20. janúar 2010 klukkan 22:32
Spurningin er virkilega þessi:
Á ég að vakna klukkan 6 í fyrramálið og skella mér í ræktina???
Nú er ég að verða búin að vera styrktaraðili að líkamsræktarstöð, miklu lengur en ég kæri mig um að muna svo nú er kominn tími til að hætta að vera "silent partner" og fara að gera eitthvað í þessu!!!!
Það er ekki málið að mig langar alveg óhemju mikið til að fara í ræktina .......... finn bara hreinlega ekki tíma til þess!!!
Finnst börnin mín vera alveg nógu mikið ein heima, þó að þau séu ekki líka ein heima þegar ég skelli mér í ræktina!!!
Fyrir utan það að ég hef bara ekki orku í það að fara í ræktina á kvöldin......... og þá vakna ég líka svo svakalega vel og í beinu framhaldi af því er þá að ég fer aldrei að sofa!!!! ....... því ég er svo vel vakandi!!!
Þannig að nú er virkilega komið að því að eini tíminn sem ég sé mögulegan að skella mér í ræktina er á hinum ókristilega tíma: eldsnemma á morgnana eða hreinlega á nóttunni, að mínu mati!!!!
En spurningin er að láta vaða á þetta ....... ég geri þá aldrei annað en snúza klukkuna eina ferðina enn og snúa mér á hina hliðina!!!!
.......... þegar að ég kemst að því að þessi hugmynd var langt frá því að vera góð!!!!