Mismunun á háu stigi!!!!!
....... það getur verið mismunandi!!!!
Hérna einusinni á árum áður var það þannig ....... allavega þarna í Bandaríkjunum ....... að þeir sem voru fremur mikið dökkir á hörund, oft nefndir svertingjar máttu ekki standa í sömu biðröðum og þeir sem eru mun ljósari á hörund, oft nefndir hvítir (þó aldrei hvítingjar ...... skrítið). Þeir, þessir svörtu máttu ekki fara á sömu veitingastaði og var fyrirmunað að sitja við hlið þessara hvítu í strætisvögnum ....... þeir urðu að vera aftast!!!
Þetta var mismunun á háu stigi ....... sem betur fer er þetta ekki lengur svona þarna í Bandaríkjunum, enda er unnið að því hörðum höndum að útrýma allri mismunun sökum litarháttar húðarinnar.
Hérna einusinni á árum áður var það þannig ........ allavega víða í heiminum ......... að konur máttu ekki kjósa ....... konur voru taldar ekki hafa vit á stjórnmálum og þar af leiðandi ekki hafa vit til þess að kjósa ..... karlmenn, sem taldir voru mikið vitrari en konur ....... sáu alfarið um að kjósa fyrir land sitt ..... sama hvort konum líkaði það betur eða ver.
Þetta var mismunun á háu stigi ........ sem betur fer er þetta ekki lengur svona víðast hvar í heiminum í dag, enda eru það talin sjálfsögð mannréttindi að konur fái að kjósa jafnt og karlmenn, annað er fásinna.
Hérna einusinni á árum áður var það þannig ......... allavega á Íslandi ......... að samkynhneigðir fengu ekki inngöngu á skemmtistaði eða fengu ekki þjónustu á veitingastöðum ef þeir létu í ljós kynhneigð sína ....... hvað þá að þeir fengju að skrá sig í sambúð ég tala nú ekki um að gifta sig.
Þetta var mismunun á háu stigi .......... sem betur fer er þetta ekki lengur staðreynd á Íslandi í dag ......... samkynhneigðir fá að fara inn á skemmtistaði, jafnvel vera aðal skemmtikraftarnir (sbr. Gay Pride, Beggi og Pagas og hinn óforbetranlegi Páll Óskar) ......... samkynhneigðir meiga skrá sig í sambúð og ekkert er sjálfsagðara en þeir fái að giftast.
Hérna einusinni á árum áður var það þannig .......... að það var bara ein útvarpsstöð á Íslandinu góða, eitt símafyrirtæki og ein sjónvarpsstöð, sem tók sumarfrí allan júlímánuð og svo var alltaf frí á fimmtudögum líka.
Í dag eru útvarpsstöðvarnar fleiri en tölu verður á komið, símafyrirtækin orðin fjögur eða fleiri og sjónvarpsstöðvarnar hlaupa á hundruðum ......... þ.e. með þeim erlendu ....... íslensku stöðvarnar eru þó "bara" fjórar og eru tvær þeirra áskriftarstöðvar! Þær bjóða þjónustu sína villt og galið og eftir því sem þér hugnast stærri sjónvarpspakki frá þeim, þeim mun meira greiðir þú ........ þó er það svo að ef þú ert með "standard" pakkann þá fylgja því ýmsir kostir og eru þeir innifaldir í áskrftinni ....... það er að segja ef þú ert hjá réttu símafyrirtæki!!!
Það GETUR bara ekki verið rétt (á Íslandi í dag á því herrans ári 2010) að þó það sé þitt val að hafa net, síma og sjónvarp hjá Vodafone að þú getir ekki fengið það sem er innifalið í áskriftinni að Skjá Einum, vegna þess að þeir eru með samning við Símann!!!!
Hvernig í veröldinni stendur á því að það sé hægt að þvinga áskrifendur Skjás Eins til að skipta um símafyrirtæki til þess að geta fengið það sem er innifalið í áskriftinni????
Það er enginn ......... ennþá ........... sem hefur getað fært mér nægileg rök fyrir því afhverju þetta sé svona og afhverju ég borga þá ekki minna í áskrift fyrst þeir geta ekki boðið mér uppá að nýta mér það sem ég þó borga fyrir ...... því það er innifalið ....... án þess að skipta um símafyrirtæki!!!!
Þetta tel ég vera mismunun á háu stigi ....... alveg eins og hjá svertingjunum, konunum og samkynhneigðum forðum!!!!
