Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Enn ein meðvirknin ...... eða eru þær tvær eða fleiri???

27. febrúar 2010 klukkan 13:27
Hversu langt er hægt að ganga í meðvirkninni???

Þetta er nokkuð góð spurning ........ gott ef það væri til gott svar við henni líka!!!!

Ég er fyrir löngu búin að komast að því að ég er meðvirk ...... og finnst það bara allt í lagi ........ eða þannig  ........ lít ekkert á þetta sem slæma meðvirkni.

Eins og t.d. þetta með snjóinn!!!

Mér leiðist snjór ..... finnst leiðinlegt hvað allt er kalt og erfitt að fóta sig og alveg hundleiðinlegt að keyra í þessu ........ hef enga stjórn á bílnum, hann vill oftar en ekki gera eitthvað eða fara eitthvað sem ég hafði alls ekki í huga!!!!

Ég þarf að skafa bílinn og moka tröppurnar.
Ég þarf að vera í kuldaskóm, og ég á enga nógu gordjöss kuldaskó!!!!
Ég þarf að klæða mig alltof mikið og líður eins og Michelin manninum og finnst ég ekki geta hreyft mig!!!
Börnin fara út í snjóinn og koma snjóug upp fyrir haus og það þarf að hengja upp úlpur og buxur, vettlinga og húfur til þerris ...... og passa að snjórinn fari nú ekki út allt svo það verði ekki allt vaðandi í pollum þegar hann byrjar að bráðna!!!!

Svo þegar snjórinn byrjar að fara þá verður allt svo skítugt, blautt og slabb útum allt ..... og þá meina ég ALLT!!!!

Líkar alls ekki við snjó!!!!

En þar sem í kringum mig núna eru manneskjur sem þrá snjóinn og vilja ekkert annað en SNJÓ, SNJÓ, SNJÓ..... þá er ég alveg að verða nokkuð ánægð með þennan snjó og finnst frekar leiðinlegt að það skuli vera spáð rigingu svo snjórinn er jafnvel að fara aftur, jafn fljótt og hann kom!!!!

Tel ég þetta vera meðvirkni á háu stigi!!!!

Alveg eins og það að nú er ég byrjuð í brúðkaupsmegruninni ....... ekki það að ég sé að fara að gifta mig ..... nei ónei ...... heldur er ég væntanlega að fara í þrjú brúðkaup í ár og þar af leiðandi er brúðkaupsmegrun í fullum gangi í kringum mig og búið að draga mig með í hana ....... meðvirkni??? Já svei mér þá ég held það bara!!!!

En þegar dóttlan setur jólalögin á þegar við erum að taka til í húsinu ........ set ég fótinn niður og neita að vera meðvirk lengur!!!!

Nenni ekki aaaaaaalveg að hlusta á jólalög í febrúar ........

........ þrátt fyrir að það sé snjór úti!!!!
Frú Megabeib

Dagur í lífi konu!!!

22. febrúar 2010 klukkan 22:12
Fór í dag með vinnubílinn uppá vinnuverkstæði ..... það var verið að laga hann fyrir mig ........ það er klárlega karlmannsverk ...... og svo þurfti líka að þvo hann ........ og það er líka klárlega karlmannsverk!!!!

Alveg eins og fara út með ruslið og skipta um ljósaperur og hlýja köldum tám!!!!

Kvenmannsverk er t.d. að fara í bæinn og kaupa föt ..... á alla fjölskylduna ........ feður jafnt sem börn!!! ...... og að sjálfsögðu á sjálfa sig í leiðinni!!! Allar afmælisgjafir sem gefnar eru innan og utan fjölskyldunnar. Halda utan um heimboð og aðra stórviðburði í lífi fjölskyldunnar sem og mestöll innkaup heimilisins þ.e. eins og húsgögn og velja rétta parkettið og þessháttar.

Listinn er að sjálfsögðu á engan hátt tæmandi en hægt er að segja að flest allt annað er samvinnuverkefni karla og kvenna.

Það er ekki að því að spyrja að miklar umræður spunnust þegar ég var búin að láta í ljós þessa yfirlýsingu mína að þrífa bílinn væri karlmannsverk!!!!

Ég get ekki að því gert en mér finnst bara gaman að því að fá að vera kona!!!!

Þrátt fyrir að það geti nú farið í taugarnar á mér að það skuli vera gerðar miklu meiri kröfur til kvenna en karla ..... og ég ætli að vera karlmaður í næsta lífi ....... þá er fínt að vera kona og það er fínt að það skuli vera til karlmannsverk og kvenmannsverk!!!!

Mér finnst t.d. ekkert leiðinlegt þegar það eru opnaðar fyrir mér hurðir, eða mér hleypt á undan í gegnum sjálvirkar hurðir. Eða víni eða vatni bætt í glasið mitt þegar það er farið að tæmast án þess að ég þurfi að biðja um það. Mér finnst það dáldið æði ..... þó svo að valkyrjan í mér eigi erfitt með að láta það eftir ....... en ég er að æfa mig og það gengur bara nokkuð vel ..... reyndar eru fáir karlmenn til að æfa sig á því þeir eru alltaf með þetta sítuð "já en þetta vilduð þið, rauðsokkurnar"!!!! ..... nei reyndar ekki ...... ég bað aldrei um að það væri komið fram við mig eins karlmann ...... en styð rauðsokkurnar heils hugar í mörgu sem þær áunnu eins og þeim mannréttindum að fá að kjósa!!!!

Þegar ég svo bakkaði bílnum út frá vinnunni, litu karlkyns vinnufélagarnir hver á annan og sögðu: "týpísk kona!!" .... voru eitthvað ekki alveg nógu sáttir við aksturslag frúarinnar ....... ég rúllaði rúðunni lengra niður og stakk hausnum út og brosti til þeirra allan hringinn og kallaði til þeirra:

"Já það er FRÁBÆRT að vera kona, and I´m loving it!!!"
Frú Megabeib

Endalaus flókindi!!!!!

15. febrúar 2010 klukkan 23:09
Þetta er frekar flókið!

Þegar börnin manns eru í vetrarfríi og ég þarf að vakna í vinnuna daginn eftir ........ get svo svarið það en ég hefði getað verið farin upp í rúm að sofa rétt uppúr kvöldmat!!!

Þá vantar verulega annan fullorðinn einstakling á heimilið til að taka vaktina ........ svo ég gæti hreinlega farið í rúmið að sofa ......... sérstaklega þar sem ég finn aldrei þessa löngun hjá mér að henda mér í rúmið ...... jafnvel ekki einusinni fyrir miðnætti!!!!

En núna í kvöld hefði ég svo auðveldlega getað gert það!!! ........ kannski bara ennþá þreytt eftir helgina ........ en ég meina skiptir það einhverju máli???

Ekki get ég sent börnin í rúmið klukkan níu að kvöldi ...... það er fullsnemmt ekki satt??? ....... og ég tala nú ekki um þar sem þau eiga frí á morgun þessar elskur!!!

Ég get ómögulega farið að sofa og skilið þau eftir vakandi ....... það bara get ég ekki!!!! ....... þannig að nú er ég búin að hanga í ótal klukkutíma upp á annan endann ......... og er komin með svo mikinn sand í augun að Sahara mætti fara að vara sig!!!!

Stefni að því að börnin verði komin í rúmið innan fimm mínútna ....... veit að það er kannski hámark bjartsýninnar ........ en maður getur jú vonað!!!!

Ótrúlegt hvað svo margt er auðveldara þegar maður hefur góðan meðspilara í þessu uppeldis/foreldra/heimilis hlutverki lífsins.

Farin að sofa .......... góða nótt!!!!
Frú Megabeib

Að deila ..........

03. febrúar 2010 klukkan 22:16
Mikið sakna ég þess að hafa ekki einhvern til að deila hlutum með!!!

Einföldum, hversdagslegum, skemmtilegum, sorglegum hlutum ....... bara deila.

Einhvern sem ekki þarf að setja inn í málin, þekkir mig frá upphafi til enda, getur hlegið með mér, grátið með mér, sungið með mér og já bara spjallað við mig um allt og ekkert. Dáðst að börnunum mínum með mér, farið yfir daginn með mér, farið með mér í innkaupaleiðangur í hina ofur leiðinlegu búðir!!!

Deila með birgðunum og erfiðu hlutunum, flóknu hlutunum.

Held að það sé manninum eðlislægt að vilja deila hlutum með öðrum ........ kannski kökusneið eða jafnvel síðasta rolló molanum ........ og ég sakna þess alveg enalaust!!!!

Ekki það að það eru fullt af eyrum útum allan bæ sem eru tilbúin til að hlusta á mig og deila með mér ....... en það er bara ekki það sama!!!!

Eins og þegar börnin mín gera eitthvað extra skemmtilegt eða það koma rosalega flottar einkunnir frá þeim, eða þau standa sig sérstaklega vel í íþróttunum eða þegar þau fara á skólaball og mamman stendur rígmontin yfir myndarlegu börnunum sínum ....... vantar einhvern til að deila þessu með!!!! ....... það er nú takmarkað hversu mikið fólk nennir að hlusta á mig dásama börnin mín!!! ....... sem ég skil ósköp vel ........

En það þýðir víst lítið að fárviðrast yfir því ....... þetta er tímabil sem er búið og gert og kemur ekki aftur ........ þar af leiðandi er ég líka alveg einstaklega þakklát fyrir að hafa fengið að vera þeirrar ánægju aðnjótandi að hafa haft einhvern til að deila með í svona mörg ár!!!!

......... en verð að viðurkenna það að ég hefði svo gjarnan viljað hafa Ása minn hjá mér til að deila með mér stoltinu yfir flotta stráknum okkar sem skellti sér á skólaball áðan .......

....... eða bara deila með mér norðurljósunum í gærkvöldi ........ ekkert merkilegra en það!!!!
Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar