Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Það er allt í lagi að gráta!!!! - my ass!!!!

15. desember 2009 klukkan 19:08
Ég ER töffari!!!!

Finnst einhvernveginn auðveldara að takast á við lífið og tilveruna ef ég rígheld mér bara í það að vera TÖFFARI ........ finnst það gott .......... það er eitthvað sem ég kann!!!

Þegar maður er Töffari þá er maður heldur ekkert að væla neitt........ bítur bara á jaxlinn og heldur áfram með lífið og tilveruna ......... hvort maður er glaður og hamingjusamur, ætla ég nú alveg að láta liggja á milli hluta...... þar sem ég er það hvort sem er ekki þessa dagana ........ þá er fínt að vera bara Töffari!!!

Töffarar gráta heldur ekki!!! ...... það er ekki TÖFF!!!!

En margir segja nú að það sé allt í lagi að gráta ...... og eflaust er það líka allt í lagi ........ mér finnst það bara vont!!!!

Mér finnst vont að gráta og horfa á börnin mín með hræðslusvip á andlitinu vitandi ekki sitt rjúkandi ráð hvað þau eigi að gera til þess að láta mömmu sinni líða betur ........ þau geta ekki gert nokkurn skapaðan hlut hvort sem er.

Mér finnst vont að gráta þegar ég er alein ........ þá verð ég svo innantóm og ómöguleg og vantar ennþá meira að maðurinn minn sé hérna hjá mér til að taka utan um mig og knúsa mig og segja mér að allt verði í lagi.

Mér finnst vont að gráta þegar ég er stödd í búð eða öðrum mannamótum ........ þoli ómögulega þessa athygli sem það vekur þegar flóðgáttir augnanna opnast og tárin byrja að hrynja niður kinnarnar ....... fólkinu í kringum mig líður ekkert sérlega vel og mér líður þá mun verr þegar ég læt öðru fólki líða illa!!

Ég hef oft gripið til þess ráðs að brynna nokkrum músum þar sem ég hef setið ein í bílnum, vel falin á bakvið sólgleraugun og maskarinn nær ekki að fljóta með niður kinnarnar ........... verst að þá er ég oftast á leiðinni að hitta fólk og þá er nú ekki gott að vera nýbúin að gráta .......... því þá líður fólki illa og veit ekki hvernig það á að vera og þá líður mér illa og það er vont!!!

Það var sagt við mig að þetta sem ég væri að ganga í gegnum, þ.e. að missa Ása minn svona og takast á við sorgina sem því fylgir, væri ekki atburður, heldur ferli. Hversu langt ferlið væri misjafnt eftir einstaklingum og vel gæti farið svo að þetta væri lengra ferli en ég gerði mér í hugarlund!!! Ég vildi óska þess að þetta væri bara atburður ........ svo þetta gæti bara verið búið ....... svona eins og jólin ....... bara klára dæmið og halda áfram ...... eins og alvörunni Töffari!!!!

Þeir sem segja að það sé hollt og gott að gráta hafa pottþétt ekki tekið með í dæmið að daginn eftir óhemju mikinn grát þá vilja augnhvarmarnir gjarnan bólgna ansi mikið upp ........ allavega mínir ..... og verð ég að segja að ég lít kannski ekki sem best út eftir slíkar grátkviður!!!!

Í gær fór tappinn úr og ég grét og grét og grét ....... hef ekki grátið svona mikið síðan ég veit ekki hvenær ....... gat bara ekki hamið mig ........ Töffarinn yfirgaf mig og ég grét!!!! ........ ég grét allt gærkvöldið, og nánast meira og minna alla nóttina líka ...... vaknaði í það minnsta með tárvot augun í morgun ....... og stokkbólgin líka!!!!

........ og svo þurfti ég að fara í vinnuna ......... svona útlítandi!!!! ..... ekki séns að ég hefði getað skellt á mig maskara til að fela bólgna hvarmana, ég ætla nú ekki einusinni að ræða baugun ......... átti ég þá bara að sleppa því að fara í vinnuna??? ....... og eyða deginum í það að gráta meira ......... og verða þá ennþá verr útlítandi á morgun????

Ég beit á jaxlinn, mætti í vinnuna ómáluð og bólgin, samstarfsfólk mitt fékk að sjálfsögðu sjokk ...... ég tjáði mig ekki frekar um málið ......... var bara ómáluð og bólgin í vinnunni ........ en hætt að gráta!!!!

Þannig að þeir sem segja að það sé gott að gráta og það sé leyfilegt að gera það þegar þess gerist þörf ........ þeim ætla ég bara að gefa langt nef ..... því þeir hafa POTTÞÉTT ekki þurft að fara í vinnuna daginn eftir og hitta fullt af fólki og þurft að útskýra bólgin augu og baugu!!!!!

Þá er miklu betra að vera bara Töffari!!!!
Frú Megabeib

Bjarni Fel!!!!

05. desember 2009 klukkan 00:54
Var að lita á mér augabrúnirnar áðan. Setti litinn á eins og lög gera ráð fyrir og fór svo að gera eitthvað allt annað ....... athyglisbrestur á háu stigi!!!

Næst þegar ég átti leið framhjá speglinum hrökk ég í kút þegar ég horfði á þessa grimmdarlegu konu stara á móti mér ........ með þessi líka blásvörtu strik í andlitinu ....... fyrir utan það að liturinn í hárinu á mér er eiginlega appelsínugulur ..... jú jú líka með lit í hárinu ....... multi taska þetta manneskja!!!

Ég hentist inn á bað, rak reyndar tána í í leiðinni og öskraði upp yfir mig eins og enginn væri morgundagurinn ...... er nokkuð viss um að ég hafi brotið tána ...... í versta falli brákað hana ..... í það minnsta rispað naglalakkið!!!!

Blásvarta kremið var fjarlægt af andliti frúarinnar ....... en eftir sat þessi líka flotta klessa í húðinni sem ekki er svo auðvelt að þrífa af!!!!!

"Allt í lagi" hugsaði ég ...... þá verð ég bara eins og Bjarni Fel á morgun!!!! FÍNT!!!!!

Héldu hugsanirnar áfram eitthvað á þessa leið:

í aðalhlutverkum: einkadóttirin og ég, öldruð móðirin.

ED: "mamma, Bjarni Fel?"
ÖM: "já Bjarni Fel, sérðu það ekki???"
ED: "mamma, HVER ER Bjari Fel?"
ÖM: "ööööhhh já sko það er maður sem var mikið í sjónvarpinu þegar ég var yngri"
ED: "já en mamma, hvað er svona merkilegt við Bjarna Fel?"
ÖM: "ÖÖööööhhh ..... já ...... hmmmm........ hann er með svakalega miklar augabrúnir"!!!!

Ég meina það!!!!

Er alveg POTTÞÉTT á því að einkadóttirin veit ekki hver Bjarni Fel er ....... ef hún væri aðeins eldri þá myndi hún eflaust halda að ég væri að tala um Sportbarinn í Austurstræti sem heitir Bjarni Fel ..... og væri það frekar undarlegt að vera að tala um að líkjast Sportbar...... en já!!!

Er sem sagt síðustu mínútur búin að komast að því, ein með sjálfri mér, að ég er orðin ALLTOF gömul!!!!!

Er farin að þrífa litinn úr hausnum á mér ........ svo ég verði kannski ekki eins og Gedda Gulrót (í Ávaxtakörfunni, einkadóttirin myndi þekkja hana) á morgun ...... með nettu ívafi af Bjarna Fel!!!!!
Frú Megabeib

Sko...........

01. desember 2009 klukkan 23:06
Þetta er nú meira ljóta vesenið!!!

Ég hef EKEKRT að segja ....... EKKERT að tjá mig um ......... en langar geðkt að skrifa eitthvað ótrúlega skemmtilegt og fyndið!!!

Held að ég sé hætt að vera fyndin!!!!

Held alveg örugglega að einhverntíman hafi ég verið geðveikt fyndin ....... en ég held að ég sé alveg hætt því núna ..... held að það sé mest megnis komið af því að ég er farin að hugsa alltof mikið áður en ég tala ........ kannski er það aldurinn ....... hvað veit maður!!! ....... ekki það að ég sé orðin eitthvað öldruð ...... ennþá gordjösslý "dörtý Tú" ........ þetta er eins og þarna um árið þegar ég var endalaust óheppin ....... eða seinheppin!!!

Er eiginlega næstum því eiginlega aaaaalveg hætt því ........

Svo var ég líka rosalega smá heppin þarna um daginn líka ........ man það greinilega ....... það kom sko alveg fyrir sko!!!!

Er búin með þennan pakka að vera endalaust neikvæð det gor inte ...... sko ég meina sko ekki til lengdar sko!!!!

Nenni því heldur ekki lengur ....... það er svo ferlega leiðinlegt!!!!

Var innilega að vona að ég gæti BARA verið fyndin!!!!

Vissir þú að sko er blótsyrði í dönsku???

Ég á það til að ofnota sko ..... eða sko það er kannski ekki alveg nákvæmlega eins borið fram ..... men tæt paa!!!!

Fannst það frekar lítið fyndið þegar ég komst að því að ég væri sko að blóta sko í öðru hverju orði!!!!

En ætla að grafa djúpt í sálartetrið og grafa upp og dusta rykið af fyndinni minni ...... því þá líður mér einhvernvegin svo MIKLU betur ...

... sko þegar ég er fyndin sko!!!
Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar