Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Tjútt!!!!

29. júní 2008 klukkan 21:47
Fór sko að tjútta í gær!!!

Hótelstjórinn á öðru hóteli kom og dróg mig með sér á tjútt!!!!

Vorum með bílstjóra....... fórum á Akureyri ........... í Sjallann!!! Fyrsta skipti sem ég kem þangað inn!!! Það var hljómsveit að spila...... Sálin....... mér finnst hún ekki skemmtileg......... hefði viljað hafa einhverja aðra hlómsveit......... en ........ það var Sálin...... held að meðalaldurinn á gestum staðarins hafi verið 12 eða rétt tæplega ferming!!!

Ég er væntanlega orðin gömul!!!!

Er þreytt í dag.......... er orðin gömul???

Bíð núna spennt eftir að einhver skemmtileg hljómsveit verði að spila í Sjallanum........ þá ætla ég að fara aftur á tjúttið!!!!

Fékk óvænta gesti bæði í gær og í dag.......... yndislegt!!!! Frábært að sjá vel þekkt andlit og sem mér þykir einstaklega vænt um!!! Æðislegt að eiga svona dásamlega vini sem leggja krók á leið sína til að hitta mig. Takk fyrir komuna!!!!

Er að spá í að skella mér í rúmið.......... er eitthvað í sjónvarpinu???

Hvað er aftur sjónvarp???
Frú Megabeib

Hvað skal segja???

28. júní 2008 klukkan 16:33
Bara nokkur orð..........

Stóri strákurinn minn er í heimsókn með næst elstu systur sína með sér!!!

Einkadótturinni leiðist það nú ekki.

Einasyninum leiðist það ekki heldur.

Þau fóru út á Siglufjörð að horfa á fótbolta!!

Það snjóaði í fjöllin aftur í nótt!!!

Það er kalt!!!

Mig langar að tjútta!!! Kominn tími á það!!!!
Frú Megabeib

Miðnætursól

25. júní 2008 klukkan 01:18
Fórum í gær að horfa á sólina setjast og rísa svo aftur......... keyrðum alla leið´"út á enda" eins langt og við komumst..... löbbuðum svo lengst uppá fjall........ fundum þúfur með dásamlegu útsýni........... sólin var stórkostleg........ klukkan var rétt um miðnætti þegar við settumst niður.......... þegar sólin var ekki einu sinni farin að snerta sjóinn þegar klukkan var að verða hálf tvö......... fórum við heim!!!! Við ákváðum að koma aftur þegar sólin væri fljótari í förum og myndi kannski setjast á meðan við værum að bíða eftir henni!!!!

Einhvern tímann verðum við að sofa!!!!

Tók geðveikar myndir!!!
Frú Megabeib

Snjór!!!

19. júní 2008 klukkan 01:29
Jú jú það snjóar hérna fyrir norðan!!!!

Ekki það að snjórinn hafi verið farinn úr fjöllunum ....... en nú er búið að bætast við í hann því það snjóaði í dag!!! Ég legg ekki meira á ykkur!!!!

Uli er ekki að ná þessu!!!

Börnin mín eru orðin sólbrún og sæt...... búin að eignast félaga..... dóttirin er sofnuð með vinkonu sinni niðri og sonurinn fékk að gista hjá vini!!!

Ég sé þau nánast ekki!!!!! Dásamlegt!!!!!

Ég er að verða góð í fætinum....... mætti vera duglegri að hvíla mig!!!!! En svona er lífið sem hótelstjóri, þerna, þjónn, þvottakona, innkaupastjóri, uppvaskari, barþjónn og móðir í hjáverkum!!!!

Er voðalega dugleg að sprauta mig sjálf!!! Hélt virkilega að ég gæti ekki gert þetta..... Ási minn sprautaði mig alltaf þegar ég var ólétt af krökkunum..... en mér tekst þetta nú samt....... nú er ég bara komin með ofnæmi fyrir einhverju ........ því þar sem ég sprauta er komin þessi líka fínu upphleyptu rauðu útbrot....... og mig klæjar alveg geðveikislega!!!!!

Kannski ég fari bara að sofa....... 48 í morgunmat á morgun!!!!
Frú Megabeib

Staðið í lappirnar!!!

14. júní 2008 klukkan 23:37
Undanfarið hef ég staðið meira í lappirnar og hlaupið meira en allt síðasta ár held ég!!!!

Eini stóri ókosturinn við þetta allt saman, því það er fínt að hreyfa sig smá, er auðvitað sá að blóðið hefur smá tilhneigingu til að vera full lengi í löppunum. Sem olli því svo að í gær fór ég inná Fjórðungs sjúkarahúsið á Akureyr!!!

Jú jú mín búin að ná sér í eitt stk 7 centimetra langann blóðtappa í hægri kálfann innanverðann!!!

Geri aðrir betur!!!!!

Verð að segja að gærmorguninn var einn sá versti dagur sem ég hef upplifað leeeeeengi....... allar hugsanirnar sem þutu um í kollinum á mér........ er löngu hætt að segja sem svo:" þetta er ekkert mál....... því þetta kemur ekki fyrir mig!!!!" Er búin að læra af biturri reynslu að allt getur komið fyrir alla og líka mig!!!!

Tilhugsunin að ég væri að fara inná sjúkrahús til að láta kanna hvort ég væri ekki með blóðtappa........ þetta vakti vissulega upp leiðindar minningar frá haustinu........ ó hvað mér leið illa.......... Ási minn fór bara inná sjúkrahús með blóðtappa í fætinum......... meira að segja í kálfanum, man ekki hvorum, en það var alveg nóg......... Ási minn kom út af spítalanum með krabbamein og var dáinn 9 vikum seinna....... ó mæ god hvað mér leið illa......... málaði að sjálfsögðu skrattann á alla veggi sem ég fann...........aumingja börnin mín!!! Hvers eiga þau að gjalda!!!!

Vildi ekki hringja í neinn........ vildi ekki hræða neinn........ ég var nógu hrædd og óttaslegin sjálf!!!!

Sagði börnunum bara að ég þyrfti að skreppa inná Akureyri........ sagði þeim ekki hvað ég væri að fara að gera......... það situr svo mikið í þeim að pabbi þeirra hafi farið inná spítala með blóðtappa í fætinum........ ætlaði sko ekki að fara að hræða þau, ef það væri ekki nauðsynlegt.......... þau knúsuðu mig bara og kysstu í bak og fyrir því auðvitað var ég hágrátandi þegar ég fór að segja þeim að ég þyrfti að fara inná Akureyri.

Var ég búin að segja ykkur að kokkurinn minn er æði??? Hann tók ekki annað í mál en fara með mér....... ó mæ god hvað ég varð fegin......... hann er svo dásamlega niður á jörðinni........ rólegur og yfirvegaður......... ég hefði örugglega ekið útaf ef hann hefði ekki verið með........ hefði ekki séð veginn fyrir tárum.......... hann Uli er alveg frábær........ eftir tæplega 4 tíma stopp og skönnun og blóðprufur, keyrði hann til baka........ ég var gjörsamlega búin á því!!!!

Sem betur fer var þetta "góður" blóðtappi ef hægt er að segja það......... fyrst þetta þurfti að vera blóðtappi á annað borð....... hann er sem sagt í yfirborðinu, í bláæðunum..... en ekki í undirborðinu í slagæðunum........... ekki það að þetta sé eitthvað minna vont fyrir vikið!!!!

Svo ég fékk krem og sprautur til að laga þetta eins mikið og hægt er....... þetta verður að fara af sjálfu sér skilst mér!!!! Bíð bara spennt eftir því!!!

Átti svo að sjálfsögðu að taka því rólega og slappa af með lappirnar upp í loft........ en þetta lið gerir sér enga grein fyrir því að ég er að reka eins og eitt stk. hótel!!!!!

En ég kallaði inn auka manneskju í kvöld........... bara af því að ég komst að því að ég er ekki superwoman eins og ég hélt........ ótrúlegt!!!! Búin að sitja eins mikið og ég mögulega get með lappirnar upp í loft hérna í kvöld!!! Verst að ég var búin að gefa öllu staffinu frí þessa helgina.......... það voru engir gestir........... svo kom 9 manna fjölskylda og fleiri og fleiri þannig að nú eru hvorki fleiri né færri en 21 í morgunmatinn......... og ég og Uli sjáum bara um það!!!!! Superwoman!!!!!

Já, já, já, já, já.......... skal fara vel með mig............ lofa!!!!!
Frú Megabeib

Fleiri tíma í sólarhringinn takk!!!!

11. júní 2008 klukkan 00:37
Afhverju er sólarhringurinn bara 24 tímar???? Gæti sko alveg notað flerir tíma þessa dagana.

Það er nóg að gera við að vera hótelstjóri....... I´m loving it!!!!

Fór seint að sofa í gær og svaf illa......... var að hugsa alltof mikið. Þurfti svo að vakna í morgun klukkan 6:50 í morgunmatinn til að hjálpa nýju stúlkunni við að koma öllu á flotta morgunverðarhlaðborðið.
Eftir að vera búin að hjálpa henni........... ákvað ég að skríða uppí aftur....... enda var ég eiginlega stjörf af þreytu!!!!

Hefði sko betur sleppt þvi!!!!

Var komin uppí rúm aftur um 8:20.
Var vakin með símtali klukkan 09:07.......... vá hvað mér brá....... það var kona frá einhverju rafmagnsfyrirtækinu........ hélt bara að það væri eitt ríkisfyrirtæki......... en það eru víst fleiri......... fann engann penna, fann ekkert blað........ enda var ég hálf sofandi!!!!
Þurfti að hlaupa upp í lobbý og finna blað og penna........... var á náttfötunum!!!!!
Var á leiðinni niður til að finna föt til að fara í svo ég gæti farið í sturtu áður en ég færi inn eftir, á Akureyri......... það fylltist allt af fólki......... og ég enn á náttfötunum með hárið allt út í loftið!!!!! Ekki gott mál......... leit ekki mjög hótelstjóralega út!!!!!
Tókst að leysa vandamálin sem voru komin upp....... enn í náttfötunum!!!!
Komst inná Akureyri um 12:30, þá komin úr náttfötunum og búin að fara í bað.
Pústið á bílnum er eitthvað skrítið....... hefur hærra en það á að gera!!!!
Fór á handahlaupum í gegnum Akureyrarbæ.......

Ætla ALDREI að fara aftur upp í rúm þegar ég er á annað borð vöknuð!!!!
Kannski það þýði það að ég þurfi að fara fyrr að sofa!!!!

Hvar finn ég fleiri tíma í sólarhringinn????
Frú Megabeib

Börnin mín eru komin!!!

08. júní 2008 klukkan 00:28
Dásamlega dásamlega dásamlegt!!!!

Börnin mín eru komin til mín!!!!! Vantar núna bara Ása minn......... þá væri lífið fullkomið!!!!
Finnst ennþá alveg ferlega skrítið að ég eigi aldrei eftir að sjá hann aftur......... tala við hann.........tala oft við hann í huganum .... og upphátt í bílnum.......... en það er ekki eins og að hafa hann hjá mér!!!! Alveg ferlega undarleg tilfinning!!!!

Bara svona fyrir þá sem eru forvitnir.......... þá er kokkurinn minn æðislegi, hamingusamlega giftur í Brasilíu og á þar eitt stk. konu og tvö stk. börn!!!!! En hann er samt ÆÐI!!!!

Ein sagði við mig í dag: " ..... ég er viss um að þið munið enda saman áður en sumarið er búið!!!" ......... ég sagði við hana að það væri sko ekki inni í myndinni......... en það væri fínt ef allir hérna héldu það............ þá fengjum við bara að vera í friði!!!!! Undarlegt hvað fólk þarf að hafa áhyggjur af því ef það er einhver sem er bara einn!!!! Má maður það ekki bara í friði????? Ef það er það sem maður vill????

Minnir kokkurinn mig alveg svakalega mikið á Uno vin minn.......... bara spilar ekki með hinu liðinu.............. enda kalla ég hann oft Uno......... hann heitir Uli!!!!!

Vorum með stórann hóp hérna í kvöld......... eldri borgarar......... ooohhh þetta er svo flott fólk!!!! Ég ætlaði einmitt að verða svona flott fólk með Ása mínum......... vorum sko alveg búin að skipuleggja það!!!! Skrítið að eiga ekki eftir að hitta hann aftur!!!! Er bara ekki að ná þessu!!!! Lífið er undarlegt!!!!

Ein starfstúlkan spurði mig í dag: "er langt síðan þú skildir???" ég svaraði: " ég er ekki skilin!!" ..... hvað á maður að segja........ ég er jú einstæð móðir...... eins mikið og ég hata það nú......... þá er ég það víst samt!!! Stúlkan varð náttúrulega undarleg á svipinn og svo spurði hún varfærnislega: " hvar er pabbi krakkanna???" hún var semsagt ekki alveg að skilja þetta!!!! Ég sagði henni að hann væri dáinn.......... hún varð ferlega undarleg....... ég eiginlega vorkenndi henni smá......... en kannski kennir þetta henni að vera ekki með nefið ofan í hvers manns koppi.......... hún er eiginlega óþolandi forvitin!!!!

Krakkarnir eru að fara í Hrísey á morgun.... gott að eiga góða vinkonu ....... það á að vígja sundlaugina þar........ það verður aldeilis gaman fyrir þau!!!! Væri eiginlega alveg til í að fara með þeim......... sé til hvað ég get gert......... kannski kemst ég bara!!!!

Farin að sofa hjá börnunum mínum......... við erum með 3 rúm........ settum þau öll saman......... sofum í einni flatsæng!!!! DÁSAMLEGT!!!!!
Frú Megabeib

Gaman.......

04. júní 2008 klukkan 16:41
......

Héðan af Dalvíkinni er allt gott að frétta......... mikið að gera og er það bara ferlega gaman.........

...... Í dag verður tekin ákvörðun um hvenær börnin mín koma.........

.................... kokkurinn er ÆÐI...................

......þernurnar mínar voru einmitt að tala um það í morgun hvernig hann færi eiginlega að þessu...... hann er búinn að hreinsa allt útúr eldhúsinu sem hann þarf ekki að nota.......... hafa þær aldrei séð eldhúsið svona tómt........... samt skilja þær ekki hvernig getur staðið á því að hann getur galdrað fram hvern gómsætann réttinn á fætur örðum!!!

........kokkurinn er ÆÐI............

Fyrsta "alvöru" daginn minn þá kallaði ég allt starfsfólkið saman á fund svo við gætum séð hvert annað og hélt smá fyrirlestur um Fosshótel og um starfsemina og hvernig ég vildi að hótelið yrði í sumar........
........... allir eru búnir að skila ráðningarsamningunum svo það fældi þau allavega ekki frá........... en kokkurinn bauð okkur uppá mat........ FISKISÚPU........ mér fannst hann kaldur að þora því......... en hún var að sjálfsögðu jafn hrikalega góð og allt annað sem kemur úr eldhúsinu hjá honum!!!!

............... farin að vinna.............

...........og já bara svona bæta því við að KOKKURINN ER ÆÐI!!!!!!!

Frú Megabeib

Jíííííí.........

02. júní 2008 klukkan 22:50
Allt brilljandi gott að frétta hérna hjá mér....... þetta er bara gaman......... nóg að gera og "fuld gang i den".

Er á leiðinni í rúmið........ fór að sofa í gær þegar sólin var að koma upp.......... !!!! eða reyndar aðeins seinna..... um 3:30, vaknaði svo eldhress í morgun í morgunmatinn klukkan 8:00!!!!

Sendi reyndar póst á framkvæmdarstjórann minn áður en ég fór að sofa....... hann sendi hann svo áfram á alla hjá Fosshótel...... átti kannski ekki alveg von á því....... en .......... það er bara frábært........ búin að fá fullt af jákvæðum kommentum til baka!!!

Kokkurinn minn er ekki alveg að fatta það að það verði ALDREI myrkur!!!! Var ég búin að segja ykkur að hann er ÆÐI!!!!!

Kveðja úr miðnætursólinni á Dalvík.
Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar