Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Bloggpása???

23. febrúar 2009 klukkan 08:27
Er að spá í að taka mér pásu frá bloggi......... mér líður þannig!!

Finnst erfitt að koma einhverju niður á blað.......... veit ekki hvað ég á að segja........ stroka út það sem ég er búin að skrifa.......... byrja uppá nýtt............ hætti við allt saman ................ finnst ég vera að blogga meira af skyldurækni en löngun........... verð að viðurkenna að stóra ísskápsmálið og viðbrögðin við því setti mig dáldið út af laginu!!! ....... kannski finn ég blogg-gírinn.......... kannski ekki!!!!

....... er búin að komast að því að ég er meðvirkari en ég hélt!!!! ......... er voðalega mikið í því hlutverki að gera hluti fyrir aðra afþví að annars verða þeir svo leiðir, daprir eða vonsviknir.

Er dáldið að æfa mig í að vera ekki svona meðvirk .......... er dáldið ánægð með að mér tókst það um helgina.......... stóð á mínu, þrátt fyrir að ég vissi að það myndi valda gífurlegum vonbrigðum!!!!

......... það var erfitt ........ en mér tókst það!!!
Frú Megabeib

Skrítinn dagur í dag.......

21. febrúar 2009 klukkan 17:03
.......... eða bara þessa dagana......... er eitthvað svo stefnulaus....... veit ekkert......... finnst það ekki gott........ væri til í að vita svo margt ........ og þá er ég ekki að meina að ég vilji vita meira um landafræði!!!!!

En það er víst einusinni svoleiðis að það sem mig langar til að vita...... get ég ekki fengið að vita!!!! Tíminn mun leiða það í ljós....... svo það er enginn sem getur hjálpað mér í því..... nema kannski spákona!!!! Ætti kannski bara að drífa mig til einnar slíkrar!!!

Veit samt að það er ýmislegt sem ég get gert í stöðunni....... eins og gera gott markmiðsplan........ er bara virkilega ekki að koma mér í það......... sérstaklega þar sem ég á svo erfitt með að setja eitthvað niður sem markmið!!! ........ fyrir meira en einn dag í einu .........

Spurning hvort maður eigi ekki bara að rífa sig upp á rasshárunum og skella sér út í lífið aftur....... gera markmiðsplan...... sækja um vinnur....... fara í ræktina....... skrá mig á dansnámskeið....... hmmmm

Ætla að vera spök um helgina....... dóttirin er að syngja í kirkjunni á morgun....... svo ég ætla að fara og sjá og heyra hana syngja.........

......... nema það komi eitthvað annað upp......... ég er svo meðvirk!!!!
Frú Megabeib

Myndir lífsins!!!!

19. febrúar 2009 klukkan 13:18

Þegar tíminn líður virðast minningarnar breytast.

Þess vegna getur maður verið svo óendanlega þakklátur fyrir myndir!

Ég var að skoða myndir um daginn........... myndir af okkur hjónunum......... myndir sem voru teknar af okkur í Osló í apríl 2007........... og myndir sem voru teknar af okkur í október 2007!!!

Það er eins og í lygasögu að það skuli ekki vera nema hálft ár á milli þess að þessar myndir voru teknar.

Ég veit að þetta hljómar kannski fáránlega en .......... mér finnst gott að skoða myndirnar sem voru teknar í október ..... eða kannski ekki gott......... frekar svona kall aftur til veruleikans gott.

Sko.............

Myndirnar sem ég sé svona dags daglega af mínum heittelllllllskaða manni eru myndirnar sem hanga á veggjunum hérna á heimilinu. Brúðarmyndir, myndir af okkur öllum í fjölskyldunni búin að troða okkur í myndavélakassa, myndir frá því við giftum okkur aftur, myndir frá Búlgaríu........ já svona eins og á öllum öðrum venjulegum heimilum.

Á þessum myndum er maðurinn minn bara eins og hann átti að sér......... flottur myndarlegur maður.

Þannig að veruleikinn verður að það er gott/vont að horfa á myndirnar af honum og muna hann svona, oftar en ekki brosandi, með einhver hnyttin tilsvör á vörum og hlæjandi sínum einstaka hrossahlátri. Þá finn ég fyrir því hvað mér þykir að ég hafi verið svikin um mikið og hvað ég sakna þess hrikalega mikið að hafa hann ekki hjá mér! ....... en er jafnframt alveg óendanlega þakklát fyrir öll þessi ár sem við áttum saman og lesa má á úr myndunum!!!!

Myndirnar sem voru teknar í október .............. á þeim sést hvað hann er orðinn svakalega veikur....... venjulegar fjölskyldumyndir teknar í fjölskylduboðum ..........

Ég veit að maður tekur oftast bara myndir þegar eitthvað skemmtilegt er að gerast...... eins og afmælum, þegar börnin gera eitthvað skemmtilegt, brúðkaupum, fermingum, partýum, skemmtilegum "kodak" moment atriðum........ já svona skemmtilegar myndir........

......... en ég tók myndir þegar maðurinn minn var kominn upp á Líknardeild........ ekki til að setja þær í fjölskyldualbúmið, ekki til að setja þær upp á vegg......... heldur bara svona fyrir mig........ og krakkana líka...... það gerir mér auðveldara að lifa með því að hann er farinn frá mér, því að þeim myndum sést hvað hann var orðinn svo svakalega langt leiddur ............ ofsalega veikur ......... þá verð ég eins furðulega og það hljómar einhvernveginn "sáttari"!!!!

Er ennþá dáldið svekkt yfir að það skyldu ekki vera teknar neinar myndir í jarðarförinni........ hefði viljað það ........ bara fyrir mig!!!!

Ég sá svo mynd af Ásanum mínum hjá vini mínum fyrir stuttu síðan ....... bara svona ósköp venjulega mynd tekna af engu tilefni ........ fyrir mörgum árum........ það var svona gott/vont að sjá hana!!!

Ég var ofsalega glöð yfir að sjá hann, góð mynd af honum ........... en á sama tíma alveg óendanlega sorgmædd yfir að geta ekki hitt hann meira........ að hann væri ekki lengur til staðar í mínu lífi!!!!

...... það var vont!!!!

Frú Megabeib

Jú jú.........

18. febrúar 2009 klukkan 14:58
........ það kom að því!!!!

Ég datt á brettinu!!!!!

En ég gerði það voðalega gordjöss......... kastaðist ekki af og braut limi og tennur!!!!

Sem betur fer var ég ekki ein ........... hafði einhvern til að hlæja með mér að þessum fimleikum mínum!!!!

........ en það bættist í marblettasafnið ...... og nokkrir sem fyrir voru stækkuðu aðeins!!!
Frú Megabeib

Meðvirk!!!

16. febrúar 2009 klukkan 12:03
......... ótrúlegt hvað ég get verið svakalega meðvirk........ nú er þetta nýja orðið sem er "inn" hjá mér þessa dagana!!!!

Það er hægt að vera meðvirkur á svo svakalega margan hátt.........

Ætli það að vera meðvirkur alki sé ekki það sem er þekktast........ ég er það ekki!!!

En ég er meðvirk í svo mörgu öðru.

Eins og það að í morgun þegar ég var á brettinu í ræktinni var þáttur á einum skjánum........ ótrúlegur þáttur... skil ekki hvernig fólk getur látið hafa sig út í allskonar vitleysu........  en það virðist vera hægt að hafa fólk út í ótrúlegustu vitleysur ......... bara fyrir peninga!!!!

...... það er hægt að hafa mig út í ótrúlegustu vitleysur ....... ég tala nú ekki um ef það er dans og daður í boði...... en ég held að það væri ekki hægt að hafa mig út í þessa vitleysu ..... þrátt fyrir alla peningana!!!!

....... nema hvað að þessi þáttur gengur út á að fara í gegnum einhverja hindrunarbraut....... skil ekki afhverju fólk gerir þetta........ það virðist enginn geta komist í gegnum blessaða brautina án þess að fara á kaf í leðjur, hrynja ofan í vatn og verða kýldur af einhverjum boxhönskum!!!! ......... en það virðist ekki vera neinn hörgull á þáttakendum!!!

Þar sem ég stend á brettinu og labba og hleyp til skiptis........ og horfi á þennan þátt........ þá verð ég að passa mig....... því að hvert skipti sem einhver dettur/kastast .......... ofan í vatnið eða leðjuna....... missi ég jafnvægið........ dett með þeim!!!!! ......... verð VERULEGA að passa mig!!!! Finn alveg að mér skrikar fótur og ég er við það að hrynja á brettinu!!!! ........ og það er sko ekkert vatn eða leðja til að grípa mig ef ég skildi falla!!!!

Þrátt fyrir að ég sé nú athyglissjúk......... þá hef ég ekki í huga að hrynja á blessuðu brettinu......... get ekki séð það fyrir mér að það væri neitt voðalega gordjöss......... og ég er dropp dedd gordjöss þessa dagana og þar af leiðandi gengur þetta eiginlega ekki upp!!!!

Af þessum orsökum þá reyni ég nú að beina sjónum mínum á einhvern annan skjá þegar þessi blessaði þáttur er kominn á skjáinn!!!! .......... en ég á erfitt með að láta vera....... finnst svo athyglisvert að fólk skuli láta hafa sig út í þessa vitleysu........ og ég er svo meðvirk að ég swinga til og frá þegar liðið hrynur!!!!

Annars væri það nú alveg til að kóróna það að ég fengi góða flugferð þarna á brettinu og bætti við nokkrum marblettum við þessa sem ég náði mér í um helgina!!!!

Man ekki eftir að hafa fengið einn svona stóran marblett .......... hvað þá svona marga minni á ótrúlegustu stöðum á einu kvöldi!!!!!
Frú Megabeib

Athyglisvert!!!!

12. febrúar 2009 klukkan 22:13

Mér finnst athyglisvert að fólk sem ekki þekkir mig neitt, geti haft skoðun á því hvernig ég er og dæmt mig eftir að hafa lesið einungis eina færslu sem ég hef skrifað!!!

Mér finnst athyglisvert að fólk geti æst sig yfir þessari framkomu minni, en finnst ekki í lagi að ég hafi æst mig yfir verulega undarlegum viðskiptaháttum!!!!

........ þetta er örugglega besti ísskápur sem nokkru sinni hefur verið keyptur í MAX raftækjum, sem veittu alveg stórgóða, fagmannlega þjónustu á endanum!!!!

Hér með lýkur sögunni af Ísskápssögunni endalausu!!!!

Frú Megabeib

Ísskápssagan endalausa!!! - Seinni hluti

10. febrúar 2009 klukkan 23:12

Ég var gjörsamlega orðlaus!!! ............ algerlega kjaftstopp........... stóð opinmynnt og horfði á símann .......... ætlaði bara ekki að trúa þessu........ gat það verið að VERSLUNARSTJÓRINN sjálfur hafi skellt á mig????

Mín fyrstu viðbrögð voru að hringja til baka í verslunina ......... og segja verslunarstjóranum til syndanna!!!!

En þar sem ég er nú orðin eldri en tvævetur, hefði eflaust gert það fyrir einhverjum árum síðan ...... þá vissi ég að það myndi ekki hafa neitt uppá sig!!! ....... ég var alltof reið og mér ALLTOF mikið misboðið til að það gæti leitt til neins ....... allavega ekki til góðs!!!!

Gerði ég mér fulla grein fyrir því að þetta var nánast það eina sem blessaður verslunarstjórinn gat gert í stöðunni........ ég var STJÖRNUVITLAUS!!!!! ...... engin leið að tjónka við mig þegar þarna var komið sögu!!!! Ég veit að ég var komin út fyrir öll velsæmismörk........ var farin að haga mér eins og krakki í sandkassa þar sem hann fær ekki gulu skófluna sem hann telur sína eign!!!! Grenjaði nánast af reiði, frekju, yfirgangi, ókurteisi og óhemjugangi!!! ........ ég hefði örugglega líka skellt á mig ef ég hefði verið í sporum verslunarstjórans!!!!

Um það bil 15 mínútum eftir að verslunarstjórinn skellti svona snyrtilega á mig, fékk ég sms!!!

"Skapurinn fannst i kauptuni, verdur sendur til thin a eftir."

Ég gat ekki annað en hlegið, enda farið að renna reiðin ........ dísús ........ senda manni sms!!! Að sjálfsögðu hafa þeir ekki undir neinum kringumstæðum þorað að hringja í mig!!!! Enda bandbrjáluð konan!!!!!

Ég beið spennt........ ísskápurinn minn var á leiðinni!!!!

Bílstjórinn hringdi...... hann hafði auðheyranlega heyrt af óhemjuganginum í frúnni....... allavega sagði hann að ég væri konan sem væri búin að gera allt vitlaust!!!!! ...... hann sagði að ísskápurinn minn væri á leiðinni til mín og væri væntanlegur innan hálftíma!!!

Aðstoðarbílstjórinn hringdi........ hann fann ekki inngagninn hjá mér!!! ......... skrítið........ hann var við rétt húsnúmer í vitlausri götu!!!!! ........ átti ég hreinlega ekkert að fá þennan blessaða ísskáp??? ........ hvað var í gangi????

Ísskápurinn MINN komst loksins á leiðarenda........ og alla leið inn á eldhúsgólf....... þar var hann settur niður við hliðina á hinum ísskápnum sem ég hafði kippt útúr innréttingunni eftir að ég fékk sms-ið!!!!

Ég var svo glöð........ svo ánægð........ svo hamingjusöm!!!!!

Ég byrjaði í snatri að taka umbúðirnar utan af nýja fína ísskápnum mínum!!!

Þá kemur í ljós ........... þessi svaka flotta, stóra skella í lakkinu ........ alveg inn í járn!!!! ....... og reyndar tvær aðrar mun minni aðeins neðar!!!!! Það var greinilegt af plastinu sem var utan um ísskápinn að hann hafði lent í hnjaski........ hvar veit ég ekki...... en það vantaði allavega stórt stykki í lakkið!!!!

Ef þessi rispa hefði nú kannski verið á hliðinni........ þá hefði ég bara haldið kjafti....... langaði ekkert sérlega mikið að hringja í MAX raftæki aftur!!!! En skellan var eins beint framan á hurðinni eins og hægt var!!!! Þetta er alveg ótrúlegt!!!! Ég hringdi í snatri í bílstjórann til að hann gæti séð þetta með eigin augum svo það færi ekkert á milli mála að ísskápurinn hefði komið svona til mín!!!!

Nú NEYDDIST ég til að hringja í MAX raftæki næsta dag!!!

Var ég komin á það að ég yrði líklegast bara að sætta mig við það að ég yrði að finna mér nýjan ísskáp einhversstaðar annarsstaðar ...... fá þennan endurgreiddan ........ það var allavega ekki hægt að tjónka neitt við verslunarstjórann........ og sýningareintakið ætlaði ég ekki að fá... þrátt fyrir 10 DVD spólurnar!!!!! Þeir gætu þá bara komið og náð í ísskápinn........
Hringdi í MAX og fékk að tala við rekstrarstjóra fyrirtækisins......... ætlaði sko ekki að tala við verslunarstjórann ...... hann hafði auðsjáanlega ekkert að segja í þessu fyrirtæki!!!

Loksins kom maður í símann hjá fyrirtækinu sem vissi að það sem á undan var gengið voru ekki alveg eðlilegir viðskiptahættir. Hann harmaði það að lagerstjórinn og verslunarstjórinn skildu ekki hafa talað við hann deginum áður!!!! Ég talaði við hann í smá stund, sagði honum mína hlið á málinu, sagði honum að mér þættu þetta undarlegir viðskiptahættir, sagði honum undan og ofan af samskiptum mínum og stjóranna tveggja!!!!

Hann tók fagmannlega á þessu. Sagðist finna lausn á málinu sem við gætum bæði sætt okkur við og láta annan mann hringja í mig til að klára málið!!!!

Það hringdi maður úr Kauptúninu. Bauð mér sýningareintakið sem hann var með ....... bíddu nú voru sýningareintökin allt í einu orðin tvö!!!!! ......... og 10.000.- króna afslátt af því!!!! Nú erum við að tala saman..... ÞETTA eru eðlilegir viðskiptahættir!!!!
Í millitíðinni kom reyndar upp sú hugmynd að það væri kannski bara hægt að skipta um hurð á mínum ísskáp...... þá fengi ég bara hálft sýningareintak!!!! Það var eitthvað flóknara í framkvæmd.... tæki jafnvel nokkra daga ........ en ef það væri það sem ég vildi..... þá gerðu þeir það að sjálfsögðu fyrir mig....... ef ég væri viss um að ég vildi ekki sýningareintakið!!! ....... ég hugsaði stíft........ vildi ekki eintakið í Holtagörðum ..... en hafði ekki séð þetta í Kauptúninu. Ákvað svo að ég myndi kíkja í Kauptúnið og ákveða mig þar á eftir!!!

Áður en ég komst í Kauptúnið til að kíkja á sýningareintakið þar þá hringdi síminn!!! Það var bílstjórinn!!! Hann hafði fundið ísskáp inni á lager í Holtagörðunum sem var í umbúðunum ennþá, hvort ég vildi ekki bara fá þann ísskáp!!!!

HALLÓ!!!!! HVAÐ ER Í GANGI!!!! Ísskáparnir allt í einu orðnir 4!!!! ...... sem daginn áður var bara eitt sýningareintak sem ég vildi ekki!!!! ....... nei hinir skáparnir voru ekki inni í kerfinu, bla bla bla!!!! ....... ég þáði að sjálfsögðu þetta góða boð bílstjórans!!!!

Nú á ég glænýjan flottan ísskáp sem kælir smjörið þannig að það er næstum ekki hægt að smyrja því og kókið verður að ískrapi......... alveg dásamlegt!!!!

Frú Megabeib

Ísskápssagan endalausa!!! - Miðju hluti

09. febrúar 2009 klukkan 23:12
Ég sit í sófanum mínum í mestu makindum að spjalla við frænku mína um heima og geima........ þegar síminn hringir!!!

Það er lagerstjórinn hjá MAX - raftækjum ........ mikið varð ég glöð......... hélt í sakleysi mínu að hann væri að segja mér að ísskápurinn minn væri rétt á leiðinni kæmi innan hálftíma eða svo!!!!

Mikið vildi ég að það hefði verið raunin.......... en það virðist fátt vera að ganga mér í hag þessa mánuðina ....... svo að sjálfsögðu var það heldur ekki svo með blessaðan ísskápinn!!!!

Lagerstjórinn hringdi með þær fréttir handa mér að ísskápurinn sem ég hefði keypt deginum áður og hafði staðið svo penn á lagernum í Kauptúninu ............. var hreinlega ekki til!!!!!!

HAAAAA ekki til......... ég var nú ekki alveg að skilja þetta........... drengurinn sem hafði selt mér ísskápinn hafði hringt og tékkað á honum og ég stóð við hliðina á honum þegar honum var tjáð að ísskápurinn stæði þarna inni á lager í Kauptúninu!!!!

Já en hann var ekki til......... ég þusaði og tuðaði smá og hann var frekar pirraður lagerstjórinn á þessu skilningsleysi í mér......... þá bauð hann mér í góðmennsku sinni að ég gæti fengið sýningareintakið og 10 DVD spólur í sárabætur fyrir hinn ísskápinn!!!!

Já nei takk!!!! Vil engar SÁRABÆTUR!!!!! Ég vil fá ísskápinn sem ég borgaði fyrir í gær!!!!

Hann er ekki til......... en þú færð 10 DVD spólur í staðinn!!!!!

......... eru þetta eðlileg vinnubrögð........ ég bara spyr????

Ég hélt fast í það að ég vildi bara fá nýjan ísskáp..... þennan sem ég hafði keypt deginum áður.

 ........ langaði ekki rassgat í sýningareintakið........ fullt af fólki búið að handfjatla hann og opna og loka og káfa á honum........ vildi ekki sjá hann!!!! ....... og alls ekki fyrir sama verð og fyrir glænýja ísskápinn sem ég hafði keypt daginn áður beint úr kassanum!!!!! ..... þrátt fyrir þetta kostaboð um 10 DVD spólur!!!!! ......... er ekki í lagi með fólk???

Lagerstjórinn hjá MAX raftækjum hélt fast í það að ég gæti fengið sýningareintakið, án frekari afsláttar, það væri nú þegar búið að gefa svo mikinn afslátt af honum...... eða ég gæti látið kaupin ganga til baka......... sem ég vildi ALLS EKKI......... var búin með þennan ísskápsleiðangurs pakka!!!!

Ég gat ekki fengið ísskáp lánaðann þangað til ný sending kæmi - eftir mánuð - sem breyttist svo í að þessi ísskápur kæmi hreinlega ekki aftur!!!!

Ég snappaði!!!!!

Geta þetta talist eðlilegir viðskiptahættir????

Lagerstjórinn bauð mér að tala við verslunarstjórann....... ég afþakkaði það...... átti ekkert vantalað við hann!!!! Hann hefði þá bara getað hringt í mig ef það hefði verið eitthvað betra að ég hefði talað við verslunarstjórann!!!!

Ég var orðin frekar mikið æst og farin að hækka róminn ansi mikið ......... man ekki hvort ég var farin að kalla lagerstjórann illum nöfnum........ en veit það að ég marg sagði við hann að þetta væru undarlegir viðskiptahættir!!!

Á endanum gekkst ég inn á að tala við blessaðan verslunarstjórann....... hann hafði ekkert frekar til málanna að leggja!!!!

Hvernig í ósköpunum getur verslun selt mér ísskáp, hringt svo í mig næsta dag og sagt að hann sé ekki til en ég geti fengið lakari vöru og 10 DVD spólur í sárabætur!!!!

Hvernig í ósköpunum getur verslun hringt í viðskiptavin sinn og boðið honum tilboð sem viðskiptavinurinn hefur engan áhuga á....... en hefur þá ekkert annað að bjóða viðskiptavininum sem hann getur sætt sig við???

Hvernig í ósköpunum getur verslun hringt í viðskiptavin sinn og sagt honum að verslunin hafi gert mistök en viðskiptavinurinn verði að sætta sig við tilboðið sem verslunin býður honum ........ þó að viðskiptavinurinn vilji ekki sjá það???

Ég játa það hér og nú að ég var orðin fokill....... reifst og skammaðist....... hrópaði og kallaði.......... verslunarstjórinn hafði engin fleiri spil að spila nema jú eitt........ ég gat ekki fengið meiri afslátt á sýningareintakinu en ég gat fengið afslátt af einhverju öðru í versluninni!!!!

Þetta getur ekki verið eðlilegt!!!! EINHVERJU ÖÐRU Í VERSLUNINNI!!!!!

Ég kaupi glænýjan ísskáp!
Hann er ekki til, þrátt fyrir að ég hafi keypt hann!
Mér er boðið sýningareintakið og 10 DVD spólur, hvað átti ég að gera við spólurnar???? Raða þeim í ísskápinn???
Mér er boðið sýningareintakið og afsláttur af einhverju öðru í versluninni!!!! Hvað er að þessu liði??? Ég var að versla ísskáp....... og hafði ekki hugsað mér að kaupa sléttujárn eða ryksugu með afslætti!!!!

Blóðþrýstingurinn var kominn uppúr öllu valdi....... ég titraði........ mér var VERULEGA MISBOÐIÐ!!!!!

Ég var farin að öskra á verslunarstjórann!!!! Hann bað mig um að vera ekki að öskra á sig....... ég öskraði á hann að ég öskraði bara á hann ef mér sýndist svo.

......... það var þá sem hann skellti á mig!!!!!
Frú Megabeib

Ísskápssagan endalausa!!! - Fyrri hluti

08. febrúar 2009 klukkan 18:56
Forsaga:

Ég átti ísskáp..... eins og flestallir sem reka eitt stk. heimili.

Ísskápurinn hætti að kæla og ég tók eiginlega ekki eftir því.

....... en þegar mjólkin var farin að eyðileggjast fyrir síðasta söludag, skinkan varð ónýt áður en hún var opnuð, smörið var alltaf lint, AB mjólkin myglaði og bjórinn úr skápnum var kaldari en bjórinn úr ísskápnum ....... fór mig að renna í grun um að ekki væri allt í lagi með ísskápinn minn!!!

Ég setti hitamæli í hann og komst að því að hitastigið í honum var 12 gráður....... en á að vera á bilinu 0 til 4 gráður.

Þetta var einhverntíman í október/nóvember.

Ég fór í ísskápsleiðangur og komst að því að það er margt annað í heiminum sem mér finnst skemmtilegra að skoða en ísskápar........ svo ég ákvað að fresta ísskápskaupum fram yfir jólin.......

Um miðjan janúar fór ég á stúfana þar sem ég sá að það var ísskápsútsala í MAX raftækjum og kíkti á ísskápa, sá þar einn sem mér leist ágætlega á........ en þurfti aðeins að hugsa málið.

Þegar ég var búin að hugsa málið í nokkra daga og ákveða það svo loksins að kaupa blessaðann skápinn þá var útsalan að sjálfsögðu hætt og ísskápurinn búinn að hækka um 12.000.- krónur!!! Ég tímdi að sjálfsögðu ekki að kaupa ísskápinn þá........ en fann annan alveg nákvæmlega eins hjá samkeppnisaðilanum, ELKO, á sama verði og útsölu ísskápurinn hafði verið!!!

Ákvað ég að kaupa hann!!! Þegar ég rétti stolt fram GULL VISA kortið mitt til að greiða fyrir ísskápinn, var mér ekki skemmt þegar mér var tjáð að það væri ekki heimild fyrir kaupunum á kortinu!!!!

Ég hringdi næsta dag í bankann og var tjáð að það hefðu ALLAR heimildir verið lækkaðar hjá ÖLLUM Íslendingjum þegar bankahrunið varð......... svona er ekki gott að búa bara í sínum eigin heimi og fylgjast ekki með fréttum......... það getur komið manni í koll einn daginn!!!!

Ég fékk að sjálfsögðu hækkun og hringdi med det samme og bað um að láta bara færa ísskápinn á kortið símleiðis......... ég meina það var þvílík snjókoma og ég var sko ekki að nenna að fara út og kaupa ísskáp!!!!

En það var ekki hægt.......... reglur í versluninni....... ég yrði að koma sjálf og rétta þeim kortið!!!!

Það liðu nokkrir dagar......... 

Þá var aftur komin útsala í MAX raftækjum!!!!

Ég ákvað að koma þar við fyrst áður en ég skellti mér í ELKO ........ bara til að athuga hvort ísskápurinn sem ég hafði séð þar í upphafi væri kannski búinn að lækka meira!!!!

Upphaflegi ísskápurinn var á sama verði og hann hafði verið á seinustu útsölu.......... en það var annar við hliðina á honum sem mér leist miklu betur á og langaði miklu meira í ......... svo ég ákvað að skella mér á hann í staðinn....... þrátt fyrir að hann kostaði 6.000.- krónum meira!!!!

Ég fann sölumann, spurði að því hvort ég gæti tekið hann með mér heim núna......... nei það var ekki hægt þar sem ísskápurinn var ekki á lagernum hjá þeim í Holtagörðum....... heldur í Kauptúni......... ekkert mál fyrir mig, þrátt fyrir að óþolinmæðin hafi verið að drepa mig þar sem ég var nú loksins búin að kaupa blessaðan ísskápinn!!!!

Við gengum frá því að ísskápurinn minn kæmi heim til mín næsta dag á milli 17 og 19!!!!

Þetta var á þriðjudaginn í síðustu viku..........

.......... á miðvikudaginn fór blóðþrýstingurinn hjá frúnni uppúr öllu valdi!!!!!
Frú Megabeib

Ó mæ god........

05. febrúar 2009 klukkan 15:11

............ hvað ég hef sögu til að segja frá!!!!

Þar sem ekki sér fyrir endan á sögunni ennþá ........... þá ætla ég að sjá hvernig málin þróast, áður en ég segi þessa ótrúlegu sögu.......

Það er bara hægt að láta sér hlakka til!!!!!

Þetta er sagan af ísskápsmálinu endalausa!!!!

....... eins og staðan er akkúrat núna........ þá er ég með tvo ísskápa standandi inni á eldhúsgólfi hjá mér........ einn gamall í sambandi........ annar nýr í umbúðunum......... er þetta búið að vera svona ástandið í eldhúsinu frá því í gær!!!!

Blóðþrýstingurinn hefur ekki farið hærra upp í áraraðir en hann gerði í gær hjá mér!!!!

Ég hef ekki orðið svona reið ......... ja ég man ekki hvenær ég varð svona reið síðast......... svo langt er síðan!!!!

Ég hlakka til að skrifa þessa sögu......... um leið og það er kominn endir á hana!!!!

Frú Megabeib

Það er eins og það er............

04. febrúar 2009 klukkan 10:17
..... seinni hlutinn af 29. ágúst 2007 verður að bíða.......... er búin að reyna að byrja nokkrum sinnum á færslu......... en kem henni bara ekki útúr puttunum á mér!!!!!

.......... hún kemur ef hún á að koma!!!! ........... annars verður þetta bara svona!!!

Annars var hugsunin mín með að fara í gegnum þessar vikur þarna ......... tvíþættur.......... annars vegar fyrir mig til að gera upp þennan tíma........ reyna að sjá hlutina í nýju ljósi........ koma mér útúr afneituninni .......... hins vegar að kannski væri einhver sem gæti nýtt sér þessa óskemmtilegu reynslu mína...... sá hinn sami þyrfti kannski ekki að finna hjólið upp á nýtt!!!!

En er algerlega, gjörsamlega í pásu núna með þetta.........

Búin að kaupa ísskáp......... hann kemur til mín í dag....... hlakkidí hlakk!!!
Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar