Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Datt í gang.........

29. nóvember 2008 klukkan 02:11
.......... með að taka til klukkan að ganga tólf!!! Finnst ykkur þetta í lagi?????

Það væri kannski í lagi ef það væri á hádegi en ekki miðnætti!!!!!

Og hvað var ég að taka til.......... já maður spyr sig!!!

Datt það allt í einu í hug að ég þyrfti NAUÐSYNLEGA að taka til í geymslunni hérna á uppi....... þarf að finna eins og eitt stk. kross til að setja á leiðið....... á hann til og hann er týndur innan um draslið þarna inni......... ætla að athuga hvort ég get ekki fundið hann áður en ég þarf að fara að kaupa nýjann kross....... eða leigja hann!!!

Fann í leiðinni fullt af fötum sem þarf að gera við..... saumspretta hér og saumspretta þar....... reyndar fór ég í gegnum bunkann um daginn og ætlaði að vera ábyggileg móðir og laga einhverjar buxur af einkasyninum ........ en þegar ég komst að því að hann er vaxinn uppúr þeim, þá ákvað ég að gefa þær bara í Rauða krossinn..... það hlýtur einhver að vera voðalega duglegur þar sem nennir að gera við saumsprettur!!!

Fann líka topp sem ég hafði saumað mér fyrir eitt Þorrablótið forðum.......... fór í hann........ og svo sprangaði ég hérna um íbúðina og dillaði mér framan í krakkana (einmitt þau voru ekki farin að sofa....... voru ekki alveg að fatta það að klukkan væri að verða miðnætti, móðir þeirra var jú í fullu fjöri...... en ekki eins og slytti fyrir framan sjónvarpið aldrei þessu vant!!!)....... og sagði við þau að þetta væri sko alger "haba haba" toppur!!!

Þeim fannst ég fyndin, alveg dásamlegt að þau eru ekki orðin nógu gömul ennþá til að finnast móðir sín einstaklega hallærisleg!!!!

Nema hvað að eitt leiddi af öðru og upp spunnust umræður....... meðal annars hvort ég ætlaði að fá mér nýjann mann!!!!

Hmmmmm....... hvernig á maður að svara þessu????

Er búin að vera að velta þessu fyrir mér undanfarið........ þetta er dáldið mikið flókið mál......... verð að segja það!!!

Það er ekki eins og ég hafi skilið og standi núna uppi makalaus.
Ég elska hann Ása minn alveg endalaust..... út fyrir endimörk alheimsins!!!
EN......ég ætla ekki að verða eins og eldri frúin í bakhúsinu sem varð ekkja fyrir 100 árum síðan og er búin að lifa lífinu bítandi á jaxlinn síðan.
Mig langar ekkert að vera ein það sem eftir er.
Hversu lengi bíður maður? Þangað til maður er tilbúinn? Og hvenær er maður tilbúinn? Maður spyr sig!!!!

Þetta er flókið.

Mér líður eins og ég sé að halda framhjá ef ég hugsa til þess að láta mér detta í hug að velta því kannski fyrir mér að svo mikið sem knúsa annan karlmann en eiginmann minn!!!! .......... og ég hef aldrei og myndi aldrei halda framhjá manninum mínum!!!!! En Ási minn er farinn frá mér og kemur ekki aftur hversu heitt sem ég óska þess!!!!

Ég væri til í félaga........ ég þarfnast þess að vera með einhverjum fullorðnum karlmanni sem skilur mig og getur tekið utan um mig......... því það eru sko ekki allir sem ég hleypi inn fyrir víggirtann varnargarð minn.......

Langar að hafa einhvern til að spjalla við, hlæja með, gráta hjá og kúra við.......... er þetta til of mikils mælst???

Svo eru það svikin........

Mér finnst eins og ég sé að svíkja Ása minn, börnin mín, fjölskylduna mína, fjölskylduna hans, vinina okkar. Hin stærstu svik sem hægt er að gera!!!

Nema hvað umræðan fór fram í glettni og gráti....... reyndi ég að hafa þetta létt, þó með alvarlegum undirtón ........... svona eins og til að sýna börnunum framá að það væri alveg eðlilegt að mamma þeirra eignaðist kannski í framtíðinni mann/vin sem væri ekki pabbi þeirra......... þetta var líka erfitt......... sá að þau hugsuðu mikið...........

Einkasonurinn fór að tannbursta sig, dóttirin var komin í rúmið og sofnuð. Kom hann svo inn í geymsluna þar sem móðirin stóð á haus í "haba haba" bolnum og gramsaði í gersemum.

Hann spurði mjög alvarlegur:"mamma ætlar þú að fá þér nýjann mann"??
Ég svaraði honum því að það vissi ég ekki, en maður vissi aldrei........ hvað honum fyndist eiginlega um það.
Hann svaraði mér að það væri allt í lagi.
Ég gekk pínulítið á hann og sagð að ég myndi aldrei "fá mér" nýjann mann/vin nema sem væri góður við þau og mig.........
Hann spurði þá hvort ég ætti ekki nóg af vinum......... ég játti því að sjálfsögðu ....... en sagði að þetta væri öðruvísi vinur (hvernig í ósköpunum á maður að útskýra þetta????).
Ég spurði hann þá að því hvort honum þætti það óþægilegt að hugsa til þess afþví að það væri ekki pabbi hans og svoleiðis.

Þá sagði hann þessi elska...... hann er alveg yndislegur:" vildi pabbi ekki að þú værir hamingjusöm? Svo ef að nýr maður/vinur gerir þig hamingjusama þá er það alveg eins og pabbi myndi vilja hafa það"...... "og ef hann er góður við okkur og þig, þá gerir hann þig hamingjusama og þá er allt í lagi!"

Ég á ekki til þau orð til að lýsa því hvað mér finnst hann frábær, æðislegur, niðri á jörðinni, raunsær, skynsamur og yndislega yndislegur drengur.....

......... og hann er bara 13 ára!!!!!
Frú Megabeib

Þegar klukkan er farin að ganga 7 í Kathmandu!!!!

28. nóvember 2008 klukkan 01:02

Það er eitt sem er alveg á hreinu.......... ég á ekki að setjast hérna fyrir framan tölvuna, svona rétt áður en ég hendi mér upp í rúm að sofa!!!!


T.d. var ég á leiðinni upp í rúm að sofa fyrir um klukkutíma síðan......... en ákvað að kíkja aðeins í tölvugarminn.......... jú jú og er búin að hlaupa um netheima fram og til baka síðan þá!!!!


Ég sem ætlaði að fara snemma að sofa....... eða snemma fyrir mig er fyrir miðnætti....... það er meira að segja MJÖG snemma fyrir mig!!!!


Er að fara á námskeiðið á morgun og ef ég ætla að vera fersk til að taka á móti öllum þessu fínu upplýsingum sem ég á að taka á móti á morgun, æi nei það er víst orðið í dag,........ væri mjög æskilegt að vera þokkalega vel sofin ekki satt???


Með þessu áframhaldi sef ég til í það minnsta 10 svo snúsa ég klukkuna til 11 eða jafnvel til klukkan 12 ......... hendist þá framúr og hef mig til ......... því ég er búin að ákveða að mæta á þetta blessaða námskeið í fínum fötum með uppsett hár og naglalakk......... og varalit!!! Legg ekki meira á ykkur!!!!!


Svo ætlaði ég að læra spænsku snöggvast í fyrramálið....... það styttist nebblega í Kanarý með hraði........ og ég ekki búin að læra spænsku ennþá!!!!!!!! Er ekki alveg að gera sig!!!!


Verð líka að fara að ná í mér í gjaldeyri..............

Frú Megabeib

............ andlaus!!!

26. nóvember 2008 klukkan 23:50
Já hvað gerir maður þegar maður er gjörsamlega andlaus???

Hmmmm..........

Fór á námskeiðið í dag........ það gekk bara vel.......... en vá hvað það var erfitt að halda sér vakandi í svona langann tíma og taka á móti öllum þessum upplýsingum!!!!

Mér finnst ég eitthvað svo tætt og skrítin þessa dagana........

.......... ætli það sé hægt að fá einhverjar pillur við þessu????
Frú Megabeib

Enn einn undarlegur dagur!!!!

25. nóvember 2008 klukkan 00:55

Þann 23. nóvember 2007 var undarlegasti dagur sem ég hef lifað, það var dagurinn sem maðurinn minn var jarðsettur.

Mikið er þetta líf undarlegt.

Það er liðið heilt ár!!!! Hvernig má þetta vera???

Blómahjartað sem ég loksins samþykkti að mætti fara á kistuna...... sem betur fer því það var mjög fallegt.


Duglegu, sterku, yndislegu börnin mín.........



Vildi að ég ætti eins og eina ósk......... bara eina einustu ósk.......

Frú Megabeib

Hvað gerir maður..........

21. nóvember 2008 klukkan 17:23
............ við setningar sem keyra aftur og aftur og aftur í hausnum á manni????

Setningar sem mann langar kannski ekkert til að heyra endalaust og stanslaust.......????

Ég upplifi þetta nákvæmlega eins og þetta er sýnt í bíómyndunum....... mér finnst það vont ....... sérstaklega þegar það eru setningar sem voru sagðar til að særa mann eða brjóta mann niður!!

Dæmi:

Ég er stödd á skemmtistað hér í borg.
Það er búið að vera hrikalega gaman.
Búin að dansa og daðra alveg vinstir og hægri.
Komið að lokum kvölds/skemmtunar.
Búin að heyra fullt af gullhömrum (trúi þeim nú mátulega eins og fyrri daginn).
Segir einn í yngri kantinum við mig eftir að ég var búin að vera að skipta mér eitthvað af því hvað hann væri að gera........... :"það er einmitt þannig að XXXXX (skemmtistaðurinn) er fullur af gömlum þreyttum kellingum eins og þér!!!.... þessvegna kemur maður ekki hingað inn!!!!"
Vá hvað ég er búin að heyra þetta oft síðan inni í hausnum á mér....... ég er orðin gömul þreytt kelling!!!!!

Afhverju ætli hugurinn hendist fram og til baka með hugsunum sínum og velji svo að ná í svona setningar til að ég geti velt mér uppúr fram og til baka!!!

Það eru maaaaaaaaaargar aðrar svona setningar sem endalaust hringla í hausnum á mér........ ætla ég sko alveg að sleppa því að hafa þær eftir......... en ég verð að viðurkenna að meirihluti þeirra er ekkert sérstaklega jákvæðar............ ætli ég sé geðklofi???

Verð að fara að fá vinnu!!!!!
Frú Megabeib

Pirr......pirr........ pirrrrrrrrrrr.........

20. nóvember 2008 klukkan 16:35
Eftir góða ráðleggingar ............ frá ykkur.......... tók ég mig til og hringdi vítt og breytt um bæinn til að vita hvort við gætum fengið eins og eitt stk. stuðningsfjölskyldu!!!

Málið er komið í farveg........ en konan sem ég talaði við var nú ekkert sérstaklega bjartsýn á að þetta væri möguleiki.............. pirr pirrrr!!!

Þar sem ég er svo heppin að börnin mín eru bara alheilbrigð börn sem ekki eru greind með neinn "brest" eða annan sjúkdóm, eru líkurnar á því að þetta geti orðið að veruleika ansi litlar!!!

Sérstaklega þar sem ég er komin með ungling á heimilið........... möguleikunum fækkar eftir því sem börnin verða eldri.......... pirr pirr pirrrrrrrrr!!!!

En ég ætla ekki að gefa upp alla von, ætla ekki að gefast upp strax.......... það er ekki hægt......... svo ég fer á fund með einhverjum hjá Þjónustumiðstöðinni þann 8. desember til að sækja um og ræða málin.

Þangað til verð ég bara að finna einhverjar aðrar lausnir á málinu.

Annars finnst mér það smá kómískt að vandamálið skuli vera einkasonurinn........ það fer akkúrat ekkert fyrir honum......... hann þarf miklu meira á því að halda að komast út á meðal fólks og kynnast einhverjum sem hann getur verið með en einkadóttirin!!!! Ég á auðveldara - eða það eru fleiri staðir þar sem ég get komin henni fyrir á en honum!!! Skrítið að þetta skuli vera svona!!!!

Þangað til eru allir þeir sem hafa gífurlegan áhuga á því að leyfa börnunum mínum að gista öðru hvoru beðnir um að gefa sig fram við upplýsingaborð!!!!!

Kannski maður gæti gert einhverskonar skipti ............ þannig að ég tæki einhver önnur börn öðru hvoru til mín í staðinn.......... ég væri alveg til í það!!!!!
Frú Megabeib

27 dagar!!!!

19. nóvember 2008 klukkan 17:36

Í dag eru nákvæmlega 27 dagar þangað til við förum til Kanarí!!!!

Ég sem ætlaði að vera orðin höj og slank áður en ég leggðist á ströndina eða flatmagaði við sundlaugina!!!!

Sé ekki að ég nái því á 27 dögum!!!!

Hvort er Kanarý skrifað með eða án ypsilon?????

Frú Megabeib

Mér finnst eins og það hafi verið svindlað á mér!!!

18. nóvember 2008 klukkan 22:44
Afhverju..... og hver gerði það ..... maður spyr sig!!!???

Af því að allt í einu gerðist það fyrir einu ári síðan að ég komst í hóp einstæðra mæðra! Það var vissulega ekki planið, frekar en hjá mörgum öðrum einstæðum mæðrum hér á jörð.

En það þarf tvo til að búa til barn og þar af leiðandi, þrátt fyrir alla tækni nútímans, er það í flestum tilfellum svoleiðis að til staðar er bæði móðir og faðir.

Þegar svo leiðir foreldranna skilja þá endar það í flestum tilfellum svoleiðis að börnin verða eftir hjá öðru foreldrinu, oftar en ekki móðurinni, þó það sé ekki algilt og maður heyrir sífellt meira um að börnin séu hjá föður sínum og jafnvel að forræðið sé svo svakalega flott að börnin skiptast til að búa hjá foreldrunum, viku jafnvel hálfan mánuð í senn.

Stundum er það að sjálfsögðu svoleiðis að aðstæður bjóða ekki uppá að börnin geti verið hjá "umgengnis" foreldrinu aðra hvora helgi eða viku í senn, t.d. ef viðkomandi aðili býr í öðrum landshluta eða öðru landi.

Þó ber að athuga það að í langflestum tilfellum er "umgengnis" foreldrið mjög viljugt til að hafa börnin sín hjá sér og fá þá jafnvel að hafa þau hjá sér heilu og hálfu skólafríin, eins og vetrarfrí, jólafrí, páskafrí og sumarfrí.

Þó eru að sjálfsögðu alltaf á því undantekningar eins og ef "umgengnis" foreldrið vill ekkert með barnið hafa eða barnið á foreldri sem nýtti sér tækni eða eitthvað annað sem gerir það að verkum að "pabbahelgar" eru ekki til staðar........... en það hefur þá verið svoleiðis frá fæðingu barnsins og einstæða móðirin er undir það búin að þurfa að standa á eigin fótum og er það oftar en ekki hennar val að hafa hlutina á þennan hátt.

Mér hins vegar var hent inn í þennan heim einstæðra foreldra fyrir ári síðan.

Ég var allt í einu orðin einstæð móðir með tvö börn!!!

Mér finnst ennþá að þetta sé allt saman, svindl svik og prettir..... allt frá upphafi til enda....... 

En núna er ég sem sagt að upplifa ennþá enn eitt svindlið ......... ég er einstæð móðir með tvö börn og engar "pabbahelgar"!!!!!

Ekki það að ég elska börnin mín út af lífinu og vil allt fyrir þau gera. En við hefðum öll gott af því að fá smá pásu frá hvort öðru........ já t.d. svona eins og einu sinni í mánuði eða svo!!!!

Mér finnst að til þess að ég geti komið undir mig fótunum aftur..... lifað lífinu....... því það ætla ég mér að gera bæði fyrir mig, börnin mín og alla sem eru í kringum mig ....... þá þarf ég að komast út og hitta fólk.......nýtt fólk........ fá innblástur í það hvernig ég geti byggt mér nýtt líf........ smíðað það á þeim góða grunni sem ég hef í okkar litlu fjölskyldu.

Með því að sitja heima gerist ekki neitt!!!! Nema jú ég sef og hangi og verð þunglynd og sef aðeins meira og horfi smá á sjónvarpið og hangi smá meira og sef og sef og sef!!!!

Það má kannski segja að ég ætti þá bara að drífa mig út á daginn þegar börnin eru í skólanum og leita að fólki til að tala við og eiga "fullorðins" samtöl og umræður.

En hver er heima á daginn???? Enginn........ það eru allir að vinna!!!! Þannig að "minn fullorðins tími" fer þá fram á kvöldin og um helgar.

Þá þarf ég að finna pössun.

Ég veit að börnin mín eru orðin stór og eru alveg einstaklega dugleg börn og geta séð vel um sig sjálf, betur en margir jafnaldrar þeirra......... en maður skilur þau ekki eftir ein heima langt fram á kvöld eða fram á nótt.

Ég er svo lánsöm að búa í alveg æðislegu "fjölskylduhúsi" þannig að ef skóinn kreppir og ég þarf á því að halda þá er lítið mál að opna hurðir á milli hæða svo börnin séu ekki "alein" heima.

Ég veit að það eru til svona stuðningsfjölskyldur eða "heimili" fyrir börn sem eru fötluð. Fara börnin þangað einu sinni í mánuði jafnvel oftar, fer það eftir hverju tilfelli fyrir sig. Er tilgangurinn með þessum helgarheimsóknum að barnið fái pásu frá foreldrum sínum og að foreldrarnir fái pásu frá börnunum!!!! Þar sem börnin eru örugg og foreldrarnir eru öruggir um börnin sín. Fastur punktur sem hægt er að skipuleggja út frá. Bara gott fyrir alla aðila sem hlut eiga að máli.

Afhverju er ekki eitthvað svona stuðningsbatterý fyrir börn sem hafa misst foreldra sína???? Þetta er svo skrítið...... einhvern veginn málefni sem enginn talar um en allir vita að eru til staðar...... börn sem hafa misst annað eða jafnvel bæði foreldri sín.

Það er eins og öllum finnist bara eðlilegt að eftirlifandi foreldrið finni bara útúr þessu og reddi þessu alveg örugglega einhvernveginn sjálfur.......... það eru bara ekki allir eins lánsamir og ég að búa í "fjölskylduhúsi".

Þar fyrir utan er ég nú bara þeirrar skoðunar að þetta eru nú einu sinni mín börn og ég get ekki hugsað mér að vera endalaust að biðja um að þau megi vera hér eða þar....... það gerir þeim heldur ekkert gott!!!!!

Vá hvað ég get röflað í dag............ en þetta rennur bara útúr puttunum á mér og ég gæti sko alveg haldið áfram........ en er hætt í bili!!!!

En ég verð að segja það að ég væri alveg til í "pabbahelgar"......... bara svona öðru hvoru!!!!
Frú Megabeib

Æfingabúðir!!!

17. nóvember 2008 klukkan 08:12
Nú er ég búin að ákveða það að þegar svo vel vill til að mér sé hrósað.......... eða dáðst að einhverju, annað hvort sem ég geri eða hvernig ég lít út....... þá verð ég að læra að taka því!!!!!

Lenti í því í um helgina að mér var hrósað!!! Jú jú þetta kemur fyrir!!!!

Annars vegar var mér hrósað fyrir hluti sem ég var búin að gera........ ég sagði takk fyrir og er/var þess fullviss að manneskjan/manneskjurnar hafi nú bara sagt þetta og alveg örugglega ekki meint þetta, heldur hugsað svo með sér .... hvernig dettur henni í hug að gera þetta, þetta er hræðilegt!!!!!

Hins vegar var mér hrósað fyrir hvað ég leit vel út........ hmmmmm...... er ennþá ekki að kaupa það alveg......... hmmmmmm ........ en ég sagði takk eins og vel upp alin stúlka, trúði náttúrulega ekki orði af því sem við mig var sagt og beið alltaf eftir því að finna út hvernig verið væri að gera grín að mér!!!!! Það fór mikill tími og orka í það!!!!

Framundan er því að læra að taka hrósi í þau skipti sem þau reka á fjörur mínar!!!!!
Frú Megabeib

5 ár!!!!

15. nóvember 2008 klukkan 14:19
Nei shit það eru ekki liðin fimm ár!!!

Eflaust á ég að læra eitthvað svakalega mikið af þessu öllu saman....... en núna stendur mér bara nákvæmlega á sama um það......... nenni ekki að læra meira um sársauka, sorg, missi, einmanaleika, þunglyndi, reiði og vanmátt.

Svo getur maður sko spurgt sig að því að þegar maður er nú búin að læra allt þetta sem maður á víst að læra í lífinu......... því ég er sannfærð um það að maður er að læra eitthvað nýtt fram á síðasta dag.......... loksins farin að kunna það hvernig þetta allt saman virkar og hvernig maður á að snúa sér í þessum eða hinum aðstæðunum........hvað gerist þá???? Þá er maður bara dauður!!!!

Til hvers er maður þá að læra þetta allt saman???? Hver er tilgangurinn????? Í dag á ég alveg svakalega erfitt með að sjá það...........

Er farin í Kringluna að kaupa mér sokkabuxur!!!!
Frú Megabeib

Hvað skal segja???

13. nóvember 2008 klukkan 02:27
Undra mig alltaf jafn mikið á því að það séu einhverjir þarna úti í netheimum eða hinum alvöru heimi sem hafa áhuga á því hvað ég er að gera og hvað ég hef að segja!!

Það er margt sem breyttist hjá mér fyrir ári síðan.
Börnin mín urðu föðurlaus.
Ég varð eiginmannslaus.
Ég varð fyrirvinnulaus.
Ég varð ekkja!!!

Margt breyttist og ég held í alvörunni að ég sé ekki ennþá komin úr þessari gífurlegu afneitun sem ég var í..... en reyni að vinna í því........ það gengur misvel!!!

Eitt af því allra, allra, allra versta var að missa besta vin minn.......... þennan sem ég hef rætt við öll heimsins mál undanfarna tæpa tvo áratugi í blíðu og stríðu.

Ég elskaði morgnana um helgarnar þegar farið var í bakaríið og svo setið við litla eldhúsborðið okkar og blöðum dagsins flett og viðburðir líðandi stundar ræddir fram og til baka á meðan börnin sátu inní stofu og horfðu á barnaefnið í sjónvarpinu - nú nenni ég ekki á fætur um helgar!!!

Ég elskaði þegar maðurinn minn kom heim og við ræddum yfir kvöldmatnum hvað hefði á daginn drifið hjá fjölskyldumeðlimum - ég elda helst ekki og allar kvöldmáltíðir fara nú fram við sjónvarpið.

Ég elskaði þegar við vorum að fara út og ég búin að taka mig til og maðurinn minn sagði við mig hvað ég væri óskaplega falleg og sæt, brosti svo til mín, tók utan um mig og smellti á mig kossi. Oftar en ekki sagði hann mér þetta ekki fyrr en við vorum komin heim eða daginn eftir......... og fannst mér það oftar en ekki vera frekar tilgangslaust fyrir hann að segja mér það þá...... - gæfi mikið fyrir að heyra það núna...... sama hversu seint það væri, jafnvel viku seinna ef út í það væri farið!!!!

Það er margt sem ég sakna....... snertingar, kossa, brosa, rifrilda, umræðu, ákvarðanatöku....... já nefndu það bara, þetta daglega líf sem manni finnst oft vera svo einhæft og tilgangslítið.

Ég er búin að komast að því að ég sit heima hjá mér meira og minna ein alla daga........... svo koma börnin heim.......... daglegt amstur með þeim........ fimleikar, jassballett, glíma......... kvöldmatur fyrir framan TV.......... zappað á milli sjónvarpstöðva........ leikið sér á netinu......... já frekar einhæft líf!!!!

Þannig að þegar ég loksins hitti fólk þá tala ég stanslaust!!!!!

Finn það hvað ég er oft að segja sama hlutinn við mismunandi fólk..... en ég held að það sé vegna þess að ég hef ekki bara einn aðila til að tala við ...... manninn minn!!!! Þarf að setja fólk inn í sögurnar, segja frá aðstæðum og útskýra, eitthvað sem ég ekki þurfti áður. Oft er ég búin að gleyma hverjum ég sagði hvað, því ég man ekkert orðið stundinni lengur!!!!  

Maðurinn minn mótmælti mér líka og kom mér oftar en ekki niður á jörðina þegar ég var komin á algert flug í einhverri vitleysunni sem mér datt í hug..........

..........þoli ekki væl og að velta sér endalaust uppúr hlutunum.......... getum við ekki bara spólað eins og fimm ár fram í tímann......... þá ætti lífið vera orðið bærilegra!!!
Frú Megabeib

Skil ekki RÚV!!!!!!!!!

10. nóvember 2008 klukkan 15:51
Það er gjörsamlega ofvaxið mínum skilningi þetta RÍKISÚTVARP/SJÓNVARP!!!!!

Skil ekki afhverju það er ekki hægt að hafa neytendaþátt í þessum miðli allra landsmanna!!!!

Er búin að skrifa Þórhalli og einhverjum fleirum þarna í RÚV en það virðist ekki vera neinn vilji fyrir hendi!!!! Einu svörin sem ég fæ eru þau að svona þáttur krefjist mikils undirbúnings!!!! Dísús, eru þetta ekki allt vant fólk sem er að vinna þarna hjá RÚV??? Það ætti ekki að vera mikið mál að hrista einn svona þátt framúr erminni....... ég á frekar erfitt með að sjá það. Með allt þetta starfsfólk, alla þessa tækni, allt þetta aðgengi að neytendum........ er ekki að skilja þetta!!!!

Ég skrifaði Þórhalli bréf.
Hann var snöggur að svara (samdægurs).
Ég skrifaði til baka hugmyndir mínar.
Hann svaraði ekki.
Geir Haarde kom í sjónvarpið og sagði "góðir Íslendingar"
Hélt ég að Þórhallur væri að jafna sig.
Beið þolinmóð.
Skrifaði aftur bréf til að minna á mig.
Skrifaði aftur og aftur og aftur bréf.
Bjó til nokkrar auglýsingar til að vekja meiri áhuga.
Samtalst skrifaði ég 8 bréf.
Þórhalli tókst að svara mér þegar ég sendi bréfið á hann og útvarpsstjóra og einhverja fleiri hjá RÚV sem ég pikkaði út af netfangalistanum þeirra.
Sagði hann hugmyndina góða en hún krefðist mikils undirbúnings.
Skrifaði ég til baka að mér þættu það fátækleg svör.
Hef ekki heyrt í honum síðan.
Hef ekki séð neytendaþátt auglýstann í sjónvarpinu!!!!

Við skulum átta okkur á því að ég er ekki að finna upp hjólið............. það var byrjað á því fyrir 4 árum að reyna að láta þennan bolta rúlla, ekki ég heldur aðrir ............ þannig að RÚV er búið að hafa í það minnsta 3-4 ár til að undirbúa, skipuleggja og hanna eitt stk. neytendaþátt!!!!!

Þarf meiri undirbúningstíma???? Ég bara spyr????

Asnar!!!!!

Eins og hinn ofvirki bróðir minn segði: "þetta eru allt fífl og fávitar, nema ég og........ "

Takk fyrir kveðjurnar og kvittin........... eru mér ómetanlega mikils virði.......... bara svo þið vitið það!!!!
Frú Megabeib

Undarlegur dagur.

08. nóvember 2008 klukkan 02:00
Langaði sko ekkert að blogga í dag.
Í dag var mjög undarlegur dagur.
Gat ekki varist því að hugsa um hvað ég hefði verið að gera fyrir ári síðan.
Hrikalega er þetta leiðindar líf.
Búin að gera leiðið snyrtilegt og setti niður um 60 túlipanalauka með börnunum í dag.
Fáránlegt að vera með börnunum sínum í því að gróðursetja túlipana og snyrta leiði föður þeirra.
Væri skárra ef börnin væru eldri en 10 og 13......... kannski nær 40 og 43.
Söknuðurinn er ekkert minni og undarlegt að hugsa til þess að það skuli vera liðið heilt ár!!

Elsku ástin mín eina

Sakna þín................
Frú Megabeib

Þetta ljóð varð á vegi mínum........ snerti mig....... langaði að deila því með ykkur!!!

06. nóvember 2008 klukkan 01:48



Bræðralagið kristur kenndi,

kærleiksverkin heiðra ber.

Ef þú réttir öðrum hendi,

ertu að hjálpa sjálfum þér.

Ók. höf.

Frú Megabeib

Sofa - sefur - sófir - seifum

05. nóvember 2008 klukkan 10:42
Það er alltof gott að sofa!!!!

Það er að segja á morgnana............... ekki á kvöldin og ekki á nóttunni.......... fyrr en seint............ gott að sofa á morgnana og á daginn!!!

Ekkert plan gengur upp þessa dagana!!!!

Er að fara að út að borða með vinum mínum í kvöld.......... er líka búin að bjóða fólki í mat í kvöld........ hvernig á þetta að ganga upp????  Ekki hægt að fresta hvorugu!!!!

Þoli ekki sjálfa mig....... finnst ég alveg ómöguleg......... vonlaus.......... óábyrg........... löt......... já fullt af öðrum hlutum sem ég ætla nú ekkert að vera að setja á blað!!!!

..................er að fara á eitthvað vefsíðugerðarnámskeið á vegum VMST........... get alveg sagt það í hreinskilni að ég nenni því sko ekki!!!!!  En maður getur víst alltaf á sig blómum bætt!!!!

Er farin til tannlæknis...............
Frú Megabeib

Helgin liðin........

03. nóvember 2008 klukkan 16:21

Var ég alveg ákveðin í því á föstudaginn þegar ég slökkti á tölvunni að ég myndi ekki kveikja á henni fyrr en í morgun!!!!

Tókst það eiginlega alveg næstum því!!!! Þurfti bara að tékka á því hvort ekki væri næg innistæða á reikningum svo ég gæti boðið börnunum mínum í bíó!!!

Ferlega er erfitt að vera án tölvu - netsins og Facebook????  Hvernig fór maður að hérna áður fyrr?????

En þetta gerði það að verkum að ég hamaðist við að sauma allt sem ég hef ekki haft tíma til að sauma undanfarin ár sökum þess hversu upptekin ég hef verið að því að rúnta um á netinu!!!!

Brjálað að gera hjá frúnni......... var í góðum gír við að sauma húfu á einkadótturina þegar nálin tók uppá því að brotna!!!! Þetta er nú óforskammað........ verð að segja það......... hef aldrei fyrr brotið nál í þessari saumavél......... hef lent í því að brjóta nálar í öðrum saumavélum..... jafnvel saumað í fingurinn á mér og brotið nálina þar á eftir.......... en ekki brotið nál í þessari vél fyrr!!!!

Vissi sko alveg hvar ný nál var geymd....... inní kompu/saumaherbergi/strauherbergi/skógeymslu (varð að færa saumaaðstöðuna inn í stofu sökum gífurlegs plássleysis í saumaherberginu!!! þarf að fá stærri saumaaðstöðu)......... en málið var nú bara það að ég fann alls ekki neina nál!!!! ........ eða sko ég fann ekki kassann sem nálin er geymd í........

Mér er þá spurn: hver er tilgangurinn í því að geyma alla skapaða hluti til að nota þá einhverntímann þegar maður gæti haft þörf á því...... þegar maður hefur svo loksins þörf á hlutnum þá finnur maður hann ekki fyrir öllum hinum hlutunum sem maður þurfti nauðsynlega að geyma af því að það gæti komið að því að maður þyrfti kannski á honum að halda einhvern daginn......... er sko ekki alveg að skilja þetta!!!!

Tók mér því penna (eða blýant reyndar, það hljómar bara betur þegar maður segir penna) og blað í hönd og gerði framkvæmdarlista!!!! Legg ekki meira á ykkur!!!!!

Gerði plan yfir hvað ég ætlaði að gera í dag, og þar stóð sko ekki að ég ætti að fara aftur upp í rúm og kúra þegar ég væri búin að koma börnunum í skólann........ nei nei nei..........

- börnin í skólann
- pilates við sjónvarpstækið (jú keypti einhverntímann fyrir löööööööngu svona svaka fína Pilates CD, til að maður geti nú bara tekið ræktina heima....... það var einhverntíman í stundarbrjálæði þegar ég taldi sjálfri mér trú um að þetta væri eina hindrunin í lífi mínu fyrir því að ég væri ekki höj og slank, og jú svo var hann á svo svakalega góðu tilboði í sjónvarpsmarkaðnum)
- sturta
- morgunkaffi í næsta bæ
- heim áður en börnin koma heim
- stoppa í saumabúðinni og kaupa nýjar nálar
- sauma húfuna og bikiníið (eða allavega setja nýjann lás á bikikníið....... ætla sko ekki að lenda í því að liggja á ströndinni á Kanarý og vera búin að brjóta smelluna aftur og þurfa bara að vera þar á jullunum!!! Er búin að prófa það einusinni........ hef ekki áhuga á því að gera það aftur!!!!)
- elda mat (það verður reyndar auðvelt........ afgangur frá því í gær!!! Langaði svo svakalega í pörusteik að ég fór og keypti eitt stk. í Bónus. 2,7 kíló, legg ekki meira á ykkur!!!! Ætlaði nú að bjóða einhverjum í mat, en komst þá að því að ef ég myndi bjóða einhverjum í mat, þá væri engin leið að komast hjá því að taka til...... og því nennti ég sko ekki, heldur eldaði ég bara 2,7 kílóa pörusteikina handa mér og einkasyninum..... einadóttirin var að heiman í enn einu Hrekkjavökupartýinu!!! Þannig að það er sko nægur afgangur hér á þessum bæ.......... verð að finna einhverjar uppskriftir sem innihalda pörusteik........ svo við getum dundað okkur við að borða pörusteik út vikuna!!!!)
- hlusta á einkadótturina lesa
- horfa smá á sjónvarpið
- fara á skynsamlegum tíma í rúmið (og þá meina ég áður en það verður komið miðnætti í New York!!!!!)

Enn sem komið er gengur planið bara nokkuð vel ........... man reyndar ekki eftir að hafa skrifað neitt um að ég ætti að blogga í dag............. en skelli því inn á listann fyrir morgundaginn........ því frá og með núna verður sko gerður svona listi fyrir hvern einasta dag!!!!!!

......ég get svo svarið það........ maður gæti haldið að ég sé haldin slæmri puttræpu????

Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar