Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

bara röfl.......

11. apríl 2010 klukkan 00:21
Hmmmm ........ sit og velti lífinu mínu fyrir mér ......

.... mér leiðist lífið mitt ...... og ég sé að ég ætti sko alls ekki að vera að tjá mig neitt um það núna ...... þar sem þetta verður þá leiðindar vælu skrif ...... þoli ekki svoleiðis!!!!

En samt sem áður ...... þá held ég að niðurstaðan úr þessum sjálfspælingum sé nákvæmlega þessi: ef ég geri það ekki fyrir sjálfa mig ..... fyrir hvern á ég þá að gera það??? Ef mér þykir ekki vænt um sjálfa mig ..... afhverju ætti einhverjum öðrum þá að vera það??? Ef mér líður illa ..... ætlar þá einhver annar að breyta því en ég???

Búin að ræða þetta líka við þennan gamla á efri hæðinni ....... hann er nokkuð hjálplegur þessi elska!!! ....... þarf bara að fara að sætta mig við það að hann hefur eflaust meiri vit á þessum hlutum en ég ........ held reyndar stundum að hann sé að stríða mér og láta hlutina ekki ganga eftir mínu höfði ..... bara afþví að hann getur það!!!! ..... en er að vona að hann sé ekki svona hrikalega stríðinn!!!!

Frumburðurinn er úti ..... og ég hangi og vaki eftir honum ....... ég þarf aldrei eins mikið að fara snemma að sofa eins og þegar hann er einhversstaðar úti!!! ..... og ég get það náttla alveg ómögulega ..... allavega ekki svona í fyrstunni þegar hann er að byrja á þessu útstáfelsi (skrifar maður þetta svona???) sínu .... því mér skilst að þetta verði bara meira eftir því sem hann eldist ...... svo er líka allt í lagi að setja sig í stellingar og venja sig við áður en einkadóttirin kemst á flug ...... veit að þá er friðurinn úti!!!

Er hætt að naga neglurnar ..... mikilvæg ákvörðun sem ég tók í kvöld ..... aðallega afþví að mér er orðið svo illt í fingurgómunum að ég get ekki gert mér þetta lengur!!!!

Ætla að láta slag standa og skríða í kojuna mína ....... og vona að einkasonurinn fari nú að láta sjá sig!!!

Frú Megabeib

Hugrenning .......

08. apríl 2010 klukkan 23:49
er bara ekki alveg að verða kominn tími á nýja færslu??

..... maður spyr sig!!!

Þjáist verulega af ritstíflu ..... ætli það sé svipað og þegar niðurfallið í baðkerinu hjá mér er stíflað??? .... Fyllist þá allt af hári innan í mér og ég þurfi að hella í mig stífluleysi?? ... get ég þá valið form stífluleysisins??? .... Grand kemur þar sterkt inn .....

.... næsta mál á dagsskrá er að slátra eins og hálfri Grand ....... hlýtur að losa um stífluna, þó það væri ekki annað!!!!

Svo langar mig í nýjan kjól fyrir árshátíðina.

Over and out.

Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar