er vel sýnilegt og nánast öskrar á mann að fjarlægja sig!!!
Versta við þetta allt saman er að blessað kertið ákvað að einangra sig ekki bara við stofuna!!!!  Heldur er þetta um alla íbúð.......... þannig að ég þarf að fara í stórhreingernigu á allri íbúðinni eða mála!!!  Eins og staðan er núna ætla ég að sjá hvort ég geti ekki bara þrifið þetta........... annars mála ég bara!!!!

Átti leið framhjá fótboltavellinum á skólalóðinni áðan.  Sólin skein og nánast allur snjórinn er farinn.  Að sjálfsögðu var á fótboltavellinum hópur stráka. Eflaust búnir að bíða lengi eftir að geta notað völlinn.  Ég þekkti eins og tvö stykki þarna þannig að ég veit að þetta var hópur úr 1. bekk. Það sem var alveg dásamlegt við þessa stráka var að þeir voru allir komnir úr skónum og úlpunum, nokkrir úr sokkunum, einhverjir úr buxunum (voru þá í sokkabuxum), sumir úr peysunum og voru þá bara í nærbol og tveir voru komnir úr öllu að ofan!!!!!  Ferlega frískandi að sjá þá þarna....... berir að ofan, á tásunum........ að stíga glímu!!!  hehehe jú jú þeir voru í glímu ekki í fótbolta!!!!  Sólin skein í heiði og allt var svo bjart, hlýtt og fullt af fjöri og gleði. Þeim hefur eflaust fundist vera komið mitt sumar!!!! 
Þegar ég labbaði svo framhjá fótboltavellinum um 15. mínútum seinna var kominn til þeirra starfsmaður, strákarnir allir komnir í skó og sokka, og flestir í úlpur og nokkrir komnir með húfu á hausinn.  Sólin hætt að skína og þeir komnir í skipulagðan fótbolta!!!!

Ótrúlegt hvað þetta tók stutta stund að beisla einstaklingsfrelsið og sköpunargleðina. En ég er glöð að ég fékk að sjá 6 ára gamla stráka standa í buxunum einum saman í glampandi sólinni stígandi glímu í byrjun mars á Íslandi!!!!!

Er vorið komið?

Þangað til næst;

ég
Frú Megabeib

Flottur dagur í dag!!!

03. mars 2008 klukkan 11:41
Svakalega er veðrið flott í dag.......  glampandi sól og snjór.......... ekta skíðaveður!!!!

Um daginn var ég spurð að því hvernig maðurinn minn hefði dáið.  Mig langaði mest af öllu að svara: "Hann varð fyrir krabbameini og dó!"  Því mér líður NÁKVÆMLEGA svoleiðis....... að hann hafi orðið fyrir slysi........... voðaskoti úr byssu sem var full af krabbameini.............. svona haglabyssu sem höglin dreifast um allt............ en í hans tilfelli bara ógeðslega, viðbjóðslega, viðbjóðslegur sjúkdómur sem var dreifður um allt!!!!!  UM ALLT!!!!  Róar mig einhvernveginn þegar ég get séð þetta svona fyrir mér........ ég veit, ég er skrýtin......... en finnst þetta samt mun rökréttara að hann hafi orðið fyrir voðaskoti, en að maðurinn minn hafi dáið úr einhverjum ósýnilegum sjúkdómi!!!! 

Eini ókosturinn við góða veðrið sem er úti núna......... er að maður sér allt rykið út um allt!!!!!!!!!!!!

Er farin að þurrka af.

Góðar stundir;

ég
Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar