Fékk póst í dag......... frá Reykjavíkurborg.......... fyrst hugsaði ég með mér: "hvað er Reykjavíkurborg að senda mér póst?? .... örugglega eitthvað í sambandi við þetta Fríkortsdæmi eða eitthvað!!!!"
En nei ónei!!!!
Í bréfinu stóð orðrétt m.a. eftirfarandi:
"Umsóknir þínar um stuðningsfölskyldur hafa verið samþykktar, en ekki er búið að finna fjölskyldur til starfans."
Júhú!!!!! Bara GEÐVEIKT!!! Eitthvað að ganga upp!!!!
Settist niður með börnunum og sagði þeim frá þessu........ þeim fannst þetta frekar skrítið...... stuðnings-hvað??? Afhverju???? Til hvers????
Ég útskýrði málið eins vel og ég gat og þegar umræðum var lokið ........ og dramadrottningin dóttir mín búin að jafna sig á því að vera án móður sinnar HEILA helgi, einhverntíman í framtíðinni........ þá virtist mér á þeim að þau væru nú bara spennt fyrir þessari nýju upplifun.
Þá er það bara að finna þessar fjölskyldur, því þær væntanlega þurfa að vera tvær........ veit ekki meir....... mér finnst bara geðveikt að það sé búið að samþykkja þetta....... kannski get ég bara sjálf fundið fjölskyldu sem tekur að sér elsku börnin mín eina helgi í mánuði.......
....... svo ég geti farið að skipuleggja sumarbústaðaferðina.......... já ég veit......... eiginhagsmunaseggur!!!! Eða þannig líður mér nú samt dáldið........ en ég er samt dáldið með samviskubit yfir því að láta mér detta það í hug að senda börnin mín eitthvert út í bæ..... vond móðir ...... eins og ég geti ekki hugsað um börnin mín........ það eru fullt af mæðrum sem eru í mínum sporum sem geta sko alveg hugsað um börnin sín og þurfa enga stuðningsfjölskyldu....... aumingi ....... þessar hugsanir hendast um í hausnum á mér....... en ég veit það líka að við höfum öll gott af því að fá pásu frá hvort öðru........ allavega svona öðru hvoru!!!!
Fór líka í ræktina í dag........ enda veitti ekki af....... heil vika síðan síðast........ er sko ekki að gera sig!!!!
....... þannig að til að hafa enga afsökun lengur......... gerði ég mér lítið fyrir og keypti eitt stykki árskort!!!
......... og ég ætla að mæta...... því að öll sætin eru upptekin í klúbbnum "styrktaraðilar líkamsræktarstöðvanna"!!!!!
Ég er á námskeiði á vegum vinnunar minnar ............. jú jú ......... er alltaf á námskeiðum.......... ellllllllska námskeið........... því maður getur alltaf á sig blómum bætt!!!!!
Fannst MJÖG athyglisvert það sem fram kom á námskeiðinu. Ákvað að skrifa það hjá mér. Sérstaklega þar sem ég var að ræða þetta. Gott að vita að það er ekki bara ég sem er svona skrítin.........
Þegar misræmi er milli þess sem sagt er og annarra tjáningar þá myndast svokölluð „tvöföld skilaboð"
Tvöföld skilaboð valda óþægindum, misskilningi og öryggisleysi í samskiptum
.......... að maðurinn minn býr ekki lengur hérna hjá mér!!!! Hann væri sko nett pirraður á mér núna!!!
Ekki það að ég vildi ekki hafa hann hérna...... það veit sá sem allt veit að ég óska einskins heitar..... en get ekki varist því að hugsa þetta núna þegar ég geng hérna um íbúðina!!!!
Málið er það að ég hef þann leiðindar ávana að fara úr skónum mínum um allt hús!!! Sem sagt ekki þegar ég kem innúr dyrunum...... eða sko fer nú úr þeim þegar það er blautt úti eða skórnir eru löðrandi í snjó og annarri drullu...... veð ekki með það inn um alla íbúð........ en svona annars þá fer ég ekki úr skónum þegar ég kem inn.
Þegar ég fer í önnur hús, þá er ég nú kurteis stúlka, enda einstaklega vel upp alin....... og fer úr skónum þegar ég kem innúr dyrunum ........ því það á maður að gera....... eða allavega á Íslandinu góða.
Annars fer ég bara úr skónum þar sem það hentar mér á þeirri stundu sem það hentar mér að fara úr skónum!!! ..... og þar sem þetta er nú einu sinni heima hjá mér ........ þá læt ég það bara eftir mér........ og hef alltaf gert!!!
En þar sem maðurinn minn er ekki lengur til staðar til að annað hvort tuða yfir því að ég fari úr skónum útum allt hús og skilji þá þar eftir ......... eða hreinlega gangi frá þeim eftir mig..... því það gerði hann þessi elska, því þetta fór alveg óhemju mikið í taugarnar á honum............ þá eru skórnir mínir hérna útum ALLA íbúð!!!!
Svo á morgnana þegar ég er á leiðinni útúr dyrunum þá finn ég enga skó til að fara í og þarf að hlaupa útum allt til að leita að skónum, því ekki fer ég út skólaus!!!! ......... þeir geta verið undir eldhúsborðinu, inni á klósetti, inni í stofu, við tölvuna eða jafnvel inni í svefnherbergi!!!!!
....... held jafnvel að ég geri í því að skilja skóna mína eftir útum allt hús........ bara svona afþví að ég get það án þess að það sé tuðað í mér....... eða kannski leynd þrá eftir þessu tuði..... það gæti líka allt eins verið!!!! Því eins ótrúlega og það hljómar þá sakna ég þess!!!!
Þannig að mig vantar alveg nauðsynlega fleiri skó...... þar sem það er meira en nóg pláss í skóhillunni núna þegar þar eru næstum því engir skór lengur .........
......... helst hvít leðurstígvél með pinnahæl!!!!!
Hvað gerir maður þegar maður er alltaf að fá tvöföld skilaboð??
Held að það hljóti að vera til einhver svakalega fín lausn á þessu ........ ég er bara ekki alveg að koma auga á hana....... og finnst alveg ferlega pirrandi að vita ekkert hvernig ég á að snúa mér þegar ég fæ svona tvöföld skilaboð!!!!
Get því miður ekki nefnt dæmi....... persónulegar ástæður........ veit að það myndi valda enn meiri ussla og leiðindum ........ og þar sem ég er ekki konan sem stofna svo glatt til leiðinda....... því mér leiðast þau ..... þá ætla ég að sleppa því að nefna dæmi!!!!
.........en gæti samt alveg nefnt nokkur!!!!
Ætla að skella mér á Konukvöld Bylgjunnar í kvöld.......
.......... ég á nebblega svo góða vinkonu sem bauð mér!!!!
.......... og hélt voða fína veislu....... og fékk fullt af flottum pökkum ......... og fékk fullt af góðum kveðjum........ og er bara þokkalega sátt við lífið og tilveruna .......... eins langt og það nú nær!!!!
Það er hrikalega gaman í vinnunni........ finnst eins og ég sé að leika mér allan daginn........ var það ekki einmitt það sem alla dreymir um......... vinna vinnu sem manni hlakkar til að mæta í á morgnana??? Ég er allavega þar núna!!!! ........ og það er gaman!!!!
Er alltaf að reyna að átta mig á þessu lífi........ mikið gengur það nú erfiðlega!!!
Ég hef alltaf haft þá trú að lífið sé að einhverju leiti fyrirfram ákveðið. Þér sé ætlað eitthvað ákveðið hlutverk í lífinu........ sama hvaða leið þú velur, hvaða stíg þú velur að feta, þá endir þú nú samt sem áður á því að vera í því hlutverki sem þér var ætlað í upphafi......... sama hvort þér líkar betur eða verr!!!!
Þú getur valið að taka einfalda leið, án mikils mótlætis og án mikillar vinnu........ eða kannski er það valið fyrir þig........ eða þú getur valið að taka þessa erfiðu, flóknu og stórgrýttu leið og safnar á leiðinni helling af visku, þekkingu og upplýsingum á leiðinni.......... eða kannski er hún líka valin fyrir þig.
Ég hef líka alltaf trúað því að þegar þú kynnist nýju fólki, þá sé ástæða fyrir því að akkúrat þessi/þessar persónur komi inn í líf þitt á akkúrat þessum tímapunkti!!! Þér er ætlað að læra af þessu fólki eða fá lánað frá því einhverja reynslu, eins langt og það nær, svo þú eigir kannski auðveldara með að gegna hlutverkinu þínu.
