22. apríl 2008 klukkan 13:08
Þetta orð, skynsamlegt, er mikið notað á mínu heimili þessa dagana.
Fyrst vissu börnin mín ekki hvað það þýddi, eða til hvers það væri notað, en nú er það notað vinstri og hægri í öllum mögulegum setningum!!!
Upphafið að notkun þessa orðs á þessu heimili er sú að börnin mín fengu gjafabréf. Gjafabréfið kom frá Oddfellowreglunni, sem er líknar og hjálpar félag, eða eitthvað svoleiðs, allavega réttir þeim hjálparhönd sem eiga um sárt að binda og byggir hús og innréttar heilu álmurnar til að sjúkum og bágstöddum geti liðið betur.
Á hverju ári um jólin styrkja þeir börn.
Oftast hafa verið styrkt börn erlendis.
Í ár voru íslensk börn sem eiga um sárt að binda á einhvern hátt, svo heppin að fá að njóta gjafmildi Oddfellowanna.
Voru börnin mín ein af þeim.
Ég sagði börnunum mínum að þau ættu pening sem Oddfellow hefði gefið þeim. Þau mættu sjálf ráða hvað þau vildu nota peninginn í. Eina skilyrðið sem móðirin setti var að peningunum yrði eytt í eitthvað skynsamlegt!!!
Þar sem Oddfellowarnir hafa verið að styrkja börn sem vantar að geta drukkið vatn til að komast lífs af, eða styrkja börn til að geta lært, eða styrkja börn til að fá flíkur á kroppin svo þau frjósi ekki, þá er í það minnsta ekki hægt að fara fram á annað en börnin mín eyði peningunum í eitthvað skynsamlegt.
Þá var komið að því að útskýra hvað skynsamlegt væri. Það er nú bara dálítið flókið skal ég segja ykkur. En þar sem frúin er nú óhemju klók kona, þá tókst henni að koma þeim nokkurnveginn í skilning um merkingu orðsins.
Það er t.d. ekkert sérstaklega skynsamlegt að fara og kaupa nammi fyrir allan peninginn.
Það er t.d. ekkert sérstaklega skynsamlegt að fara og kaupa "Pets" höllina sem manni er búið að langa í lengi.
Það er heldur ekkert sérstaklega skynsamlegt að kaupa sápukúlur og LEGO geimskip.
Það er skynsamlegt að kaupa bol og buxur merktan Skólahreysti í bak og fyrir.
Það er líka skynsamlegt að kaupa rúlluskó, sem eru búnir að vera á óskalistanum lengi.
Það er skynsamlegt að kaupa sokka og nærur, þó það sé ekki spennandi, þá er það skynsamlegt.
Það er skynsamlegt að kaupa Joe Boxer náttbuxurnar sem manni er búið að langa í lengi.
Við fórum í Hagkaup. Þau máttu kaupa það sem þau vildu, bara ef það væri skynsamlegt. Við keyptum ekki neitt!!!!
Þangað til næst, verið skynsöm.
ég