31. ágúst 2008 klukkan 12:20
0 dagar!!!
Í dag er brottför!!!
Ég á allra, allra, allra bestu vinkonur í heiminum!!!!
Hefði aldrei getað kárað þetta án þeirra.
Ég er svoooooo heppin að eiga þær að.
Takk, takk, takk, takk, takk.
26. ágúst 2008 klukkan 16:10
............... til jóla!!!!
5 dagar eftir að dvölinni hérna!!!!
Hjól barnanna minna á leiðinni til Reykjavíkur, gott að eiga góða að...........
Samkvæmt áræðanlegum Dalvískum heimildum er ég búin að vera að sofa hjá Uli í allt sumar ......... hmmmmmm
Svona í alvöru talað......... hvert á ég að fara um jólin??????
24. ágúst 2008 klukkan 12:39
Ísland með silfrið í handboltanaum.......... bara flott.........
Það er ár síðan martröðin hófst............ vildi svo gjarnan að ég færi að vakna...........
22. ágúst 2008 klukkan 09:42
Þá er frúin orðin ein í koti karls!!!!
Eða þannig..............
Börnin farin.
Uli farinn.
Framundan er frágangur og þrif.
Svo á ég von á heimsókn!!!! Bara gaman!!!!
20. ágúst 2008 klukkan 09:34
Þá er þessu alveg að verða lokið.
Alltaf nýtt drama á þessu blessaða hóteli......... veit eiginlega ekki hvað er í gangi.......... er mikið að íhuga að nú sé þetta komið nóg hjá mér og ég þurfi bara að drífa mig heim með börnunum á morgun....... ég er löngu búin að komast að því að ég var einstaklega illa búin undir þetta starf og hef þurft að læra alltof mikið af reynslunni....... og nú er bara komið nóg.
Ég er baráttukona og gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana, en nú er komið að síðustu lotunni í þessari hnefaleikakeppni hjá mér og finnst mér ég hafa verið undir nánast allann leikinn!!!! Ég finn að baráttuþrekið fer þverrandi og ekki er langt í að ég gefist upp og leggi boxhanskana á hilluna og þakki fyrir þennan leik.
Hvað ég eigi að gera í stöðunni sem komin er upp núna getur enginn svarað mér. Þrátt fyrir yndislegar vinkonur sem lánuðu mér eyrað sitt til að ég gæti röflað í það ......... þá hef ég ekki hugmynd um hvað ég á að gera núna!!! Vildi að Ási minn væri hérna hjá mér til að gefa mér ráð, hann var alltaf svo niðri á jörðinni og raunsær....... kannski ég þurfi hann núna til að segja við mig:"þegar fíflunum í kringum þig er farið að fjölga, þá er kominn tími til að líta í eigin barm!" eins og ég þoldi það ekki þegar hann sagði það, sakna hans......... eru það mest megnis tvö fífl sem eru í kringum mig núna........ vonandi fer þeim ekki fjölgandi........ finn eflaust einhverja lausn á þessu vandamáli núna....... tekst það nú alltaf að lokum......... hvort það sé svo góð lausn er svo annað mál!!!
Ísland komið í fjögurra liða úrslit........ minn maður hefði sko vaknað í morgun til að horfa á leikinn........ öskrað og æpt og klappað og stappað.......... í einu skiptin í rauninni sem hann virkilega skipti skapi ......... því hann var með alveg yndislegt jafnaðargeð........ hann var jinginn minn og ég jangið hans!!!!
18. ágúst 2008 klukkan 20:07
Þoli ekki klósettrúllur á almennings salernum!!!!
Stórar rúllur sem maður finnur ALDREI byrjunina á!!!!
Maður hangir þarna á hækjum sér (því maður sest ekki á klósettið á almennings salernum) og hamast við að finna endann á rúllunni........ ekkert gengur........ snýr hring eftir hring...... þoli þetta ekki!!!!!!!
......... bara svona í tilefni dagsins!!!!!
16. ágúst 2008 klukkan 15:35
Jú jú....... bara 15 dagar eftir...... fljótt að líða........ seinasta vikan þar sem allir eru hér.
Börnin fara á fimmtudaginn.
Uli fer á sunnudaginn.
Þannig að það verður tómt í koti karls þegar þau eru öll farin.
En kannski bara fínt..... nóg að gera við að ganga frá og koma öllu í rétt horf fyrir veturinn.
Svo kemur það bara í ljós hvað ég geri eftir 15. daga!!!!
.........eða hvað ég geri um jólin.
14. ágúst 2008 klukkan 21:12
Hmmmm.........
Þar sem enn eru nokkrir dagar þangað til ég kemst til stórborgarinnar ákvað ég að hafa vaðið fyrir neðan mig og hringja og panta tíma hjá öllum þessum læknum sem ég þarf nú að fara til..... eins og mér þykja nú læknar og rannsóknir og spítalar og allt sem því nú fylgir skemmtilegt.........
Hringdi í heimilislækninn.
Ég: "góðan dag, ég var að velta því fyrir mér hvort þú gætir gefið mér upp nafnið á einhverjum góðum þvagfæralækni"
Læknirinn: " dag..... afhverju þarftu að fara til þvagfæralæknis??"
Ég: "uuuuu..... afþví ég er með vandamál í sambandi við blöðruna sem mér þætti gott ef einhver læknir gæti kíkt á"
Læknirinn: "phu...... ég veit ekki afhverju þú ert að hringja í mig til að fá upplýsingar um þetta"
Ég: "uuuuu..... afþví að ég gerði ráð fyrir að þú gætir gefið mér upplýsingar um aðra lækna, ekki fæ ég þær upplýsingar í 118 eða á skiptiborðinu hérna hjá þér"
Læknirinn: "puh.... þú getur bara hringt inní Glæsibæ, þar er einhver hellingur af læknum sem þú ættir að geta fengið tíma hjá"
Ég: "uuuu...... já ok........ einhver sérstakur sem þú mælir með, eða???"
Læknririnn: "nei, en ertu viss um að þetta sé þvagblaðran, þarftu ekki bara að fara til kvensjúkdómalæknis?"
Ég: "uuuuu..... nei það held ég alveg örugglega ekki þar sem blaðran er að hrjá mig en ekki legið!!!"
Læknirinn: " þú getur þá bara hringt þarna inní Glæsibæ"
Ég: " já takk fyrir. En svo vantar mig líka að vita um einhvern blóðmeinafræðing, til hverns á ég að fara eða eru þeir líka inní Glæsibæ?"
Læknirinn: "puh ekki veit ég nú til hvers þú ert að fara til blóðmeinafræðings"
Ég: "uuuuu..... afþví að ég er búin að fá blóðtappa tvisvar í fótinn í sumar"
Læknirinn: "puh..... jú þú getur svo sem hringt uppí Læknasetrið, það eru einhverjir blóðmeinafræðingar þar"
Ég: "einhver sérstakur sem þú mælir með?"
Læknirinn: "nei ....... hringdu bara þangað síminn er: xxxxxxx"
Ég: " allt í lagi, takk fyrir"
Og svo er fólk hissa á því afhverju ég fer ekki til læknis!!!!! Nenni ekki að tala við þetta lið......... þið verðið að fyrirgefa!!!!
12. ágúst 2008 klukkan 11:42
Þarf að fara til læknis......... veit ekki hvert ég á að fara......... þvagfæralæknir........ allar uppástungur vel þegnar!!!!
Þarf að fara til læknis...........veit ekki hvert ég á að fara.......... blóðmeinafræðings.......... allar uppástungur vel þegnar!!!
Þarf að fara til sólarlanda........... veit ekki hvert ég á að fara......... um jólin......... allar uppástungur vel þegnar!!!!
Þarf að fá vinnu í vetur.............. veit ekki hvað ég á að gera........ í framtíðinni............ allar uppástungur vel þegnar!!!
10. ágúst 2008 klukkan 16:44
Fiskihelgin mikla liðin, stopp!!!!
Mikið af fólki, stopp!!!!
Frábær flugeldasýning, stopp!!!
21 dagur þangað til sumarvertíðinni er lokið, stopp!!!
Ætla að leggjast fyrir framan sjónvarpið, stopp!!!!
Langar til sólarlanda, stopp!!
06. ágúst 2008 klukkan 09:16
........ einungis 25 dagar eftir af veru minni hérna!!!
Já ég er sko sannarlega farin að telja niður!!! Ég þykist vera með jafnaðargeð og held að oftast allavega er ég glöð og reyni að vera ánægð. En þegar þolinmæði mín er þrotin og ég hef verið beitt óréttlæti eða verið logið uppá mig......... þá verð ég líka reið og missi mig........ oftar en ekki vð fólkið sem ekki á það skilið, sem er aftur svo önnur saga!!!!
Að hafa krakkaskíta (afsakið orðbragðið) í vinnu sem ekki nenna/kunna að vinna og ekki er hægt að leiðbeina þeim!!!
Að hafa krakkaskíta í vinnu sem mæta með fartölvuna sína með sér í vinnuna og finnst ég bara vera gribba fyrir að banna þeim að hafa tölvuna í vinnunni!!!! Þau þurfa að hlusta á tónlist!!!!!!
Að hafa krakkaskíta í vinnu sem sitja og smyrja morgunmatinn sinn þegar vantar að fylla á kaffi og te fyrir gestina!!!! Og finnst það bara allt í lagi........ þau þurfa að borða líka!!!!
Að hafa krakkaskíta í vinnu sem standa bara með krosslagðar hendur og horfa á mann og bíða eftir því að þeim verði sagt hvað þeir eigi að gera næst!!!!
Að hafa krakkaskíta í vinnu sem sitja uppá borði af því þeir finna ekkert að gera en það vantar samt að sjóða egg og setja þau fram á borð, en dettur ekki í hug að gera það því kokkurinn sauð ekki eggin!!!!
............. þetta er ekki fyrir hvítann mann!!!!! Gott að ég hef aldrei verið maður......... og er alltaf frekar brún!!!!
Þetta er unga fólkið í dag.......... það sem á að erfa landið.......... ég sé eiginlega ekki fyrir mér hvernig þessi ósköp enda!!!!!
Ekki það að fullorðna fólkið hérna í bænum sé neitt skárra........ jú það er duglegra að vinna og veit hvað það á að gera næst. En það er líka duglegra að finna allt að öllu og MIKLU duglegra að baktala, snúa við, snúa útúr, snúa við og ég veit ekki hvað og hvað.
Þolinmæði mín á þrotum gagnvart þessum bæ og fólkinu í honum.......... bíð eftir að komast héðan í burtu.......... því fyrr því betra!!!!!
Börnin eru komin á nýtt hestanámskeið........leiðist það sko ekki.
Það er komið nýtt þorp hérna í þorpið!!! Tjaldsvæðið er orðið kjaftfullt og hljóp ég út í Kaupfélag og keypti garn og spítur til að girða hótelið mitt af svo gestirnir mínir fái kannski smá privacy!!!!
Er farin að vinna!!!!
02. ágúst 2008 klukkan 09:34
Héðan af dramahóteli er allt gott að frétta........ margir hættir og nýjir komnir í þeirra stað..... ótrúleg þessi smábæjarpólitík........ hélt nú að ég hefði verið búin að prófa allt með því að búa í Slúðurborg......... en nei ónei........næstum því hægt að segja að Slúðurborg sé hátíð og komist ekki með tærnar þar sem þetta samfélag hérna hefur hælana!!!!!
Nýji uppvaskarinn minn sagði við mig um daginn:" að vinna hérna er eins og að vera í hlultverki í sápuóperu...... maður veit aldrei hvað gerist!!!!" og ég svaraði honum því bara til að það væri svo gott að við skrifuðum handritið sjálf og það væri undir okkur komið að gera þetta að gamanþáttum!!!
Afhverju kunna unglingar og fólk á tvítugsaldri ekki að vinna??? Þetta eru allt litlir kóngar sem taka ekki tilsögn og halda að verið sé að ráðast á þau persónulega ef verið er að reyna að kenna þeim að vinna!!! Alveg ótrúlegt.......
En nú þegar er ég búin að læra helling og ætla að læra helling í viðbót....... ég verð bara betri manneskja fyrir vikið!!!!
Börnin mín eru glöð og ánægð..... leiðist samt smá......... allir krakkarnir hérna náttúrulega í sumarfríi og einhversstaðar í burtu, eða með gesti!!! En þau sváfu í tjaldi í nótt og eru alsæl með það......... dóttirin getur enn ekki skilið hvernig ömmu hennar og afa datt í hug að selja tjaldvagninn!!!!!
Ef einhverjum vantar eitthvað að gera um næstu helgi, áttunda ágúst, þá vantar mig fólk í veitingasalinn hjá mér!!!
Hótelið er fullbókað en nóg er af tjaldstæðum hérna fyrir utan hjá mér!!!!!.......... og ég á tjald!!!!