Einu sinni var ung stúlka (eða kannski ekki svo ung) sem fór í Bónus. Var hún að versla inn fyrir fjölskylduna sína almennar matvörur. Unga stúlkan er frekar ómeðvituð um matarverð almennt, en kann að bera saman verð og kíkir vel eftir þegar það eru auglýst tilboð og leggur oft á sig krók til að verða sér út um það sem virðast vera bestu tilboðin. Enda ekki vanþörf á því í þjóðfélagi þar sem þú borgar alveg örugglega ekki of lítið fyrir vörurnar sem þú ert að versla.
Þar sem unga stúlkan stóð í Bónus blasti við henni skilti sem á stóð: " 2 PK 198.-" Var þetta skilti einnig merkt: "tilboð". Fannst ungu stúlkunni þetta vera einstaklega gott tilboð og mundi hreinlega ekki eftir því að hafa nokkurntíman séð svona gott tilboð á Íslandinu góða. Var tilboðið á annars mjög óhollu Toffýpops kexi, en unga stúlkan gat ómögulega hamið sig, svo gott var tilboðið. Greip hún höndum tveim tvo pakka og skellti í innkaupavagninn hjá sér himinlifandi yfir að hafa loksins rekist á svona gott tilboð, þó það væri á vöru sem hún er ekkert sérlega hrifin af. Unga stúlkan gekk af stað en fór svo að hugsa:"kannski getur þetta ekki verið. Pakkinn er jú tvöfaldur. Gæti verið að það sé bara verið að auglýsa að tvöfaldur pakki kosti 198.- kr."
Til að taka af allan vafa ákvað unga stúlkan að leita að starfsmanni til að fá úr þessu skorið svo hún stæði nú ekki í stappi þegar að kassanum væri komið. Því fátt er leiðinlegra en þegar það er vesen hjá kössunum. Ungu stúlkunni til mikils happs fann hún starfsmann fljótt. Ekki spillti það fyrir að starfsmaðurinn var íslenskur í húð og hár, þó ungur væri að árum. Staðfesti hann við ungu stúlkuna að þetta væru tveir pakkar á 198.- kr. Unga stúlkan var svo ánægð með að hafa landað þessu góða tilboði að hún sporaði varla. Þó svo að henni þyki kexið ekkert sérstaklega gott og hefur aldrei keypt sér svona kex áður.
Kláraði unga stúlkan innkaupin og sveif svo í röðina til að borga vörurnar og kexpakkana góðu sem kostuðu bara 198.- kr. Við kassann var ung kassadama sem var af öðru þjóðerni en íslensku og talaði ekki íslensku eins og svo margir aðrir starfsmenn Bónusverslananna. Þegar röðin kom að kexpökkunum tveimur renndi unga kassadaman pökkunum tvisvar í gegn! Sem sagt að hvor pakki um sig kostaði 198.- kr.
Það runnu tvær grímur á ungu stúlkuna. Var hún ekki búin að spyrja að því hvort þetta væri ekki rétt verðmerkt? Afhverju renndi hún þá pökkunum tvisvar í gegn? Unga stúlkan taldi bara að unga kassadaman hefði gert mistök og benti henni á að þetta væri ekki rétt hjá henni, það stæði inni í búð að það væru 2 pakkar á 198.- og brosti allann hringinn. Neitaði kassadaman þessu, en eftir að unga stúlkan hafði sagt það aftur með bros á vör að þetta stæði nú samt inni í búð, þaut kassadaman af stað til að staðfesta frásögn ungu stúlkunnar.
Var unga stúlkan ánægð með þessi viðbrögð og vissi í hjarta sínu að þegar kassadaman kæmi til baka þá yrði þessum misskilning eytt og hún myndi borga 198.- kr. fyrir sína tvo pakka eins og stóð á skiltinu. Það var öðru nær. Þegar kassadaman kom til baka þá sagði hún að það væri einn pakki á 198.-
Neitaði unga stúlkan þessu og brosti sínu blíðasta. Fór þá kassadaman aftur og náði í ungan íslenskan pilt sem virtist vera yfirmaður verslunarinnar þann daginn.
Hófst þá sami leikurinn að nýju. Ungi yfirmaðurinn fór inn í búð, kom til baka, sagði að pakkinn væri á 198.-, unga stúlkan neitaði og sagði að það stæði alls ekki heldur stæði að 2 pakkar væru á 198.-. Fór ungi yfirmaðurinn þá aftur í burtu, unga stúlkan taldi víst að hann væri að tala við sinn yfirmann.
Unga stúlkan brosti til annarra viðskiptavina sem stóðu í röðinni og tjáði þeim að þetta gæti tekið smá tíma, eflaust væri betra fyrir það að finna sér annan kassa.
Ungi yfirmaðurinn kom til baka og tjáði ungu stúlkunni að hann hefði talað við verslunarstjórann og sá hinn sami hafi sagt að verðið væri 198.- kr fyrir pakkann!!
Óskaði unga stúlkan þá eftir því að fá að tala við verslunarstjórann. Var verslunarstjórinn ekki við þennan dag en henni bauðst að tala við hann í síma sem hún þáði.
Samtalið við verslunarstjórann var langt. Voru unga stúlkan og verslunarstjórinn alls ekki á sama máli um hvað 2 pk 198.- þýddi. Verslunarstjórinn fræddi ungu stúlkuna á því að á Íslandi væri aldrei svona tilboð. Það væri eitt verð fyrir eina vöru, aldrei tvær vörur. Unga stúlkan tjáði honum að þessir viðskiptahættir ættu sér stað víða um heim. Fannst honum það ekki skipta máli þar sem við værum á Íslandi og þetta væri aldrei gert hér. Hann tjáði henni jafnframt að auglýst verð væri´"tú pakk". Fannst ungu stúlkunni skrítið að það væri hægt að auglýsa á ensku á Íslandi. Verslunarstjóranum fannst það ekki. Eftir því sem leið á samtalið fór að þykkna ansi mikð í ungu stúlkunni, því verslunarstjórinn virtist alls ekki starfi sínu vaxinn. Taldi unga stúlkan ef auglýst væri 2 pakkar af einhverju ættir þú undantekningarlaust að geta haldið á einum pakka í hvorri hendi. Fannst verslunarstjóranum þetta væri aukaatriði þar sem um væri að ræða tvöfaldann pakka. Var unga stúlkan hjartanlega sammála verslunarstjóranum að um væri að ræða tvöfaldan pakka og þar af leiðandi ætti tilboðið að hljóma uppá "tvöfaldur pakki á 198.- kr". Spurði unga stúlkan hann þá hvort hægt væri að auglýsa hvað sem væri inni í búð og svo þegar á kassann væri komið væri bara eitthvað allt annað verð! Taldi verslunarstjórinn ekki að það væri gert. Væri þetta tilboð á kexinu búið að vera í meira en viku en unga stúlkan væri sú eina sem hefði misskilið þetta tilboð. Þegar hér var komið sögu var verslunarstjórinn farinn að hlæja að ungu stúlkunni og fræða hana á því að tíminn sem hún hefði eytt í þetta klag væri meira virði en 198.- kr. Unga stúlkan svaraði því til að þetta væri prinsipp mál, hann ætti að auglýsa vöruna rétt! Gerðist verslunarstjórinn dónalegur og spurði ungu stúlkuna að því hvort þetta væri falin myndavél eða eitthvað annað gabb. Þá fannst ungu stúlkunni fokið í flest skjól og óskaði eftir því við verslunarstjórann að hann gæfi henni nafnið sitt þar sem hún hyggðist tala við hans yfirmenn, hann hafði ekki haft fyrir því að kynna sig þegar samtal þeirra hófst, þrátt fyrir að unga stúlkan hefði kynnt sig með nafni. Lok símtalsins varð á þá leið að verslunarstjórinn sagði:"ég skal bara gefa þér þennan pakka".
Unga stúlkan fór fram að kassanum þar sem kassadaman stóð og fékk sína 2 pk á verði eins!!!!
Unga stúlkan fór heim og fannst hún ekki hafa unnið sigur neytandans þar sem verslunarstjórinn var svo miskunnsamur að "gefa" henni pakka númer tvö. Gerði unga stúlkan smá könnun á meðal fólks sem hún virðir skoðanir hjá og eru neytendur eins og hún. Var algeng skoðun þeirra að 2 pk. þýddi að það stæði til boða að kaupa 2 pakka af vörunni á auglýstu verði.
Unga stúlkan sagði sögu sína víða og heyrði til baka margar sögur af því að í verslunum væri oft auglýst verð alls ekki það sama og það sem greiða ætti þegar á kassann væri komið.
Veltir unga stúlkan því fyrir sér hvort það geti verið að íslenskir neytendur séu virkilega svona heimskir að þeim finnist allt í lagi að láta hafa svona af sér peningana. Kannski eiga bara allir nóg af peningum og er bara alveg sama þó þeir borgi meira en þeir eiga að gera samkvæmt tilboðum og auglýstu verði. Unga stúlkan er ekki í þeim hópi.
Þar sem unga stúlkan hefur ekki hug á að sýna sig í þessari Bónusverslun á næstunni, fór hún í aðra nokkrum dögum síðar. Þar var tilboð á Toffýpops kexi. Þar stóð:
Tilboð! Toffypops stór pakki 139.- Bónus raunhæf kjarabót fyrir alla.
Fyrst af öllu langar mig að þakka Guðrúnu og Beggu sérstaklega fyrir góð ráð í kvittinu í síðustu færslu...... alveg einstaklega gott að einhver geti sett hlutina svona í samhengi fyrir mann og komið með svona einfaldar lausnir ........ ráðin virkuðu...... ég er búin að finna hekludótið!!!!!!
Ég held að það sé búið að rigna í það minnsta í viku ef ekki hálfan mánuð hérna megin á Klakanum!!!! Er bara ekki vön allri þessari rigningu ........ það hefur sko ekki rignt á mig svona mikið í allt sumar!!!!! En þeir sem þekkja mig vita að ég er nú ekki að láta veðrið á mig fá........ þetta er einn af þessum hlutum sem maður getur ekki breytt og tekur því bara ekki að ergja sig á þeim...... veðrinu puh...
En nú er ég búin að vera að bíða eftir að þessari votveðra tíð taki nú einhvern enda!!!! Ég er nefnilega að bíða eftir því að geta farið út og spreyjað klósettsetuna!!!!! Get nefnilega ekki spreyjað hana neinsstaðar annarsstaðar en úti á svölum og get ég ekki gert það ef það rignir endalaust!!!!
Ég er semsagt búin að taka klósettið í gegn og þykir mér það alveg einstaklega flott núna........ vantar bara nýju klósettsetuna þá er þetta fullkomið!!!!!
Fór að leita að klósettsetum......... Ó MÆ GOD!!!! Vitið þið hvað klósettsetur kosta????? Vantaði sko A-Z til að geta farið og keypt einhverja flotta gegnsæja!!!! En því er nú ekki fyrir að fara á Íslandinu góða að maður geti fengið einhverjar flottar klósettsetur........ það ódýrasta sem ég fann þegar ég fór í byggingarvöruverslunina (eins gott að Bauhaus er að koma hingað!!!) var eitt stk. plastseta uppá 6.500.- krónur!!!!! Finnst ykkur þetta eðlilegt???? Það voru til klósettsetur á 16.900.- og allt uppí 22.400.- !!!!! Fyrir klósettsetu!!!! Ég legg ekki meira á ykkur!!!! Kaupir fólk í alvöru klósettsetu fyrir 22.400.-???? Veit að maður getur fengið heilann sófa á tilboði í Jysk fyrir 23.900.-!!!!
Neitaði að sjálfsögðu að láta ræna mig um hábjartann dag......... svo ég fór á milli verslana og endaði á að finna eina alveg stórfína í IKEA fyrir einungis 695.- krónur......... sem nú bíður þess að verða sprautuð!!!!
Vantar bara að það hætti að rigna........ ætli klósettsetan stjórni þessu?????
........ welllllll.......... sá að þeir eru að auglýsa eftir nýjum forstjóra hjá Landsvirkjun........ var að hugsa um að sækja um......... engar stöður heilaskurðlækna lausar!!!!
........nenni ekki að uppfæra ferilsskrána mína........ finnst það bara leiðinlegt!!!!
.........veit einhver um hekludótið mitt???? Held ég sé búin að týna því ....... shit!!!!!
Inn um lúguna hjá mér í dag duttu nokkur bréf. Í sjálfu sér ekki frásögu færandi..... það eiga það til að koma bréf hingað!!! Eins og á flest öll önnur heimili.
Á meðal bréfanna leyndist flott umslag. Var umslagið gegnsætt. Var þetta markpóstur, auglýsingapóstur frá Almenna lífeyrissjóðinum. Eflaust komið svona flott umslag inná mörg heimili í dag, þar sem öllum sjóðsfélögum Almenna lífeyrissjóðsins var sendur svona umslag.
Innan í gegnsæja umslaginu var annað blátt umslag þar sem mátti lesa stórum stöfum: "Lykill að góðri framtíð" og innan í bláa umslaginu leyndist glaðningur...... USB lykill með kynningarmyndbandi sem lýsir því að myndrænan hátt hvernig Lykillinn (að góðri framtíð) hjá Almenna lífeyrissjóðnum virkar.
Er þetta mjög persónulegt bréf þar sem þér er sagt frá hvernig þú notar þennan fína lykil að góðri framtíð og hverng þú getur nú fylgst með stöðu þinni hjá sjóðnum og þar getur þú séð hvort þú sért að spara nóg eða hvort þú sért að spara of lítið til að tryggja þér ásættanleg eftirlaun.
Þetta er mjög flott markaðssetning hjá Almenna lífeyrissjóðnum. Flott kynning á nýrri þjónustu við sjóðsfélaga.
Ég er alls ekki sjóðsfélagi!!!! Maðurinn minn var það!!!!
Veit eiginlega ekki alveg hvað mér á að finnast um það að lífeyrissjóðurinn, skuli senda svona markpóst á manninn minn sem er búinn að vera dáinn 10 mánuði með yfirskriftinni: Lykill að góðri framtíð!!!!!
Á umslaginu, sem var stílað á hann: Ásgeir Einarsson, stóð ekki einusinni d.b. (dánarbú). Hef ég fengið mörg undarleg bréf stíluð á hann og er þá oftast held ég d.b. fyrir framan nafnið hans, en þetta er það undarlegasta bréf sem ég hef fengið.
Hringdi í Almenna Lífeyrissjóðinn. Talaði þar við deildarstjóra sem var ekkert annað en almennilegheitin. Þótti þetta mjög miður og gat alls ekki skilið hvernig þessi mistök hefðu getað átt sér stað, þar sem látnum sjóðsfélögum væri ekki einusinni send yfirlit yfir stöðu sína hjá sjóðnum. Sem að mínu mati er nokkuð skiljanlegt þar sem þeir eiga frekar erfitt með að lesa og fylgjast með yfirlitunum sínum. Engin yfirlit, en fá sendann lykil að góðri framtíð!!!!
Var að spá í hvort ég gæti ekki beðið þau um að segja mér hvernig ég ætti eiginlega að koma þessu til skila til hans Ása míns........ og beðið hann þá í leiðinni að koma aftur til mín.
Mistök geta gerst og er ekkert eðlilegra en það gerist, enda erum við öll mannleg. Vona bara að þetta bréf hafi verið eina bréfið sem var sent á látinn sjóðsfélaga. Væri ekki til í að vinna í Almenna Lífeyrissjóðnum ef þetta hefur farið á ALLA sjóðsfélaga, lifandi og dauða!!!!!
Finnst þetta hálf broslegt......... eða grátlegt......... eða veit eiginlega ekki hvað mér finnst......
Mikið er nú gott að vera heima hjá sér!!! Alltaf best!!!
Búin að sofa og slappa af og horfa á sjónvarpið út í eitt!!! Bara yndislegt!!!
Nú er bara að koma lagi á heimilislífið........ ganga frá ferðatöskunum og öllu dótinu sem kom með frá Dalvík..... svo að þrífa heimilið og mála.......... og henda og henda og henda.........!!!!! Er að spá í að fara með allt þetta blessaða dót mitt sem ég nota nákvæmlega ALDREI í Kolaportið og selja það!!!! Eða gefa það nauðstöddum..... heheheheee ....... það vill kannski enginn nota þetta frekar en ég!!!!
Annars er ég búin að bóka eitt stk. ferð fyrir mig og börnin mín til Kanarí um jólin!!!! Geðveikt!!!! Verður eflaust skrítið að vera ekki á Íslandi um jólin........ ég jólabarnið sjálft....... þekki ekki marga sem eiga meira jólaskraut en ég........ en það er allt svo skrítið hvort sem er þannig að það verður eflaust ekkert verra að vera um jólin einhversstaðar allt annarsstaðar en heima hjá mér.........
....... kannski er þetta bara flóttatilraun frá raunveruleikanum....... hvað veit ég........ er ekki sálfræðingur........
...............dóttirin er búin að panta að hafa pizzu í matinn á aðfangadag!!!!