Ég tel að ég hafi valið....... eða valið fyrir mig........ þessi stígur sem ekki er svo beinn og breiður. Miðað við þá reynslu sem ég hef safnað að mér í reynslubankann minn í gegnum tíðina, get ég ekki sagt að ég hafi gert þetta á léttu nótunum.
Undanfarið hef ég verið að kynnast helling af nýju fólki....... það hlýtur að eiga að kenna mér eitthvað........ eða er það ekki??? Ég er bara ekki alveg að sjá hvað það gæti verið....... en það er nú samt oftast þannig að ég sé ekki hvað þetta fólk var að kenna mér fyrr en ég horfi í baksýnisspegilinn og skoða samksiptin sem ég átti við þetta fólk.
Nú er ég komin með nóg af því að kynnast nýju fólki........ þekki nógu marga ........ í bili allavega........ sérstaklega þar sem ég er að reyna að átta mig á því hvað þetta fólk er að gera inn í líf mitt akkúrat núna!!!
Sumt af þessu fólki fer alveg ferlega í taugarnar á mér....... sérlega þegar það hagar sér ekki eins og ég á að venjast að fólk hagi sér........ verð svo svakalega óörugg og líður bara ekkert sérlega vel....... en ég hlýt að lifa það af eins og svo margt annað!!!!
Þrátt fyrir að hafa ekki fetað hinn breiða og beina veg lífsins, þrátt fyrir að hafa náð mér í marga óskemmtilega lífsreynsluna á leiðinni, þrátt fyrir að heimurinn minn sé ekki eins og ég vildi hafa hann ........ eins og staðan er í dag.........
.......... þá vildi ég ekki vera nein önnur ég!!!!
Ég ætla að sætta mig við það að taka á móti fullt af gjöfum á morgun í afmælisveislunni minni!!!!
Til að leiðbeina þeim sem eru æstir í að koma með pakka hef ég ákveðið að birta hér með óskalista:
* Pels - helst þennan sem var stolið - annars annan næstum því alveg eins!!! * Grifflur * Hárkollu * Ferð til Barcelona * Pels * Ferð til Danmerkur * Gönguskó * Pels * Líkamsræktarkort * Leikfimisbuxur * Leikfimisbol * Pels * Sumarbústaðarferð * Undirföt * Pels * Hvít leðurstígvél með pinnahæl * Hvít stígvéli * ...... og jú mest af öllu langar mig í pels!!!!
Er á fullu í undirbúningi........ þetta verður bara gaman!!! .......... eða er það ekki???
Alltaf þegar ég sest hérna niður til að skrifa eitthvað skemmtilegt......... man ég ekki hvað ég ætlaði að skrifa!!!!
Svo þegar ég er staðin upp og búin að opinbera færsluna........ þá rekst ég á eitthvað sem ég hugsa..... æi já alveg rétt...... hehehe en sniðugt, ég ætti nú að blogga um þetta........ mikið hefði nú verið gáfulegra að skrifa um þetta frekar en þetta bull sem ég skrifaði áðan!!!
Er búin að prófa að gera hlé á færsluskrifum og standa upp og líta í kringum mig....... en þá skeður bara ekki neitt!!!
Það styttist í ammmilið....... og jú jú það var tekin sú merkilega ákvörðun að halda eitt stk. ammili!!!
Þetta verður létt og löðurmannlegt............ en ógisslega gaman........
........ eins gott að ég þarf ekki að fara út úr húsi....... hef nebblega enga yfirhöfn.......... henni var stolið seinast þegar ég var í bænum!!!!!
........... skil hreinlega ekki hvernig fólk fær það af sér að stela yfirhöfnum annars fólks......... og það PELSINUM mínum!!! Að vísu ekta gerfi ........ en mér er alveg sama....... hann var alveg hrikalega flottur og ég var hrikalega ánægð með hann........ ég tala nú ekki um hvað ég var dropp dedd gordjöss í honum!!!!
Mikið hlýtur manneskjunni að hafa verið kalt sem tók hann!!! Enda var gaddur úti....... fann það þegar ég fór út pelslaus!!!!
....... hefði samt viljað að viðkomandi hefði ekki líka tekið húslyklana mína með sér!!!!
Þeir voru semsagt í vasanum á pelsinum sem var stolið!!!!!
Skil bara ekkert í því afhverju bílinn minn fyllir sig ekki sjálfur af bensíni!!! Hann gerði það alltaf hérna áður fyrr!!! Svona eins og þvotturinn þvoðist, klósettið þreifst, uppþvottavélin fór í gang og bíllinn var þrifinn reglulega!!!!
Er að velta því fyrir mér hvort það gæti verið af því að maðurinn minn sá um þessa hluti á heimilinu!!!! ....... og þar sem hann er ekki lengur hér, þá .......... já...........
Ég verð að viðurkenna það að þegar stormurinn blæs og rífur í hárið á mér og gerir kinnarnar mínar kaldar....... þá hef ég nákvæmlega engan áhuga á því að standa utandyra og dæla bensíni á bílinn minn!!!! Verð að berjast við þá löngun að skella mér bara inn á næstu mönnuðu bensínstöð og fara á dælu þar sem veitt er full þjónusta og láta bara dæla á bílinn fyrir mig!!!! ....... en ég hem mig....... ég er orðin svo mikill nískupúki að ég hreinlega tími því ekki!!!!
Þessvegna neyðist ég til að standa úti í kulda og trekki og dæla á bílinn minn bensíninu!!!
Held að ég hafi bara ekki eina einustu hugmynd um hvað ég eigi að skrifa hérna í dag!!!
En það er nú einu sinni þannig að ég hef bara þörf fyrir að tjá mig um eitthvað......... hvað það í fjandanum ætti að vera það veit ég ekki......... eða jú reyndar veit ég það .......... en það er eiginlega ekki hæft til aflestrar........ ekki fyrir alla í það minnsta!!!!
Svo ég verð bara að tjá mig um eitthvað sem er svona meira "almennt" .......... eða þannig!!!!
Held ég verði að fara að láta verða af því að skrifa blessaða bókina eða smásöguna sem endalaust er í hausnum á mér!!! Hefði átt að taka orð góðrar vinkonu minnar mér til fyrirmyndar þegar hún sagði að ég gæti bara farið og sest á kaffihús og skrifað sögur........ fyrst ég væri atvinnulaus!!!! ..... en þá vantar mig fartölvuna!!!!
Kannski ég ætti að kaupa mér eina litla netta á áttatíuþúsund......... fermingartilboð......... og hún er til bleik og allt!!! ......... æi nei ......... ég er hætt að vera atvinnulaus, þannig að það dettur eflaust um sjálft sig!!!! ....... get ekki farið að hanga á kaffihúsum úr því sem komið er!!!!
Annars er ég í vandræðum með líkamsræktarkortið mitt.......... á ennþá eftir 2 vikur af kortinu mínu........ en má bara mæta þegar ég er í vinnunni!!!! Hvað gera Danir þá??? ......... eða bara ég???
Ætla að hringja í ræktina á morgun og spyrja hvort það sé ekki möguleiki á því að ég fái að klára kortið ...... fyrir utan vinnutíma!!!!
Njótið helgarinnar sem er komin eina ferðina enn!!!
Ég man að einusinni þegar ég var útivinnandi kona þá sagði einn sem mér fannst vera óbærilega aldraður, hefur örugglega í það minnsta verið orðinn 33 ára: "undarlegt með þessa vikur, það eru bara endalaust mánudagar og föstudagar og svo eru nokkrir kaffitímar á milli!!!" Þá sagði annar vinnufélagi minn...... sem var MIKLU eldri en hinn...... nánast bara að komast á ellilaun...... í það minnsta orðinn 51: "já bíddu bara þangað til þér finnst lífið vera ekkert nema jól og páskar með sumarfríi inn á milli!!!!"
Get ekki sagt að ég hlakki til þess!!!! Þá tekur því nú ekki að taka niður jólaskrautið!!!!
Annars fannst mér athyglisvert þegar ég sá það í fréttunum að það eru 25 ár í þessari viku síðan Guðlaugur vann það stórafrek að synda sér til lífs!!!
Ég tók þessu að sjálfsögðu með stóískri ró unglingsins...... ég var 15 ára......... og fannst þetta vera þvílíkt fjaðrafok og endalaus fréttaflutningur......... yfir ekki neinu!!!
Ég man hvað ég var þreytt á þessari endalausu umræðu um þetta....... só....... hann synti einhvern helling......... só........ gerir maður það ekki ef maður getur synt?? só....... nokkrir kílómetrar.......... só....... var það ekki svona sirka út í ísbúð??? só........ ég meina get nú ekki sagt að mér þyki þetta neitt merkilegt....... og þurfa að brjóta ísinn í einhverju baðkeri til að fá að drekka..... só....... gat hann ekki bara beðið þangað til hann var kominn í eitthvað hús....... ég meina VÁ ....... þvílíkt drama!!!! Endalaust verið að tala um þennan gamla kall sem einn hafði komist lífs af!!! Só........ það var fullt af fólki sem eitt hafði komist lífs af!!! ........... hvað var þetta merkilegra en hvað annað????
Í dag horfi ég öðruvísi á málið.
Þegar ég fer í ræktina þá geng ég í það minnsta 6 kílómetra, helst meira, það tekur mig í það minnsta klukkutíma! Ég er oft við það að gefast upp, og veit að það er ekkert mál, ég þarf bara að stoppa bandið!!! Ekki gat Guðlaugur bara "stoppað bandið" því þá hefði hann hreinlega drukknað!!!!
Þegar ég fer í ræktina þá er ég með vatnsbrúsa með mér. Það er gott því ég þarf ekki annað en rétta út hendina og þá get ég fengið mér vatnssopa........ maður verður nefnilega þyrstur á svona púli!!!! Greyið Guðlaugur synti 6 kílómetra og hafði engan vatnsbrúsa!!!! Ekki furða að hann skildi hafa hamast við að brjóta ísinn í blessuðu baðkarinu........ maður verður nefnilega ekkert minna þyrstur þegar maður púlar í vatni en á þurru landi!!!! ...... og ekki getur maður drukkið sjóinn!!!!!
Ég eiginlega hálf skammaðist mín fyrir að hafa ekki nennt að fylgjast með fréttunum á sínum tíma......... því án nokkurs vafa var þetta þrekvirki sem maðurinn - gamli kallinn hafði unnið!!!!
Það sem sló mig mest við þessa frétt var þó hversu gamall herra Guðlaugur hafði verið þegar hann synti sér til lífs!!!!
.......... eða á ég ekki að halda uppá afmælið mitt???
Er algerlega lost í þessum efnum!!!
Er mikið búin að spá og spegúlera......... langar að halda brjálað partý........ langar ekki að fá fólk sem mætir af skyldurækni........ langar að hafa fólk sem mætir til að skemmta sér með mér......... veit ekkert hvað ég á að bjóða því uppá........ hvorki í mat eða drykk........ veit EKKERT hvernig ég á að gera þetta!!!!! ...... eða hvað ég á að gera!!!!!
Var eiginlega komin á það að halda uppá afmælið mitt........ svo ætlaði ég sko bara í bæinn....... en síðasta helgi gerði nú alveg útslagið með þetta bæjarrölt mitt......... langar ekki rassgat í bæinn meira!!!! ...... en langar heldur ekki bara að vera heima ef ég er byrjuð að tjútta hvort sem er!!!!!
Er ég að flækja þetta óþarflega mikið????
Það er orðið stutt til stefnu........ vantar alveg innilega manninn minn til að ræða þetta við fram og til baka...... þá væri þetta sko líka allt öðruvísi allt saman........ ég væri ekki búin að vera svona mikið í bænum......... og gera þær gloríur sem ég er búin að vera að gera þar........ þá væri ég nú bara búin að vera ábyggileg húsmóðir í austurbænum!!!! ...... og maðurinn minn eflaust búinn að brugga fyrir konuna sína svo hún gæti boðið gestunum sínum uppá einhverja góða drykki!!!!
Mikið ferlega leiðist mér þetta líf þessa dagana!!!!!
Náði gjörsamlega botninum um seinustu helgi......... mér er sagt að þá sé eina leiðin upp hér eftir........ er bara ekki alveg að sjá það.......... lulla bara þarna um á botninum og reyni að halda andlitinu........ svona út á við allavega!!!!!