Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Miðvikudagur 29. ágúst 2007 - fyrri hluti

31. janúar 2009 klukkan 00:00
Nú er þetta að verða ágætt af þessu spítalaveseni. Er bara ekki að nenna þessu meira. Mér hafa alltaf leiðst spítalar.

Í dag vilja þessir læknar endilega hitta okkur hjónin bæði. Maðurinn minn leggur mikla áherslu á að ég sé örugglega komin þegar læknarnir komi! Þeir leggja mikla áherslu á að við séum þarna bæði.

Er ekki alveg að nenna þessu. Mamma og pabbi eiga 40 ára brúðkaupsafmæli í dag og það er nóg annað að gera en hanga á þessum spítala.

Þeir eru hvort sem er að fara að útskrifa hann og ætla bara að gefa upplýsingar um hvað eigi að gera til að halda sárinu í vélindanu lokuðu og bla bla bla. Er ekki alveg að sjá afhverju ég þurfi að vera þarna. Ási hlýtur bara að geta sagt mér hvað þessir læknar hafa að segja þegar hann kemur heim!

En maðurinn minn gefur sig ekki. Ég á að vera þarna með honum!

Allt í lagi, ég get svo sem reynt að troða því einhversstaðar fyrir þarna í dagskrá dagsins!

Maðurinn minn leggur mikla áherslu á að ég komi á réttum tíma. Endalaust þetta tuð alltaf hreint um að ég sé of sein! Get ekki alveg séð að það skipti máli, læknarnir verða alveg örugglega ekki komnir á undan mér! Þeir eru alltaf einhversstaðar annarsstaðar og hafa oftast ekki tíma til að stoppa til að tala við mann hvort sem er!

Við hjónin eigum nokkur orðaskipti, já hreinlega rífumst yfir þessari óstundvísi hjá eiginkonunni, en ég lofa því að koma á réttum tíma.

Ég geri það líka, næstum því, munaði ekki nema nokkrum mínútum! Og það var alveg eins og ég vissi, læknarnir voru ekki komnir! Ætla ekki að stoppa lengi. Setti bara pening í stöðumælinn fyrir klukkutíma, svo það er ekkert hangs í boði!

Það er búið að færa Ása inn á einkastofu. Það var gert einhverntíman fyrr í vikunni. Það er gott því þá getur hann allavega sofið. Unnið í tölvunni og tekið á móti gestum.

Hjúkrunarkonan kemur inn. Þessi sem við erum búin að hafa mest samskipti við. Hún býður okkur að koma í annað herbergi. Við erum ekki alveg að skilja það. Það er bara svo notalegt að vera í þessari stofu, til hvers þurfum við að fara á annan stað? Hún segir að það sé alltaf gert svoleiðis þegar læknirinn vilji tala við sjúklinginn og aðstandendur um þessi mál.

Ég er ekki alveg að skilja þetta. En ef þeim líður betur að vera í einhverju öðru herbergi meðan okkur verður sagt hvað eigi að gera til að laga sárið og áframhaldandi meðferð við henni, þá er mér alveg sama.

Við förum innar á ganginn. Þar er lítið fundarherbergi. Hjúkrunarkonan og læknirinn setjast öðrumegin við borðið, við hjónin hinumegin.

Læknirinn fer fínt í þetta. Í öllum þessum rannsóknum sem þeir eru búnir að vera að gera undanfarna daga þá hafa þeir meðal annars tekið sýni úr sárinu. Ég er ekki að skilja hana. Til hvers tekur maður sýni úr sárinu. Til að vita hvers konar bakteríur eru þar auðvitað, til að vita hvers konar sýklalyf eigi að nota!

En ef það hefði nú bara verið svo gott!

Sýnið sem þeir tóku úr sárinu sýnir að það sé krabbameinsfrumur í því. Eftir því sem þeir komast næst þá séu þær margar og miklar. Staðreindin sé að þetta séu illkynja krabbameinsfrumur. Þeir eigi eftir að skoða þetta betur en eftir því sem þeir komist næst þá hafi þeir bara séð toppinn á ísjakanum. Það sé stórt æxli fyrir aftan sárið!

Hendurnar á okkur hjónunum leita hver í aðra. Við grípum dauðahaldi. Höldumst í hendur eins og við gerum svo oft, því það er svo gott.

Maðurinn minn er jafn raunsær og niðri á jörðinni og alltaf og spyr því: "Hvað þýðir þetta? Er þetta dauðadómur eða hvað?"

Læknirinn svarar því til að hún geti nú ekki svarað því þar sem hún sé ekki krabbameinslæknir, heldur bara magasérfræðingur. Það komi krabbameinslæknir á eftir og tali við okkur. En þetta líti ekki vel út.

Dauðadómur? Krabbameinslæknir! Illkynja! Toppurinn á ísjakanum! Krabbamein!

Það var þá sem ég byrjaði að falla, detta úr lausu lofti.
Frú Megabeib

Sunnudagur 26. ágúst til og með þriðjudagur 28. ágúst

29. janúar 2009 klukkan 22:43
Dagarnir renna dáldið í eitt.

Man ekki hvað gerðist á hvaða degi, man bara að það hentaði mér alls ekki að maðurinn minn væri á spítala!

Mamma og pabbi voru komin heim og það átti að mála þakið á höllinni.

Ég fór með pabba að kaupa málningu
Ég fór með mömmu til ömmu.
Ég fór að versla.

Ferlega fór þetta í taugarnar á mér! Ekki að snattast með þeim, því það er svo gaman að fá að hitta þau aftur. Heldur að Ási minn skuli vera á spítala og geta ekki tekið þátt í þessu með okkur. Okkur fjórum finnst svo gaman að vera saman!

Sunnudagsmorguninn er dagur tvö sem mamma og pabbi eru hérna hjá okkur og við hefðum getað setið og haft það huggulegt í morgunkaffi, eins og okkur finnst svo notalegt.

Í stað þess er maðurinn bara á spítala!!!

Í rannsóknum! Voðalega geta þessir menn endalaust rannsakað fullfrískan manninn!

Það er búið að senda hann í magaspeglun og ómskoðun og taka fullt af blóðprufum.
Þeir eru búnir að komast að því að hann er með blæðandi sár á vélindanu.
Þá er hann kannski ekki alveg fullfrískur, en geta þeir þá ekki bara gert við það? Svo hann geti komið heim til mín!

Gera þeir sér enga grein fyrir því að ég þarf á honum að halda?
Honum leiðist líka alveg heil ósköp.

Ég hef ekki svo mikinn tíma til að vera með honum. Ég man hreinlega ekki hvað ég var að gera svona mikið, en ég var eitthvað að snattast með mömmu og pabba og sinna börnunum.

Ég er þó búin að fara með vinnutölvuna til hans, svo honum leiðist aðeins minna.

Ég get ómögulega verið að hanga á þessum spítala bara til að hanga þar! Jú kannski vera hjá manninum mínum en það er alltaf verið að ná í hann og fara með hann í hinar ýmsu rannsóknir.

En það er allt í lagi, hann er alveg að koma heim til mín. Lít bara á þetta eins og hann sé í vinnunni. Þá hangi ég hvort sem er ekki yfir honum allan daginn.

Sonurinn þarf að leysa verkefni í stærðfræði. Að sjálfsögðu förum við bara með það með okkur upp á spítala. Þá getur Ási minn hjálpað honum við að leysa það. Hann er svo miklu klárari í stærðfræði en ég.

Við hittum fólk. Það eru gestir sem koma og fara.

Ég man að við eina gestina sem komu í heimsókn barst Las Vegas í tal.

Við hjónin horfðum á hvort annað og brostum hringinn, við sögðum þeim frá því að við værum með plan. Við ætluðum að fara til Las Vegas og gifta okkur þegar við ættum 25 ára brúðkaupsafmæli. Við ætluðum að fara "in the little white chapel" og láta Elvis sjálfan gifta okkur. það styttist óðum, ekki væri nema ár síðan að við hefðum endurnýjað heitin okkar, á koparbrúðkaupinu, svo við værum komin í æfingu!

Þeir litu hvor á annan, voru undarlegir á svipinn.
Litu svo á okkur, mér fannst það vera með meðaumkun í svipnum, skildi það ekki!

Ég var svo sannarlega á leiðinni til Las Vegas eftir ellefu og hálft ár með manninum mínum!

Því svo mikið elskaði ég hann að ég gæti gifst honum aftur og aftur og aftur og aftur!!!
Frú Megabeib

Laugardagurinn 25. ágúst 2007

28. janúar 2009 klukkan 19:08

Ég opna augun. Ég er ein í rúminu. Maðurinn minn er á spítala.

Það er ekki gott.

Sonur minn kemur inn í herbergið, sest á rúmið hjá mér og segir: "mamma, hvaða sjampó á ég að nota til að geta þvegið þessa lús úr hausnum á mér?"

Lús? Hvaða vitleysa var í barninu? Hann hafði aldrei á ævinni fengið lús!

Ég sagði honum að hann væri nú örugglega ekki með lús en fór með honum fram til að finna til handa honum sjampó svo hann gæti þvegið á sér hárið.

Í leiðinni kíkti ég á hvort það gæti verið að hann væri kominn með lús!

Sem betur fer var móðir mín á staðnum og gat staðfest þá leiðindar staðreind að barnið var komið með lús! Ekkert eina eða tvær, heldur skiptu þær hundruðum!

Uppi varð fótur og fit. Enginn lúsakambur fannst á heimilinu, þrátt fyrir að móðir mín hafi keypt lúsakamba handa mér með reglulegu millibili í gegnum árin. Ég þurfti bara ekki á þeim að halda þar sem við á okkar heimili fengum aldrei lús!

Ég endasentist upp í apótek, frekar pirruð yfir því að Ási skyldi bara vera á sjúkrahúsi í góðu yfirlæti en ég þyrfti að fara að standa í því að fara á lúsaveiðar!

Morgunkaffið sem okkur hjónunum var búið að hlakka til lengi, var fokið út í veður og vind.

Ég hreinlega man ekki hvort ég var búin að kaupa álegg og meðlæti með morgunkaffinu. Það hafði átt að gerast daginn áður. Ég man bara að ég var pirruð yfir því að læknarnir vildu endilega halda Ása mínum þarna inni, þegar það þyrfti að fara og versla! Mér leiðist að versla og maðurinn minn tók það yfirleitt að sér eða fór með mér. Sem þýðir að annaðhvort hef ég farið og verslað eitthvað í pirringskasti eða ákveðið að geyma það bara handa Ása þegar hann kæmi heim!

Eflaust höfum við borðað eitthvað, þó ég muni ekki hvað það var. Man bara að mamma og pabbi voru með mér í eldhúsinu þar sem ég stóð og reyndi að kemba börnunum mínum.

Eftir hádegi þennan dag var í fyrsta skipti sem átti að vera lítið "ættarmót" hjá mömmu. Var það haldið í Grímsnesinu. Við höfðum ætlað að fara, öll fjölskyldan, saman.

Þar sem maðurinn minn var kominn á sjúkrahús og börnin þurftu klippingu í stað kembingar, hætti ég við að fara, þó mér væri það óljúft! Varð enn og aftur fúl út í að maðurinn minn væri bara að hugga sig á spítala meðan ég þyrfti að standa í þessu öllu saman ein og þurfa þar af leiðandi að sleppa ættarmótinu!

Börnin voru kemd, klippt, þvegin og strokin. Móðirin var kemd, þvegin og strokin. Skipt var um á öllum rúmum. Þvotturinn gæti beðið þangað til heimilisfaðirinn kæmi heim, þá gat hann allavega gert eitthvað, ég þyrfti ekki að gera allt saman ein!

Síðan var brunað uppá spítala. Búin að fá þær fréttir að maðurinn minn þyrfti líklegast að vera inni þangað til á mánudaginn, þar sem ekki væri hægt að gera fleiri rannsóknir um helgar og þar sem hann var svo blóðlítill var ekki talið ráðlegt að senda hann heim. Best væri að koma blóðinu í honum á réttan kjöl.

Aðstaðan hans var ömurleg. Hann var á gigtardeildinni, þar var eina plássið sem var laust á öllum spítalanum. Ekki nóg með það heldur var hann staðsettur á ganginum. Þetta hentaði mínum manni ekki vel. Innan um alla þessa gamlingja og veika fólk. Enda ekkert að honum fullfrískum manninum.
Hann svaf illa, hann sem svaf alltaf eins og steinn. Laggðist á koddann og var sofnaður. En hann svaf illa þarna á ganginum.

Við komum seint til hans, enda hafði verið nóg að gera við að klippa og kemba. Við færðum honum ekki neitt, eða ég man ekki eftir því, hann var hvort sem er að koma heim.

Ég fór heim með börnin og eyddi kvöldinu í að týna nit úr hárinu á þeim. Það var af nógu af taka.

Fannst mér þetta orðið alveg nóg sem gengi á hjá einni fjölskyldu á einni helgi. Gott að brátt kæmi mánudagur og Ási minn kæmi heim til okkar aftur.

Ég komst að því að ég var algerlega háð honum, nærveru hans, samveru og samvistum.
Við höfum oft verið án hvors annars, sökum vinnu og náms, en þetta var einhvernveginn öðruvísi.

Mér leið eins og vængbrotnum fugli.

Frú Megabeib

Föstudagurinn 24. ágúst 2007

28. janúar 2009 klukkan 00:34

Við sitjum frammi í eldhúsi í morgunmatnum ég og börnin, þau að gera sig klár til að fara í skólann og ég að lesa blað dagsins.
Maðurinn minn kemur inn í eldhús. Honum er verulega illt í fætinum. Er ekki að skilja þetta. Vont að stíga niður og eins og hann hafi tognað.

Ekki væri það skrýtið að hann hefði tognað, hann var búinn að eyða síðustu tveimur kvöldum þar á undan í að háþrýstiþvo þakið á höllinni. Tengdafaðir hans var væntanlegur til landsins um kvöldið og ætlaði hann meðal annars að mála þakið í stoppi sínu á ættjörðinni.

Ég sagði við hann að ég skildi bara athuga hvort ég fengi ekki tíma hjá lækni fyrir hann. Hann var líka búnn að vera með einhvern undarlegan hósta í nokkurn tíma, sem virtist vera að ágerast. Kannski best að fá einhvern læknisfróðan til að kíkja á þessa elsku.

Að því búnu hélt eiginmaðurinn til vinnu og börnin í skólann.

Frúin laggðist í símann! Fékk eftir þónokkra bið samband og var svona ljónheppin að koma manninum til læknis bara innan klukkutíma!

Maðurinn minn fór til læknisins. Læknirinn komst að því að þetta væri nú eitthvað skrítið, kannski eitthvað annað en að hann hefði bara snúið sig og tognað uppi á þaki. Skil ekkert í þessum lækni. Venjulega segja þeir bara, já settu á þetta bindi og taktu bólgueyðandi í nokkra daga og þá verður þetta farið.

En ekki þessum lækni. Hann sendi hann strax í ómskoðun til að athuga hvað væri eiginlega að gerast með fótinn á Ása mínum. Jafnframt pantaði hann tíma í magaspeglun handa honum, því honum leist ekkert á þennan hósta sem hann var með. Hóstinn ágerðist þegar hann lá útaf og var sérstaklega slæmur þegar hann var að borða.

Var ég reyndar búin að taka eftir því í þó nokkurn tíma, en tengdi engan veginn, hvernig í ósköpunum átti ég að gera það? Það var ekki fyrr en löngu seinna að púslin fóru að raðast saman og augun á manni opnuðust fyrir því að þetta var búið að vera lengur í aðsigi en nokkurn hafði grunað.

Eiginmaðurinn fór í ómskoðun í Dómus Medica.

Eitthvað fannst þeim hann skrítinn þar svo þeir sendu hann inn á slysadeild í blóðrannsókn og einhverjar fleiri myndatökur. Ég hef aldrei náð því nákvæmlega hvað þeir dunduðu sér við að skoða og kanna, en það var potað og stungið og myndað. Eitt af því versta sem maðurinn minn, hetjan mín, vissi var að láta stinga sig. Mér fannst það alltaf athyglisvert, því mér þykir það ekkert tiltökumál, en hann tók alveg út fyrir það. Þrátt fyrir að vera samviskusamur borgari og gefa blóð reglulega.

Þetta var fljótlega eftir hádegi sem hann var kominn inn á slysó og sat þar og beið, leiddist alveg helling, því hann fullfrískur maðurinn, hafði ekkert að gera þarna inni!

Ég eygði ennþá þá von að hann myndi fara út á flugvöll og ná í tengdaforeldra sína, því mér þykir ekkert gaman að keyra, en honum fannst það allt í lagi og við vorum í það góðu hjónabandi að við skiptum á milli okkur verkum.

Þegar komið var fram yfir kvöldmat og maðurinn minn ekki kominn heim ennþá, fór ég að verða aðeins pirruð á þessum læknum þarna á Borgarspítalanum fyrir að halda honum svona lengi þarna. Gerðu þeir sér enga grein fyrir að hann þurfti að fara út á flugvöll!!!

Þegar nálgaðist að foreldrar mínur lentu á ástkærri fósturjörðinni var sú niðurstaða komin í málið að hann yrði að vera þarna inni yfir nótt, þar sem hann væri svo blóðlítill. Þeir ætluðu að bæta í hann blóði og rannsaka eitthvað fleira! Hvað svo sem það gæti nú verið þar sem hann var fullfrískur maðurinn!

Ég man þegar ég fór upp á slysó, því hann var ennþá þar, yfirfullur spítalinn eins og venjulega og þeir vissu ekkert hvar þeir ætluðu að setja hann um nóttina.
Ég man hvað við vorum ergileg yfir því að hann færi ekki að ná í ma og pa.
Ég man hvað við vorum ergileg yfir því að við gætum ekki notði þess að eiga morgunkaffisstund með þeim á laugardeginum.
Ég man hvað ég var pirruð út í hann fyrir að vera með þetta vesen og geta bara ekki náð í þau eins og búið var að ákveða!
Ég man líka hvað hann var leiður yfir því að geta ekki farið og náð í þau, því hann vissi alveg upp á hár hvað mér var illa við að fara út að keyra alla leið til Keflavíkur seint um kvöld.

Ég fór og náði í foreldra mína og voru þau hissa á því að ég skildi vera komin að ná í þau, en ekki Ási. Þau höfðu átt von á honum.

Það sló á gleði endurfundanna þegar ég sagði þeim að hann væri á spítala og þeir ætluðu að halda honum yfir nótt.

En ekki grunaði okkur að gleðin ætti eftir að fara þverrandi og örvæntingin, vonbrigðin, reiðin, sorgin, vanmátturinn og afneitunin ætti eftir að taka svona stóran part af lífi okkar næstu vikur og mánuði.

Frú Megabeib

Doði..........

27. janúar 2009 klukkan 00:52
Það er margt sem ruggar bátnum hjá mér þessa dagana!!!

Ég er búin að taka meðvitaða ákvörðun um að fylgjast ekki með þjóðmálunum........ af þeirri einföldu ástæðu að ég hef ekki orku í að setja mig inn í þetta allt saman........ hver er hvað, afhverju þetta er svona eða hinsegin....... kosningar eða ekki kosningar........ útrásarvíkinar og bla bla bla...... fæ að vita það nauðsynlegasta ef ég legg mig niður við að hlusta á fólk þegar það er að tala saman......

Ég veit alveg að mér kemur þetta við........ eins og öllum öðrum á Íslandi....... en ég er bara búin að taka þá ákvörðun að hafa ekki skoðun á þessu máli....... og það fer dáldið í taugarnar á mörgum!!! En ég læt það ekki slá mig út af laginu......... held bara ennþá mínu striki og veit ekki neitt!!!!

Meira segja þegar mestu lætin voru þarna fyrir framan Alþingi..... var það ekki í síðustu viku..... þá hélt ég í alvöru þegar fólk byrjaði að tala um óeirðirnar að það væri að tala um ástandið á Gaza eða einhversstaðar úti í heimi!!!!

Þá er ég bara fréttaljóska!!!! Kann ekkert, veit ekkert og hef á því enga skoðun!!!!

En frétti þó af því að blessaður forsætisráðherrann hefði greinst með krabbamein........ og þegar ég heyrði að þetta var eins krabbamein og Ási minn var með......... shitt....... þá fór ég aðeins að leggja við hlustir!!!

Því þegar við fengum að vita að Ási væri með þennan viðbjóð inni í sér....... skelltist bara í lás hjá frúnni og alger afneitun fór í gang....... þetta gat ekki verið að koma fyrir mig/okkur!!!!

Ég man þegar við sátum og læknirinn sagði okkur að sýnin sem þeir hefðu tekið úr vélindanu bentu til þess að þetta væri krabbamein........ og væntanlega væri þetta illkynja......... ég man það hvað heimurinn hrundi..... eða ........ hvernig ætli sé hægt að lýsa þessu........ það var eins og ég byrjaði að detta...... svona eins og í draumi þegar maður fellur fram af háu bjargi........ aftur fyrir mig....... bara í frjálsu falli!!!! Dísús...... konan gat ekki verið að segja að maðurinn MINN væri með krabbamein......... hann hafði bara farið inn á spítala til að láta skoða þennan blóðtappa sem var í löppinni á honum....... og jú svo var hann eitthvað blóðlítill.......... en krabbamein!!!! Ég hafði aldrei þekkt neinn sem hafði fengið þennan dóm...... illkynja krabbamein!!!! Ég man að ég hélt áfram að falla í frjálsu falli........ þangað til ég komst að því að ég þyrfti að pissa!!!!

Fór fram á klósett...... allt gekk í bylgjum...... eins og ég væri að labba í jellýi........ þegar ég svo kom til baka þá voru þær (því það var hjúkka með lækninum)..... fullar af hluttekningu í framan........ ég gat nú ekki skilið það....... þar sem þetta gat ekki verið að gerast!!!! Mér var boðið tissjú....... ég þurfti ekki á því að halda þar sem ég þurfti ekkert að gráta........ þar sem þetta var bara ógeðsleg martröð og ég hlyti að fara að vakna!!!! ....... ég hef oft heyrt fólk lýsa þessu svona........ en að ég ætti einhverntíman eftir að upplifa þetta hafði ég enga trú á......... og tilfinningin var virkilega þessi: draumur, martröð og ég hlyti að fara að vakna!!!!!

Ég held að það sem kom mér í gegnum daginn og næstu daga, vikur og mánuði var alger afneitun sem ég var í ......... þetta gat VIRKILEGA ekki verið að gerast!!!!

Þannig að ég vissi ekkert um þetta krabbamein sem elsku ástin mín hafði fengið........ vissi bara að það var þarna í vélindanu........ en hann þessi elska var búinn að lesa sér til um þetta allt saman...... og ég hefði bara þurft að spyrja hann...... en ég þorði því ekki einusinni!!!! Því ef ég spyrði, ef ég ræddi þetta var möguleiki á því að þetta væri ekki allt saman ógeðis draumur!!!!

Nú veit ég miklu meira um þetta krabbamein........ bara afþví ég er búin að lesa um það í blöðunum undanfarið!!!!

Svo fékk ég þær fréttir í dag að góður vinur minn í DK var að greinast með blóðmergskrabbamein!!!!

Finn að ég er að detta inn í svona doðatilfinningu....... langar ekki neitt........ vill ekki neitt........ langar bara að liggja einhversstaðar og vera ekki til!!!! Allavega í smá tíma!!!!

Mér sem fannst ég vera komin svo langt á veg í sorgarferlinu mínu....... en ég finnst núna að ég sé ekki komin rassgat!!!!
Frú Megabeib

Bakarar dagsins!!!!

26. janúar 2009 klukkan 17:40
Það var sko bara pöntuð pizza í kvöldmatinn í gær!!!!

Verð að fara að kaupa þennan ísskáp ........... það eyðileggst allt í þessum...... þannig að það er ekkert keypt inn........ þannig að það er ekkert hægt að elda!!!! ......... sem er kannski gott, því þá þarf ég ekki að elda!!!!

Börnin mín eru dásamlegustu börn í heimi!!!

Ég fór í ræktina..... á leiðinni þangað var hringt í mig og spurgt að því hvort þau mættu baka!!!! Ég sagði bara já!!! Ákvað að taka bara á því þegar ég kæmi heim ef allt eldhúsið væri á hvolfi..... sko meira hvolfi en það er núna....!!!!

En þegar ég kom heim..... lá bökunarlyktin í eldhúsinu........ muffins kökurnar stóðu tilbúnar á borðinu..... uppþvottavélin í gangi ......... og ekki sást tangur eða tetur af því að það hefði verið að baka!!!!

Þau eru snillingar!!!!
Frú Megabeib

Sunnudagur í sófanum!!!

25. janúar 2009 klukkan 13:51
Komst aldrei á tónleikana í gær!!!
Komst bara á dansgólfið!!!
Var komin heim á skynsamlegum tíma.
Er með 3 nýjar blöðrur á fótunum.
Ætla þrátt fyrir það í ræktina á morgun!!!
Ætla núna að leggjast í sófann og gera ekki neitt!!!!!

HVAÐ Á ÉG AÐ HAFA Í KVÖLDMATINN???????????
Frú Megabeib

Laugardagur í ræktinni!!!!

24. janúar 2009 klukkan 12:29

Innan í hausnum á mér er allt á yfirsnúningi!!!!

Ég hugsa í hringi!!!!

Ferlega er þetta óþægilegt........ þá verð ég eitthvað svo ónóg sjálfri mér...... ætli það sé ekki skynsamlegt að setjast niður og vinna heimavinnuna mína úr námskeiðinu sem ég var á....... efa það ekki eina einustu sekúndu að það hjálpar!!!! Það er bara svo vont!!!

Ég sagði það....... ég hugsa í hringi!!!!

Vildi óska þess að mér liði ekki svona......... er eitthvað svo tætt!!!!

Undanfarnar vikur....... já jafnvel mánuði er ég búin að gera fullt af "grænseoverskridende" hlutum...... fara laaaaaaangt út fyrir það sem ég er vön að gera..... þrátt fyrir að halda mig í sama farinu eins og sofa fram að hádegi, þvo ekki þvott og nenna ekki að elda, þrífa eða taka til!!!!!

Ég sit og naga á mér neglurnar!!!

Ég hangi endalaust á netinu í leit að einhverju sem ég veit ekki hvað er!!!

Mér finnst gaman að dansa...... mér finnst alveg óhemju gaman að daðra!!!

Ég man eftir því að þegar við hjónin fórum saman út að dansa....... Ási dansaði nú ekki mikið......... sat heldur og kjaftaði og hafði auga með konunni sinni!!!! Kom svo og dansaði við mig þegar aðrir karlmenn á dansgólfinu fóru að gerast full nærgöngulir að hans mati!!!

Það var gott......... því þá gat ég daðrað alveg eins og vitleysingur...... vitandi það að það yrði aldrei neitt meira...... það var "save" ........ og ef einhver misskildi skilaboðin sem ég sendi frá mér og hélt að ég vildi eitthvað meira og ætlaði sér þá að sækja það........ kom Ási minn og bjargaði mér!!!!

Nú er ekki eins "save" að dansa og daðra......... nú hef ég ekki lengur Ása minn til að bjarga mér ef einhver misskilur skilaboðin!!!!!

Þetta er hættulegur leikur.......... en "grænseoverskridende" ........ og ég er búin að stunda dans og daður á fullu í hvert skipti sem ég hef farið út að dansa........ og þau eru ekki ófá skiptin!!!!

Gott að ég er farin að þekkja dyraverðina....... get notað þá sem "vara" Ása!!!!

Í kvöld ætla ég að vera spök og fara á tónleika!!! Það verður gaman!!!!

Búin að fara í ræktina í dag...... þar sem ég ætla ekki að fara og dansa í kvöld....... þá tók ég extra vel á því!!!!

Kannski ég taki til og þrífi hérna heima hjá mér....... ekki veitir af!!!!

Frú Megabeib

Surprise!!!!

23. janúar 2009 klukkan 08:54
Sökum gífurlegrar þreytu, eftir alltof langa vöku langt fram á nótt í gær......... ætla ég að skríða upp í rúm aftur ....... bara um leið og ég er búin að ljúka við að blogga!!!

Get ómögulega farið í ræktina........ lappirnar á mér eru ónýtar!!!! Það er nánast hægt að henda þeim!!!! Þessvegna ætla ég bara að fara einusinni í ræktina í dag!!!! Fór semsagt tvisvar í gær....... legg ekki meira á ykkur!!!!

Hef nákvæmlega ALDREI á æfinni látið það hvarfla að mér að fara í ræktina tvisvar á dag!!!! Þegar ég hef verið sem duglegust í ræktinni fór ég sex sinnum í viku........ en alltaf bara einusinni á dag!!!!! Svo núna er ég hreinlega ofvirk í þessum málum!!!! En í dag ætla ég að láta mér duga að fara bara einusinni!!!!

Svo ætla ég að fara og kaupa ísskáp!!!!

Fór þó með bílinn í eigendaskipta-eitthvað í gær og skoðun og smurningu........ þannig að nú er ég 30 þúsundum krónum fátækari!!!!
Langar að fara með hann í alþrif....... þar sem einhver dúllar við bílinn minn...... bónar hann og strýkur......... ætli ég verði ekki að setja það á fjárlög fyrir næsta mánuð!!!!

Um helgina ætla ég að fara á tónleika......... hlakka til...... ætla að reyna að vera dáldið menningarleg........ dansar maður á tónleikum???

.......... er farin upp í rúm.......... sængin ennþá heit........ svo ætla ég í ræktina á eftir......... og halda áfram að glóa!!!! ....... Kannski bara alla helgina!!!!
Frú Megabeib

Dagurinn í dag!!!!

22. janúar 2009 klukkan 08:25
Neitaði alfarið að fara upp í rúm aftur í dag!!! Nenni ekki að fara og dreyma einhverja leiðindar drauma sem skilja ekkert eftir sig nema í mesta lagi ógleði og vanlíðan!!!! ..... og það að ég á eflaust ekki eftir að geta sofnað í kvöld!!!!

Svo nú er ég komin á fætur og til að láta ekki eftir löngun minni til að skríða uppí aftur, hef ég ákveðið að blogga......... því ég er nú bara einu sinni mannleg ........ langar bara alveg hrikalega til að fara undir sæng aftur...... veit að hún er ennþá volg...... það er sandur í augunum á mér og ég rétt næ að halda þeim opnum.......... en ég SKAL standast freistinguna!!! ....... um hvað ég ætla að blogga veit ég ekki ennþá en það kemur í ljós á næstu mínútum!!!!

Er að skipuleggja daginn í huga mér........ ég er að hugsa um að byrja á því að fara í ræktina..... fara svo með bílinn í skoðun og eigendaskipta-eitthvað......... skella þessari elllllllsku svo í smurningu...... fara og ná í bókina á pósthúsið......... fara og athuga hvort það sé búið að selja ísskápinn min...... kaupa hann ef hann er ennþá til............ finna út leið til að koma honum hingað heim til mín!!!!!

Þetta eru ágætis plön fyrir daginn........

Heyrði kjaftasögu í gær....... eða kannski ekk kjaftasögu......... æi svona eina af þessum sögum sem þú heyrir í amstri dagsins...... ó mæ god hvað mig vantaði að segja Ása mínum þessa sögu!!!! Prófaði að segja öðrum sem nenntu að hlusta á mig söguna.......... en það var virkilega alls ekki eins!!! Sérstaklega vegna þess að þetta var svona ...... manstu eftir honum XXXX, veistu hvað ég var að heyra, manstu þegar xxxx og yyyy fóru með okkur til ....... og þá jada jada og veistu bara hvað þau...... finnst þér það ekki fyndið!!! Ég átti sko ekki von á því..... en þú???
Innihalds laus saga hversdagsins....... ef við hefðum bara verið skilin hefði ég getað sagt þetta við hann næst þegar ég heyrði í honum....... eða bara hringt í hann til að segja honum þetta!!!! Svindl, svik og prettir endalaust!!!

Þetta var pirr pirr móment gærdagsins!!!!

Ekki eftir neinu að bíða........ er farin að svitna í ræktinni!!!!

Frú Megabeib

Sviti og tár......... eða bara mega sviti!!!!

21. janúar 2009 klukkan 17:26
Mikið er ég svakalega ábyggilega, ábyggileg!!!!

Var að koma úr ræktinni ........ sveitt og sæt!!!! Gleymdi semsagt heima: handklæði, sturtusápu, þurrum nærfötum!!!!

Fór því bara í úlpuna og fer bara í sturtu hérna heima!!! Þangað til verð ég sveitt og sæt!!!!

Annars fékk ég dásemdar hrós áðan....... í ræktinni...... hitti gamlan vin og hann sagði: "mikið svakalega líturðu vel út....... þú glóir!!!" ......... wów......... semsagt sveitt og sæt!!!!

Átti frekar erfitt með að sofna í gærkvöldi......... þrátt fyrir að hafa stútað eins og einni Ísfólksbók fyrir svefninn....... lá og hugsaði um allt milli himins og jarðar og fann enga eirð í að liggja þarna og láta svefninn ná tökum á mér!!!!

Ég var gjörsamlega búin að komast að því hvað ég ætlaði að blogga um í dag........ og að sjálfsögðu er ég búin að steingleima því!!!! Bara um leið  og svefninn sigraði held ég!!!!

Annars skil ég ekki hvað ég get svitnað hrikalega þegar ég er í ræktinni........ þetta getur ekki verið eðlilegt!!!!
Ég er varla farin af stað þegar ég er byrjuð að svitna......... og svo rennur bara af mér í stríðum straumum!!!! Mér finnst ég ALLS EKKI innbyrgða svona mikinn vökva ...... þannig að ég get ekki skilið hvaðan þetta kemur...... nema þetta sé fita sem er búin að umbreytast í vatn og spýtist út um svitaholurnar!!!! Það hljómar alls ekki illa!!!!
Frú Megabeib

Hvað skiptir máli???

20. janúar 2009 klukkan 16:34
Ferlega er maður fljótur að detta aftur í sama farið!!!!

Nú er námskeiðinu lokið........ og ég get skriðið aftur upp í rúm þegar börnin mín eru farin í skólann..... og ég geri það miskunnarlaust!!!

Ég átti date í morgunkaffi í morgun ..... fór samt upp í rúm aftur!!!! Hefði sko betur farið á fætur eins og ég hafði svo góð plön með í gær þegar ég fór að sofa........ ég ætlaði að vakna með börnunum, fara í sturtu, fara með bílinn í smurningu, fara með bílinn í skoðun og eigendaskipti, fara og kaupa strigaskó........... en öll þessi fínu plön urðu að engu þegar ég skreið uppí aftur!!! Hefði annars betur sleppt því ........ dreymdi þvílíkann ófögnuð ...... eina sem ég get virkilega sætt mig við er það að draumar sem maður dreymir svona árla morguns hafa enga merkingu!!!! ........ eða er það ekki????

Fór í gær og skoðaði íþróttaskó...... ALLIR skórnir í búðinni, sem pössuðu á mig í það minnsta, eru forljótir!!! ...... ég ætla sko ekki að láta sjá mig á hlaupabrettinu í ræktinni í svona ljótum skóm!!!! Þá er næstum því skárra að vera bara berfættur!!!! Veit ekki hvernig ég á að snúa mér í þessu máli...... verð kannski bara að fara í fleiri íþróttavöruverslanir........ það hljóta vera einhverjir skór þarna úti sem eru ekki forljótir og ég passa í!!!!

En ég fann þennan fína ísskáp í gær....... er að spá í að fara bara á eftir og kaupa hann!!!! Veit reyndar ekki hvernig í ósköpunum ég ætla að koma honum heim........ en það hlýtur að reddast!!!! Set hann þá bara í skottið á bílnum mínum ef ekki vill betur!!!! Kannski ég ætti að drífa mig í að fjárfesta í honum ...... svona áður en einhver annar nappar honum á undan mér!!!

Annars finnst mér alltaf skrítið að fara í Holtagarðana......... þar er svona svakalega fínt rúlluband sem færir mann á milli hæða...... veldur það alltaf frekar miklum trega hjá mér að nota það......... sérstaklega fyrst....... því þetta var það verkefni sem Ási minn var að vinna í á fullu þegar hann varð að hætta að vinna!!! Hann hafði pantað bandið inn og allt sem því fylgir....... ég fékk að fylgjast með framkvæmdunum...... bara við kvöldverðarborðið...... amstur dagsins!!!

Fljótlega eftir að hann var farinn frá mér opnaði í Holtagörðum....... eða þetta rennur dáldið í eitt fyrir mér........ en ég man það bara að ég fór fljótlega eftir að það var opnað og það höfðu verið pantaðar vitlausar innkaupakerrur!!!! Þannig að ekki var hægt að fara með kerrurnar á milli hæða þar sem hjólin á kerrunum pössuðu ekki við bandið!!! Hver svo sem ástæðan var man ég bara hvað það var furðulegt að geta ekki komið heim og sagt: "veistu bara hvað....... heldur þú ekki að það hafi verið pantaðar vitlausar kerrur!!!" og fá svo í framhaldi af því upplýsingar um hver hefði gert það.... var það Ási minn eða var það einhver annar??? Og svo að fá ekki að fylgja málinu eftir....... eins og fá ekki að vita hvernig málið var leyst........ það voru bara allt í einu komnar nýjar kerrur!!!!

Ekki það að mér komi það nokkurn skapaðan hlut við........ en bara svona daglegt amstur!!!

Einkennilegt hvernig hlutir eins og kerrur í Hagkaup geta allt í einu farið að skipta þig höfuðmáli!!!!

..... og þetta vekur alltaf upp ljúfsárar minningar...... þær eru ekki eins sárar í dag og fyrir ári síðan....... þá þurfti ég nú bara að taka á honum stóra mínum til að halda andlitinu..... ætli það verði nokkurntímann í lagi fyrir mig að fara á blessað rúllubandið í Holtagörðum????

Þannig að afrek dagsins eru engin......nema reglulega gott spjall í morgunkaffinu sem eiginlega varð að hádegiskaffi....... kannski ég ætti að taka til hérna heima hjá mér og ganga frá eftir partý helgarinnar!!! Er staðráðin í því að vera spök um næstu helgi!!!!

.......... kannski ég þvoi???
Frú Megabeib

Simply the best!!!!

19. janúar 2009 klukkan 16:53

Partýið gekk eins og það átti að gera......... það var alveg eins gaman að dansa og venjulega........ fann ekkert fyrir öllum blöðrunum á fótunum fyrr en ég skakklappaðist út í leit að leigubíl........ eftir að hafa slökkt ljósin og skellt í lás á eftir mér eins og venjulega!!!!! Tekur því ekki að fara út fyrir neitt minna!!!!

Nú er komin pása hjá frúnni......... þangað til næst!!!!

Kitchen Aid BLANDARINN er vel nothæfur til að blanda hina ýmsu drykki........ enda eru ekki sett í þá möndlur eða frosnir ávextir!!!! Fullt af klaka og ekki gleyma fullt af vökva og þá er þetta að gera sig....... veit ekki hvort framleiðendur tækisins hafi haft það í huga að það eigi einungis að blanda drykki í tækinu.......... en það fúnkar!!!!

Nú finnst öllum í kringum mig að það sé hið eðlilegasta mál að ég haldi eins og eitt stykki partý í mars þegar frúin ætlar að verða 32 í 9. skiptið!!!!

Veit ekki hvort mig langar það........ en það er laaaaaaaangt í mars!!!!

Langar til dæmis ekki að hafa partý fyrir pör....... veit ég er klikkuð ....... en langar samt að bjóða vinafólki mínu....... á fullt af vinafólki/hjónum......... en mér finnst bara alveg ferlega vont að fara í partý ef það eru pör og ég veit að þar hefði maðurinn minn verið fremstur í flokki ........ eða aftast að kjafta.... því aldrei vorum við "saman" þegar við vorum að skemmta okkur...... við töluðum náttúrlega saman alla vikuna þannig að það var bara fínt að fara og hitta annað fólk og þess vegna enginn tilgangur í að hanga ofan í hvort öðru þegar við fórum á meðal fólks!!!! En samt sem áður finnst mér það ekkert gaman og finnst það eiginlega vont að fara þar sem eru pör........ vitandi það að hann er ekki á staðnum!!!!!

Kannski er þetta bara ein brekkan enn sem ég þarf að klífa í þessu ferli ......... og ég stefni að því að verða góð fjallgöngukona........ því ég er sigurvegari!!!!!

Mæli með því að gera markmiðsplön......... það virkar!!!!

Frú Megabeib

Problem!!!

17. janúar 2009 klukkan 16:48
Ekki nóg með að konan verði að fara topplaus út að tjútta í kvöld....... heldur stefnir allt í að frúin verði að fara á inniskónum!!!!

Fór semsagt í ræktina í gær...... jú jú ferlega ábyggileg...... og gekk þar um á hlaupabretti í einn klukkutíma eða svo........ ætla nú að ná upp smá þoli áður en ég fer í að henda mér í einhverja tíma þar sem einhver annar en ég stjórnar ferðinni........ geri það í næstu viku..... eða þar næstu!!!!

nema hvað.......... þarna rölti ég um rösklega ........ og fékk hælsæri!!! Særð á vígvellinum....... stríðssár........ fannst það nú næstum því allt í lagi....... er vön að fá hælsæri frá því í gamla daga þegar ég gat ekki keypt á mig nógu stóra skó...... en sem betur fer er það orðið mikið breytt!!!

Fór því í dag og keypti þar til gerðann plástur til að setja á svona svöðusár........ setti hann samviskusamlega á........ fór í nælonsokkana...... því ég komst að því að sem minnstir sokkar, því mun minni snerting við skóna!!!

Þetta var ekki alvega að virka og eftir 10 mínútur á brettinu gafst ég upp......... gafst upp á að vera í skónum það er að segja........ gekk því áfram rösklega á nælonsokkunum á hlaupabrettinu.

Eftir nokkurn tíma........ eins og 10 mínútum seinna....... fann ég að ég var orðin dáldið aum undir táberginu og hælunum....... kannski ekki það gáfulegasta að vera í nælonsokkum á gúmmíbandi!!!!!

En ég var nú ekkert á því að gefast upp........ fór því bara á hjólið í staðinn........ og stóð mig bara vel......... með þessu áframhaldi verð ég höj og slank innan þriggja ára!!!!

Þegar ég skakklappaðist inn í búningsklefann, fann ég að iljarnar og hælarnir á mér væru ekki alveg eins og þeir ættu að vera!!!! Þegar betur var að gáð er frúin komin með þvílíkar blöðrur á iljarnar......... eina risastóra undir tábergið á hægri fæti og aðra ekki minni undir hælinn á þeirri vinstri!!!!!!

Sé ekki fram á annað en þetta verði áhugavert kvöld í kvöld....... á jullunum og í inniskóm!!!! Verst að það er svo erfitt að dansa í inniskóm!!!!
Frú Megabeib

Plötupartý - stelpupartý n° 2

16. janúar 2009 klukkan 22:46

Fór í dag og ætlaði að kaupa mér eitthvað flott til að vera í á morgun............ fann ekki neitt........... það er ekki neitt í búðunum sem mig langar í!!!

Ákvað því að sauma bara eitthvað sem mig langaði í!!!! Mundi að ég átti efni til að sem ég hafði keypt fyrir margt löngu........... nýjann haba haba bol!!!!

Fann efnið........... það var ekki eins og mig minnti......... pirr pirr pirrrrrrrrrrrrrrr

HVAÐ geri ég þá????

Það er tvennt hægt að gera í stöðunni....... gefast upp eða finna lausn!!!

Ég vel að finna lausn........

En hver hún verður...... hvort ég fari og kaupi nýtt efni á morgun eða hvort ég finni eitthvað enn eitt skiptið inní skáp........ eða fari bara á jullunum....... það kemur í ljós!!!

Góða helgi...........

Frú Megabeib

Blogg dagsins..............

15. janúar 2009 klukkan 20:39
Er í nettu sjokki!!!!

Ákvað nú að fara og tékka á því hvort það væru engar leiðbeiningar með blessuðum BLANDARANUM mínum á netinu........ finn hann ekki alveg hérna heima hjá mér.......... eða reyndar nenni ég ekki að leita að bæklingnum!!!! Er ekki alveg að kaupa það að það megi ekki hakka í honum möndlur!!!!

Fór þá inná síðuna hjá Einar Farestveit & Co.hf.!

VITIÐ ÞIÐ HVAÐ BLANDARINN MINN KOSTAR Í DAG?????? 31.900.- alíslenskar krónur!!!! Vá!!!! Er semsagt í nettu sjokki!!!!

Var ekki að tíma að kaupa mér hann fyrir einu og hálfu ári síðan á 17.900.- og kostaði hann þúsundkalli meira en alveg hvítur....... ég vildi nebblega kremaðann!!!

Mér prívat og persónulega finnst þetta dáldið mikil hækkun á ekki lengri tíma........ pottþétt núna að ég geri lítið annað en þurrka af honum ........ þetta eru orðin stór verðmæti!!!!

Settist í gær og las ALLT bloggið mitt......... alveg frá fyrsta bloggi hérna þangað til dagsins í dag.... eða gær!!!

Mikið var það erfitt...... sat og felldi tár og grét ......... og hló ... sérstaklega Ken Lee!!!!

Bloggvinkona gaf mér hugmyndina........ og þó svo að ég hafi ekki farið að sofa fyrr en um 3 í nótt ...... verð ég að segja að þetta var gott ferðalag!!! 

Ég komst að því að mér er farið að líða miklu mun betur en mér leið fyrir ári síðan..... það er gott að blogga!!!
Tíminn virðist lækna öll sár......... ekki að mitt sár sé gróið........ en ég finn að það er komin góð skorpa á það og brúnirnar eru ekki eins skarpar!!!! Er fegin að ég hætti ekki að blogga eins og hvarflaði oft að mér!!!

Sonurinn var ekkert sérstaklega ánægður með ítalsk inspereraða kvöldmatinn í gær!!! Hann horfði á það sem var borið á borð fyrir hann ....... horfði á mig og sagði: er þetta kvöldmaturinn??? Hann var ekki ýkja hrifinn á svipinn!!!! ...... og hálf hryllti við að þurfa að borða þetta!!!!

Heldur þú að þetta hafi verið súrsaðir hrútspungar??? Nei ó nei...... enda eru þeir ekki ítalskir hehehe

........ soðið spaghettí með tómatsósu!!!!

Ég gerði samloku handa þessari ellllllsku og hann fór saddur og sæll á glímuæfingu!!!!
Frú Megabeib

Kitchen Aid - blandarinn góði!!!!!

14. janúar 2009 klukkan 17:29
Ég er þeirrar trúar að suma hluti eigi maður að velja af gaumgæfni og kaupa gæða/merkja vöru ef maður telur að það sé betra.

Flesta hluti .......... sama hvort um er að ræða föt, húsbúnað eða bíl....... kaup ég af því að mér finnast þeir flottir og gildir þá einu hvort þeir eru merkjavara eða ekki!!!

Þegar Ási minn veiktist lét ég gamlan draum rætast og keypti mér Kitchen Aid blandara!!! Hefði svo oft getað farið út í búð og keypt mér ódýran blandara...... en mig langaði bara í svona Kitchen Aid blandara....... mér finnast þeir flottastir!!!! Svo ég beið í mööööörg ár eftir að geta eignast hann!!!!

Þeir eru heldur ekki gefins........ hefði getað keypt um það bil 3 til 5 ódýra blandara ef ég hefði frekar viljað það ........ heldur en Kitchen Aidinn en mig langaði bara í Benzinn í blöndurum.

Þar sem mikil heilsusveifla fór í gang á heimilinu þegar Ási veiktist....... komst ég að því að ekkert minna dygði en kaupa það besta, handa besta manninum í heimi......... og fór því og keypti Kitchen Aid blandara til að geta bruggað ofan í hann hina ýmsu drykki....... með og án hvítlauks!!!

Sællar minningar braut ég einhvern dims þarna sem nauðsynlegur er til að snúa spöðunum ......... Ási minn fór af stað og fékk nýjann með það sama....... þurfti að sjálfsögðu að borga fyrir það......... og þau skilaboð að maður yrði að fara varlega og ekki mætti kannan hoppa ........ eins og hún hafði gert hjá mér....... því þá myndi stykkið brotna!!!

Eins mátti ekki setja könnuna í uppþvottavélina því þá færi olía og eitthvað jada jada bla bla bla og ég veit ekki hvað og hvað........ þannig að konan sem alltaf setur ALLT í uppþvottavélina er búin að þvo könnuna samviskusamlega upp síðan!!!! Það eina sem þvegið er upp í höndunum á þessu heimili er blandarinn og skurðarbrettið frá IKEA ....... það má heldur ekki fara í uppþvottavélina!!!

Mér er mjög annt um blandarann minn....... mér finnst hann flottur og ferlega góður........ svo er hann líka það síðasta sem við hjónin keyptum inn á heimilið okkar saman!!!!

Svo gerðist það um daginn að ég var að þrífa blandarann........ laggði hann á hvolf til að koma snúrunni betur fyrir undir honum að þegar ég snéri honum við .......... þá var þetta dims þarna aftur brotið!!!!

Skil ég nú ekki hvernig það gat skeð........ ég er búin að fara ofur varlega með blandarann minn síðan ég braut þetta síðast og ekki hefur kannan hoppað í eitt einasta skipti síðan þá........ ætlaði sko ekki að lenda í þessu aftur!!!!!

Vantaði svo mikið að geta sent Ása minn aftur niður í Einar Farestveit & Co.hf. til að fá nýjann dims..... en að sjálfsögðu var það ekki hægt........ get þá bara farið með hann sjálf....... ekki málið...... en hvert??? Vantaði bara að spyrja hann að: Fórstu bara í afgreiðsluna? Hvað sagðir þú við starfsfólkið? Kostaði þetta ekki 850 kall??? ..... en auðvitað veit ég að ég fæ engin svör!!! Pirr pirr....... eitt af svona smáum pirr pirr hlutum sem koma upp í dagligdagen!!!

Nema hvað að ég skunda þarna niður í Einar Farestveit & Co.hf. í Borgartúninu.......... verð að segja að mér hefur alltaf leiðst þessi verslun........ veit ekki afhverju........ en það er bara eitthvað við hana get ekki sett fingur á það....... en ég ákvað nú samt að kaupa blandarann minn þarna á sínum tíma, frekar en Elko...... eingöngu sökum þess að þetta er umboðið fyrir Kitchen Aid!!!

Ég kem inn og tek blandarann úr pokanum og segi að þetta hafi brotnað.

Afgreiðslukonan byrjar á því að spyrja mig að því hvort að ég setji könnuna í uppþvottavélina..... ég var fljót að svara....... því ég vissi að hún myndi spyrja....... hún náði varla að sleppa orðinu!!! Auðvitað ekki....... það má ekki!!!!

Hún spurði hvort ég setti ekki alveg örugglega frosna ávexti niður um litla gatið á toppnum...... ég svaraði já...... en einn í einu!!!

Hún spurði hvort ég setti möndlur í blandarann!!! Ég svaraði já....... því ég geri það oft og iðulega ..... því það er svo gott og hollt........

Jáááá ....... sagði búðarkonan...... setur þú einhvern vökva með???

Ég horfði í forundran á hana því auðvitað set ég ekki vökva með möndlunum...... þá hakkast þær ekki!!!!

Það er það sem hefur skeð hjá þér, sagði þá búðarkonan, þú verður alltaf að setja vökva með!!!!

Á vélinni er þar til gerður takki til að hakka niður ...... hvað á að hakka niður veit ég ekki en alla vega ekki möndlur!!!!

Hún sagði við mig að þetta væri BLANDARI ekki MATVINNSLUVÉL......... hmmmmmm

Ég svaraði henni nú bara að ég myndi ekki kaupa þennan BLANDARA í dag ef ég væri að kaupa mér blandara.... ég hefði talið að ég væri að kaupa gæðavöru...... en mér fyndist það alls ekki vera svo!!!!

Hún snéri uppá sig og fór með tækið á bak við og á leiðinni sagði hún að BLANDARINN væri notaður víða á veitingarhúsum og ekki væri það neitt vandamál!!!

Well......... ég er ekki veitingahús ...... ég er ekki kokkur..... ég er ekki framleiðandi BLANDARA........ en mér finnst bara algert lágmark að það sé hægt að nota tækið í það sem ég keypti það í upphafi!!!!!

Ekki fékk ég að vita neitt um þessa annmarka BLANDARANS við kaupin!!!

Hún kom til baka og rétti mér blandarann og sagði: þetta gera 1450.- krónur!!! Ég spurði ertu ekki að grínast í mér??? Þetta stykki kostaði 850.- krónur fyrir ári síðan!!!

Þegar hér var komið sögu voru fleiri starfsmenn komnir á leiksviðið...... tveir karlmenn sem stóðu og töluðu saman og ein kona sem fylgdist með samskiptum mínum og búðarkonunnar!!!

Þær snéru sér hvor að annarri og sögðu ..... þetta er ekki búið að hækka lengi, bara ekki síðan þær byrjuðu!!!!

Já já allt í lagi með það.......... ég borgaði og á leiðinni út sá ég að þeir eru með ísskápa...... þar sem ísskápurinn minn er að gefa upp öndina ákvað ég að kanna það hvort ekki væri ísskápur þarna sem ég gæti hugsað mér .........

Ég rölti um búðina...... opnaði ísskápa......... leitaði að verði........ opnaði fleiri ísskápa........ á meðan var starfsfólkið að spjalla saman og fylgjast með hverri hreyfingu minni!!!! Ekki einn af starfsmönnunum svo mikið sem talaði við mig eða sýndi því minnsta áhuga að aðstoða mig við að finna verð eða reyna að selja mér ísskáp!!!! Mér fannst þetta athyglisvert......... ég er kannski svona ófýsilegur viðskiptavinur!!!! En þar sem mér tekst nú að eyðileggja hluti og þarf að borga fyrir varahlutina........ getur það þá verið svo slæmt!!!!??? Maður spyr sig!!!

Vildi núna að ég hefði bara keypt blandara eins og ein vinkona mín á........ það má allavega setja hann í uppþvottavélina........ og hann kostaði ekki nema helminginn af því sem minn fíni Kitchen Aid BLANDARI kostaði!!!! ........ og það má hakka í honum möndlur!!!!!!

Nú ætla ég að fara ofurvarlega með BLANDARANN minn og í mesta lagi þurrka af honum rykið....... svo ég brjóti ekki þennan helv..... dims aftur!!!! Því ekki langar mig að fara niður í Einar Farestveit & Co.hf. neitt á næstunni!!!!......... helst bara ALDREI aftur!!!!

....... en hann lítur vel út á borði!!!!!
Frú Megabeib

Námskeið - mæli með því

13. janúar 2009 klukkan 15:40

Er búin að setja mér eitt markmið!!! Nú vinn ég bara að því að gera það að veruleika......... allt komið í gírinn!!!!

Þetta námskeið sem ég er á er alger lífsbjörg fyrir mig....... mæli með því fyrir ALLA!!!! Það er bara verið að kenna manni hvernig maður á að skipuleggja líf sitt........ og ekki veitir mér af hjálp við það þessa dagana!!!!

Var alltaf búin að gleyma að hringja og panta tíma hjá konunni sem ætlaði að kanna fyrir mig hvort ég gæti fengið "pabba" - helgar!!!! Búin að hringja það og einhver ætlar að hringja í mig á morgun og gefa mér tíma.

Hvað ég ætla að vinna við þegar ég er orðin stór ......... veit ég ekki ennþá ..... en það kemur....

Ég er alveg að jafna mig á helginni........ strengirnir ennþá til staðar........ er búin að komast að því að ég hef möguleika á því sem atvinnulaus kona að fá líkamsræktarkort fyrir einungis 2000.- kr á mánuði....... er að hugsa um að skella mér á það...... þá hef ég kannski meira úthald......... eða kannski er ekki eins leeeengi að jafna mig eftir tjúttið!!!!

Mikið líður mér annars bara vel í dag......... verð að segja það!!!! Ekki margir dagar sem ég get sagt það kinnroða laust!!!

...... það gerir námskeiðið!!!!

Frú Megabeib

Er frúin að verða gömul???

12. janúar 2009 klukkan 18:54

Ég ætla nú ekki að halda því fram að ég sé þunn tvo daga í röð........... en ég er gjörsamlega lurkum lamin eftir helgina!!! ...... ég er kannski bara að verða gömul........... tékka á því næstu helgi ....... ef ég verð svona lurkum lamin þá líka......... þá er ég orðin gömul, engar afsakanir með það lengur!!!!

En það verður erfitt að toppa þessa helgi....... sem endaði í hreindýrasteik og 15.000.- króna rauðvíni í 6 manna partýi klukkan 7 að morgni í blokk í Breiðholtinu!!!!!

Ó mæ god hvað það var gaman!!!!!

Fór ekki nakin........ he he he..... ætti að prófa það einn daginn....... geri það kannski bara um næstu helgi, get ómögulega farið í bæinn tvær helgar í röð, í sömu fötunum!!!!!

Nú er ég gjörsamlega andlaus ..... held ég verði að leggjast í sófann ......... þarf samt að finna út hvað ég á að gefa blessuðum börnunum mínum að borða í kvöldmatinn......... er ekki að nenna því!!!!

Er búin að komast að því að uppáhalds maturinn minn er matur sem einhver annar eldar handa mér!!!!

......... þó það sé klukkan 7 að morgni!!!

Frú Megabeib

Always........

10. janúar 2009 klukkan 17:25

........ look on the bright site of life!!!!

Þegar þetta lag hljómar í eyrunum á manni og maður hugsar um myndina "Life of Brian" þá er erfitt að vera niðurdreginn, vanþakklátur og svekktur yfir lífinu og tilverunni!!!!

Dóttirin er búin að tjalda inní herbergi hjá sér....... það eru sum börn heppnari en önnur með hvað þau eiga stór og góð herbergi....... hún er búin að tjalda 4 manna kúlutjaldinu okkar og er alveg himinlifandi yfir því...... hún ætlar að sofa í því í viku að minnsta kosti........ henni fannst kominn tími á að fara í útilegu og þegar maður getur ekki farið í útilegu utandyra, þá fer maður bara í útilegu innandyra!!!!

Ég ætla að taka hana mér til fyrirmyndar....... ekki vera að velta sér uppúr hlutunum........bara finna lausn!!!!

Er þar af leiðandi farin út í verslunarleiðangur........ get örugglega fundið eitthvað til að fara í kvöld í búðunum........ þó ég finni það ekki í fataskápnum mínum!!!!

........ annars verð ég þá bara nakin!!!!

Frú Megabeib

Ég er snillingur........

09. janúar 2009 klukkan 18:34
......... í að brjóta sjálfa mig niður!!!!

Það var sagt við mig um daginn að ef ég talaði við vini mína eins og ég tala við sjálfa mig, hversu marga vini ég héldi að ég ætti!!!!

Get alveg svarað því hreinskilnislega að án nokkurs efa að þeir væru ekki margir, ef nokkur!!!!

Núna er ég svo tóm inní mér....... líður illa........... finnst ég hafa komið illa fram við vini mína........ finnst ég vera löt.........vanþakklát........ feit.........ósanngjörn.........  já nefndu það bara ég er örugglega búin að nefna það á undan þér!!!! Finn það alveg að þetta er ekki að gera sig.

Verst finnst mér þetta með vinina......... vildi svo gjarnan geta tekið til baka það sem ég gerði í dag....... ekkert alvarlegt......... en mér finnst það bara svo óstjórnlega leiðinlegt....... mér líður bara virkilega illa yfir því....... get ekkert að því eða við því gert!!

Merkilegt hvað svona lítil atriði geta haft mikil áhrif á mann........ ég get ekki einusinni sagt með hreinni samvisku að að þýði ekkert að velta sér uppúr þessu, því það sé búið og gert.......... Mér líður ennþá illa.......

Ég kemst nú eflaust yfir þetta .......... eins og allt annað í þessu lífi........... ennnnnn væri sko alveg til í að líða ekki svona!!!!

Svo veit ég ekkert í hvaða fötum ég á að fara á morgun....... auðvitað á ég engin föt...... eða ég er búin að fara í þeim öllum, get ekki látið sjá mig í þeim aftur......... eða ég er of feit í öll önnur föt sem ég læt mér detta í hug að fara í!!!!!

Vá ............ ég sem hélt að það væri nóg að vera sólbrún og sæt!!!!
Frú Megabeib

Plan helgarinnar!!!!

09. janúar 2009 klukkan 00:09
Framundan er partý!!! Stelpupartý!!!! Plötupartý!!!! Hlakka BARA til!!!

Nú hef ég það markmið.......... að fara í partý!!!!!

Annars gengur ekki rassgat að finna markmið eða gera þessi fínu verkefni sem ég átti að gera heima....... kem mér bara alls ekki í það......... finnst það of vont........ dvel of mikið í því eflaust að ég hafði markmið ......... VERÐ að finna nýtt plan!!!!

En get sætt mig við það að ég er ekki ein að bögglast í þessu....... ég fæ hjálp........ og á föstudaginn í næstu viku á ég að vera komin með raunhæf markmið........ ég veit ekki hvort nokkur skilur hvað ég hlakka mikið til!!!!

Ég veit að vissulega er það mjög gott markmið að koma börnunum mínum til manns.

En hvað á ég að gera á meðan ég er að dunda mér við það??? ÞAÐ vantar mig að vita!!!

Ferlega ábyggileg frúin........ búin að sortera þvottinn....... móðir mín fengi nett taugaáfall ef hún sæi hvernig þvottahúsið lítur út núna........ en það verður ekki lengi, því frúin er búin að þvo heilar tvær þvottavélar!!!!

Talandi um frúnna....... ég er að sjálfsögðu ennþá frú........ því ég tel að ef maður hefur einusinni gift sig er ekki hægt að taka af manni þennan flotta titil!!!! Hvað á maður þá að verða þegar maður er hættur að vera frú??? Jómfrú...... það verð ég seint úr þessu........ fröken...... nei því þá hefði maður ekki verið giftur...... piparjónka....... held að maður geti það ekki ef maður hefur verið við karlmann kenndan...... þannig að ég held bara áfram að vera frú.

Svo hefur það alltaf farið í taugarnar á mér í gegnum tíðina þegar fólk segir við mig: "fröken"! Hef ég þá oft og iðullega (hvernig skrifar maður þetta orð eiginlega????) svarað viðkomandi með þjósti og sagt með gífurlegu stolti að ég sé Frú og sé búin að vera það í svo og svo mörg ár og sé ekkert á leiðinni að hætta því!!!!

Ég geng með giftingarhringinn, er í rauninni ekki búinn að hafa hann þennan svo rosalega lengi þar sem við létum breyta hringjunum okkar þegar við giftum okkur aftur........ mikið var ég ánægð með hringana okkar!!! Flottustu hringarnir á jarðkringlunni!!!!

Svo sit ég á námskeiðinu........ og við mig er sagt:" það halda allavega áfram að koma tekjur inná heimilið hjá þér...... frá manninum þínum´" og ég svara:" nei ég er ein"!
Það er sagt við mig á námskeiðinu: "fröken, viltu rétta mér........." og ég svara ósjálfrátt því sama og ég hef gert undanfarin ár að ég sé nú gift kona og þar af leiðandi frú.
Ekki er því að leyna að svipurinn sem kom á viðkomandi aðila varð furðulegur!!!! Var ég gift...... var ég ógift..... var ég ekki ein??'....... hvernig í ósköpunum gat ég þá verið frú??? Ekkert var sagt en ég sá að mikið var pælt!!!
Var fljót að skipta um umræðuefni (eins og mér einni er lagið) svo ég þyrfti ekki að fara út í einhverjar umræður sem ég treysti mér alls ekki í!!!!

Kannski ég ætti bara að fara að ýminda mér að ég sé skilin....... leysir eflaust fullt af vandamálum ........ þá get ég kannski líka orðið reið!!!! Finn ekki fyrir neinni reiði .......... ég er oft spurð að því hvort ég sé ekki reið ....... en eina tilfinningin sem ég hef, fyrir utan söknuðinn ...........er bara að mér finnst ég hafa verið svikin!!!!

Nú ætlar þessi ábyggilega frú að slökkva á tölvunni ..........
................. og hengja uppúr þvottavélinni!!!
Frú Megabeib

Markmið..........???

07. janúar 2009 klukkan 23:18
Er alveg virkilega ekki að komast í neinn gír ........ er þó búin að taka uppúr töskunum........ þær standa nú tómar við kjallarahurðina og bíða eftir því að ég komi þeim í kjallarann!!!!

Kemst nefnilega ekki í kjallarann fyrir þvotti!!!!........... henti sem sagt öllum þvottinum á heimilinu niður í kjallaratröppurnar....... það er enginn að nota þær núna nema ég, svo mér fannst það í lagi......... en er búin að komast að því á þessum 4 tímum síðan ég henti þvottinum þarna niður, að það er bara ekki nóg...... ég þarf víst að sortera, setja í þvottavélina, hengja upp ....og allt þetta leiðinlega er eftir!!! Alveg ótrúlegt hvað þetta getur vaxið mér í augum....... kannski vegna þess að Ásinn minn sá um þessa hlið af heimilishaldinu!!!

Veit ekki meir!!!

Annars er námskeiðið sem ég er á alveg einstaklega athyglisvert.......... mæli með því fyrir alla.......... sjálfskoðun í fumeindir........ nafnlaskoðun í dekkstu afkima sálarinnar (ef þú vilt, þú stjórnar því sjálfur hversu djúpt þú vilt kafa) ........... mér finnst þetta ferlega gott........... það besta sem mér finnst við þetta er að ég er svo glöð að þegar þessu námskeiði verður lokið......... þá verð ég komin með einhverja stefnu í lífinu.......... eða því lofaði námskeiðishaldarinn.......... við eigum nefnilega að enda námskeiðið á því að gera markmiðsplan og það er alveg ferlega erfitt ef maður hefur ekkert markmið ........ ekki satt????

Markmiðið mitt frá því svo lengi sem ég man eftir var að eiga mann, börn og vera hamingjusöm.......... alltaf þegar ég hef óskað mér einhvers í lífinu hef ég alltaf óskað þessa..........

Ég var svo hamingjusöm fyrir aðeins 2 árum síðan, átti manninn sem ég hafði alltaf óskað mér, sálufélagann minn, búin að giftast honum tvisvar, börnin mín heilbrigð, hraust og myndarleg börn, við hjónin bæði í góðri vinnu......... ég hafði allt sem ég hafði nokkurntímann óskað mér!!!!

Svo byrjaði heimurinn smá saman að hrynja..........

............... og nú hef ég ekkert markmið!!!! .........og það er vont!!!!!
Frú Megabeib

Stoltur bíleigandi!!!!

05. janúar 2009 klukkan 21:05
Ég eignaðist bíl í dag.......... reyndar er ég nú búin að aka um á honum í tæp 3 ár......... en í dag er ég loksins orðinn löglegur eigandi að bílnum!!!! Í dag eigum við Lýsing ekki bílinn saman lengur........ heldur á ég hann ALEIN!!!!

Er komin á námskeiðið......... þetta lítur bara vel út......... maður getur alltaf á sig blómum bætt, er það ekki annars??? Verst að nú get ég ekki sofið lengur á morgnana....... og ég hélt að þetta tæki bara eina viku....... ekki málið að halda það út....... en ......... svo er blessað námskeiðið bara heilar 2 vikur!!!!! Ég held það nú líka út ekki satt???? Því ég get ALLLLLLT!!!!

Þannig að framundan er að taka uppúr töskunum....... ekki eins og ég nenni því!!!! Þá þarf ég að fara að þvo og eins og allir vita sem þekkja mig, þá leiðist mér alveg einstaklega mikið að þvo!!!! En það er kannski alveg eins gott að gera það og koma þessu frá......... er bara virkilega ekki að nenna því!!!!

Pylsur í kvöldmatinn....... nenni heldur ekki að elda......... sérstaklega þar sem ég er ekki búin að elda í einar 3 vikur eða svo.......... afhverju getur ekki verið ódýrt að fara út að borða á Íslandi eins og víðast hvar annarsstaðar í heiminum??? Allavega þegar ég horfi á bíómyndir er þetta lið alltaf að fara út að borða og þá gildir einu hvort liðið sé sárfátækt eða vellauðugt!!!!

Annars líður mér eins og ég sé vellauðug........ fékk fullt af vöxtum frá bankanum mínum, skulda ekkert nema myndavélina (sem kostaði 140 evrur) eftir Kanarý ferðina og svo á ég yndisleg heilbrigð börn og þak yfir höfuðið og mat til að borða...........

............. og eitt stk. bíl!!!!!!
Frú Megabeib

Nýja árid bara komid!!!

02. janúar 2009 klukkan 10:01

Nýja árinu var fagnad á strondinni!!! Tetta var odruvísi......... en alveg helling skotid upp......... náttúrulega ekkert sambaerilegt vid tad sem skotid er á Íslandi........ enda held ég ad tad sé hvergi meira skotid í ollum heimnum!!!!

Skil ekkert í tví afhverju tad er ekki netsamband á strondinni........ tar gaeti ég sko setid og skrifad sogur um allt skemmtilega fólkid sem á leid hjá!!!!

Bornin mín eru alsael.......... tau ELLLLLLLLLSKA sand!!!! Tad er smá "eydimork" hérna....... staersti sandkassi sem tau hafa komist í á aevinni!!!!! Í gaer vorum vid ekki nema í 7 tíma tar og tau ad leika sér allann tímann!!!! Alveg ótrúleg tessar elskur......... verst ad ég er búin med Ísfólksbaekurnar, og ekkert fólk ad horfa á, ekkert netsamband.......... já í stuttu máli sagt tá verd ég ad vidurkenna tad ad mér leiddist smá!!!!

......... en vann hordum hondum í tví ad verda sólbrún og saet......... er komin vel á veg med tetta saet daemi...... gengur haegar med brúnkuna!!!!

Villtumst inn í eina af tessu fjolmorgu verslunum sem eru hérna um allt eitt kvoldid......... indverska konan í búdinni hamadist af ollum lífs og sálar kroftum ad selja mér eitthvad.......tetta var daginn fyrir gamlárskvold....... "special price for you" ......... ég fór í fýlu og fór út án tess ad kaupa neitt, tegar hún spurdi: "did you come yesterday??" HALLÓ!!!!! Sá hún ekki hvad ég var ordin sólbrún og saet???? En gloggt er gests augad og komst ég ad tví ad hún hefdi eflaust bara séd fegurd mína........ og ég yrdi ad vinna í sólbrúnkunni ef ég aetladi ekki ad lenda í tví ad koma hálf litlaus heim!!!!!

Tad er náttlega búid ad rigna duglega á okkur (gód afsokun fyrir lítilli sólbrúnku)........ og tad er audvitad ekki sól ALLA daga (mjog gód afsokun fyrir lítilli sólbrúnku) ........ og svo skín sólin afskaplega lítid á nóttunni!!!!! (besta afsokunin fyrir lítilli sólbrúnku!!!!!)

Annars er búid ad vera sumarbústadarstemming hjá okkur tessa daga sem ekki hefur verid haegt ad komast út fyrir rigningu....... bara legid í rúminu allann daginn....... lesid......... étid........ spilad!!!!

Er búin ad kenna bornunum mínum ad spila "fullordins" spil........... nennti ómogulega lengur ad spila veidimann eda ólsen ólsen!!!!

Aetla ad fara og vekja bornin og koma mér í sólbad......... sólin er komin hátt á loft............

........... verd ad fara ad vinna í tessari sólbrúnku!!!!!!

p.s. komum heim á morgun......... annad kvold!!!!

Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar