17. júlí 2008 klukkan 20:36
Vildi að það væru fleiri tímar í sólarhringnum!!!
Vildi að ég gæti sofið meira!!!
Vildi að maðurinn minn væri hjá mér!!!
Vildi að ég væri jákvæðari!!!
Vildi að ég væri ekki svona uppgefin!!!
Vildi svo margt annað sem ekki er hægt!!!
Er heppin að ég á svo góða vini.
Er heppin að ég á svona yndislega fjölskyldu.
Er heppin að börnin mín eru eins dásamleg og þau eru.
Er samt ferlega þreytt og uppgefin....... væri líka til að detta rækilega í það!!!!
15. júlí 2008 klukkan 11:40
.................á afmæli í dag!!!!
Ég er bara heppnasta mamma í öllum heiminum að eiga svona yndislega stúlku eins og hana!!!
Það er rigning úti en við erum með sól í hjarta og bros á vör.
08. júlí 2008 klukkan 17:43
Sjáum til sólar aftur!!!!
Mikil þoka hefur hrjáð okkur undanfarna daga!
Börnin eru á hestanámskeiði........ finnst frekar mikið gaman....... yndislegt!!!
Gestirnir mínir farnir...... sniff sniff........ vildi að ég hefði haft meiri tíma fyrir þau.........
Á jafnvel von á Fimmum í heimsókn um helgina........ kannski ég hafi meiri tíma fyrir þær!!! Vonandi!!!
06. júlí 2008 klukkan 16:15
Jú jú..... Uli mætti út á flugvöll til að ná í Tékkana.......... engir Tékkar!!!! ............ engin flugvél!!!!!
Sem betur fer var góður vinur minn hér í heimsókn þannig að hann gat frætt mig á því að það sé verið að gera við á Akureyrarflugvelli svo vélin hafi væntanlega lent á Egilsstöðum!!!!!
Svo mikil leit hófst að Tékkunum!!! Ekki gott að vera týndur á Íslandi!!!!
Þeir fundust og eru núna á leiðinni frá Egilsstöðum til Akureyrar með rútu!!!! Greyin!!!! Þurfa að hristast þar í 4 tíma..... en fá þá að sjá eitthvað af landinu okkar fagra á leiðinni!!!!
Verst að þau eru þá að koma til Akureyrar um leið og stóri hópurinn minn er að koma hingað til mín á hótelið!!!! Sem betur fer á maður góða vini og mér skilst á þessum tiltekna vini mínum að vinir séu til þess að hjálpa manni, svo hann bauðst til þess að ná í Tékkana mína á flugvöllinn og skutla þeim til mín!!!!
Það er nóg að gera sem hótelstjóri......... þó hótelið sé lítið!!!!!
Viktoría var veik í gær.......... drakk mjólk ........... má ekki gera það þar sem hún er með mjólkuróþol blessunin!!!! Hún er orðin hress í dag.......... sem betur fer!!!!
Þarf að reyna að fylgjast betur með fréttum.......... þá kannski týni ég ekki fólki........... hvað þá Tékkum!!!!
04. júlí 2008 klukkan 12:55
Réði bara 2 tékka!!!
Jú jú rasistinn sjáfur....... réði Tékka!!!! Þetta er par og hljómar bara ferlega vel....... nenni ekki þessu lokal dæmi lengur!!!!
Þannig að nú gengur allt betur!!!!
Viktoría fór á sjó í gær........ veiddi 2 ýsur......... Uli eldaði þær handa okkur í gærkvöldi......... ummmmmmm ..... við erum forréttinda fólk!!!!
03. júlí 2008 klukkan 11:10
Mér finnst ég ekki gera neitt nema einhverjar vitleysur hérna.
Þoli það ekki hvað ég er illa undir þetta starf búin.
Dagurinn byrjaði ekki vel...... ein af þernunum mínum hætti........ sagði að þetta væri of mikil vinna fyrir hana........ hvað er fólk að spá....... hún var hérna í fyrra og ætti alveg að vita hvað hún er að fara út í!!!!
Svo hringdi hin sem hætti um daginn, það var líka allt í lagi að hún hætti....... ég hefði rekið hana ef hún hefði ekki hætt......... og vildi fá uppsagnarfrestinn borgaðann...........!!!! Sem hún á að sjálfsögðu rétt á....... en ef ég væri betur undir þetta búin að einhver hefði getað sagt mér að hún ætti að fá hann greiddann........ hefði ég sko látið hana vinna uppsagnarfrestinn!!!!
Og klukkan er ekki einu sinni orðin hádegi!!!!! Var þetta allt saman búið að ganga á fyrir klukkan 9:30 í morgun.
Núna langar mig allra allra allra ALLRA mest að skríða upp í rúm og hágráta!!!!
Hef enga orku, er þreytt, og finnst VIRKIKLEGA ekkert vera að ganga upp!!!!
Hafði það á tilfinningunni í fyrradag að þetta væri nú allt að koma og ég væri að botna í djúpu lauginni......... það var dásamleg tilfinning......... hún er ekki til staðar lengur!!!!
Ég veit að ég er neikvæð ........... get ekkert að því gert og langað að tjá mig og koma þessu frá mér í þeirri von að ég yrði skárri í skapinu!!!
01. júlí 2008 klukkan 17:25
Blessuð börnin mín fengu þá flugu í höfuðið í gær að það væri frábær hugmynd að skella sér í sund í morgun klukkan 6:30!!!! Sundið opnar klukkan 06:15.
Þau fóru í sund og syntu um það bil einn kílómeter!!! Hvort!!!!
Strax á eftir þá fóru þau í kofagerð.
Svo fór einkadóttirin á leikjanámskeið.
Brjálað að gera!!!!
Núna klukkan 17:23 er prinsessan mín sofnuð hérna á bakvið hjá mér í lobbýinu........ á gólfinu!!!!! Gjörsamlega uppgefin!!!!
Það er búið að elda handa mér og mínum kvöldmat....... herbergið mitt var þrifið í dag........ klósettið var þrifið........ vantar núna bara einhvern sem tekur að sér þvottinn.........
Getur lífið orðið þægilegra???