Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Lifði þetta af!!!!

24. nóvember 2009 klukkan 22:33
Ótrúlegt en satt...... ég lifði þetta af!!!!

........ og nú líður mér þannig að ég gæti haldið áfram að tala og tala og tala og tala .........

Held ég hafi komist þokkalega frá þessu ....... en finnst samt að ég hefði átt að segja eitt og annað sem ég fékk ekki sagt!!!

En hef trú á því að þessi þarna gamli á efri hæðinni hafi haft fulla stjórn á þessu og ekki látið mig segja meira en ég átti að segja ........ í þetta skiptið!!!

Langar SVO mikið til að halda þessu áfram ...... hjálpa öðrum og deila reynslunni minni!!! ...... þó svo að mér finnist að margir eigi meiri og verri reynslu en ég ........ þá langar mig það samt!!!

Alveg spurningin um hvort ég skrifi bók.

Er komin með hugmynd í magann ........ nú er bara spurningin hvort ég framkvæmi hana ......... er hugmyndin búin að vera í smá tíma að verða til ...... en ég held núna að ég sé að verða búin að fullmóta hana!!!!

Nú er bara spurningin um hvort, hvernig og hvenær hún verður framkvæmd.

Þetta kemur allt saman í ljós ........ einhvern daginn!!!!
Frú Megabeib

Ó mæ, ómæ!!!

23. nóvember 2009 klukkan 23:46

Þegar ég flutti heim frá DK fyrir rétt tæpum 4 árum fór ég að skrifa blogg ....... fyrst og fremst af því að það gaf Ma og Pa sem ennþá bjuggu í DK, og vinum mínum þar ytra, tækifæri á því að fylgjast með okkur ........ fyrir utan það að ég komst að því að mér fannst þetta bara alveg þrælgaman að skrifa svona blogg.

Nú eru Ma og Pa flutt á Klakann til mín og vinahópnum í DK finnst eflaust ekki jafn áhugavert að fylgjast með ferðum okkar og áður, fyrir utan það að ég er auðvitað alls ekki eins dugleg við að setjast niður og skrifa eins og ég gerði þá.

Þegar Ási minn veiktist skrifaði ég einungis gleðilegar fréttir ....... eða eins gleðilegar og þær geta nú verið!!! Skrifaði ekki um hvað mér leið illa eða hvað ég var dofin og óhamingjusöm ..... ég meina Ási gat lesið þetta og það var sko ekki í lagi!!!!

Þegar Ási minn svo dó þá skrifaði ég nokkur blogg sem voru einkennandi fyrir líðan mína þá stundina ....... af hverju ég gerði það veit ég ekki ...... en hef komist að því að það var bara gott!!!

Síðan hafa þessi bloggskrif mín farið minnkandi ....... held ég þó að það sé bara tíðarandanum mest um að kenna ..... þar sem Facebook hefur tekið völdin í netheimum og ég finn ekki tíma til að setjast niður og skrifa heilu og hálfu bloggfærslurnar!!!

Ég hef oft yfirvegað að hætta að skrifa ..... en held nú samt alltaf áfram ..... það er aðallega tvær ástæður fyrir því.
Annars vegar að mér finnst gott að skrifa frá mér það sem ég er að velta fyrir mér, þá sé ég einhvernveginn hlutina í nýju ljósi og hins vegar af því að ég hugsa með mér að kannski er einhver þarna úti sem getur notið góðs af því sem ég er að skrifa ...... því mér finnst ekkert betra en vita að ég geti "hjálpað" einhverjum sem er í sömu sporum og ég! .... ég veit þetta hljómar fáránlega en svona líður mér nú samt!!! Mér finnst engin ástæða til að finna upp hjólið aftur!!!!

Ég fæ líka staðfestingu á því öðru hvoru að það séu einhverjir sem kunna að meta það sem ég hef að segja ...... fæ kvitt frá ókunnugu fólki sem les bloggið og skilur eftir sig spor hérna..... það yljar mér um hjartaræturnar.
Fær líka staðfestingu frá fólki sem ég þekki lítið sem ekki neitt sem segir að þessi skrif mín hafi hjálpað þeim eða einhverjum sem þau þekkja!!! Það finnst mér gott!!!! ..... þá sé ég tilganginn í því að halda áfram að blogga!!!!

Í dag eru akkúrat 2 ár síðan ég jarðaði manninn minn ....... frekar mikið óraunverulegt ....... finnst svo stutt síðan (í árum) en samt svo langur tími (í dögum) sem ég hef verið án hans ...... æi það er erfitt að útskýra þetta!!!

Á morgun er samverustund í kirkjunni. Það er alltaf á þriðjudögum á veturnar. Koma hinir ýmsu fyrirlesarar og fólk sem hefur frá einhverju merkilegu að segja. Á hverju ári þá sendir presturinn út boð til þeirra sem hann hefur þjónað í ástvinamissum bréf þar sem hann býður þeim sérstaklega í þessa samverustund á morgun. Þá fær hann líka einhvern sem er búinn að ganga þennan óskemmtilega veg sorgarinnar til að koma og segja frá sinni lífsreynslu. Ég hef farið einu sinni. Það var í fyrra. Þar var kona sem sagði frá sínum ástvinamissi og komst hún vel frá því. Ég veit að árinu á undan var kona sem ég kynntist svo í gegnum litla Ekki hópinn (því það má ekki kalla þetta ekkju hópinn ........ smá lókal húmor). Alveg frábær kona sem kemst einstaklega vel að orði.

Á morgun er það ÉG sem á að standa þarna í þeirra sporum og segja frá minni lífsreynslu!!!

Mér finnst ég ekki hafa frá neinu að segja, veit ekkert hvað ég á að segja ...... en er einhvernveginn ekki kvíðin ... skrítið!!!! Get bara einhvernveginn ekki ímyndað mér að einhver hafi áhuga á því að hlusta á mig!!! Finnst í alvörunni ég ekki hafa frá neinu merkilegu að segja!!!!

En ég held í þá trú að þetta sé "ment to be" og kannski og vonandi hjálpi það einhverjum!!!!

Það bara HLÝTUR að vera að það sé tilgangur með þessu ......... hvað ég svo kem til með að segja ...... kemur í ljós á morgun!!!!

Frú Megabeib

Í genunum!!!????

17. nóvember 2009 klukkan 11:50
Nóg að gerast á þessu heimili þessa dagana!!!

Einkasonurinn fór í aðgerð á fæti í gær og gekk það allt að óskum. Hann er nú meiri hetjan þessi drengur ........ á sér ekki sinn líkan ......... finnst svo æðislegt hvað hann er líkur honum föður sínum ...... æðruleysið uppmálað og aldrei neitt vesen hjá honum! Skiptir ekki skapi frekar en faðirinn og tekur lífinu og því sem það hefur upp á að bjóða með yfirvegun og rósemi sem getur gert útaf við mann!!! ........ ég get svo svarið það hvað þeir feðgar eru líkir!!!!

Ekki nóg með það að einkasonurinn líkist föður sínum óhugnanlega mikið í útliti heldur innliti líka!!!

Fannst fyndið þar sem ég labbaði með honum eftir göngum sjúkrahússins þegar við fórum þangað í skoðun ....... við löbbum ekki svo oft saman eitthvað ....... venjulega er þetta inn og útúr bílnum eða kannski í verslunarferð (því mér leiðist svo að fara að versla að ég pynta börnin mín ávallt til að koma með  mér ........ og er einkadóttirin mun viljugri til þess ....... það gerir innkaupaferðirnar mun skemmtilegri ....... ég tala nú ekki um þar sem ég get ekki lengur sent Ása minn í þetta verkefni ......... eða dregið hann með mér ....... !!!!) ..... en þar sem við mæðginin gengum eftir spítalaganginum þá komst ég að því að ég gæti nú alveg eins verið að ganga þarna um með honum Ása mínum ....... sonurinn þurfti að ganga einu og hálfu skrefi á undan mér .... alveg eins og faðir hans!!!! Athyglisvert!!!! Mér finnst það gott ........ þetta hlýtur að vera í genunum!!!!

Alveg eins og það er í genunum á einkadótturinni að hún getur EKKI gengið frá eftir sig, það liggja sokkar og föt af henni út um alla íbúð ........ hún er alveg eins og mamma sín!!!!

En án nokkurs vafa í mínum huga þá á ég bestu börnin í bænum ........ og er óendanlega þakklát fyrir að ég á þau!!!! Þrátt fyrir að mér finnist ég nú vera alveg ómöguleg mamma oftar en ekki!!!!
Frú Megabeib

Andlausir dagar!!!!

08. nóvember 2009 klukkan 22:53

OOOooohhhhh mig langar svo að skrifa skemmtilega, líflega og ferska færslu ........ en allt sem kemur útúr puttunum á mér er bara neikvætt og leiðinlegt ....... kannski eitthvað tengt skapinu sem ég er í þessa dagana!!!!

Nenni ekki, vill ekki, þoli ekki að vera svona!!!

Bla bla bla........ þegar ég er spurð: hvernig hefur þú það ....... veit ég hreinlega ekki hvernig ég á að svara .... langar mest til að segja að ég hafi ekki hugmynd um það!!!! Undarlegt ástand ........ verð að segja það!!!

Enda er það nú bara einu sinni þannig að fólk hefur eiginlega engan áhuga á því að vita hvernig maður hefur það ...... svona eiginlega!!!! Þetta er auðvitað bara mest kurteisis spurning ......... eða er að ekki???

Nema hvaða hana og hana nú!!!!

Gæti sko alveg vanist því að eiga fartölvu ..........

Frú Megabeib

Hmmmm..........

02. nóvember 2009 klukkan 15:34
...... ég veit ekki alveg hvað það er sem ég er að gera vitlaust!!! ....... en eitthvað hlýtur það að vera!!!!

Væri sko alveg til í að hlutirnir gengju upp eftir mínu höfði ....... en þeir gera það bara ekki!!!!

Frekar þreytandi .......... verð að segja það!!!!

Fer með þuluna mína daglega: "Guð gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við ....." osfrv. ....... er að hugsa um að breyta og bæta við í þuluna: "Guð gefðu mér æðruleysi og ÞOLINMÆÐI til að sætta mig við ......." veit ekki hvort það myndi virka neitt betur...... weit ekki!!!!

Er eiginlega í fýlu út í Guð ......... má maður það???? ......... finnst ég sko búin að standa mig við minn hluta gerðra samninga ....... finnst hann sko ekki vera að standa sig við sinn hluta!!!! Maður má víst ekki efast ....... á að vera æðrulaus og leggja þetta allt í hendurnar á honum ........ og hann hefur víst meiri vit á þessum hlutum en ég ....... enda margra ára reynsla ......... en samt, common!!!!!

Það styttist til jóla og í ár eins og svo mörg ár þar á undan þá kemur aðfangadagur jóla upp á þann 24. desember!!!

Ég tek á móti jólapökkum í ár .......... ef það skildi hafa farið framhjá einhverjum ......... stórum og litlum og feitum og mjóum!!!! ....... bara svo það sé á hreinu!!!!
Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar