Kæri herra Guð! Fyrirgefðu að ég er að trufla en.......
Svona byrjaði sms-ið sem ég sendi í nótt!!! Ég veit að þetta hljómar gjörsamlega fáránlega en ....... ég gat ekki sofnað og var farin að hugsa í hringi.....
..... og þar sem ég trúi á Guð og veit að hann er til ..... tala oft við hann..... bæði upphátt og í hljóði, þá fannst mér alveg tilvalið að senda honum sms!!!
Ég hef oft skrifað honum bréf og finnst það oft virka miklu betur en það sem ég segi upphátt eða það sem ég er að segja við hann í huganum....... en þar sem ég var komin upp í rúm og ekki með nein skriffæri við höndina var þetta nokkuð góð leið ...... enda lít ég svo á að Guð sé einn af mínum allra bestu vinum!!!!
Mér finnst dáldið leiðinlegt hvað fólk verður skrítið þegar ég segi því að ég trúi á Guð!
Ég hef nú ekki alltaf gert það ...... ætlaði t.d. ekki að fermast þar sem ég trúði nú ekki á þennan Guð þarna eða það sem honum fylgdi...... en það er breytt í dag!
Ég er búin að margsanna það fyrir mér að hann er til þessi ellllllska!!!
Eflaust halda margir að ég hafi "frelsast" eftir að Ási minn fór frá mér........ en það er bara ekki þannig!!!
Eflaust gætu einhverjir velt því fyrir sér hvernig í ósköpunum mér detti í hug að trúa á Guð sem tók manninn minn frá mér og börnunum okkar!!!! ..... hvers konar kvikindi hann sé eiginlega og ég svo að trúa á þetta illfygli!!!!
Well ég geri það nú samt........ á minn einka eigin hátt ...... og ég á í alveg ágætis sambandi við hann og er þakklát fyrir að hafa hann í mínu lífi!!!!
...... þó svo að hann eigi það nú til að gera ekki alveg eins og ég hafði hugsað mér eða láta hluti gerast sem henta mér alls ekki ...... er ég samt sátt, því hann hefur hjálpað mér við svo ótrúlega margt annað að það vegur það alveg upp......... er það ekki líka svoleiðis með góð vinarsambönd að það er ekki alveg alltaf ALLT sem hentar??????
....... en sms-ið komst til skila og ég sofnaði von bráðar með bros á vör....... vitandi það að það væri kominn vanur maður í málið....... sem kann að taka á því og leysa það!!!!
Hvort það hentar mér svo eða ekki ......... verður að koma í ljós!!!!
Er gjörsamlega búin að komast að því að Facebook er búin að drepa bloggið!!! Það eru nánast allir hættir að blogga..... eða þeir sem mér finnst skemmtilegt að lesa alla vega!!!
Ég er MIKLU latari við að blogga........ og kannski ennþá dáldið kvekkt eftir barnalands fólkið forðum!!! Ég þarf alltaf svo mikið að spá í hvað hinum finnst........ í stað þess að gera bara eins og ég vil og mig langar ...... því maður á nebblega að gera eins og maður sjálfur vill........ því annars er maður meðvirkur!!!
Lenti í athyglisverðri umræðu um meðal annars meðvirkni.
Það er MJÖG mikilvægt að þú komir fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig. Þetta segi ég reglulega við börnin mín og reyni eftir fremsta megni að lifa eftir þessu sjálf. Því ég hef þá bjargföstu trú að það komi til baka til þín aftur það sem þú gerir öðrum ........ gott eða slæmt!!!!
Jafnfram er það MJÖG mikilvægt að þú gerir það sem þú hefur trú á og gerir bara ekki eitthvað fyrir aðra, af því að þeir vilja það en þér er það gjörsamlega á móti skapi ......... því þá ertu orðinn meðvirkur!!!!
Getur þá einhver vinsamlegast útskýrt fyrir mér hvernig þetta á að vera framkæmanlegt bæði saman???
Ég lenti t.d. í aðstæðum þar sem ég gat valið um að vera áfram í þessum aðstæðum og komast þannig hjá því að særa aðra og valda þeim vonbrigðum og depurð ........ eða fara úr aðstæðunum af því að ég vildi ekki vera þar!!!! - Valdi það að vera EKKI meðvirk!!!
Jafnframt stríðir þetta gegn samvisku minni því ég myndi aldrei vilja láta koma svona fram við mig!!!!
Ein uppáhalds setningin mín úr bíómynd ........ og þá er ég að meina íslenskri bíómynd er úr Stellu í orlofi.
Stella í orlofi er náttúrulega bara ein af mínum uppáhalds myndum og ef ég væri að tjá mig eins og svo margir aðrir gera í dag þá gæti ég ekki orða bundist og sagt að Stella í orlofi er bara GARGANDI SNILLD!!!!
Nema hvað að setningin sem um ræðir er: "hugsa þú bara um þíns eigins typpi"!!!!
Þetta hef ég sagt oftar en ég hef tölu á eða kæri mig um að muna....... mér finnst þetta snilldar setning og hægt að nota hana við hin ótrúlegustu tækifæri!!!
Verst að þegar ég læt þetta út úr mér þá hef ég stundum lent í því að viðkomandi móttakari setningarinnar hefur ekki alveg kveikt á perunni og ekki munað eftir Stellu minni í orlofi......... við skulum segja að það hafa komið upp vandræðaleg móment!!!!
Nema hvað.......... ég var að skrifa þessa setningu um daginn ......... og þá fór viðkomandi móttakari setningarinnar að setja út á stafsetningu mína á orðinu typpi!!!
Hélt því fram að það væri skrifað með einföldu i-i líka......... eða það væri bæði jafn rétt!!!! Meira að segja kom með þau undarlegu rök að spyrja af hverju typpi væri eiginlega dregið fyrst það væri skrifað með ypsiloni!!!!!
Ég kem þessu bara ekki inn hjá mér......... mér finnst að typpi eigi að vera skrifað með ypsiloni...... ég hugsa það alltaf með ypsiloni!!!!!
Nema hvað......... einkasonurinn er dáldið mikið klár í íslensku......... allavega klárari en móðir sín....... og þegar ég fer að efast um hæfileika mína til að skrifa íslenskuna rétt .......... spyr ég hann......... svo ég nefndi þetta við hann og hann var algerlega sammála mér í því að typpi á að vera skrifað með ypsiloni!!!!
".....og af hverju er það dregið?" spurði móðirin varfærnislega......... þar sem hægt er að segja henni hvað sem er í íslensku máli og hún trúir því bara eins og nýju neti!!!
Einkasonurinn sagði að það væri ekki dregið af neinu...... ekki frekar en "fyrir" eða "pylsa"!!!!! ..... og ég trúi honum!!!!
Þangað til annað kemur í ljós ætla ég að halda áfram að skrifa typpi með ypsiloni ........... því það er miklu flottara en tippi!!!!!
............ svo er ég að velta því fyrir mér hvort það sé ennþá hægt að fá berjatýnur með vasaljósi!!!!! ........ svona ef ske kynni að maður skellti sér í berjamó einhvern daginn!!!!!
Mikið hentar það mér alveg einstaklega illa að ég skuli vera í forsvari fyrir eitt stk. leiði!!!!! Það henta mér líka alveg einstaklega illa að leiðið skuli vera ALLA leið uppi í Grafarvogi!!!!
Fyrst ég þarf að hafa aðalumsjón með eitt stk. leiði hefði mér fundist allt í lagi að það hefði bara verið í Fossvogskirkjugarðinum!!!! Það hefði hentað mér mun betur!!!!
Ekki það að ég sé alltaf í Fossvoginum......... en verð að segja að mér finnst nú mun einfaldara að gera mér ferð í Fossvoginn en alla leið upp í Grafarvog!!!!!
Því fátt veit ég leiðinlegra en illa hirt leiði........... þá finnst mér alltaf eins og þar hvíli einhver sem öllum var sama um og enginn nenni að hugsa um leiðið ....... því aðilinn hafi verið svo leiðinlegur í lifanda lífi að allir eru fegnir að hann skuli vera kominn undir græna torfu og komi þar af leiðandi ekki nálægt hinsta hvílustaðnum meira......... blessunarlega lausir við að þurfa ekki að hugsa, sjá eða tala við viðkomandi meira!!!
En það er alls ekki raunin með leiðið sem ég sé um!!! Ási minn var heittelllllllllskaður. Þess vegna finnst mér það ennþá leiðinlegra að það líti ekki vel og snyrtilega út!!!! Hann á þetta sko ekki skilið!!!!!
En þar sem leiðið er ekki í Fossvoginum .......... og ég þarf að sjá um það hvort sem mér líkar það betur eða ver.......... þá VERÐ ég að fara að rífa mig upp á rasshárunum og planta einhverjum fallegum sumarblómum þarna uppfrá!!!!
Fórum í bíltúr áðan til að kíkja á leiðið......... alltof langt síðan að við höfum farið þangað......... vissi ég að allir flottu túlipanarnir sem við settum niður væru löngu búnir og löngu kominn tími á að troða niður einhverjum fallegum sumarblómum.
En ég á góða að......... því að einhver hefur verið svo elskulegur að fjarlægja alla gömlu túlipanana........ einhver hefur líka verið svo elskulegur að stinga niður fána......... meira sá ég ekki úr þeirri fjarlægð sem við vorum í .......... því við fórum ekki útúr bílnum!!!!!
Er þetta í fyrsta skipti sem við förum ekki útúr bílnum þegar við komum upp í garð!!!! ......... gat ég bara ekki hugsað mér það......... garðurinn var fullur af fólki sem var annaðhvort í sunnudagsgöngutúr eða að hamast við að gera leiðin hjá ættingjum sínum falleg!!!! ......... gat ég ekki hugsað mér að fara út með börnin mín tvö og látið þau standa við eyðilegt leiðið hjá föður þeirra, þegar allt er í lit og blóma í kringum hann!!!! ....... láta fólkið í garðinum kannski horfa á okkur og kannski kvískra um hvað leiðið sé ekki fallegt eða illa hirt og aumingja börnin að það sé ekki nóg með að þau séu föðurlaus heldur eigi þau líka vonlausa móður sem geti ekki einu sinni haldið leiði föður þeirra fallegu!!!!!
Strax á morgun verður farið í það að kaupa litskrúðug blóm og þeim plantað huggulega á leiðið í Grafarvoginum!!!!! ....... þá þarf maður ekki að skammast sín lengur fyrir að koma þarna uppeftir!!!!!
Er alveg 100% sannfærð um að ef leiðið væri í Fossvoginum væru pottþétt komin sumarblóm á það!!!!! ....... eða það er allavega það sem ég tel mér trú um!!!!