Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Fyrirsögnin er lengri en sjálft bloggið í dag! Hvernig stendur á því? Af því að í dag er dagurinn þar sem frúin bloggar í skeytaformi!!!

30. apríl 2009 klukkan 16:37
Börin farin, flogin á vit ævintýranna! STOPP

Dans og daður framundan! STOPP

Góða helgi! STOPP
Frú Megabeib

Þvo, þvoði,þvegið, þvugum???

29. apríl 2009 klukkan 21:10
Var svo þokkalega á leiðinni í ræktina............ hef ekki farið síðan í byrjun síðustu viku!!!!

Skaust niður í þvottahús til að ná í leikfimisfötin........... mundi greinilega að þau voru þar........ ég var reyndar líka búin að leita að þeim hér á hæðinni en fann þau ekki .......... svo í þvottahúsinu hlytu þau að vera!!!

Rámaði jafnframt í það að hafa hent þeim í vélina........ svo þau hlytu að vera á snúrunni ásamt hinum fötunum sem rykfalla þar í rólegheitunum!!!!

Er fyrir löngu búin að komast að því að það gerir ekkert til þó að þvotturinn sé sóttur beint á snúruna....... einn hlutur í einu ef maður þarf að nota hann!!! ...... hann krumpar þá ekki í stofusófanum í einni hrúgu á meðan!!!!

Skaust niður......... hrifsaði með mér nokkrar óhreinar flíkur ........ fyrst ég var nú einusinni á leiðinni þarna niður gat ég svo sem alveg hent í vélina í leiðinni!!!!

Þegar í þvottahúsið var komið skimaði ég í kringum mig...... allt eins og við var að búast, þurr þvottur á snúrunum, ef hann væri mikið þurrari væri hann eflaust í duftformi!!!!

Nokkrar tómar klemmur á víð og dreif þar sem þvottur hafði hangið sem nú var kominn í notkun, jafnvel á leiðinni í vélina aftur!!!!

Í fljótu bragði sá ég ekki íþróttafötin mín!!! Hmmmmm....... þetta var skrítið....... en þar sem örskimun útum augnkrókana gefur ekki alltaf bestu niðurstöðuna....... þá taldi ég fyrir víst að mér hefði yfirsést þau!!!

Með fullt fangið teygði ég mig í hurðina á þvottavélinni og opnaði hana....... gerði mig líklega til að henda inn þvottinum sem fyllti fang mitt!!!

............ inn í þvottavélina fóru þau þó ekki ..... því þar inni lágu íþróttafötin mín og steinþögðu!!!!  ..... en ó mæ god hvað þau lyktuðu!!!!!

Þannig að það var ekki einn einasti séns á því að ég gæti farið í svo mikið sem aðra skálina á brjóstarhaldaranum sökum súrrar, nánast vikugamallar svitafýlu!!!!

Ég hafði sem sagt verið einstaklega ábyggileg kona og gert allt klárt til að þvo íþróttafötin mín ...... meira að segja sett þvottaefni í þar til gerð hólf!!! .......... bara gleymt að setja vélina af stað!!!!

Nú malar vélin í þvottahúsinu, og ég er að reyna að finna mér eitthvað annað uppbyggilegt að gera en fara í ræktina!!!!

Get ekki varist því að hugsa: "afhverju getur maðurinn minn ekki bara verið hérna til að þvo þvottinn!!!"

....... þá væri þetta þvottahúsalíf miklu einfaldara og ég væri í ræktinni núna!!!!
Frú Megabeib

VIP - status!!!!

28. apríl 2009 klukkan 22:29
Hjólið mitt er komið í lag!!!

Ég á besta pabba í heimi sem lagaði hjólið mitt þannig að nú get ég hjólað hvert á land sem er!!! .......... eða eins lang og mér hentar!!! ......... segði það nú kannski ekki að ég ætli að skella mér hringinn á hjólinu......... en get hjólað í vinnuna ef mig langar til þess!!!

Svo eru ekki lengur hægjur á hjólinu mínu heldur alvöru bremsur!!! ........ og glænýr standari!!!!

Það margborgar sig að vera með VIP status....... verð að segja það ......... og náttúrulega hjálpar það líka að eiga besta pabba í heimi!!!!

Ég veit ekki hvernig ég á að snúa mér í þessu......... langar ekki neitt að borða en er alltaf að narta í eitthvað og við það verður mér óglatt og mér líður bara frekar illa........ hvað er eiginlega í gangi???

........ eins gott að ég drekk þokkalega mikið af kóki........ það heldur mér á floti........ þó svo að ég mætti nú alveg innbyrgða einhvern annan vökva svona yfir daginn ......... skilst á þeim sem vita meira en ég að það sé ekkert sérlega hollt!!!!........ að drekka svona mikið kók!!!

Annars verður mér oft hugsað til samtals sem ég átti eitt sinn við eina konu sem veit meira en nef hennar nær ...... hefur mikil og örugg samskipti við þá sem við "þessi venjulegu" sjáum ekki svona dags daglega!!!

Við hjónin sátum við eldhúsborðið hjá henni og var ég eitthvað að fíflast........ sagði sem svo að ég ætti eftir að verða fræg..... það kæmi að því ......... bara spurningin hvenær!!!

Hún svaraði með semingi, hallaði undir flatt og horfði á okkur hjónin til skiptis og sagði: "já, þú átt eftir að verða fræg. Fræg fyrir að vera konan hans Ása!!" Verð ég að segja að mér var verulega misboðið ........ hélt ég nú ekki ........ ég ætlaði sko að verða fræg fyrir mitt eigið ágæti og hvað ég væri stórkostleg!!!!

Hún samþykkti það nú alveg en endurtók að það væri jafnframt fyrir að vera konan hans Ása!!!

Ekki grunaði mig eitt augnablik að hún hefði svona rétt fyrir sér!!!

Ekki það að ég sé orðin neitt sérlega fræg........ á það sko alveg eftir ........ það kemur að því, ég veit það!!!!

......... en ég varð vitni að því um daginn að tvær konur voru að tala um mig og vissu þær ekki að ég var áheyrandi að samtali þeirra....... og sagði önnur: "æi manstu ekki hver hún er?? Hún missti manninn sinn í fyrra!!!!"

Þannig að þar sem hin konan vissi auðsjáanlega ekki hver ég var fyrr en þetta atriði var nefnt, en mundi eftir mér þegar Ási var nefndur ......... þá hlýt ég að vera orðin smá fræg........ fyrir að vera konan hans!!!

.......... eða er það ekki?????

Hvort það er þessvegna sem ég er komin með VIP - status eða ekki skal ég gjörsamlega láta ósagt.......

........ en ég geng (eða hjóla) um götur borgarinnar ...... ok, keyri mest...... eins og ég sé með VIP - status........ og fæ þar af leiðandi viðbrögð í samræmi við það!!!!

Ég er snilllingur!!!!!!!
Frú Megabeib

Flottasta land í heimi!!

27. apríl 2009 klukkan 19:55

Eftir að hafa eytt deginum í að skoða myndir frá Íslandi, af stöðum sem ég hef aldrei komið á, bara heyrt um, þá verð ég að segja það að Ísland HLÝTUR að vera eitt það fallegasta land í ÖLLUM heiminum!!!

Vá hvað það er fallegt!!!!

Allar andstæðurnar sem maður endalaust rekst á við hverja hæð og nánast hvern hól......... þetta er ekkert smá fallegt!!!

Eftir að hafa eytt deginum í Bláa Lóninu á Laugardaginn, er ekki vafi í mínum huga að það sé einn af áhugaverðari stöðum á Íslandi........ þrátt fyrir að það kosti eins og einn handlegg að fara þangað inn....... þá er það nú alveg þess virði....... bara eins gott að börnin þurftu ekki að borga!!! ......... reyndar ég ekki heldur, var á gestalista....... þetta er útaf nýju VIP stöðunni minni......... er á gestalista allsstaðar þar sem því er við komið!!!! Í Bónus, hjá Olís, í Ríkinu.......... já bara nefndu það ...... á gestalista!!!!

Nú er ég með markmið....... ég ætla að ferðast og skoða landið mitt í krók og kima, fjöll og dali ...... eins langt og jeppinn ber okkur.......

......... eða bara bíllinn MINNNNNN!!!!!

Frú Megabeib

Einn erfiður, en góður dagur að baki.

26. apríl 2009 klukkan 13:53
Er búin að skrifa hátt í hundrað og sjö færslur í hausnum á mér.
Vildi alveg geta sett þær allar hérna inn.
........ eða allavega þessar sem ég man!!!

Endalaust tímaleysi!!! Er þetta spurningin um forgangsröðun???

Fermingardagurinn var alveg yndislegur og hefði ekki getað verið betri frá upphafi til enda!!!
Segi það ekki að hann var alveg óhemju erfiður líka ...... einn sá allra erfiðasti í langan tíma...... en samt svoooo góður.

Mikið vildi ég að hann Ási minn hefði verið með okkur........ getað verið með mér til að sjá hvað strákurinn okkar er flottur og myndarlegur........ mikið var ég stolt móðir!!!

Að sjálfsögðu var hann flottasta fermingarbarnið........ því hverjum þykir alltaf sinn fugl fagur!!!

Ég veit alveg að Ási minn var með okkur, þó svo að hann hafi nú ekki verið svo sýnilegur, þá veit ég að hann var á staðnum, bæði í kirkjunni og hérna heima.

Honum leiddist aldrei veislur og mannamót......... hitta skemmtilegt fólk og fá gott að borða!!!

Ég spurði son okkar að því daginn fyrir ferminguna hvað hann hlakkaði mest til á fermingardaginn .......... og sagði ég við hann að hann ætti að vera alveg 100% hreinskilinn...... og hann er eins og móðir sín, kann ekki að ljúga ....... og hann svaraði: fá gott að borða!!!

Honum kippir í kynið þessari ellllllllsku!!!

Annars finnst mér alveg stórkostlegt hvað þeir feðgar eru líkir........ bæði í útliti og í töktum....... ég tala nú ekki um í sér, skapgerð og háttum......... það er jafnvel óþægilegt stundum!!!

Við áttum yndislega stund þegar gestirnir voru farnir og verð ég að viðurkenna það að ég hef ekki grátið svona mikið í laaaaangan tíma!!!! Hrikalega var þetta erfitt.......... en jafnframt gott og hreinsandi.

Ég á flottasta strák í heimi og er alveg rífandi stolt af honum.

Það eru ennþá til afgangar......... þó svo að ég hafi nú komið nokkrum þeirra í frysti....... þá eru samt ennþá til afgangar........ en þannig vildi ég líka hafa það......... frekar en að það væri ekki nóg!!!!

Dagurinn hefði aldrei gengið svona vel upp og allt í kringum hann ef ég væri ekki með svona stórkostlega gott fólk í kringum mig. Mikið er ég lánsöm og óendanlega þakklát fyrir það.

........ það eru líka ennþá til tvö páskaegg........ ætli ég verði ekki bara að geyma þau þangað til á næstu páskum!!!!!

....... get ég sett þau í frysti????
Frú Megabeib

Skil bara ekki.....

20. apríl 2009 klukkan 23:21
........... hvernig er hægt að hafa svona mikið að gera????

Er bara ekki að skilja þetta!!!!

Meira en nóg að gera.........

......... en þetta reddast allt saman.........

........... eða er það ekki????
Frú Megabeib

Pælingar á sunnudagsmorgni!!!

19. apríl 2009 klukkan 10:56
Kannski er ég bara orðin óendanlega gömul!!!

Ég er vöknuð klukkan tíu á sunnudagsmorgni og get bara ekki sofið meira, ég var reyndar sofnuð fyrir miðnætti í gærkvöldi, því að ég var svo þreytt að ég gat ekki haldið augunum lengur opnum!!!

Eru þetta ekki klár merki um elli??? Mér líst enganveginn á það!!!

Svo eru börnin mín ennþá sofandi....... ég legg ekki meira á ykkur........ er ég þá ekki komin með þokkalega unglinga á heimilið??? ...... ég bara spyr??? ....... sem þýðir að ég hlýt að vera að verða nokkuð gömul..... ekki satt???

Man alltaf að ég hlakkaði svo til þegar ég yrði gömul og hætt að vinna, þá mætti ég gera það sem ég vildi, og sofa eins lengi og mér hentaði!!!!
Er algerlega að sjá fram á að þetta er ekki að gera sig...... er verulega farin að hræðast að ég geti ekki sofið eins mikið og mér hentar, einfaldlega sökum þess að ég þarf ekki að sofa!!!!

Annars er ég ekki að þola rúmið mitt! Eða æi... ég veit ekki hvernig á að útskýra þetta.... sko.... mér leiðist alveg óendanlega að fara ein upp í rúm....... þessvegna hangi ég oftar en ekki fram eftir öllu og finn mér eitthvað annað mun merkilegra að gera en fara í rúmið!!! Þrátt fyrir að ég svindli nú stundum og börnin mín, unglinarnir, sofi uppí hjá mér...... þá leiðist mér það oftast að fara í rúmið... EIN!!!

Man þegar Ási þurfti að fara eitthvað í burtu sökum vinnu eða náms og ég var skilin eftir ein heima...... þá kom ég mér einmitt aldrei í rúmið ....... var svo oftar en ekki vansvefta og ergileg þegar hann kom loksins heim til mín aftur!!! .......... og var þar af leiðandi alls ekki eins glöð eins og ég hefði verið ef ég hefði verið vel sofin!!! OOOoooohhhh ég er svo klikkuð!!!!

Nú er ég búin að rekast á annað vandamál!!!! Ég hef heldur engan áhuga á því að liggja í rúminu á morgnana ef það er enginn að kúra við!! ........ og þá er ég ekki að meina börnin!!!!

Mikið leiðis mér þetta leiðindar líf!!!!!

Kom öllum borðskortunum í póst....... gerði það á föstudaginn........ þau verða þá ekki borin út fyrr en á morgun, en það verður bara að hafa það!!!!

Annars er bara allt að verða klárt fyrir ferminguna hjá einkasyninum......... eða sko það er auðvitað allt orðið klárt fyrir ferminguna....... það er bara veislan sem frúin er að klikka á!!!

En lifi fyrir þetta séríslenska máltæki:

ÞETTA REDDAST ALLT SAMAN!!!
Frú Megabeib

Hvaða, hvaða???

16. apríl 2009 klukkan 18:41
Er orðin dáldið þreytt á að vera svona neikvæð!!
Er orðin dáldið þreytt á því að vera alltaf að setja í brýrnar!!
Er orðin dáldið þreytt á því að vera með verki í kjálkavöðvunum afþví ég bít svo fast saman!!

Takk fyrir!!!

Nú óska ég eftir því að verða glöð, jákvæð og að það fari nú að gerast eitthvað skemmtilegt sem ég get hlakkað alveg óhemju mikið til!!!

Annars er þetta bara spurning um hugarástand!!

......... eða er það ekki???
Frú Megabeib

Það er sælla..........

15. apríl 2009 klukkan 18:29
.......... að gefa en þiggja!!!

Svo segir víst einhversstaðar, gott ef það er ekki bara í biblíunni sjálfri!!!

Verst finnst mér að enginn vildi þiggja páskaeggin mín svo ég fékk ekki að upplifa þessa sælu!

Held að ég sé haldin höfnunarótta........ núna líður mér eins og mér hafi verið hafnað, af því að enginn vildi blessuð páskaeggin!!!

Er ég ekki klikkuð???

Kannski er ástandið í þjóðfélaginu ekki eins slæmt og fólk vill vera að láta..... hvað veit ég???

Langar bara svo mikið að gefa eitthvað til baka..... ég er búinn að vera svo mikill þiggjandi undanfarið finnst mér....... finnst alveg kominn tími á það að ég fái að gefa til baka og að ég geti glatt einhvern með gjöf minni.... sama hversu líltilmótleg hún nú gæti verið...... en bara virkilega glatt einhvern ........ alveg niður í hjartarætur!!!!

Það kannski kemur einhvern daginn að mér verði það unnt að endurgjalda allt það góða sem fyrir mig hefur verið gert undanfarið....... þó það verði ekki með páskaeggjum þetta árið!!!
Frú Megabeib

Páskaegg!!!

11. apríl 2009 klukkan 10:57
Páskaegg..... þetta er kannski ekki skrítin fyrirsögn í ljósi þess að það eru nú einusinni að koma páskar og páskadagurinn sjálfur er á morgun!!!! En..........

Fyrir ári síðan voru líka páskar!! Við litla fjölskyldan fórum og keyptum okkur páskaegg, eitt á mann nr. 4, keyptum meira að segja eitt handa Ása mínum líka, reyndar bara nr. 2, en páskaegg samt!!!

Svo fórum við á páskabingó í skólanum hjá Viktoríu. Þar vann hún páskaegg, en fékk náðarsamlegast að skipta því út fyrir Makkintoss dollu..... við vorum jú komin með páskaegg!!!

Við fórum líka á páskabingó hjá Oddfellow. Þar fara öll börnin heim með vinninga og að sjálfsögðu eru það páskaegg á páskabingói!!!!

Þannig að nú vorum við komin með 6 páskaegg og eina Makkintoss til að snæða yfir páskana. Fyrir utan það að okkur hafði verið sendur glaðningur frá Danmörkinni sem innihélt m.a. páskakanínur úr súkkulaði ásamt fleira góðgæti!!! Já og gott ef ég fékk ekki líka páskaegg í afmælisgjöf, þar sem ég átti nú afmæli á páskadag!!!

Til að gera langa sögu stutta þá náðum við að klára eitthvað af páskaeggjunum. Páskakanínurnar ásamt tveimur páskaeggjum, einu nr. 4 og öðru nr 2 og hálfri Makkintoss voru til leeeeengi!!!

Í einhverju tiltektarkastinu hjá frúnni, skellti hún páskakanínunum inn í skáp .......... þær eru þar ennþá!!!!
Í einhverju þynnkukastinu hjá frúnni, át hún litla páskaeggið....... en það var ekki fyrr en á þessu ári!!!!
Öðru hvoru var Makkintossdollan opnuð og uppúr henni týndir ætir molar...... hún kláraðist í gær!!!!
Páskaegg nr. 4 er ennþá uppi á skáp!!!!

Svo við fjölskyldan ákváðum að vera skynsöm og kaupa ekki páskaegg í ár. Við ætluðum að láta okkur duga þessi sem við vitum að við fáum hjá Oddfellow. Voru allir sáttir við það. Komum við heim af bingóinu sátt og sæl og stilltum páskaeggjunum upp við hliðina á hinu frá því í fyrra!

Alveg ótrúlegt, en það er ekki hægt að sjá hvort páskaeggið er frá 2008 og hvort er frá 2009!!! Nema þetta frá 2008 er orðið rykfallið!!! Hvað ætli það séu mörg páskaegg frá fyrri árum í umferð ár hvert???

Þá eru til á heimilinu 3 stk páskaegg nr.4 og allir ánægðir með það!!!

Þá fór frúin á spilakvöld. Var sigurvegari kvöldsins. Sigraði gjafakort í Smáralindina og........ jú jú páskaegg!!! Nr. 5!!!!! Það fékk stað uppi á skáp við hliðina á hinum 3 páskaeggjunum nr. 4.

Þegar frúin fór heim úr vinnunni á miðvikudaginn, var hún leyst út með páskaeggi!!! Nr. 5!!!!

Þannig að uppi á skáp hjá okkur eru tvö stk. páskaegg Nr. 5 og þrjú Nr. 4 ........ sem sagt FIMM páskaegg!!!

Væri ég alveg til í að gefa eitthvað af þessum páskaeggjum til einhverra sem ekki fá neitt páskaegg í ár!!! Og þá er ég ekki að tala um fullorðið fólk sem ekki tímir að kaupa sér páskaegg!!! Heldur til einhvers sem ekki hefur átt pening til að kaupa páskaegg, sérstaklega ef það eru börn sem eiga í hlut!!!

Þannig að ef þú veist um einhvern sem hefur þörf fyrir páskaeggin mín, endilega láttu mig vita svo ég geti gefið þau!!!!!

Vil miklu frekar að einhver börn/þurfandi fái að njóta þess að fá páskaegg frekar en ég þurfi að fara að þurrka af þeim!!!!
Frú Megabeib

Alveg ólýsanlega ótrúlegt!!!!

07. apríl 2009 klukkan 22:38
Þetta er svolítið sérstök staða sem ég er í núna!!!

Ég er ALEIN heima........ það er þriðjudagskvöld....... og ég væri svo til í að fara á kaffihús eða í kaffi/kók eitthvert....... en hef ekkert að fara!!!!

Alveg ótrúlegt!!!!

Ég er ALDREI barnlaus í miðri viku!
Ég þarf ALLTAF að fá einhvern til að líta eftir börnunum ef ég þarf að fara út í miðri viku!
Fer svo út og er með bullandi samviskubit yfir því að skilja krílin mín eftir alein heima........ ekki að þau séu einhver svakaleg kríli....... en er samt með bullandi samviskubit yfir því!!!!

Ég sit núna og hef eiginlega ekki hugmynd um hvað ég á að gera!!!

Finnst endilega að fyrst ég er ein heima og hef möguleika á því að fara eitthvað og gera eitthvað sem ég annars hef ekki möguleika á að gera....... þá eigi ég að gera það!!!!
En það er víst ekki það sem ég á að gera ........ í það minnsta ekki í kvöld.

Þá fer ég bara í að gera þetta sem ég er ekki búin að nenna að gera........ ætla sko ekki einusinni að nefna það......... eða kannski ekki nenna........ heldur forðast eins og heitan eldinn....... því mig langar bara ekki rassgat að gera þetta!!!! ....... kannski er bara kvöldið í kvöld, kvöldið (vá hvað þetta eru mörg kvöld!!!) sem ég framkvæmi, geri, og lýk við að gera þetta leiðindar verkefni!!!!

....... ekki eftir neinu að bíða!!!!
Frú Megabeib

INTERNETIÐ alræmda!!!!

06. apríl 2009 klukkan 18:38
Mikið ferlega er maður orðinn háður netinu!!!! Og þá er ég ekki að tala um fiskinetinu eða veiðinetinu eða flugnanetinu!!! Heldur sjálfu INTERNETINU!!!!

Ráterinn minn tók upp á þeirri vitleysu að gefa upp öndina í gær....... er búinn að vera í andaslitrunum nokkuð lengi........ svona þega ég hugsa til baka........ en hann gafst endanlega upp í gær!!!!

Mér til mikillar ógleði!

Ég sat sveitt og prentaði út boðskort í ferminguna....... og svo þarf maður náttla að skrifa utaná hvar hver á heima....... og hvernig í fjandanum gerir maður það á þessu herrans ári 2009 þegar maður hefur ekki INTERNETIÐ????

Jú jú ég veit ...... með penna!!! En ekki gat ég farið að skálda upp hin ýmsu heimilisföng og vonast til þess að pósturinn vissi hvert hann ætti að skila þeim...... er ekki aaaalveg að treysta þeim fyrir því!!!! Ekki að þetta sé eitthvað vitlaust fólk....... langt frá því...... en er ekki alveg að sjá þá skila pósti til: Diddu frænku sem á heima þarna í Breiðholtinu rétt hjá kirkjunni!!!! Þegar Didda frænka heitir Þórhildur Magnúsdóttir og á heima í Engjaseli 7!!!! Er bara ekki alveg að sjá þetta fyrir mér!!!

Þar fyrir utan þá þurfti ég líka að finna út hvað blessað fólkið heitir fullu nafni....... því marga þekki ég nú bara undir gælunöfnum....... svona eins og Diddu frænku!!!!

..... og ef þetta hefði nú verið eina krísan....... þá hefði maður kannski getað vel við unað!!!

En í dag er það orðið svo sniðugt að þú getur gert allt á netinu...... nánast gift þig og eignast börn þar líka!!!!

Þannig að ég þurfti að millifæra peninga til að geta farið og keypt bensín á bílinn minn...... geri það bara á netinu!!!!
Ég þurfti að senda tvö stk. skeyti....... geri það bara á netinu!!!

Fyrir utan það að ég komst ekki á Facebook eða á MSN þannig að ég var gjörsamlega afskorin öllum sósjal tengslum!!! Það er næstum því það versta!!!!

Þannig að NETIÐ .......... já NETIÐ!!!!!

......... ég verð að segja að ég er orðin þokkalega háð því.......... því ég var ansi skapstirð þegar ég komst ekki á netið........!!!!! En hamaðist við að láta það bitna ekki á þeim sem næstir mér voru....... hvort það tókst veit ég ekki alveg....... en ég gerði mitt besta........

......... ætli ég sé orðin netfíkill???? Nú þarf ég kannski að fara í meðferð!!!! Þá get ég kannski loksins farið í gegnum þessi 12 spor.......

.......... ætli maður fái veikindavottorð fyrir netfíkilsmeðferð????
Frú Megabeib

18 ár!!!

05. apríl 2009 klukkan 19:38
Fjúff hvað tíminn er fljótur að líða!!!

Í dag eru 18 ár síðan við hjónin settum upp hringa......... skrítin tilhugsun....... ennþá skrítnara að ég skuli muna eftir þessu!!! ...... því það var sko ekki ég sem mundi eftir þessum degi, heldur var það maðurinn minn sem sá algerlega um að muna það!!!!!

Kannski hann hafi svindlað því besti vinur hans á einmitt afmæli í dag...... svo það er frekar auðvelt fyrir hann að muna það ......... en samt var það nú ekki planið.

Man að við ætluðum sko að setja upp hringa þann 4. apríl ...... þá gæti ég allavega munað það fjórða, fjórða........ en hringarnir voru ekki tilbúnir á réttum degi...... því ég vildi ómögulega fá einhverja hringa sem ekki voru sérstaklega búnir til fyrir okkur....... og þar af leiðandi vildi ég frekar bíða í einn dag til að fá réttu hringana!!!! ........ sem þýðir það að ég gat aldrei munað hvaða dag við settum þá svo upp!!!!!

...... er rétt að nota tímann á meðan boðskortin renna útúr prentaranum........ jú jú búin að búa þau til....... stefnan er sett á að koma þeim í póst á morgun........ ekki seinna vænna....... eins gott að hún svilkona mín tók fram fyrir hendurnar á mér og við settumst niður og skipulöggðum hvernig fermingarveislan hjá einkasyninum á að vera!!!!

.......... má ekkert vera að þessu........ er farin að skrifa nöfn og heimilisföng á boðskortin........
Frú Megabeib

Ekki nógu gott!!!!

04. apríl 2009 klukkan 03:10
Sit bara og naga á mér neglurnar........ leik mér á netinu....... kroppa naglalakkið......... leik mér meira á netinu........... og naga neglurnar pínu meira!!!!

Geri allt sem ég get til að halda ekki áfram við að búa til boðskort fyrir ferminguna hjá drengnum mínum....... þetta er alveg að verða pínlegt!!!!

Er loksins komin með hugmynd um hvernig það á að vera........ en þá er forritið að stríða mér, tölvan of lengi að vinna og ég of óþolinmóð ....... því þetta VERÐUR að klárast sem fyrst, því ég er orðin ALLTOF sein með blessuðu boðskortin!!!!! .......... en þetta eru dáldið mínar ær og kýr ekki satt????

Finn meira að segja tíma til að blogga ........ frekar en búa til boðskortið!!!!

Ég get alveg sagt að mér finnist ég frekar mikið vanhæf móðir þessa dagana........ !!!!

Finn ekki gleðitaktinn þegar ég er ein með sjálfri mér....... eins og mér er eðlislægt........ get sko alveg feikað þetta þegar ég er úti á meðal fólks....... en svona þegar ég er bara ein...... og þá er ég ein........ ALEIN!!!!

Þoli það ekki........ þoli ekki að vera ein....... finnst leiðinlegt að vera ein....... langar ekki að vera ein.........

Miðað við að vera búin að fara á námskeið sérstaklega í því að læra hvernig maður á að Síkrita...... þá er seinasta málsgrein algerlega úr takti við ALLT sem ég lærði þar!!!!

Ætti eflaust frekar að skrifa: vil vera með einhverjum ....... vil eiga kærasta..... vil hafa einhvern hjá mér.......

Finnst líka alveg ferlega rangt af mér að hugsa svona..... því mér finnst ég vera að svíkja manninn minn með því að vilja vera með einhverjum öðrum en honum.......

....... en það segja allir að ég eigi ekki að hugsa svona......... honum finndist örugglega að það væri bara alveg meira en í lagi að ég ætti kærasta ........ en get bara ekki varist því að þetta hringsólar í hausnum á mér þrátt fyrir það!!!!

Ein setning kemur ansi oft upp í hausnum á mér þegar ég sit svona ALEIN og hugsa........

....... mér leiðist þetta leiðindar líf!!!!

Ekki halda að ég ætli að fara að gera eitthvað til að ljúka því....... það er ekki á dagskrá........ langar það ekki heldur ........ laaaaangt frá því!!!!

..........en mér leiðist það nú samt!!!!
Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar