29. október 2009 klukkan 19:31
Það er svo mikill ormur í rassinum á mér!!!
Það er SVO mikill púki inni í mér sem er að reyna að brjótast út!!!
Ég þarf NAUÐSYNLEGA að hleypa honum út!!!!
Veit bara ekki hvern fjandann ég á að gera af mér!!!!! ........... langar bara að gera eitthvað reglulega skemmtilegt, ótrúlegt og fjarstæðukennt!!!!
........ eitthvað sem ég hef ALDREI áður!!!!
.......... eitthvað sem mér dytti aldrei í hug að gera svona dags daglega!!!!
ÞARF VIRKILEGA AÐ GERA EITTHVAÐ AF MÉR!!!!!
Allar hugmyndir eru vel þegnar og ALLAR hugmyndir eru teknar til gaumgæfilegrar skoðunar!!!!
27. október 2009 klukkan 00:12
Börnin mín bestu hafa þá áráttu að þurfa endilega að spila og syngja jólalög allan ársins hring!
Þegar það keyrði úr hófi hér um mitt sumar og ég var orðin dáldið þreytt á að hlusta á "Heims um ból" "Juleball" og "Ég sá mömmu kyssa jólasvein" bæði á dönsku og íslensku ........ sagði ég STOPP, hingað og ekki lengra!!!! Þau gætu fengið að hlusta á jólalög þegar nær drægi jólum .......... og hafði ég þá í huga kannski bara eins og þeir í útvarpinu ........ byrja ekkert að spila þau fyrr en 1. desember!!!
Ég útskýrði það með þeim orðum að maður hlustaði ekki á jólalög á sumrin ....... heldur á veturnar og þá rétt fyrir jólin!!!
Þar sem börnin mín hlakka óendanlega til jólanna og tala endalaust og stanslaust um að þau séu nú alveg að koma ...... þá er búið að vera að bíða eftir því ....... og þá sérstaklega einkadóttirin ....... og án þess að ég hefði hugmynd um það ........ að það kæmi vetur og hún gæti farið að spila jólalög með góðfúslegu leyfi móður sinnar!!!!
Hún komst sem sagt að því í gær, sunnudag, að það væri kominn vetur ........ að fyrsti vetrardagur hefði verið um þessa helgi!!!
Síðan eru búin að hljóma jólalög um alla íbúð ....... henni til mikillar gleði og ánægju!!!! ........ velur hún helst að setja á "fóninn" dönsk jólalög eins og "Juleball, juleball i Nisseland ....... ", "Paa loftet sidder nissen...." "Höjt paa tæets grönne top......." osfrv.
Hún er búin að skreyta herbergið sitt með því jólaskrauti sem hún komst hjálparlaust yfir, eða það er að segja því jólaskrauti sem hún fann án þess að spyrja móður sína um hjálp ........ því hún er nú nokkuð klók, vissi að móðir hennar hefði ekki farið í að ná í jólaskrautskassa til að hún gæti farið að skreyta í herberginu sínu ....... eða bara á heimilinu!!!! Móðirin hefði ekki tekið þátt í því ...... svo hún bjargaði sér bara sjálf!!!!
Það jólaskraut sem er aðgengilegt á heimilinu allan ársins hring eru jólasveinahúfur!!!! ........ og við eigum nokkuð margar!!!!
Þannig að nú hljómar úr herberginu hennar jólalög fyrir allan peninginn og það hanga jólasveinahúfur um allt herbergi!!!!
Hún er líka búin að búa til skilti á hurðina hjá sér sem á stendur: "Komdu í Jólaskap" og "Jól, jól, JÓL og Jól".
Svo segir fólk að IKEA sé snemma í því!!!!!
Mikið er ég fegin að vera í vinnu ........ þar þarf ég í það minnsta ekki að hlusta á jólalögin fyrr en 1. desember!!!!!
22. október 2009 klukkan 00:08
He he he heeee.......
Um daginn var ég spurð að því hvort börnin mín skömmuðust sín einhverntíman fyrir mömmu sína ....... og ég svaraði kokhraust: "nei, auðvitað ekki" ....... það hafði aldrei hvarflað að mér að þau gætu skammast sín fyrir mömmu sína ....... var algerlega búin að gleyma því hvernig var að vera unglingur og skammast sín endalaust fyrir foreldra sína ....... ekki að mínir foreldrar hafi gert eitthvað sem maður ætti að skammast sín fyrir ......... held bara að þetta sé aldurinn!!!
Var stödd með einkasyninum í Bónus um daginn. Við vorum í kælinum þar sem áleggið er. Það hljómar ótrúlega skemmtilegt lag í útvarpinu með uppáhaldinu mínu, Páli Óskari .... frekar hátt stillt ....... enda nokkuð "ungur" meðalaldurinn á starfsmönnum verslunarinnar!!!
Þar sem við mæðginin stóðum og hölluðum okkur yfir skinkuna, hljómaði yfir hausunum á okkur " ..... sama hvernig fer, gæti gefið annan séns. Allt fyrir ástina, eina sem aldrei nóg er af ...... " ........ greip mig allt í einu þessi gríðarlega löngun til að dansa!!! ........ og viti menn ...... ég lét það eftir mér!!!!
Ég var nú ekkert að hemja mig ...... tók þetta alveg með trukki og dýfu ........ handahreyfingar og spor og hopp og söng hástöfum með!!! Mér fannst þetta æði ....... brosti út að eyrum hló og ýtti við einkasyninum ...... hélt í alvörunni að hann myndi hendast með mér í sporin ...... svona eins og við værum stödd í alvörunni dans og söngvamynd!!!!
En, nei ekki aldeilis!!!
Einkasonurinn stóð eins og negldur við gólfið með skelfinarsvip á andlitinu sem sagði allt sem segja þurfti: "hún gerði þetta ekki"!!!! Svo snéri hann sér undan og gekk í burtu!!!
Ég var sko ekki að skilja þetta ....... því mér fannst þetta alveg óhemju fyndið!!!! Hló og hló ...... sko skellihló ....... en var hætt að dansa ......... elti einkasoninn útúr kælinum ........ það var eins og hann vildi ekki vera nálægt mér!!!!
Skrítið!!!!
Við lukum innkaupaferðinni án frekari uppákoma af hálfu móðurinnar ........ og einkasonurinn var endalaust að gefa móður sinni hornauga ....... eflaust skelfingu lostinn yfir því hverju hún tæki nú uppá næst!!!
Þegar við vorum komin út í bíl spurði ég hann varfærnislega: "Skammastu þín einhverntíman fyrir mömmu þína?" Því mér datt allt í einu í hug að það gæti verið staðreynd ....... bara afþví að ég var spurð að því um daginn!!!!
Hann er kurteis og vel upp alinn drengur og svaraði hægverskur að það væri nú stundum sem hann gerði það.
Ég þurfti auðvitað að vita eins og hvenær ....... tengdi það ekki að hann gæti skammast sín fyrir mömmu sína...... óhugsandi!!!!
Elskulegur einkasonur minn vildi ekki tilgreina neitt sérstakt tilfelli ....... þannig að ég spurði: "eins og núna áðan kannski?" ........ því mér fannst söng og dansatriði mitt í kælinum BARA fyndið!!!! ..... þó viðbrögð hans hafi komið mér nokkuð á óvart.
Og hann svaraði þessi elska: "Já mamma eins og núna áðan!" ...... og ég sá og fann að hann var alveg miður sín!
Hef ég ákveðið að láta af dans og söngvaatriðum þegar við erum saman innan um fólk, reyna að haga mér eins og annað "venjulegt" fullorðið fólk ...... svo hann þurfi nú ekki að skammast sín fyrir mömmuna sína!!!!
...... en ég rifja þetta upp reglulega til þess að geta glott út í annað og hlegið inni í mér ........ þetta var alveg DÁSAMLEGT atriði!!!
......... ALLT FYRIR ÁSTINA...........!!!!!
17. október 2009 klukkan 12:23
Var að skoða myndir í gær af glóðurauganu margumtalaða!!!
Þetta er ekkert smá glóðurauga sem ég hef náð mér í ....... ekki skrítið að fólk hafi fengið sjokk þegar það sá mig...... miklu meira sjokk en ég nokkurntíman var með .......
Mér var nefnilega ekkert illt í þessu ......... engan veginn ........ en er núna orðin þokkalega þreytt á því að geta ekki lyft hægri augabrúninni!!!!
Það var sagt við mig í gær: "þarftu ekki bara að fara með hana í sjúkraþjálfun??" ....... mér fannst það ógeðslega fyndið ........ en fór svo að hugsa ........ ef ég hefði slasað mig á hendi og væri ekki orðin góð eftir fjórar, já FJÓRAR FOKKINGS vikur ....... þá færi ég eflaust í sjúkraþjálfun!!!!
Svo núna ætla ég með augabrúnina í sjúkraþjálfun ........ sko bara hérna heima hjá mér ....... ég sjálf það er að segja...... ætla sko ekki að labba inn til sjúkraþjálfara og biðja um að fara í sjúkraþjálfun út af bólginni augabrún!!!!
Gat ekki einusinni fengið klippinguna sem ég hefði viljað fá sökum þess að þessi bévítans augabrún lafir niður í augað á mér!!!! Ekki það að ég er nú samt alveg gordjöss með nýju fínu klippinguna mína!!!!
Er að spá í að búa til albúm á Facebook með seríu af glóðurauganu .......... því það breyttist frá morgni til kvölds!!!! Bara fyndið!!!
Veit ekki alveg hvað þessi gamli á efri hæðinni er að spá ...... gleymdi allavega alveg að hafa mig með í ráðum..... eða kannski þetta var eina leiðin til að stoppa frúna af ........ láta hana fljúga á hausinn og fá stærsta glóðurauga sem sést hefur norðan Alpafjalla!!! ...... ja..... í það minnsta hlustar hún ekki nógu vel ....... svo þetta var kannski eina ráðið??? ...... allavega var þetta nánast sársaukalaust ..... og ég braut ekki hælinn undan skónum og ég brotnaði ekki ...... þó ég hafi nú fengið lungnabólgu og augnbrúnabólgu...... þá er það ekkert til að tala um ........ ég er þokkalega búin að vera spök!!!!
Er farin að leika sjúkraþjálfara á sjálfri mér!!!!
Hvað var það nú aftur sem maður setti á til að minnka bólgur??? ...... var það heitt eða kalt????
13. október 2009 klukkan 20:21
Ég tek á móti jólapökkum í ár!!!
Bara svona til að ALLIR í kringum mig viti það tímanlega ....... eða sko þeir sem gætu mögulega gefið mér jólapakka ...... þá hafa þeir tímann fyrir sér núna og ætti ekki að koma neinum á óvart að jólin eru þann 24. desember í ár!!!
Sem er eftir rétt rúma tvo mánuði!!!!
..... og þar sem ég fékk ENGA jólapakka í fyrra, sem er kannski skiljanlegt þar sem ég gaf út þá yfirlýsingu að ég vildi ekki jólapakka ....... ég meina við fórum jú til Kanarý ........ þá fékk ég heldur ekki NEINA pakka í fyrra!!!! Eru það fyrstu jólin í mínu lífi þar sem ég ekki fæ pakka á aðfangadag ....... það var skrítið ........ en ég hef heldur aldrei fengið pizzu í matinn á aðfangadag fyrr!!!! ...... en ég man samt hvað mér fannst þetta skrítið!!!!
Þannig að ég er búin að komast að því að ef ég gef út tilkynningu um að ég taki á móti pökkum í ár ..... þá HLÝT ég að fá jólapakka!!!
Annars tala börnin mín stanslaust um jólin og hvað þeim hlakki til og hvað það verður notalegt og hvað það verður huggulegt .......... get ekki sagt að ég sé sammála þeim ......... en ég held að þau hlakki meira til en áður sökum þess að þau fengu engin jól í fyrra með gömlum hefðum og þess háttar!!!
Mér hlakkar, eða er það ég hlakka ........ get aldrei lært þetta ......... en sama hvort það nú er þá kvíði ég jólunum eins og öðrum hátíðum þar sem fjölskyldan er saman í fríi ..... eða svona fjölskylduhátíðir ...... eins og afmæli, jól, páskar, ferming ....... æi já svona get to gether with the familie things!!! Það er sárt og tómlegt........ en ætli ég komist ekki í gegnum það á samanbitnum jöxlunum eins og í gegnum svo margt annað!!!! ........ það hlýtur að vera ....... kýli sársaukan niður í maga og mála á mig brosið og hamast við að láta engan sjá sársaukann ....... ekki einusinni börnin mín....... þó svo þau séu ansi lunkin við að sjá undir grímuna sem móðir þeirra ber svo snilldarlega!!!!
......... en að öllu þessu slepptu ....... þá ætla ég að árétta það ........ fyrir þá sem hefðu á því áhuga ........ ÉG TEK Á MÓTI JÓLAPÖKKUM Í ÁR!!!!
11. október 2009 klukkan 23:26
Komin með augabrúnir!!! ........ enda kominn tími til, þó ekki sé meira sagt!!!
Glóðuraugað aaaaaaaaalveg að fara ......... vantar bara núna að geta lyft hægri augabrúninni ........ dáldið bólgin þarna ennþá ....... en að hlýtur að fara að fara ......... VERÐUR að vera farið fyrir næstu helgi!!! ...... pjúff, shit í hverju á ég að vera???? Þoli ekki hvað ég get velt mér uppúr heimskulegum smáatriðum!!! Veit bara að ég er alveg að finna gordjössið aftur........ er alveg að finnast vera áhugavert að vera til!!!!
Síðasta helgi gerði mér sko svo mikið gott að ég á erfitt með að útskýra hversu vel mér líður og hvað ég á ofboðslega góðar vinkonur sem ég verð að segja að eru alger forréttindi að þekkja!!!! ....... og ég er einstaklega lánsöm að fá að telja þær í minn vinahóp!!! ....... algerlega FORRÉTTINDI og ekkert annað!!!
Ef það væri ekki lögmál á þessum bústaðaferðum þá gæti ég nú skrifað ansi mikið ....... margt fróðlegt og síðast en ekki síst alveg óhemjulega skemmtilega hluti ........ en what heppens in the bústað, stays in the bústað!!! ....... það er í reglunum!!!
En þrátt fyrir einstakelga leiðinlegan árstíma þá eru þessar bústaðarferðir algerlega lífsnauðsynlegar fyrir hana litlu mig!!! .......... þrátt fyrir að við séum alltaf næstum því hættar við að fara sökum veðurs!!! Alveg ótrúlegt!!!
En nú fer allt að gerast....... vantar bara að lita á mér hárið, fara svo í klippingu kannski kaupa mér FÖT!!! ........... veit sko ekki í hverju ég á að fara .......... er mikið að spá í að fá bara lánaða Búrkuna sem mér var boðin um daginn!!!
Þar sem ég er búin að vera endalaust spök í ALLTOF langan tíma......... 9 vikur til að vera alveg nákvæm ....... þá finnst mér sko alveg vera kominn tími á að ég fái að sleppa fram af mér beislinu....... ætla samt ekki að fara út í það að gera einhverjar gloríur!!!
........... ég tala nú ekki um þar sem útiálandi vinkonan mín er í bænum!!!!
SÅ NU FESTER VI!!!!
07. október 2009 klukkan 22:49
Ef það skildi hafa farið framhjá einhverjum langar mig bara að taka það skýrt fram að ég ÞOLI EKKI ÞETTA GLÓÐURAUGA LENGUR!!!!!!
Get ekki klippt á mér toppinn því toppurinn stendur út á hægri helmingnum á enninu á mér.
Ég þarf NAUÐSYNLEGA á litun að halda........ er ekki að safna hvítu hárunum....... en það mætti sko halda það miðað við hvað þau virðast vera að hrúga sér niður þessa dagana........ eða kannski sjást þau bara núna afþví að ég er ekki eins dugleg við að lita á mér hárið eins og ég hef verið!!!!
Það er engin spurning að augabrúnirnar mínar hafa litið fegurri daga........ eða allavega litríkari!!! .......... þær eru algerlega litlausar þessa dagana!!!!
Ég er tótallý á tuðinu!!!!
Ég er með Bótox í helmingnum á enninu á mér og get ekki lyft upp hægri augabrúninni!!!!
En ég er með plan........ ekki núna um helgina heldur næstu verður ljóta, leiðinlega, ófagra glóðuraugað mitt farið og ég búin að fara í klippingu, búin að lita á mér hárið og búin í litun og plokkun á augabrúnunum!!!!
Ætla sko að fara að tjútta .......... enda kominn tími á það!!!!
............ verð bara að losna við þetta ljóta leiðinlega glóðurauga fyrst........
....................................... og kaupa mér einhver föt!!!!!!
06. október 2009 klukkan 00:17
Mikið ofboðslega leiðist mér þessi tími ársins!!!
Hvenær ætli það taki enda???
Ég verð alveg á röngunni og það byrjar allt þegar ég sé leigubílana byrja að skarta TAXA merkinu sínu bleiku!!! ..... þetta er VIRKILEGA ekki að henta mér!!!
Eins og mér finnst það flott að þeir skuli vera með bleik TAXA merki, eins og mér finnst þetta vera góður málstaður ..... eins og mér finnst bleika slaufan vera falleg og hafði hugsað mér að fjárfesta í einni slíkri núna sem og áður!!!
Leiðist þetta líf!!!!
Eins og mér finnst Friðarsúlan flott ...... þá vekur hún upp minningar sem ég væri alveg sátt við að vera án!!!
Það var nefnilega fljótlega eftir að Ási missti sjónina að þeir kveiktu á Friðarsúlunni....... og ég í minni einstrengislegu afneitun var endalaust að segja við manninn minn að hann þyrfti að fara að drífa sig í að sjá aftur svo hann gæti séð Friðarsúluna ........ hún væri svo svakalega flott!!!
Að sjálfsögðu sá hann hana aldrei ...... en gerði sitt besta þar sem konan hans var endalaust að tuða um þetta ..... held meira að segja að hann hafi þóttst sjá hana bara til að friða mig ........ svo ég hætti þessari vitleysu!!!!
Ferlega blendnar tilfinningar og ég er bara ekki alveg að höndla þetta!!!
Ætli ég geti nokkurntíman horft á bleiku TAXA merkin án þess að fá stein fyrir hjartað ........ eða horft á flottu Friðarsúluna án þess að hugsa til þess þegar við hjónin fórum í göngutúrana um hverfið ..... þessa sem ég dróg manninn minn með í ...... því hvorki ég eða hann vorum nú neitt fyrir göngutúra ....... en í göngutúr skildi hann ..... það var gott fyrir hann og þá myndi honum batna fyrr!!!
OOOoooohhhh hvað ég var barnaleg og gjörsamlega blind fyrir staðreyndum málsins!!!!
Margt sem ég vildi hafa öðruvísi ......... sagt hluti sem ég fékk ekki sagt ........ gert hluti sem ég ekki fékk gert ........ bara afþví að það miðaðist allt í lífinu hjá mér við það eitt að "laga" manninn minn svo hann gæti orðið hress og við verið saman til eilífðarnóns ........ eins og við vorum búin að ákveða!!!!
Ó mæ god hvað ég vildi að ég gæti bara dáðst að bleiku TAXA merkjunum, keypt bleiku slaufuna og horft með lotningu á Friðarsúluna án þess að verða svona óendanlega sorgmædd!!!
...... og ofan á allt annað á einkasonurinn afmæli innan fárra daga ......... þá var einmitt seinasta fjölskyldustundin sem Ási minn var með okkur ....... þetta er bara ekki að gera sig!!!!
........ getum við vinsamlegast spólað eins og tvo og hálfan mánuð fram í tímann takk!!!! ...... það er alveg sársaukalaust af minni hálfu!!!!
01. október 2009 klukkan 22:08
Mikið er ég fegin!!!!
......... eða kannski ekki fegin....... en já....... kannski ekki rétta orðavalið ........ en samt!!!
Það er tótallý ekki frákvarfseinkenni kóksins sem gerir það að verkum að ég skuli vera með hita og slöpp og illa haldin.......... ég er hreinlega komin með LUNGNABÓLGU!!!!
Hefði kannski átt að hlusta á lækninn og fara í myndatöku eins og hann vildi........... en ........... hmmmm já....... það er kannski ástæða fyrir því að þessir læknar eyða öllum þessum tíma í skóla ....... til að geta sjúkdómsgreint fólk ....... sérstaklega kannski þessa sem hlusta á læknana!!! ........... veit þó um eina sem tók læknis og hjúkrunarfræðina svona snöggvast á þremur tímum þarna um daginn!!!!
Ætla að vera spök svo að kannski einhverntíman í nánustu framtíð ég hætti að vera veik og verði bara hress eins og kát eins og ég á að mér!!!!
........... að hlýtur að koma að því ........ eða er það ekki???? .......... finnst sko að ég eigi það alveg skilið!!!!