Ég vissi það svo sem alveg að það yrði auðveldara að segja en í að komast að hætta að drekka kók!!!
Ég vissi það svo sem að því fylgir hausverkur og verulegur vanlíðan....... en KOMMON!!!!!
Ég er komin með FOKKINGS HITA!!!!!
Bara VERÐ að trúa því að þetta sé hluti af Detoxinu ........ er eiginlega alveg búin með þennan pakka að vera veik!!!!
HVAÐ er ég eiginlega búin að vera veik lengi????? Nei, ég bara spyr!!!!
Man eftir því að ég laggðist í flensu í endan á Júní........ steig uppúr henni viku tíudögum seinna....... hélt áfram að vera veik ...... en tættist nú samt í vinnuna ....... fór til læknis ........ fékk lyf ........ og púst og nefsprey........ fleiri læknar og meira að segja læknavaktin ........ myndatökur vinstri og hægri ...... eins gott að ég er gordjöss...... þrátt fyrir að vera veik!!!!
Man að ég losnaði loksins við þetta ógeð allt saman í þar, þar síðustu viku eftir MEGA lyfjakúr frá lækninum mínum ...... fór svo erlendis (með vinnunni) ...... varð fyrir vinnuslysi (glóðurauga) og varð mér úti um einstaklega vel marið rifbein..... eiginlega bara brákað!!!!
Nei, ég nennti ekki að fara í einhverjar myndatökur eða eitthvað annað vesen ....... en fékk meiri lyf þar sem ég fann að kvefið og allt draslið var að hellast í mig aftur ........ þar sem ég gat ekki andað eðlilega!!!! ..... sko útaf brákaða rifbeininu!!!!
Nú er ég komin með FOKKINGS HITA!!!!!
Þetta var allt á réttri leið....... rifbeinið pottþétt að gróa því ég er farin að geta andað........ glóðuraugað fer minnkandi....... þrátt fyrir að mér finnist kúlan á enninu á mér vera í það stærsta!!!! .......... allt á réttri leið!!!!
Vona INNILEGA að þetta séu bara fráhvarfseinkenni af kókinu!!!!!!
Merkilegt......... eða fyndið........ eða kannski bara grátlegt!!!????
Þegar ég fer út ..... þá vil ég einna helst fara út á meðan það er ennþá bjart......... svo ég geti verið með sólgleraugun án þess að það sé glápt ALLTOF mikið á mig!!!!
Mér finnst þetta athyglisvert, því ég stend sjálfa mig að því að fela glóðuraugað!!! Þó svo að mér finnist einstaklega fyndið hvernig það er tilkomið og tek reglulega myndir til að halda yfir það örlitla dagbók........ því það breytist frá morgni til kvölds!!!!
Fór með börnunum mínum áðan í verslun........ var með sólgleraugun að sjálfsögðu....... afgreiðslumaðurinn horfði einkennilega á mig........ ég spurði börnin hvort þetta væri sjáanlegt í gegnum gleraugun ......... og já!!!! Það var eitthvað ljós þarna í loftinu sem fór beint niður og lýsti upp glóðuraugað eins og það væri jólatré á aðfangadag!!!! Ekki skrítið að maðurinn hafi horft á mig........ hefði kannski átt að rífa niður gleraugun????
Þá hefði hann pottþétt fengið sama sjokkið og ungi drengurinn sem bankaði uppá og var að selja klósettpappír...... eða dömurnar tvær sem voru að selja lakkrís!!!! ....... fólk verður alveg ferlega skrítið í framan og flóttalegt til augnanna!!!!
Ætti ég að fara að ganga með skilti á mér sem segði: "Ég var ekki lamin!!!"
Veit ekki hvort það sé neitt betra ......... glóðurauga er alþjóðlegt merki þess að þú sért beittur ofbeldi........ ég geri víst lítið til að breyta því ........ verð bara að brynja mig þolinmæði og bíða þess að það hverfi!!!!!
Finnst samt athyglisvert hvað ég skammast mín einhvernveginn fyrir að vera með þetta framan í mér!!!!
........ börnin mín eru búin að samþykkja að fá súlu í stofuna!!!! ..... spurðu hvort þau mættu æfa sig á henni líka!!!!! LENGI LIFI SÚLUDANSINN!!!!! ......... sem líkamsrækt sko!!!!!
Mikið dáist ég að súludönsurum ...... datt niður á myndband frá Bandaríkjunum um Bandaríkjatitilinn í súludansi!!! Vissi ekki einusinni að það væri keppt í súludansi!!!! ...... en er algerlega búin að komast að því að það er ekki spurning um að það þarf að keppa í súludansi ....... spurningin hvenær það verður keppt í súludansi á Ólympíuleikunum!!!!
Er búin að horfa á þetta myndband nokkuð oft, með súludansinum ....... og verð alltaf hrifnari og hrifnari ...... af súludansi sko!!!!
Það er ekkert viðkomið Geira á Goldfinger eða neinu kynferðislegu í sambandi við súludans ..... tengi þetta ekki saman!!!!
Það er ekkert smá hvað þær eru sterkar, liðugar með flotta vöðva..... langa og granna ...... sem eru langflottustu vöðvarnir!!!!
Ég get ekki einusinni tekið armbeygjur á miðju stofugólfinu, hvað þá staðið á höndum ...... en þær, súludansararnir, gera þetta bara þvers og kruss upp og niður blessaða súluna eins og enginn sé morgundagurinn!!!!
Ég er búin að kynna mér að súludans er kenndur á Íslandinu góða.
Var algerlega á leiðinni að fara á eitt stk. námskeið þegar ég fór að lesa mér aaaaaðeins betur til um súludans.
"Íþróttameiðslin" sem verða í súludansi eru aðallega brunasár!!! Veit ekki alveg hvernig mér líst á að vera með brunasár innanlæra....... þarf að hugsa málið aðeins betur.
....... er farin að horfa á heimsmeistaramót kvenna í glímu!!!! Hljómar ótrúlega spennandi!!!!!
Veit að það er erfitt að trúa þessu........ en ég hugsa orðið í bloggfærslum og Facebook statusum!!!
Frekar fáránlegt!!!
Skil ekki hvers vegna ég er ekki farin að sofa....... reyndar búin að dorma fyrir framan sjónvarpið í allt kvöld....... eða eiginlega frá því að ég kom heim úr vinnunni..... hefði betur sleppt því að fara í vinnuna í dag.... var í engu standi til að vera þar!!! ......... en kann engan veginn við að vera heima!!!
Samt skrítið ...... er í vinnunni og nota alla þá orku sem ég á þar og kem svo heim til barnanna minna og ligg eins og slytti fyrir framan sjónvarpið og sef og hef enga umfram orku til að vera til fyrir þau!!!! ....... þetta er algerlega kolröng forgangsröðun...... ég sé það núna!!!!
Helgin framundan og það er Fríhelgi hjá frúnni......... verður þetta frekar mikið spök helgi þar sem frúin skartar þessu síbreytilega og litfagra glóðurauga ennþá!!!! ........ er algerlega búin að fá nóg af því...... orðin þreytt á því að sjá ekki almennilega út um augað ......... þreytt á því að fólk starir á mig ........ þreytt á að svara því til hvað hafi eiginlega komið fyrir mig ........ þreytt á því að útskýra að ég hafi ekki verið dauðadrukkin þegar ég flaug til móts við gangstéttina!!!!
Ferlega getur þetta tekið langan tíma........ HEIL VIKA!!!!
Nenni þessu ekki lengur!!!! ........ er vinsamlegast hægt að spóla fram um eins og 2 vikur takk!!!!
Þetta útskýrir kannski afhverju ég hef aldrei mannað mig upp í að fá mér Tattoo ....... er viss um eftir viku eða svo þá væri ég ekki lengur á því að hafa þetta Tattoo ....... eða ég væri til í að færa það eitthvað annað!!!!
........ veit alveg að það virkar ekki svoleiðis með Tattoo....... þau eru komin til að vera...... á þeim stað sem maður velur .......... en ekki glóðurauga ........ það fer á endanum ........ vona innilega að það hverfi sem allra, AllrA, ALLRA fyrst!!!!!
Vildi að ég gæti sagt að ég hafi verið kófdrukkin ........ en ég var það ekki!!! Vildi að ég gæti sagt að mér hafi verið hrint ........ en mér var það ekki!!! Vildi að ég gæti sagt að ég hafi verið að bjarga gamalli konu frá því að vera rænd ...... en get það ekki!!!!
Ég gerði þetta algerlega sjálf og hjálparlaust..... eða kannski ekki aaaaalveg hjálparlaust..... ég meina það er örugglega hægt að kenna bílstjóranum um þetta ....... eða rútunni!!!!
Ég náði mér í þetta flotta glóðurauga á fimmtudagskvöldið ....... sko kvöldið að íslenskum tíma ...... reyndar var nótt þar sem ég var stödd ....... en það er kannski ekki eitthvað sem skiptir máli!!!!
Ég var á leiðinni heim eftir hið ánægjulegasta kvöld í faðmi ísbjarnar og annarra glæsimenna ........ á leiðinni heim eftir mikinn og skemmtilegann dans, góðan mat og frábæran félagsskap.
Ég var komin á áfangastað. Rútan sem hafði þann tilgang að keyra okkur heim, var stopp þar sem ætlunin var að stíga af henni.
Ég var glöð að vera komin á áfangastað.
Ég lagði það ekki á mig að troða mér fremst í rútuna til að komast út að framan, heldur snaraðist valhoppandi niður þröngu, myrku tröppurnar að aftan!!!!
Af einhverri undarlegri ástæðu var ekki "rétt" bil á milli seinustu trappanna (er með vitni).
Bílstjórinn laggði bílnum í einhverri undarlegri fjarlægð frá kantinum á gangstéttinni (er með vitni).
...... sem leiddi til þess að þegar ég, valhoppandi, á fullri ferð, missti fótanna í seinustu tröppunni, náði ég þeim ekki undir mig aftur og hafnaði á andlitinu ...... þar slokknaði líka á mér!!!
Mér er tjáð að bílstjórinn (veit ekki hvaða fæðingar hálfv..... það nú er ....... enda perki!!!) hafi rétt verið við það að keyra yfir mig ..... en einhver af samferðafólki mínu náði nú að stoppa hann áður en það hafðist (enda væri ég eflaust í gifsi á báðum ef honum hefði tekist ætlunarverk sitt!!!) ..... hann kom, sá að ég var að ná meðvitund, spurði mig að einhverju (ekki man ég hvað það var) skellti sér svo bara aftur í rútuna og brunaði í burtu!!!!!
Þegar ég rankaði við mér man ég að það fyrsta sem ég hugsaði var:"fokk, braut ég hælinn undir skónum mínum?? Shitt, shitt, shitt!!"
Ég fór á slysó!!!!
Beið þar í rétt um 3 klukkutíma og var svo send heim með næsta leigubíl eftir að læknirinn var búin að fella þann dóm að ekkert væri að mér ....... en ég ætti eftir að fá þetta líka flotta glóðurauga, og ekki væri hægt að gera neitt í því!!!! Tókst mér þó að væla út nokkrar verkjatöflur, þar sem við höfðum ekki svoleiðis með okkur á hótelherberginu!!!!
Þrátt fyrir langa bið og harða stóla, skemmtum við okkur konunglega og lærðum helling. T.d. á önnur okkar einungis eftir að skrifa lokaritgerðina í læknisfræði annars er hún nánast útskrifuð ....... sjúkdómsgreindi alla sem áttu leið hjá!!!
Við hlógum og hlógum!!! ........ og ekki batnaði það eftir að búið var að komast að því að frúin var óbrotin og nokkuð heil eftir hrakningarnar........ grenjuðum við þá úr hlátri..... enda búnar að vaka í eina 22 klukkutíma!!!!
Ekki er vafi í mínum huga að starfsfólk Fredriksberg (já segið þetta á dönsku!!! ....... var ekki hægt að fara með mig eitthvað annað??? nei ég bara spyr....... það er ekki eins og það hefði verið hægt að velja úr 4 skadestúum...... nei veljið það sem er með erfiðasta nafnið!!!! ....... hvernig haldið þið að það hafi verið að panta leigubíl??? ...... nei það er engin umfram þjónusta á slysó á Fredriksberg, ég varð að hringja sjálf á leigubíl!!!! ....... og já þrátt fyrir að vera nokkuð sleip í dönskunni....... þá kemur sko hnútur á tunguna á mér þegar ég reyni að segja Fredriksberg!!!!) ..... já starfsfólkið hefur haldið að við værum kófdrukknar ........ eða á einhverju, t.d. sveppum ........ því við hlógum svo mikið!!!!
Eins og við vorum ábyggilegar, skynsamar og einkar skipulagðar þýddi þetta fall mitt náttúrulega, að það varð að aflýsa Bilkaferðinni ....... og veit ég ekki alveg hvort ég er svekktari yfir að hafa misst af því að kaupa alla skóna sem ég ætlaði að kaupa, er þess þá heldur ennþá glaðari yfir að hafa ekki brotið hælinn undir skónum mínum .......... eða klósettsetunni!!!!!!
Þetta hljómar kannski undarlega, en........
....... fyrst þetta þurfti að koma fyrir er ég ákaflega þakklát fyrir að ég er ekki brotin neins staðar, það þurfti ekki að sauma mig, ég er ekki í gifsi, þetta gerðist á síðasta degi svo ég þurfti ekki að vera í vinnunni og hitta kúnna með þetta framan í mér, ég er með allar tennur heilar ...... sko ekki brotnar eftir fallið meina ég!!!!
Ég er lurkum lamin og það eru alltaf nýjir marblettir að koma í ljós ..... ég finn full mikið til í síðunni .... en það er ekkert sem nokkrar parkódín forte redda ekki!!!! ............ verst að ég má ekki keyra þegar ég er búin að bryðja þær!!!
En ég er gordjöss með flottasta glóðurauga norðan alpafjallanna og hún athyglissjúka ég fæ ótakmarkaða athygli þessa dagana ......... sko ef ég tek niður sólgleraugun!!!!!
Ég er búin að fara hamförum í skápum eldhússins í dag.
Það eru búnir að fara í það minnsta 3 pokar í ruslatunnuna ....... pokar fullir af útrunnum matvörum og öðrum óþarfa sem fylltu skápana hjá mér!!!
Kannski ekki bara matvörur sem voru útrunnar........ en æi svona hlutir eins og niðursuðuvörur sem einhvernveginn gleymast aftast í skápunum, sem einhverntíman eiga að vera notaðir en eru það svo aldrei.... veit ekki afhverju það var keypt í upphafi en hefur eflaust átt að gera eitthvað rosalega gott úr því.
Ferlega mikið af kryddi sem er útrunnið........ vissi ekki einusinni að krydd hefði síðasta söludag á því, en komst að því í dag að það er sko þannig!!! ........ fullt af því sem endaði í ruslinu!!!
Pappírar sem staflast upp og enda í hrúgu sem verður svo stór að enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi ....... hrúgan hefur minnkað til muna, þó ekki horfin með öllu....... enda var þetta ansi stór hrúga!!!!
Á milli allra pappíranna leyndist dagatal frá árinu 2007.
Veit ekki afhverju það var ekki búið að henda því....... eða jú eiginlega veit það..... ég skrifa svo oft eitthvað svakalega merkilegt á dagatalið, eins og fyrstu tönn dótturinnar eða hvenær einkasonurinn fékk gat á hausinn eða hvenær ég átti að fara til tannæknis........ mis merkilegar upplýsingar...... en svo geymi ég dagatalið til þess að geta fært mikilvægar dagsetningar á ábyggilegan stað þar sem hægt er að ganga að þeim vísum þegar þörf er á þeim!!! ...... það er svo undir hælinn lagt hvenær ég svo kem þessum upplýsingum á ábyggilegan stað...... en það er aftur annað mál!!!!
Árið 2007 ........ eflaust það erfiðasta í mínu lífi fram að þessu....... og þó!!!!
Þegar ég tók það og fletti í gegnum það er það bara eins og önnur dagatöl frá öðrum árum...... búið að færa inn afmælisdaga fjöslkyldunnar, setja inn tannlæknatíma og annað mis mikilvægt.
Þar er kyrfilega merkt inn brottfarardagsetning fyrir fríið okkar til Danmerkur sem og heimkomudagsetning....... Eins einkennilega og það hljómar þá er ekkert merkt eftir ágúst........ kannski ekki skrítið...... hafði öðrum hnöppum að hneppa en merkja inn dagsetningar martraðarinnar!!!
Mikið er ég glöð og þakklát fyrir að við skildum hafa farið til DK þetta sumarið. Fengum frí öll saman, gjörsamlega óvitandi um það að þetta væri seinasta fríið okkar allra fjögurra saman ....... alveg ómetanlegt fyrir okkur þrjú og þá ekki minnst fyrir börnin mín.
Að árið 2007 skildi hafa getað byrjað svona fullt tilhlökkunar fyrir komandi sumri að því ógleymdu að við hjónin skelltum okkur til Noregs í apríl (það stendur sko í dagatalinu) og að það skuli hafa getað endað eins hræðilega fyrir okkur litlu fjölskylduna eins og raun bara vitni........ það er algerlega óskiljanlegt!!!
Jafnvel í dag er mér fyrirmunað að átta mig á því hvað þetta tók stuttan tíma ....... hvernig hafði ég þetta af??? Ekki veit ég það!!!
Í hrúgunni ógurlegu var líka bréf sem mér barst í nóvember árið 2007 ........ verulega einlægt bréf og þar stóð meðal annars að þó ég ætti erfitt með að trúa því núna þá myndi mér eiga eftir að líða betur....... og ég trúði því ekki þegar ég las það þá!!!
...... en ég verð að játa það, og mér finnst það ekkert leiðinlegt, en mér líður betur....... betur en þá ..... vissulega koma dagar sem eru verri en aðrir, dagar þar sem mér finnst herra Guð hafa svindlað á mér all hrottalega og óska honum þá í norður og niðurfallið...... en svona alla jafna þá líður mér betur!!!!
En í heildina litið var gott að finna dagatalið og lesa það í gegnum og sjá hvað við áttum gott líf saman ...... eins var alveg dásamlegt að lesa bréfið og komast að því að það sem í því stóð var satt og rétt .... hvað ég hef náð langt síðan í nóvember 2007!!!
Dagurinn í dag var góður dagur.......... með bræddum osti!!!!
Einkadóttirin var eitthvað að tjá sig....... og af einhverri undarlegri ástæðu minnti hún mig skyndilega á Bikar í Prúðuleikurunum!!!!
Ég sagði við hana:" þú ert nú alveg eins og Bikar í Prúðuleikurunum!"
Þá svaraði einkasonurinn:" Prúðu hvað????"
Wów hvað ég átti ekki von á þessu!!!!
Að vísu heyrir hann ekki helminginn af því sem ég segi þessa dagana við hann!!! Hélt að þetta væri svona eitt af því mómentum........ þar sem ég er sannfærð um að þetta hefur eitthvað með aldurinn að gera!!! ........ sko hans!!!
Man eftir því þegar ég sendi bróður hans til eyrnalæknis þegar hann var jafn gamall einkasyninum........ því bróðirinn gerði lítið annað en segja endalaust HA? við mig........ sama hvað ég sagði!!! Eyrnalæknirinn sendi hann heim með þau skilaboð til mín að hann væri með 100% heyrn og að ég ætti að tala skýrar og vera viss um að ég hefði fulla athygli drengsins þegar ég væri að tala við hann!!! Tel því að þetta hafi eitthvað með aldurinn að gera!!!!
En í þetta skiptið heyrði einkasonurinn alveg hvað ég sagði........ vissi bara ekki hvað ég var að tala um!!!! Fannst það einstaklega undarlegt þar sem ég hélt að hvert mannsbarn þekkti Prúðuleikarana!!!! ....... hvarflaði ekki að mér eitt stundarkorn að hann vissi ekki HVAÐ ég væri að tala um!!!! Hélt í ALVÖRUNNI að ég væri ekki orðin svona gömul....... ég sem er alltaf 32!!!
Mikið er ég þakklát fyrir YouTube!!!!
Fór að sjálfsögðu beint í tölvuna....... sló inn Prúðuleikararnir og fann HELLING af síðum með þeim!!! ...... hentist niður stíginn sem var fullur af minningum um Prúðuleikarana og skemmti mér konunglega yfir Dýra, Bikar, Sænska kokkinum, hinni óborganlegu Svínku og Kermit..... að ógleymdum köllunum tveimur sem endalaust voru að kommenta á sjóvið!!!!
Börnin skemmtu sér ekki síður yfir móður sinni ....... þar sem hún sat og skælbrosti og hló og reyndi af fremsta megni að útskýra Prúðuleikarana fyrir þeim!!!
Lengi lifi Prúðuleikararnir, YouTube og Pigs in Spaaaaaaaace!!!!!