Skil ekki hvernig unga fólkinu okkar í dag getur leiðst........ hvernig það hefur tíma til að leiðast!!!!
Það er nóg að gera hjá þeim........ ekki var þetta svona í mínu ungdæmi .......... wów hvað þetta virkar eins og ég sé orðin gömul........ en þ.að er ALLS EKKI raunin........ er ennþá bara 32!!!!
Ef börnin eru ekki þeim mun meira upptekin í íþróttum, þar sem engin meðalmennska er leyfileg........ helst að æfa 5 sinnum í viku, helst oftar ...... annars ertu ekki maður með mönnum!!!! Allir stefna á Ólympíuleikana ......... ekki spurning!!!! ...... þá eru þau upptekin við að leika sér í tölvunni, sjónvarpinu, símanum eða iPod-inum .......... eða hvað þetta nú allt saman heitir!!!!
Ég skil bara ekki hvernig hægt er að láta sér leiðast!!!!
Ég man það að þegar ég fór upp í rúm að sofa á kvöldin þegar ég var unglingur, þá var ég búin að bjóða fjölskyldunni góða nótt og fyrir löngu búin að kveðja vinina!!!!
Í dag þegar unglingarnir fara upp í rúm, þá bjóða þeir fjölskyldunni góða nótt og halda svo áfram að tala við vinina, á msn eða í sms!!!! ....... og eru jafnvel á chatti langt fram á nótt ....... og jafnvel bíða eftir því að foreldrarnir sofni svo þau geti laumað sér út til að hitta vinina!!!!
Skrítin tilhugsun!!!
Veit sko að ég hefði ekki verið barnanna best ef þessi tækni hefði verið til staðar þegar ég var unglingur.......... wów nú hljómar aftur eins og ég sé orðin ferlega gömul.... en ég er það hreint ekki........ ennþá bara 32!!!!
Ætla að finna mér hausverkjatöflur....... er frekar þreytt í augunum...... veit ekki hvort það er sökum sótthitans ........ eða útaf því að ég uppgötvaði heim iPods-leikjanna í gær!!!! Ekki mikið mál að vera veikur nú til dags....... og gjörsamlega útilokað að láta sér leiðast!!!!!
Þar sem ég sit og helli úr skálum reiði minnar yfir því að vera veik og þar af leiðandi skapvond, illgjörn og reglulega vond og láta það bitna á þeim sem minnst eiga það skilið ........ börnunum mínum .......... þá tekur tölvan uppá því að loka öllu og segir svo: error bla bla bla ...... do you want to send an error report!!! Nei ég vil ekki senda neina fokkings error report........ ég vil fá færsluna mína aftur!!!!!
Var ég búin að nefna það að ég er alveg einstaklega skapvond, uppstökk, illgjörn og leiðinleg þegar ég er veik????? Líður alveg eins og púkanum honum Láka!!! ........ vantar að gera eitthvað reglulega illgjarnt!!!!
Ætti kannski að koma börnunum mínum útúr húsi..........
Annars hringdi ég á læknavaktina í dag....... fékk snögga sjúkdómsgreiningu í gegnum símann........ nei ég er ekki með svínaflensu........ var alveg að fara að trúa því......... enda komin með flest ef ekki öll einkennin...... sem hurfu svo eins og dögg fyrir sólu þegar háæruverðugi hjúkrunarfræðingurinn var búin að sjúkdómsgreina mig....... eða kannski ekki öll ....... er sko ennþá alveg með 39 stiga hita og beinverki dauðans........ og hún sagði að það gæti varað í allt að viku!!!! VIKU!!!!! VIKU!!!!! Er bara ekki lagi með þetta lið........ ég meika það sko ekki að vera veik í viku!!!!!! ...... hver ætli stjórni þessu....... í hvern á ég að hringja til að fá þetta leiðrétt?????
Annars er einkadóttirin komin með þokkalega mikið leið á Michael Jackson!!! Ég veit ekki hvernig hún vogar sér að segja þetta upphátt........ en hún gerir það nú samt......
Þar sem íslenskt sjónvarpsefni er ekki upp á marga fiska ........ hefur verið horft ótæpilega mikið á tónlistarrásina hjá okkur.......... og þar er sko Michael Jackson nostalgía út í eitt........ verð að viðurkenna að ég er aaaaaalveg að verða búin að fá nóg....... en glætan að ég segi dóttur minni frá því........ einkasoninn er auðveldara að heilaþvo........ ætli þetta sé fyrirboði um unglingsárin?????
Er farin að gera eitthvað reglulega ljótt......... eins og skipta yfir á Michael Jackson og pína dóttur mína til að sitja hjá mér og hlusta á mig dásama hann fyrir allan peninginn!!!!
Var búin að setja inn þokkalega færslu....... en komst að því að hún væri sko alltof neikvæð og ég nenni því nú ekki!!!! ......... svo ég slettaði henni bara.........!!!!
VERÐ að muna eftir að fá mér nýtt bretti á hjólið mitt......... braut afturbrettið einhverntíman í einhverjum hamaganginum!!! ........ svo núna skartar jakkinn minn fínum svörtum smáum freknóttum blettum að aftan........ ekki aaaaalveg að gera sig!!!
VERÐ að muna að fá mér einhverskonar klemmur á buxurnar mínar svo ég geti nú verið dáldið gordjöss þegar ég hjóla í óg úr vinnunni á háum hælum!!! ....... það er nebblega ekkert voðalega gordjöss að vera með buxurnar girtar niður í sokkana þegar maður er að hjóla........... belíf mí!!!!
VERÐ að muna að ég á ÆÐISLEGA vini sem ég VERÐ að rækta betur sambandið við.
VERÐ að muna að ég á FRÁBÆRA ættingja sem mér ber skilda að rækta sambandið við.
VERÐ að muna að ég ÆTLA í ræktina......... helst strax í dag (nenni því bara alveg ómögulega!!!!)
MAN ALLTAF að ég er DROPP DEDD GORDJÖSSSSSSS!!!!!!
Er ferlega ábyggileg!!! Hjólaði í vinnuna í dag........ reyndar á laugardaginn líka........ veit ekki hvort það telst með þar sem ég eyddi mestum hluta úr deginum í sólinni á kaffihúsinu við hliðina á vinnunni minni kjaftandi og sötrandi ískaffi og bjór!!!! Sakna alveg endalaust hjólamenningarinnar í DK! Þar er tekið tillit til hjólreiðafólksins....... hérna má maður þakka fyrir ef það er ekki flautað á mann minnst einusinni á leiðinni og svo fara bílarnir svo nálægt manni þegar ég hjóla á götunni....... því ekki eru allsstaðar gangbrautir til að hjóla á........ og maður nefni nú bara ekki ógrátandi AÐ SJÁLFSÖGÐU ERU ENGIR HJÓLASTÍGAR!!!!! Nema meðfram sjónum og þar nenni ég ALLS EKKI að hjóla......... alveg skítkalt að hjóla um í særokinu þar!!!! Það eru ótrúlega mörg hjól á götum borgarinnar....... hvort það er af því að ég er farin að hjóla að ég tek eftir því ....... eða hvort þetta er bara svona í kreppunni að hjólin eru tekin úr geymslunni, dustað af þeim rykið og pumpað í dekkin og upp á fákinn og af stað!!! Aðrir gangandi vegfarendur kunna heldur ekki á þessa hjólamenningu........ eru ekki að fatta það að þegar ég kem brunandi aftan að þeim og hamast á bjöllunni minni........ svo þeir fái ekki taugaáfall þegar ég bruna framúr þeim........ eða það sem er verra....... detti allt í einu í hug að skipta um stefnu og ráfa í veg fyrir mann!!!! Þeir eru gjörsamlega ekki að fatta þetta!!!! Eru bara í allt öðrum heimi einhvernveginn!!!! En ég er endalaust hamingjusöm með að hjóla í vinnuna mína......... allavega ennþá........ kemur svo í ljós hvernig þetta verður þegar það fer að snjóa!!!!
Helgin fór vel fram......... ég náði alveg að slappa af .......... held nefnilega að þetta sé líka svolítið það að þegar ég er svona ein heima þá VERÐI ég að nýta tækifærið og gera eitthvað!!!! Fór þó út á föstudaginn og hözzlaði Hollendinga!!!! Það var svoooooooo gaman!!!! Vildi að vinkonan mín úr sveitinni væri oftar í bænum svo við gætum farið oftar saman......... BARA gaman!!!! Hefði eflaust farið aftur á laugardeginum ......... ef einhver hefði verið í stuði til að koma með mér!!!! En kannski eins gott að ég gerði það ekki........ þar sem ég var ábyggileg móðir og vaknaði eldsnemma og náði í einkasoninn!!!!
Setti RainEx á rúðurnar á bílnum......... rúðuþurrkurnar tóku upp á því að deyja......... er ekki að þora að tékka á því hvað nýr mótor kostar......... og láta einhverja verkstæðiskalla skamma mig fyrir að nota rúðuþurrkurnar (mér skilst að þeir geri það!!!) ......... þangað til nota ég bara óhóflegt magn af RainEx-i ......... örugglega ekki svo umhverfisvænt....... en svínvirkar!!!!
........ fyrir utan að ég þarf náttla ekkert að nota rúðuþurrkurnar þegar ég er á hjóli........ endalausir kostir við að hjóla!!!!
........ vildi samt hafa danska hjólamenningu hérna...... þó ekki væri nema brot af henni!!!!
Ég er ALEIN í koti karls....... eða reyndar í koti konu!!! ....... eða er það í koti kerlu???
Börnin mín eru að heiman..... á sitthvorum staðnum að njóta lífsins og tilverunnar........ algerlega á sínum forsendum!!!
Einkasonurinn yfirgaf kotið á þriðjudaginn og er væntanlegur aftur á sunnudaginn og einkadóttirin yfirgaf móður sína í dag og er einnig væntanleg á sunnudaginn!!!
ÞRÍR dagar sem ég hef BARA fyrir mig!!!! Algerlega óvænt, allt í einu upp í hendurnar á mér!!!!
Mikið finnst mér það æðisleg tilhugsun....... bara að þau eru að gera eitthvað skemmtilegt ..... þau sjálf ........ án þess að ég hafi reynt að koma þeim fyrir einhversstaðar!!!! MJÖG MIKILVÆGT!!!!
Reyndar var ég nú eitthvað að tjá mig um þetta við dótturina ...... hvað ég ætti nú að gera alla þessa daga sem ég væri bara alein og hefði þau ekki hjá mér!!! Þessi elska svaraði: "já en mamma, þú getur þá tjúttað á fimtudaginn, föstudaginn og laugardaginn og þarf engar áhyggjur að hafa af okkur!!!!"
Held ég hreinlega að þetta segi meira en margt annað......... held ég að það sé kominn tími á að frúin í þessu koti fari að taka lífinu aðeins með ró!!!!
Þá er þessi dagur að kveldi kominn........ wów hvað þetta er skáldlegt!!!!
Er algerlega með það á hreinu að ég ætti að vera skáld..... eða rithöfundur....... eða magadansmær!!!
Frétti það um daginn ......... eftir frekar undarlegar draumfarir....... þar sem ég fór til fróðrar konu til að segja mér hvað í veröldinni þessi draumur gæti táknað....... því ég trúi á drauma og tel að draumar eigi sér dýpri merkingu........ sérstaklega þegar þeir eru STÓR undarlegir og gefa enga merkingu!!!!
........ já frétti ég um daginn..... samkvæmt ráðningu draumsins....... að ég þyrfti að fara að velja mér hillu í lífinu........ væri sko alveg til í það......... veit bara ekki hvaða hilla það ætti að vera!!!
Á hún að vera efst, eða neðst eða með kanti eða án??? Á hún að vera stór eða lítil eða mjó eða breið???
Er gjörsamlega, algerlega týnd í þessum efnum!!!! ........ kannski ég ætti að leita mér hjálpar!!! ........ ætli ég þurfi að fara í hillubúð til þess???
Veit bara að ég þarf að velja mér hillu......... skilst að þá öðlist ég einhverja smá sálarró......... það væri dáldið gott...... verð að segja það!!!!
....... er aftur farin að naga neglurnar!!!! ........ þetta er ekki að gera sig........ er ekki alveg nógu gordjöss með nagaðar neglur!!!!
Hvar annarsstaðar en á Íslandi getur þú farið út klukkan 2:35 að nóttu, tekið með þér góða bók og lesið í henni án þess að kveikja ljósið???? ........Eflaust er það hægt einhversstaðar annarsstaðar í heiminum en á Íslandi..... en ......... þetta er nú samt alveg einstakt ....... verð að segja það!!!!
Ísland er best í heimi...... eða það er allavega mín skoðun!!!
Þrátt fyrir að hér blása kaldir vindar........ þá eru þeir allavega ekki fylltir af sandi og ekkert veit ég betra en ferskt loftirð sem leikur um mann!!!
Það er ekki auðvelta að finna sér skjól .......... þar sem vindurinn á Íslandi virðist geta blásið upp í móti hvað þá aðrar vindáttir....... en þegar skjól finnst er ekkert dásamlegra en liggja þar og lesa eða spjalla í góðra vina hópi.
Að grilla á góðum sumardegi er líka alveg dásamlegt......... vindurinn feykir í burtu öllum reyknum svo ekki þurfa gestirnir að sitja í reykjarstækjunni ...... þrátt fyrir að maturinn kólni kannsi full snemma á diskunum........ þá jafnast ekkert á við íslenska lambið ....... sérstaklega ef það er marinerað og því svo skolað niður með ískaldri appelsín!!!