Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Ég

Djöflasystur!!!

31. október 2008 klukkan 01:17
Ætla að gera heiðarlega tilraun að setja inn mynd af þeim djöflasysturm........ annars verðið þið bara að fara á Facebookina og kíkja á þær!!!!

kldæjfari%airl3W#""trkjlglæerjt#%Y&/ldjgroietw!""#ljg3$%&sl´jsr!!!!!!!!!!!!!

Gjörsamlega búin að gefast uppá að reyna að setja inn mynd..... þið farið bara á Facebooooook!!!!!

Annars er ég frekar mikið stolt af útkomunni......... mér finnst þær vera flottastar..... þó svo að þær hafi "tapað" þegar kom að verðlaunaafhendingunni fyrir búninga á ballinu!!!!!

Flókið að útskýra að þó svo þær hafi nú ekki unnið til neinna verðlauna þá hafi þær nú samt sem áður ekki tapað!!!!

Svo er það póker annað kvöld!!!!
Frú Megabeib

Gott plan........

28. október 2008 klukkan 14:18
......... planið er sko ekki að virka!!!!!

Gott að hafa góð plön.......... verst hvað mér gengur óhemju illa að fylgja þeim eftir......... fór aftur upp í rúm að sofa í dag....... komst að því að það er miklu betra að sofa........ þá get ég hitt Ása minn....... hann er nebblega ekki hérna hjá mér þegar ég er vakandi!!!!! Frekar pirrandi!!!!

Þá er það bara að hífa sig upp á rasshárunum og hrinda planinu í framkvæmd!!!!

Kannski gengur það betur á morgun.

Í dag ætla ég allavega að grafa mig inní geymsluna og ná í saumavélina......... þarf að ná í hana til að sauma búning á einkadótturina........ hún er að fara í partý um helgina og ætla hún og vinkona hennar að vera djöflatvíburasystur!!!!! Legg ekki meira á ykkur!!!!!

Var nú búin að koma saumaskapnum yfir á móður vinkonunnar ........... en svo asnaðist einkadóttirin til að spyrja hvað ég ætti margar saumavélar og þá komumst við að því að það væri kannski bara betra ef við saumuðum hérna heima hjá okkur!!!!

Ég meina......... eiga ekki allir 5 saumavélar????
Frú Megabeib

Lifđu núna!!!!

25. október 2008 klukkan 18:07
Jú jú ....... það er planið....... lifa núna!!!!

Komin með nýtt plan..........

Er ákveðin í að gera það sem ég get í dag......... ekki bíða með það til morguns...... því ég veit að ég verð svo hrikalega fúl út í sjálfa mig þegar ég verð farin að vinna á fullu ........... afhverju ég hafi ekki verið búin að gera alla þessa hluti sem ég hefði getað gert meðan ég hafði allann heimsins tíma!!!!

svo ég fór og keypti skápinn sem ég er búin að vera að velta fyrir mér hvort ég ætti að kaupa...... búin að setja hann upp!!!............ eða pabbi minn gerði það nú reyndar.......... eins gott því ég væri eflaust ennþá að rembast við að reyna að koma honum saman!!!!

Búin að koma fötunum inní hann.......... ferlega á ég lítið af fötum!!!!! Finnst samt að mig vanti ekki nein föt!!!! Hmmmm ........... kannski ég hefði bara átt að kaupa minni skáp!!!!!
Frú Megabeib

Veruleikafirrtur!!!

22. október 2008 klukkan 23:39
Þetta er nýja uppáhalds orðið mitt........... veruleikafirrtur.......... það hlómar miklu betur en það lítur út fyrir að vera!!!!

Er að fríka út!!!!!!

Veit sko alveg hvernig ég á að gera þetta......... sko hvað allir segja að maður eigi að gera til að koma lífi sínu á rétt ról........... búa til svona töflu yfir hvað ég sé fyrir mér í framtíðinni og hvernig ég vilji nú hafa þetta allt saman í þessu lífi.......... það virkar, ég veit það alveg.......... en ég hef bara ekki hugmynd um hvað í fjandanum ég á að setja á þessa bévítans töflu!!!!!

