Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

HOT YOGA!!!

26. ágúst 2010 klukkan 21:13
Fór í Yoga tíma áðan ...... HOT Yoga....... ellllllska HOT YOGA!!

Hef aldrei áður farið í yoga tíma, en hef prófað Pilates og mér finnst þetta nokkuð svipað ..... ég verð kannski klár í þessu einhvern daginn ...... en verð að segja að ég mætti alveg vera töluvert liðugari og ég tala nú ekki um mun minni um mig...... þessi fita sem alsstaðar er á líkamanum á mér er endalaust að þvælast fyrir mér!!!! ...... svo nú bíð ég spennt eftir að hún fari ..... markmiðið er semsagt ennþá sem fyrr høj og slank!!!

Það sem einkennir hot yoga tímana ....... svona fyrir þá sem ekki hafa prófað þá ....... er að hitinn í salnum er skrúfaður uppúr öllu valdi ..... já ég held að það sé alveg 37°C inni salnum þegar æfingarnar fara fram.

Þetta endar að sjálfsögðu í að maður svitnar ógurlega ..... allsstaðar!!!! ........ og ég elllllllska það!!!!

Ég svitna alltaf svo mikið bara við að gera ekki neitt ........ og mér finnst það frekar ógeðfellt ....... en þarna má ég svitna eins og ég vil og það er bara HOT!!!! 

Það rennur svoleiðis á mér svitinn að það er engu líkara en ég hafi farið í sturtu í ÖLLUM fötunum þegar ég hef lokið tímanum ..... en það er líka allt í lagi ...... því það er HOT!!!!

Í dag þegar ég brunaði heim úr tímanum ........ já nei ég fór ekki í sturtu þarna niðurfrá, finnst ég alveg eins geta gert það hérna heima ......... eða ég var á leiðinni að bruna heim úr tímanum, löðursveitt og rjóð í kinnum hitti ég eina kunningjakonu mína sem ég hef ekki hitt lengi......... tókum við spjall saman þar sem ég sat á fáknum mínum tilbúin í brunið heim.

Hún spurði um daginn og veginn, t.d. hvernig sameiginlegir vinir hefðu það, hvað væri að frétta af frænku minni og hvernig börnin hefðu það ég svaraði spurningum hennar af bestu getu og að sjálfsögðu dásamaði ég börnin mín vinstri og hægri ...... því þau gerast ekki öllu flottari en þau!!!!

Svo spurði hún: "ertu komin með nýjan kall" ...... og ég svaraði að sjálfsögðu "nei" ....... "aha" sagði hún þá "það er þessvegna sem þú lítur svona vel út"!!!! ...... mig langar að árétta það að ég var rennsveitt og eldrauð eins og tómatur í framan þegar konan lét þetta útúr sér!!!!

Mér fannst það ÆÐI!!!!

Að hennar mati er það nefnilega betra að vera án kalls ....... því þeir geta oft verið til svo mikilla vandræða!!!!

Well ...... ég er allavega í skýjunum eftir þetta hól frá konunni og kvaddi hana með virktum og sagðist vonast til að hitta hana sem oftast ...... því ekki er leiðinlegt að fá svona gullhamra .... sérstaklega þegar maður lítur út eins og ég gerði á þessari stundu!!!!

Svo núna ætla ég í hot yoga eins oft og ég get .......

........ því það er svo HOT!!!!
 
Frú Megabeib

Er þetta í lagi???

11. ágúst 2010 klukkan 16:14
Einkasonurinn fór um daginn og laggði inn pening í bankann sinn.
Er þetta í fyrsta skipti sem það er sérstaklega farið í bankann og laggður inn peningur, síðan hann var tiltölulega nýfæddur.

Þá fór ég nebblega í fýlu út í bankana! (..... jebbs alltaf verið á undan minni samtíð) 

Þá voru laggðar inn á reikningin hjá honum heilar 2000 krónur, man ég þetta eins og gerst hefði í gær!!!

Nokkrum mánuðum seinna kom svona þar til gert ársyfirlit yfir reikninginn hans og þar stóð að hann ætti í bankanum 1993 krónur.

Mér var verulega misboðið .... þetta flokkaðist undir neikvæða vexti ...... sem þýddi það að það var ekki einusinni hægt að taka út þessar 2000 krónurnar sem laggðar voru inn nokkrum mánuðum áður!!!

Núna rétt rúmlega 14 árum seinna fer drengurinn og leggur stoltur inn 120.000 krónur.

Spenntur að fylgjast með hvað hann sé nú búinn að fá í vexti fer hann inn um mánuði seinna til að sjá stöðuna.

Staðan er: 119.606 krónur!

Júbb það er búið að draga útaf reikningnum 394 krónur í verðbætur!!!

Svo drengurinn getur ekki farið í bankann og sagt: "úpps nei ég er hættur við" og tekið út aftur 120.000 krónurnar sínar því þær eru ekki lengur til ...... heldur bara 119.606 krónur!!!!

Er þetta í lagi????

Hvernig í veröldinni á maður svo að útskýra fyrir börnunum að það eigi að geyma peningana í bankanum en ekki undir koddanum???
Afþví að í bankanum fái maður vexti, en ekki undir koddanum.
Afþví að í bankanum séu peningarnir mann óhultir, en ekki undir koddanum!!!

Get ekki sagt annað en núna sé ég eftir því að hafa lagt að einkasyninum að setja peningana sína í bankann!!!!

Það er ALLTAF verið að ræna mann ........ á einn eða annan hátt ....... en ég meina kommon ...... börnin líka????
Frú Megabeib

Daginn í dag!!!!

02. ágúst 2010 klukkan 23:21
Fjúff ...... hvernig í veröldinni gat eitt stk. mánuður hlaupið svona frá mér???

Er ekki aaaaaalveg að skilja þetta sko .... skil það þegar einn og einn dagur hverfur .... eða kannski ein vika eða svo ....... EN HEILL MÁNUÐUR!!!! HVAÐ er það????

Er komin á fullt í að safna í efni í bókina ..... hellingur bættist í sarpinn um helgina!!!!

Er til of mikils ætlast að ég nái því að gera allt sem mig langar til að gera???
Er til of mikils ætlast að dagarnir líði ekki aaaaaaaalveg svona hratt???

Nú verður unnið í málunum á fullum krafti!!!! .......... já alveg með trukki og dýfu!!!

Ævintýri helgarinnar má sjá í máli og myndum á FB!!!

Góðar stundir! 
Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar