30. maí 2008 klukkan 18:42
- Hótelið er SVAKALEGA FLOTT.
- Ég............ hrikalega þreytt.
28. maí 2008 klukkan 02:01
...... að ég var líka vakandi á þessum tíma sólarhringsins, með spenningshnút í maganum....... stór dagur framundan........ nýtt ferðalag, nýr kafli í lífinu að byrja.......eini stóri munurinn var sá að þá hafði ég Ása minn mér við hlið..... og ég var sannfærð um að ég hefði hann mér við hlið það sem eftir væri ævinnar....... búin að gulltryggja það!!!
Sem sagt á morgun/dag eru 14 ár síðan ég gekk í heilagt hjónaband með ástinni minni einu, alveg eins og kleinu ......... vá hvað ég sakna hans mikið!!!
Ég var svo hamingjusöm og ánægð..... komin í örugga höfn í faðminum á honum..... sem elskaði mig út af lífinu og ég hann........ mikið er ég heppin að hafa fengið að eiga með honum öll þessi ár, þó svo að ég óski þess daglega að við hefðum getað fengið að verða gömul saman, við tvö.
Ég óska þess daglega að hann gangi inn um dyrnar og við getum gert einfalda hversdagslega hluti eins og að borða saman kvöldmat með börnunum okkar........ hlegið saman og tuðað í hvort öðru....... velt fyrir okkur lífinu og tilverunni og merkilegum og ómerkilegum hlutum........ gert upp daginn, hvað gerðist í vinnunni, þjóðfélaginu, fjölskyldunni!!!! Ósköp einfaldir hversdagslegir hlutir eins og að fara og versla eða elda eða bara sitja og kjafta........ sakna þess....... sakna hans....... alveg óhugnalega mikið!!!!
Sakna morgnana um helgar þegar við lágum og kúrðum þangað til annað okkar fór oftar en ekki í bakaríið á meðan hitt gerði klárt morgunverðarborðið.
Sakna þess þegar við sátum og lásum blöðin saman og borðuðum rúnstykkin úr bakaríinu ....... ræddum fyrirsagnir og þjóðfélagið á meðan að börnin horfðu á barnaefnið í sjónvarpinu.
14 ár!!!!
Ég man hvað ég var óendanlega hamingjusöm og gat varla haft augun af þessum flotta manni sem hafði viljað eiga mig sem konu....... mikið átti ég ekki von á því að fá ekki að hafa hann hjá mér þegar við ættum 14 ára brúðkaupsafmæli. Ég sakna hans!!!
Á morgun/dag hefst nýtt ferðalag....... verð ég að segja að mér finnst það vera dálítil meiri óvissa í þessu ferðalagi en því sem hófst fyrir 14 árum...... tilhlökkunin er ekki alveg sú sama....... og ég er líka ein....... eða þannig....... er reyndar svo ofboðslega heppin að ég á alveg yndisleg börn sem ætla að ferðast með mér, þannig að ég er ekki alein!!!
Finnst mér þetta ferðalag núna vera meira eins og óvissuferð....... og ég hef alltaf hatað óvissuferðir!!!! En þegar þeim er lokið, hefur alltaf verið mjög gaman í þeim, sem sagt óvissuferðunum!!!
Hef ég þá trú að þetta ferðalag verði lærdómsríkt, krefjandi en jafnframt skemmtilegt og gefandi.
Er því viðeigandi að hefja það á þessari dagsetningu sem virðist vera orðin tímamóta dagsetning í lífi mínu!!! 28. maí!!!
27. maí 2008 klukkan 19:03
Jawoll......
Var svo heppin að kokkurinn minn missti af tengifluginu..... þannig að hann var fastur í París........ kemur því ekki fyrr en seint í kvöld...... eða í kringum miðnætti!!!! Gefur mér nokkra auka tíma til að pakka niður...... er sem sagt ekki byrjuð!!!!
Annars er seinasta þvottavélin í bili þvegin..... ju já er að gleyma að hengja uppúr henni!!!!
Það sem vantar....... vantar bara....... annars kemur það þá með krökkunum....... eða okkur bara vantar það!!!!
Eins og einhver sagði líka við mig: " það eru búðir á Akureyri!!!"
Kvíði dáldið fyrir ferðinni á morgun....... alltof laaaaangur tími aaaaaaaalein með mínar hugsanir!!!!!
Er farin að hengja uppúr vélinni!!!!!
26. maí 2008 klukkan 09:34
Fórum uppá leiði á laugardaginn....... gerðum það voðalega fínt...... settum engil og fullt af "gleym mér ei"-jum í kringum hann og svo keyptum við líka stjúpur og einkasonurinn bjó til þennan fallega íslenska fána úr þeim...... það er voðalega fínt og snyrtilegt og fallegt ........ þið sem eigið leið þarna um í sumar, ykkur er meira en frjálst að týna í burtu arfa og annan ófögnuð sem óneitanlega sest að þarna!!!! Eins ef svo vildi til að sumarið yrði einstaklega súper dúper gott og það vantaði að vökva blessuð blómin........ ekki vera feimin..... bara vökva!!!!
Annars var dagurinn þokkalega erfiður....... einkasonurinn sýndi á sér nýja hlið í morgunsárið...... hélt bara að hann ætti þetta ekki til........ dóttirin var söm við sig, en ég var eitthvað á röngunni......... en við lifðum daginn af og vorum bara þokkalega sátt þegar kom að kvöldi og við búin að borða góðan mat í góðra vina hópi og Ísland búið að "vinna" Svíþjóð í Júróvisjón!!!!
Ofvirkur lagaði bílinn í gær.
Kokkurinn kemur á morgun........ frá Brazilíu með Finnair!!!! Mér finnst þetta bara orðið þokkalega fyndið!!!!
Fer svo á af stað ekki á morgun heldur hinn......... þá verð ég líklegast að vera búin að pakka niður því sem ég ætla að hafa með mér, ekki satt??? Verð kannski að fara finna útúr því ........ hmmmm........
Var að velta því fyrir mér hvort að 3 gangar séu ekki nóg á börnin??? Hvað haldið þið??? Þrennar buxur og þrennar peysur og þrenna boli ........ kannski fleiri sokka og nærur...... sundföt og stuttbuxur........ engin regnföt....... því það verður sól í ALLT sumar og það mun einungis rigna á nóttinni til að vökva blómin og grasið!!!!
Er að fara í nudd á eftir........ oooohhh það verður BARA þokkalega gott!!!!
25. maí 2008 klukkan 16:16
Afmælið hjá einkadótturinni í fullum gangi!!! Þokkalega gott að eiga orðið svona stór börn að þau geta séð um sig sjálf!!!
Einkasonurinn skellti sér í bíó, nennti sko ekki að hanga heima yfir þessum stelpum!!! Alveg að verða gelgja????
Fer til Ofvirks og familie á eftir...... ætla að biðja hann að kíkja aðeins á bifreiðina...... er náttlega á leiðinni út á landið góða....... verð að vera á þokkalega ökufærum bíl!!!!
Ótrúlegt hvað börn geta verið misjöfn....... og misjafnlega skemmtileg...... og misjafnlega ótrúlega leiðinleg!!!!!
Litun lokið.
Afmælinu alveg að verða lokið!!!!
23. maí 2008 klukkan 08:15
Jessssssssssssss.......... við komumst áfram!!!!!!!!!!!
Þá er svo miklu skemmtilegra að horfa á keppnina laugardaginn.......... annars hef ég jú alltaf Dani til vara ...... var annars búin að finna út að ég ætlaið þá bara að halda merð Noregi!!!! En nú þarf ég það sko ekki því ÖLL norðurlöndin........ nema náttla Færeyjar, Svalbarði og Grænland........ eru með í Júróvisjón í ár!!!!
Það verður BARA gaman að horfa á keppnina á Laugardaginn!!! Með Júróvisjónsnakkið og kókið frá FM957 sem drengurinn vann........ og hann vann líka CD-inn sem inniheldur ÖLL Júróvisjón lögin í ár........ svo pöntuðum við pizzu og fengum Júróvisjóndiskinn með Júróbandinu!!!!
Planið í dag er: fara í sturtu, fara í morgunkaffi, fara í litun, fara í búð að versla fyrir afmælið, fara á fimleikasýningu, elda, horfa á sjónvarpið, og fara þokkalega snemma að sofa........ því það er líka mikið að gera á morgun!!!!
Færeyjar, Svalbarða og Grænland???? ........ Norðurlönd??? Döööhhh....... Jú, Dönsk og Norskt!!! Þannig að þau eru með!!!!
22. maí 2008 klukkan 08:31
ER BARA EKKI LAGI MEÐ YKKUR STELPUR!!!!!!
Halló þetta er eins og heimsmeistarakeppnin í fótbolta fyrir mér!!!!
Og Dagný........ maður horfir ekki á undanúrslitakeppnina daginn eftir!!!!!!!
Júróvisjón er ON....... verð kannski að sleppa einhverju morgunkaffinu ..... eða nuddinu........ en EKKI Júróvisjón!!!!!
Þegar ég var búin að sofa meira og minna yfir fyrrihluta American Idol í gærkvöldi....... drattaðist ég í rúmið....... var ekki alveg að fíla það....... langaði alveg svakalega til að vita hvort rokkari David eða "rainman" David ynnu!!!
Enda var það fyrsta sem ég gerði þegar ég kveikti á tölvunni að tékka á sigurvegaranum!!! Og minn maður vann!!!! DAVID!!!!! Ferlega var ég ánægð með það....... hefði verið frekar svekkt ef það hefði verið hinn, David........ jú jú er með góða rödd....... en er ekki stjörnu efni..... thank you thank you....... minn David er flott stjarna!!!!
Einkasonurinn vann Júróvisjónpakka á FM 957 í gær....... förum í dag og náum í hann....... bara fyrir fimm........ frekar flott hjá honum........ snakk og gos ...... og JÚRÓVISJÓN diskurinn!!!!! Við bara heppin...... það verður pöntuð pizza....... og horft á Júró hér á þessu heimili í dag........ líka á laugardaginn....... er búin að ráða kokk í að elda!!!!!
Klippingu lokið........
21. maí 2008 klukkan 08:19
Er alveg að renna út á tíma!!!
Var að fatta hvað það er stutt þangað til ég ætla að fara norður og hvað ég á eftir að gera HRÆÐILEGA mikið!!!!
En það er búið að ákveða dagsetningu fyrir afmælið hjá einkadótturinni..... hún ætlar að hafa afmæli fyrir fimleikastelpurnar....... þetta verðr bara gaman.... sjáum til hvort við höldum ekki bara fjölskyldu afmæli þegar við komum til baka........ alveg ferlegt að eiga afmæli svona á miðju sumri..... hverjum datt þetta eiginlega í hug?????
Klára námskeiðið á morgun....... er að vonast til að komast í klippingu á föstudaginn..... er að hugsa um að aðstoða og hjálpa til á fimleikasýningunni hjá börnunum mínum........ á bókuð 3 morgunkaffi og 1 nudd ..... jú jú það eru alveg 3 virkir dagar þangað til ég ætla að hendast af stað norður...... og svo eru eins og tvö stykki Júróvisjón partý þarna inná milli.........
Þarf líka að fara uppá leiði og gera það fallegt fyrir sumarið........ geri það á laugardaginn........
........ er ekki alveg að sjá að ég nái því að fara á Pál Óskar!!!!!
Er farin í sturtu....... er að fara á námskeið ........ það er glampandi sól........
20. maí 2008 klukkan 00:16
Er búin að kaupa hótelstjórapils......
Er búin að kaupa aðra hótelstjóraskó........
Vantar að fara í hótelstjóraklippingu........
Vantar að kaupa hótelstjóraskyrtu.......
Er farin að sofa.........
18. maí 2008 klukkan 20:27
Takk takk takk takk takkkkkkkkk...... þið eruð BEST!!!!
Gaman að vita af ykkur öllum......... er sko alveg að fíla það!!!! Engin pressa....... bara gaman öðru hvoru að sjá hverjir eru á ferðinni!!!
Júróvisjón framundan og ég má ekkert vera að því að undirbúa !!!!! Verður að vera "partý" á þriðjudaginn, fimmtudaginn og svo að sjálfsögðu á laugardaginn!!!!! Langar alveg GEÐVEIKT á Júróvisjón partýið á NASA með Páli Óskari!!!! Aldrei að vita nema maður skelli sér!!!!
Er að drukkna á þessu námskeiði!!!! Ferlega erfitt að sitja allt í einu svona allann daginn og móttaka upplýsingar!
Stundum hristi ég nú bara hausinn (svona inní mér þið vitið) eða eins og sagt var í gamla daga, þyrmir (ætli það sé einfalt i ) yfir mig og ég hugsa: "hvernig í veröldinni datt mér þetta í hug???" "Ég get þetta aldrei!!" "wów... get sko ekki munað þetta!!!" "hvernig á ég að muna þetta allt saman??" "hvernig í datt mér það í hug að ég gæti þetta??" ............ aha....... niðurbrot, niðurbrot, niðurbrot.......... en svo hamast ég við að snúa þessu við og segi (inní mér að sjálfsögðu): "iss piss ég get þetta sko alveg, því ég get ALLT!!!!"
Svo er ég líka búin að vera í dálítilli bómull alveg síðan i nóvember....... ekki það að ég hafi funkað að einhverju ráði fyrr en í febrúar......... en er búin að vera dáldið mikið í vernduðu umhverfi....... þannig að álagið er eflaust meira fyrir vikið....... kann þetta ekki lengur að vakna svona á morgnana og fara ekki uppí aftur og vera vakandi allann daginn og hitta fólk og tala og eiga samskipti....... er ennþá að vaka alltof lengi........ er ekki heldur búin að fatta það að til að geta sofið nægju mína þarf ég að fara fyrr í rúmið á kvöldin!!!!! ............. eða nóttunni!!!!!
En þetta er alveg rosalega gaman og fullt nýtt sem ég er að læra og hlakka ég bara alveg ferlega til að fara norður........ fer væntanlega um miðja næstu viku....... ekki þessa viku....... heldur næstu...... og þá verð ég að vera búin að pakka niður og til þess þarf ég að vera búin að ákveða hvað ég ætla að pakka niður...... og ég verð að vera búin að kaupa hótelstjóraföt og skó og halda uppá afmælið hennar Viktoríu og fara í klippingu og léttast um 20 kíló og þrífa allt heimilið og þvo allann þvottinn og........
......... anda inn......... anda út.........anda inn..........anda út..........
Þangað til næst;
ég
16. maí 2008 klukkan 08:16
Var farin að halda að kvittanakerfið væri eitthvað bilað....... þangað til hún Guðrún mín kvittaði sjálfsögðu eins og venjulega!!!
Hér situr maður og bloggar dag eftir dag og dag eftir dag........ og ...... já hmmmmmmmm.........
Kannski fullmikil tilætlunarsemi að vonast eftir kvitti....... seinast þegar ég var að væla yfir kvittleysi..... þá var sko kvittað..... enda var þetta í endan á ágúst í fyrra..... þegar Ásinn minn fór á spítalann.... ætla ekki að kvarta eða kveina eða væla meira.......
Finnst eins og ég eigi ekkert líf........ er föst á þessu námskeiði og vitið bara hvað....... ég er þar ALLA helgina líka!!!! Hvenær Á ég að fara í klippingu??? Er orðin eins og loðmundur á lækjarbakka..... nei það var víst hann Lati Geir á lækjarbakkanum!!!! En það skiptir ekki máli........ ég er orðinn ótæpilega mikið loðin!!!! Á hausnum!!!! Verð það víst ekki mikið annarsstaðar!!!!
En ég læri helling á námskeiðinu og ég verð bara betri manneskja fyrir vikið....... getur maður ekki alltaf á sig blómum bætt???
Snakkes ved;
Mojn!!
ég
15. maí 2008 klukkan 08:17
Á forsíðufrétt í Fréttaglaðinu í morgun er sagt frá tveimur bloggum frá ungu fólki sem hefur nýtt sér þetta dásamlega frelsi að blogga. Því miður eru þetta frekar óhamingjusöm blogg bæði tvö. Vekur mann til umhugsunar að það sé gott að heimurinn sé orðinn svona tæknivæddur þannig að hægt sé að koma þessum unglingum til hjálpar....... því þau hafa þörf á henni bæði tvö!!!
Þessi frétt vekur upp dálítið, getur ekki annað en fengið mig til að hugsa um það að kannski er einhver í fullri vinnu við að lesa blogg!!! Situr allann daginn og les blogg og tilkynnir yfirmanni sínum svo um athyglisverð blogg og óviðeigandi blogg og skemmtileg blogg........ ætli kannski það séu fleiri en einn ráðnir í þetta starf??? Þetta eru auðvitað dáldið mörg blogg sem þarf að fara í gegnum!!! Ætli blogglesendurnir sitji saman í gluggalausri kjallarakompu og lesi blogg??? Eða ætli þau sitji í einni af fjölmörgum glerbyggingum höfuðborgarinnar....... horfi út á sjóinn og narti í lífrænt ræktaðar gulrætur á milli þess sem þau lesa blogg!!!!
Og hver er yfirmaðurinnnnnn?????? Stór feitur kall sem situr og tilkynnir svo meiðyrðablogg og ósæmileg blogg og sorgleg blogg til lögreglunnar???? Situr inni á stórri skrifstofu í endalausri hand og fótsnyrtingu með stórann feitann vindil í munninum........ nei það er svo hrikalega "out" ........ það er óhollt að reykja..... og enginn reykir lengur, ekki einusinni í ímynduðum hugarheimi....... með stóra feita gulrót??? Nei hann er nú ekki beint heilsutýpan!!!! Get betur séð hann fyrir mér japla á sellerýstöng og teigja sig í bloddý marrýið!!!
Á einhvernveginn alveg svakalega auðvelt með að sjá þetta fyrir mér!!!!
Verð ég að fara að hugsa mig um þrisvar, hugsa nú þegar tvisvar, áður en ég set niður einhverjar línur hérna....... ?????
Vona að börnin fái lausn sinna mála....... gott að það er til bloggumferðareftirlit!!!!!
Þangað til næst;
ég
14. maí 2008 klukkan 17:37
Það er svo margt sem ég þarf að gera áður en ég fer norður!!!
T.d. fara í klippingu, klippa soninn, kaupa aðra hótelstjóraskó!!! Verð að eiga til skiptanna!!!!
Langar að taka trampolínið með..... held að það passi ekki í ferðatöskuna!!!
........ er farin út á svalir til að njóta sólarinnar!!!!
Snakkes ved.
ég
13. maí 2008 klukkan 18:07
Er búin að ná að grípa nokkra bolta...... hvort ég haldi þeim svo er svo annað mál!!!!
Er á námskeiðinu....... fyndið að þegar maður fer á svona námskeið, eða kúrsa eða hvað þið viljið kalla það....... þá finnst manni maður aldrei kunna neitt!!!!
Hverju á ég að pakka niður fyrir þrjá mánuði??? Er dáldið mikið að velta þessu fyrir mér núna þessa dagana........
Ekki var það meira í dag!!!!
Over and out,
ég
09. maí 2008 klukkan 11:09
Ég er með svo marga bolta í loftinu núna og ég næ ekki að grípa einn einasta!!!!!
Í stað þess að reyna kannski að grípa eins og einn...... þá sest ég bara niður í einskonar uppgjöf og horfi á þá falla í kringum mig!!!
Veit ekki hvar ég á að byrja....... veit ekki hvernig ég á að byrja........ veit ekki hverju ég á að sleppa......... get ómögulega forgangsraðað lífinu mínu núna!!!!!
Komst að því í vikunni að það eru bara um 3 vikur þangað til ég fer norður....... það passar bara enganveginn inní hausinn á mér!!!!
Ég ætlaði að gera svo svaaaaakalega margt áður en ég færi af stað!!!!! Næ núna ekki að gera nema brotabrot af því sem ég ætlaði mér....... þá finnst mér ég alltaf ekki vera nógu góð mannsekja, nógu klár kona, vonlaus mamma, og vinn mjög góða heimavinnu í að brjóta sjálfa mig niður, sem endar í því að ég geri ennþá minna en ég hefði getað komist yfir ef ég hefði bara farið af stað í að gera hlutina ´í stað þess að sitja og brjóta mig niður!!!!
Í næstu viku er ég að fara á námskeið....... frá 10 til 18!!!! Ég legg ekki meira á ykkur........ svo er ég bara farin norður!!!! Hvernig í ósköpunum á ég að geta gert allt þetta sem ég ætlaði að gera þegar ég er ekki einusinni heima áður en ég fer????
Þetta lítur ekki vel út!!!
Ekki ennþá komin með kokk....... en einn sem er þýskur og býr í Brasilílu er orðinn heitur!!! Spurningin um hvort það tekst að landa honum.
Over and out;
ég
07. maí 2008 klukkan 10:54
Man ekkert stundinni lengur..... hausinn á mér er eins og gatasigti!!!!
Ef ég skrifa ekki niður það sem ég ætla að gera og helst hvenær ég ætla að gera það þá gleymi ég því bara!!!!
Var ég slæm...... en þetta hefur aukist til muna síðustu mánuðina!!!! Er alveg að fara að hafa áhyggjur af þessu!!!!!
Þangað til næst....... ef ég man það þá""""
ég
06. maí 2008 klukkan 10:23
Háseta vantar á bát!!!!
Ráðskonu vantar í sveit!!!!
Ég þarf bara að fá kokk, eða matráðskonu/mann!!!!
Það þarf ekkert að vera voðalega mikið útlærður kokkur..... bara einhver sem kann að elda og getur séð um eldhúsið fyrir mig!!! Því það er gjörsamlega ekki mín deild!!!!
Þeir kokkar sem ég hef boðið starfið svara til baka; takk en ég er búinn að fá vinnu í Osló! ....eða Tahíti.....eða Svalbarða!!!! Ég er ekki að grínast!!!!!!
Eini sem ég er ekki búin að hafa samband við er sænski kokkurinn....... er búin að týna umsókninni hans!!!! Ég er sko ekki að standa mig!!!!
Búin að taka til og þrífa........ ef Mæja og Frikki skildu kíkja við....... veit að þau eru bissí og meiga ekkert vera að því að koma við frekar en aðrir Danmerkurbúar....... en bara svona just in keis!!!
Var að uppgötva í gær ....... þegar börnin mín voru að sýna mér hvað það væri stutt eftir að skólanum hjá þeim...... að ég er að fara eftir 3 vikur!!!! Og ALLT sem ég ætlaði að gera áður en ég færi af stað!!!!
Nú er það ekkert múður...... upp með sokkana....... ekkert Facebook........ráða kokk, klára pappírsmálin og byrja að pakka!!!!
Má ekkert vera að því að sitja hérna hjá ykkur lengur.
Njótið lífsins og reynið nú að gera það sem þið getið í dag, ekki geyma það þangað til á morgun...... ég hef slæma reynslu af því!!!!!
Over and out;
ég
02. maí 2008 klukkan 11:15
Mikið ferlega var hrikalega svakalega ofsalega gaman á Damefrokost!!!!
FUD leeeeeeengi lifi!!!!!
Ekki spurning að þetta verður gert að ári!!!
Tók myndavélina með mér......... hún lenti í vatnsbaði........... ég gat ekki tekið neinar myndir!!!! En það voru tvær aðrar myndavélar á staðnum, þannig að það er aldrei að vita nema að það verði hægt að sýna ykkur sem misstuð af þessu í ár, myndir............
Bara muna að taka daginn frá á næsta ári............ ekki seinna vænna!!!! Kirsti himmelfart = Damefrokost!!!! Ekki klikka næst!!!!
Týndist inná Facebook........... rataði svo út.......... vá þvílíkur tímaþjófur......... en þetta er samt bara gaman!!!! Gaman að sjá gamla skólafélaga og fólk sem maður var næstum því búinn að gleyma að væri til!!!! En hefur á einn eða annan hátt haft áhrif á líf manns.
Skrítið hvernig fólk kemur og fer........ sumir skilja meira eftir sig en aðrir........... og sumir eru alltaf þarna!!! Sumir hafa kennt manni erfiðar lexíur og aðrir hafa veitt manni styrk og hjálp........ enn aðrir eru bara þarna til að gera lífið skemmtilegt!!!! Dásamlegt að þekkja fólk...... og kynnast nýju fólki!!!!
Góða helgi..................... ég ætla ekki að hjóla, hjólið er ennþá dautt!!!!!
Fer á Gosa á sunnudaginn, ætla að taka út hattinnnnnnnnnn............
Snakkes ved,
MOJN!!!!!
ég