Kannski ég fari bara að skrifa bók..........

............... er ég kannski veruleikafirrt???
Frú Megabeib

Dásamlegt veđur!!!

21. október 2008 klukkan 13:29
......... hvað er hægt að segja annað en það sé dásamlegt veður????
Frétti reyndar af snjóflóði á Dalvíkinni í nótt!!! Ætli þau séu á sama landi og við??? Enginn snjór hjá okkur!!!!

Verð að fara að taka mig saman í andlitinu og koma mér á lappir á morgnana og gera eitthvað úr þessu lífi!!!!
Held ég sé bara að verða þunglynd!!!!!
Sef fram að hádegi........ kem engu í verk......... tékka á póstinum mínum 100 sinnum á dag........... geng um íbúðina og kemst að því að það sé nú hellingur sem ég gæti nú gert....... en geri það bara á morgun!!!!

Hömmmmm ............. ekki nógu gott!!!!

Ef þið þekkið einhvern, sem þekkir einhvern, sem þekkir kannski einhvern sem vantar mig í vinnu......... endilega látið mig vita!!!!

Það eru 65 dagar til jóla!!!!
Frú Megabeib

Einkasonurinn!!!!

20. október 2008 klukkan 17:12
Takk fyrir góð ráð við síðustu færslu.......... nú er þetta sko allt komið í farveg........... annars fer ég bara heim til krakkaskítsins og lem hann og alla hans fjölskyldu!!!!!

Annars á einkasonurinn afmæli í dag........ vorum að búa til köku í gær fyrir kaffiboðið.......... gerðum Rice Crispies köku........... sagði við soninn:"við getum svo formað kökuna í 10" sonurinn sagði ekki mikið....... eftir smá stund sagði hann:"mamma afhverju 10?" BARNIÐ ER 13 ÁRA GAMALT!!!!!!

Guð minn góður hvað tíminn líður hratt!!!!!
Frú Megabeib

Hvađ gerir mađur????

17. október 2008 klukkan 18:04
Hvað gerir maður þegar barnið manns er lagt í einelti???

Þoli ekki þegar svona eineltismál koma upp!!!!

Svo ásækir þetta mann alla ævi!!!!!

Andsk........ helv........... djö..........
Frú Megabeib

Spor............

16. október 2008 klukkan 11:06
Ótrúlegt hvað sumt fólk getur skilið eftir sig stærri spor í hjarta þínu en aðrir.

Alla vega upplifi ég það þannig.

Kannski skilið eftir sig spor í sálinni þinni........ já ætli það sé ekki betri samlíking........ en hjartað......... því það er eitthvað svo rautt og svo hreyfist það!!!!

Sumir trítla hljóðlega inn til þín og sitja á sínum stað og eru alltaf til staðar.
Sumir ganga inn og út og skilja ekkert eftir sig.
Sumir koma blaðskellandi og er maður voðalega upptekinn af þeim í stuttan tíma en oftar en ekki fara þeir líka aftur blaðskellandi og skilja lítið sem ekkert eftir sig.
Sumir þröngva sér inn til þín, sama hvort þú vilt þá eða ekki, vaða inn á skítugum skónum og skilja eftir rispur og sár, sum ólæknandi.
Sumir áttu bara leið hjá og skilja eftir sig svo falleg spor að vert er að ramma þau inn. Jafnvel þó öllum samskiptum hafi verið lokið, þá man maður enn eftir hvernig maður var snortinn.
Sumir veita ómælda gleði.
Sumir valda sorg.
Sumir hafa það ekki í sér að vera hjá þér og hraða sér sem fljótast í burtu aftur.
Sumir stoppa lengi.
Sumir eru þarna alltaf.
Sumir birtast bara allt í einu, lætur þér líða vel, byrjar svo að skemma út frá sér eins og rotið epli, og skilur eftir sig ólæknandi sár og eyðileggingu.

Sé þetta alveg fyrir mér......... svona eins og herbergi þar sem allt er í bómull.......... eða ský-i svona eins og Candyfloss......... samt meira fjólublátt á litinn..... ljósfjólublátt, með hurðum í báða enda. Þar er hægt að sjá spor og för og merki þeirra sem hafa orðið á vegi mans á lífsleiðinni og þar er hægt að sjá fólkið sem enn hefur áhrif á þig og er þér kært.

........... þetta er svona inni í manni þannig að úr þessu er maður gerður!!!!

Ef maður hefði ekki hitt allt þetta fólk og það haft áhrif á mann, góð og slæm, þá væri maður ekki sá sem maður er í dag!!!!

Því slæm áhrif eru til góðs....... á endanum........

Það eina sem ég veit fyrir víst er að muna að vera þakklátur fyrir vini mína, koma fram við þá eins og ég vil að þeir komi fram við mig, og hlúa að vináttunni svo þeir vilji vera hjá manni .......... því þeir geta valið að labba út um hurðina og skilja ekkert eftir sig nema spor.
Frú Megabeib

Millett-úlpur!!!!!

15. október 2008 klukkan 01:15
Er að missa mig þessa dagana í að skanna inn myndir frá þvi maður var í skóla hérna í gamla daga!!!!

Man hvað ég þurfti NAUÐSYNLEGA að fá Millett-úlpu.......... það áttu ALLIR í skólanum svona úlpu og ég VARÐ að sjálfsögðu að eiga svona úlpu líka!!!!!

Að sjálfsögðu áttu ekki alveg ALLIR svona úlpu........ en eiginlega næstum því!!!!

Vá hvað ég er fegin að vera búin með þennan aldur í lífshlaupinu hjá mér........ fannst þetta leiðindar tími......... gott að hann kemur ekki aftur!!!! Man mest lítið eftir honum.......... man bara að mér leið illa og var að hamast við að finna sjálfa mig........ gekk ekkert voðalega vel!!!!

En þið vitið þetta með heilann.......... hann er útbúinn alveg stórkostlegum varnaraðferðum........... t.d. man ég ekki eftir ýmsu og tel ég það vera hollt og gott að muna ekki eftir öllu.......

Man t.d. ekki eftir því að hafa nokkru sinni verið vikið úr tíma!!!! Enda fyrirmyndar unglingur!!!! Í minni minningu.......... mamma segir þó að mér hafi verið vikið úr skóla í heila viku........... man það ekki þó svo mér væri borgað fyrir það!!!!

Hvað átti ég að hafa gert heima í heila viku????? Þetta er algert rugl!!!!! Auðvitað mundi ég muna eftir því!!!!!

Ein vinkona mín man ALLT og njótum við hinar vinkonurnar góðs af því ........... þá spyrjum við hana bara ef við þurfum að fá upplýsingar............ hún man ekki eftir að mér hafi verið vikið úr skóla!!!!

Önnur vinkona mín man EKKERT......... og hún man eftir því að mér hafi verið vikið úr skóla!!!!!

Held að hún og mamma séu bara að rugla!!!!

En ég átti Millett-úlpu!!!!!!
Frú Megabeib

Allt í orden.............

13. október 2008 klukkan 14:01

Komin úr sumarbústaðnum............ det var dejligt!!!!! Það eru alger forréttindi að eiga svona góðar vinkonur!!!!

Allt að fara á fullt í undirbúningi fyrir þáttinn....... allt að gerast!!!

Börnin á leiðinni heim úr skólanum......... lífið gengur sinn vanagang!!!

Góðar vinkonur sem komu í morgunkaffi.......... mikið er ég heppin að vera umvafin svona góðum vinkonum á alla kanta!!!

Styttist í Kanarý.......... það er gott því það er orðið dáldið kalt hérna hjá okkur á Klakanum!!!!

Það er bara allt í lagi að vera til.............. þrátt fyrir allt!!!!!

Frú Megabeib

Vinir eru gimsteinar lífsins

10. október 2008 klukkan 13:23
Ætla bara að setja inn eina vísu sem ég rakst á.
Á vel við núna.

Vísan er eftir Hjálmar Freysteinsson lækni á Akurreyri.

Gulli og perlum að safna sér,
sumir endalaust reyna,
vita ekki að vináttan er,
verðmætust eðalsteina.

Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vináttan er,
verðmætust eðalsteina.

Njótið lífsins, vinanna og helgarinnar!
Frú Megabeib

Facebook!!!!

09. október 2008 klukkan 16:20

Facebook er snilld!!! Bara þvíllík snilld!!!!
Sniðugir þessir sem bjuggu til Facebook............
Finnur þar ótrúlegasta fólk.............
Gamla skólafélaga...........
Gamla vini..........
Gamla vinnufélaga............
Löngu horfna djammfélaga.............
Sjaldséða ættingja..............
Nýja vini............
Nýja vinnufélaga.......... (nei er ekki komin með vinnu!!!)
...........og bara fullt af fólki sem maður hefur kynnst á lífsleiðinni!!!!

Snilld ..........BARA ............ snilld!!!!!!!!

Fimmuhelgi framundan......... það er líka snilld.......... singstar keppni annað kvöld í nýju fínu PS2 tölvunni MINNI!!!! Ég ætla ekki að sigra, enda hörð samkeppni framundan við algera söngsnillinga!!!! Verð kannski bara í klappliðinu..........

Ég á að versla fyrir helgina......... er nú komin með innkaupalistann......... ætli það sé eitthvað eftir í Bónus......... fólk er víst byrjað að hamstra!!!!!!

Frú Megabeib

Helgin framundan

08. október 2008 klukkan 16:25
Ok okok ok okoko ok kannski ekki alveg framundan...... en vikan er allavega hálfnuð!!!

Dóttirin og vinkona hennar komu heim í dag...... spurðu hvort tveir strákar mættu koma með........ ég spurði hvort þeir væru kærastarnir þeirra...... nehei var svarið...... eða sko.... annar þeirra var einusinni kærasti vinkonunnar, eða sko þau voru saman á föstu, í fimm tíma sko, eða fimm mínútur!!! En nú væru þau sko á lausu....... var að tala við vinkonu mína í símann akkúrat þegar þær vinkonur hrundu innúr dyrunum....... sagði vinkona mín í símanum: "noh...... þær eiga bara meira ástarlíf en við!!!" Þær eru 10 ára!!!!

Fannst þetta bara fyndið!!!!!

Heyrði annað sem mér fannst líka fyndið.

Fyrir nokkrum árum barst talið að öllum þessum ungu mönnum sem voru skyndilega farnir að stjórna hérna í öllum bönkum og fyrirtækjum. Varð þá einni að orði: "ég skil bara ekki hvað þessir legvatnsdrengir eru að gera hérna!!!" LEGVATNSDRENGIR!!!!!! Ha ha ha hah aaa mér finnst þetta BARA fyndið!!!!
Frú Megabeib

Hef ekkert ađ segja.........

07. október 2008 klukkan 21:47

........ en langar samt svo óskaplega að tjá mig um eitthvað!!!!

Nenni sko ekki að ræða stjórnmálin....... þau eru nú eins og veðrið breytist og gengur á með skini og skúrum hagli og roki alveg sama hvort ég æsi mig yfir þeim eða ekki....... þannig að ég ætla bara pent að láta það eiga sig að tjá mig eitthvað um þau........ EN verð þó aðeins að segja eitt.....hmmmmmmmmmm jú jú ....... er svo FEGIN að eiga ekki hlutabréf í neinum banka núna!!!!

Gott að Ísland kemst í fréttirnar...... orðið viðburðarríkt ár hjá litla Íslandi........ við í nánast hverjum fréttatíma hjá erlendu sjónvarpsstöðvunum vegna þess að við erum að fara á hausinn........ í sumar vorum við í öllum fréttum um allann heim af því að við unnum næstum því Ólympíugullið í handbolta......... getum við ekki hent inn eins og einni fegurðardrottningu - ungfrú alheimur -  til að kóróna þetta allt saman, höfum nú gert það áður....... ætti ekki að vera mikið mál!!!!

Þá erum við með besta íþróttafólkið, mesta fjármálavitið og fallegustu konurnar........ engin furða að við skulum ekki vera fleiri en 300.000.- eins og úthverfi í New York!!!!! Það er bara ekki pláss fyrir fleiri hérna!!!!

Talandi um handboltalandsliðið........ var ég búin að segja ykkur að ég sef hjá öllu liðinu eins og það leggur sig!!!! Eða þannig...... eða eiginlega já bara alveg þannig!!!!

Börnunum mínum áskotnaðist áritað plakat af handboltalandsliðinu og voru þau himinlifandi með það, vitandi hversu mikill handbolta unnandi faðir þeirra var nú......... Sérstaklega var einkadóttirin ánægð með það og vildi hún alveg ólm og uppvæg hengja það upp fyrir föður sinn....... og enginn annar staður var eðlilegri í hennar huga en á höfðagaflinn Ása megin í rúminu!!!! Hans staður, hans handbolti, hans "strákar". Gat ég ómögulega sett mig upp á móti þessu enda er mér eiginlega alveg sama þó ég sofi hjá þeim "strákunum".

Mér finnst bara fyndið að segja að ég sofi hjá landsliði Íslands í handbolta!!!!

Frú Megabeib

Sko...........

06. október 2008 klukkan 12:03
  • Búin að senda póst á innlenda dagskrá - sjónvarpið

  • Fékk svar um að senda efnistök og svo gætum við haft fund til að ræða málin

  • Hef ekki heyrt í manninum síðan!!!

  • Finnst þetta frekar pirrandi

  • Er veik, hef ekki orku í að standa í þessu núna

  • Fór í viðtal í dag, þrátt fyrir veikindin, í stöðu þjónustufulltrúa hjá VMST, fæ svar í vikunni

  • Snjórinn er farinn og rokið og rigningin komin

Frú Megabeib

Hmmmm............

02. október 2008 klukkan 22:33
..... verð að segja að ég átti nú von á meiri viðbrögðum við síðustu færslu en ég fékk....... hmmmmm...... er þetta bara ég á tuðinu??? Yfirtuðari......... smámunasemi....... endalaus pirringur!!!!

Það snjóar og snjóar....... veit þetta er fáránlegt....... sagði við vinkonu mína áðan: " iss piss þetta er nú bara danskur snjór, hann er bráðnaður um leið og hann lendir!!!" En það er fyrir nokkrum tímum síðan og snjórinn hefur lagt sig eins og hvítt teppi um allann garð og götu...... sem sagt ekki danskur snjór!!!!

Börnin spurðu hvort þau mættu fara út í snjóinn........ klukkan var farin að ganga tíu......... ég sagði: já !!!! Er ég klikk??? Er í lagi að hleypa börnunum út í snjókast seint á kvöldin??? Welll......... þau gerðu það og höfðu gaman að ..... komu inn alsæl og með eplakinnar!!!!

Bakaði vöfflur í dag...... reyni að vera ábyggileg heimavinnandi húsmóðir og baka ..... að sjálfsögðu vöfflur úr pakka (borgarbarnið munið þið) en ekki hvað???? Vilko vöfflur........ bara þrusu góðar....... þetta verður sko gert aftur....... með sírópi og rjóma....... nammi namm!!!!

Ó mæ god........... gæti ég vinsamlegast farið að fá vinnu svo að líf mitt snúist ekki um vöfflur!!!! ......... og aumingja verslunarstjórinn í Bónus fái frið fyrir mér........ svo ég geti notað orkuna mína í eitthvað annað en þrjóskast yfir 198 krónum!!!!!

Þarf bara að fá þátt í sjónvarpið......... svona neytendaþátt!!!! Síkrita það!!!! Þá slæ ég tvær flugur í einu höggi........ fæ vinnu og fæ að gera eitthvað sem mér þykir mjög skemmtilegt......

Ekki spurning síkrita þetta!!!!
Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar