Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Jamms ...... er í sjokki ...... og þarf að skrifa mig frá því!!!!

19. janúar 2011 klukkan 21:37
Er bara algerlega í sjokki ...... eða miður mín!!!

Ég lenti í því í dag að verða alveg stjörnuhppandi öskrandi reið!!! ...... held bara að ég hafi ekki orðið svona stjörnuhoppandi öskrandi reið síðan ég öskraði á ísskápssölumanninn forðum!!!!

Mér er allavega ennþá illt í raddböndunum ...... sko bara síðan í dag ...... ekki síðan forðum!!!!

Sagan:

Ég var að leggja í stæði.
Það var mikil vöntun á stæðum.
Það voru merkt stæði við hliðina á stæðinu sem ég ætlaði í þar sem á stóð "P Kistufell".... man bara hreinlega ekki hvort það stóð einkastæði á skiltinu líka! En það var ekki merkt númeri og ekki teikningu um að bíllinn yrði dreginn í burtu!!!!
Það var mikið rusl og drasl fyrir framan eitthvað sem gæti alveg verið hornið á alveg eins skilti sem stæði á "P Kistufell", svo maður rétt sá í hornið þar sem mátti lesa "fell".
Klukkan var rétt rúmlega fimm.
Það var einmitt bíll að fara úr stæðinu þegar ég kom að og taldi ég mig heppna, þar sem, eins og áður sagði, mikil vöntun á bílastæðum!!!

Ég vissi það þegar ég lagði í stæðið að ég ætti nú kannski ekkert að leggja þarna ...... en klukkan var nú orðin svo margt, ekki langur tími eftir af opnunartíma dagsins og þar fyrir utan gæti ég bara hlaupið inn og sagt að ég hefði ekki séð skiltið fyrir öllu draslinu þarna fyrir framan!!! Því ég legg það ekki í vana minn að leggja í einkastæði (því það fer alveg óskaplega í taugarnar á mér þegar lagt er í mitt stæði), fyrir utan það að ég var á merktum bíl ...... ekkert voðalega sniðugt að láta draga vinnubílinn í burtu ...... eða fá einhverja sekt á hann ...... þar sem ég var nú einusinni í einkaerindum!!!

En ég átti ekki von á því að maðurinn kæmi út úr búðinni, hundskammaði mig, leyfði mér ekki að útskýra mál mitt, leyfði mér ekki að ræða við hann í rólegheitunum, var æstur og ógnandi ..... já á tímabili hélt ég hreinlega að hann ætlaði að lemja mig!!!

Ég á mér engar málsbætur ..... ég endaði á því að verða dónaleg, nota ljót orð, og hreinlega öskra (já mér er ennþá illt í raddböndunum) á þessa menn ...... jú þeir voru orðnir tveir ..... annar ofvaxið sterabarn og hitt eldri maður með krypplóttar lappir á hækjum!!!!

Ég meina ég komst ekki einusinni að bílnum til þess að fara í hann þegar hótununum rigndi yfir mig um að bíllinn yrði bara dreginn í burtu ef ég færði hann ekki ....... þvílík FÍFL!!!

Ég gat ekki sagt að þetta væri bara hið minnsta mál, ég myndi bara færa bílinn ....... þá var ég farinn að rífast við ofvaxna sterabarnið ....... þvílíkt FÍFL!!!!

Ég skammast mín alveg hræðilega fyrir að hafa gjörsamlega misst stjórn á skapi mínu ..... en það er alveg hreinar línur að það er ekki ræðandi við þessa menn ...... þeir hlusta ekki ....... þvílík FÍFL!!!

Ég bað ofvaxna sterabarnið að róa sig ..... hann sagði að ég hefði bara byrjað að rífast við hann, sem ég gerði bara alls ekki ..........þvílíkt FÍFL!!!!

Nú ætla ég ekki að eyða meiri tíma eða orku í þetta FÍFL ....... enda hefur hann engan rétt á því að eyðileggja meira fyrir mér daginn!!!

Víst nægur þessi hausverkur og óreglulegi hjartsláttur sem ég er búin að hafa síðan þetta atvik með FÍFLINU átti sér stað!!!!

Ég ætla rétt að vona að þessi gamli á efri hæðinni geri mér það ekki að ég þurfi einhverntíman að fara í Varahlutaverslunina Kistufell og kaupa varahluti ...... ég veit ekki einu sinni hvernig varahluti þeir eru að selja!!!

.......... en ég hef þá í það minnsta rétt á því að leggja í stæðið!!!!!
Frú Megabeib

Hlakka til að fara að sofa!!!!

08. janúar 2011 klukkan 16:32
Bara hamagangur í öskjunni!!!

...... þessi blogg koma alveg í gusum!!! .... skal reyna að hemja mig í þessum skrifum..... þetta getur ekki verið hollt!!!!

....... annars langaði mig bara að deila því með umheiminum að ég er á leiðinni í sturtu!!!

Ótrúlega merkileg frétt ..... sérstaklega þar sem jólabaðið er nú ný-yfirstaðið!!! ...... eða þanni hehehehe.

Nei er sko á leiðinni í sturtu og svo er ég á leiðinni í draumalandið ..... og klukkan er ekki einusinni orðin 11 á föstudagskvöldi ..... en bæði börnin sofnuð!!! HVAÐ ER EIGINLEGA Í GANGI Á ÞESSU HEIMILI!!!??? ....... maður spyr sig .........

..... en aftur að sturtunni ...... finnst eins og ég vaði úr einu í annað og komi því ekki niður sem ég ætlaði að pikka hér á skjáinn ...... ferlega hljómar þetta einkennilega undarlega!!!! ..... en skilaboðin komust til skila .... eða hvað??? ..... maður spyr sig!!!

Sturtan já ...... þegar henni er lokið og áður en ég renn ljúflega inn í draumalandið ....... ætla ég að leggjast upp í glænýja rúmið mitt!!!!

Eða kannski ekki svo mikið glænýja rúmið mitt ...... heldur bara glænýja sængurverið, glænýja koddaverið, glænýja lakið og glænýja pífulakið og að því algerlega ógleymdu ..... GLÆNÝJU SÆNGINNI!!!!

Fékk hana og sængurverið og allt það, í jólagjöf frá vinnunni ...... eða sko ekki beint frá vinnunni ..... ekki það að yfirmenn mínir hafi hugsað með sér:"hmmmm .... hvað ætli henni langi nú mest í jólagjöf, já sæng og sængurver, best að kaupa svoleiðis handa henni"!!!! ..... nei nei ónei ...... heldur fékk ég bara voðalega rausnarlegt debetkort (ekkert stærra en venjulegt debetkort sko, en vel fullt af fjármunum!!!) ..... og fór ég og fjárfesti í sæng og tilbehøri ...... og nú hlakka ég bara til að fara uppí rúm og sofa ...... mamma sagði nebblega að ég mætti ekki setja þetta á fyrr en eftir þrettándann ........ hún bannaði mér það kannski ekki þannig .... en kom með þessa fínu hugmynd .... sem að sjálfsögðu var keypt ..... fyrir allan peninginn (sko hugmyndin!!!)

Er algerlega komin í þvaðrið ........ enda á ég ekkert að vera að sitja hérna ... heldur vera á leiðinni í sturtu!!!

Pabbi hafði af því smá áhyggjur að nú þyrftu vinnufélagarnir að koma hver af öðrum og fá að prufa sængina ..... en ég sagði honum að anda rólega ...... þetta væri bara fyrir útvalda ..... mig og börnin!!!

Keypti nebblega tvíbreiða sæng .... sem er náttla bara fyrir ástfangið fólk (það hef ég allavega ALLTAF sagt) ...... eða (var að bæta því við núna) einstæðar mæður með tvo unglinga sem finnst gott að koma uppí rúm að kúra hjá mömmunni sinni (vinsamlegast ekki hafa þetta eftir við börnin ...... það þykir nebblega ekki hipp og kúl að kúra við mömmu sína þegar maður er orðinn svona gamall!!!!)

Til að kóróna herlegheitin, keypti ég eingöngu SVARTAN sængurfatnað!!!! .... fannst allt í einu nauðsynlegt að vera með svört sængurföt ...... mér finnst það kúl!!!!

Er farin í þessa sturtu og svo ætla ég að líða inn í draumalandið ...... á hvítu skýi .... nei frekar svörtu ...... neibb finn ekkert sem er svart og ofur kósí og fallegt til að toppa hvíta skýið  ......

... nema náttla rúmið mitt!!!!
Frú Megabeib

Að frjósa til dauðs!!!!

07. janúar 2011 klukkan 13:17
Hélt hreinlega að ég myndi frjósa til dauðs í dag!
Ó mæ god hvað það var kalt!
... og ég að vinna úti .... eða svona inni/úti!!! .... hlaupa inn og útúr bílnum sem var aldrei keyrður nógu langt til að hann næði að hitna .....
Eitthvað á þessa leið (vinsamlegast hafið í huga að þegar stoppið er viðhaft þá er drepið á bílnum og ég fer úr honum, á meðan nær bíllinn að sjálfsögðu að kæla sig niður, ef svo vel vill til að hann hafi nú verið farinn að hitna þessi elllllllllska):

keyrt í 4 mín - stoppað í 8 mín
keyrt í 3 mín - stoppað í 9 mín
keyrt í 5 mín - stoppað í 3 mín
keyrt í 4 mín - stoppað í 15 mín

já já þetta er kannski ekki alveg nákvæm rannsókn, eða þetta er svona eitthvað nærri lagi!!! ...... en þetta gefur leikmönnum skýringu á því afhverju bíllinn er alltaf kaldur og mér skítkalt!!!!

Í morgun þegar ég klæddi mig til vinnu ...... var ég svo heppin að vera búin að fara út í morgun (að bera út) og vissi uppá hár hvað það væri kalt úti....... svo með þá vitneskju bjó ég mig extra vel svo ég gæti einmitt komist hjá því að frjósa til dauðs!!!

Ég fór í eftirtaldar flíkur:
Nærhald
Brjóstahaldara
Sokkabuxur 
Nærbol 
Rúllukragapeysu
Gollu (hneppt peysa, svona fyrir þá sem ekki er með það á hreinu hvað golla er!!!)
Flíspeysu
Buxur
Ég setti innlegg í skóna, svo það væri ekki eins kalt að stíga til jarðar
Ég fór í legghlífar, svo kuldinn næði því ekki að smjúga inn upp eftir buxnaskálmunum
Áður en ég fór útúr húsinu bætti ég við buffi um hálsinn, húfu á höfuðið, hlýjum leðurhönskum á hendurnar og bestu og frábærustu og hlýjustu úlpunni var skellt á líkamann í þeirri veiku von að hitinn næði því að haldast innan líkamans!!!

En ég fraus næstum því til dauðs!!!!

Ég meira að segja ákvað að keyra alla leið í Hafnarfjörðinn í dag, svona til þess að ná því að hita bílkvikindið (sem er hið vænsta faratæki á öllum öðrum dögum nema í frosthörkum), næði því að hitna að einhverju ráði.

Jú jú tilgangnum var náð ....... en hann kólnaði líka niður með ógnarhraða þegar ég kom á áfangastað!!!!

Svo ég gafst upp!!!!

Það þýðir ekkert að vera Gordjöss ..... ef þú ert blá af kulda með grýlukertin hangandi úr nefinu ..... nú er það bara skynsemi-punktur-is!!!!! ULLARNÆFÖT!!!!

Já nei ekki brjóstarahaldara og G-streng ...... það er ekki að gera sig ...... heldur bara gamlar og góðar ullarsíðar nærur og ullarsíðerma nærbol!!!!

Ekkert sérlega gordjöss ........ en...... kannski verður mér heitt!!!!!

Ég fjárfesti í einu slíku setti í dag ..... og er að sjálfsögðu komin í það og er alveg stórkostlega gordjöss þar sem ég spranga hérna um á ullarnærhaldinu einu fata!!!! ..... ætli ég taki ekki bara Svanavatnið eins og pabbi í gamla daga!!!!

Varúð - Varúð ...... í anda Mólder og Sköllí: The Cold is out there!!! 
Frú Megabeib

Á nýju ári!!!!

03. janúar 2011 klukkan 02:30

Á hverju ári þá rennur upp nýtt ár!!! ........ hmmmmm þetta hljómar eitthvað undarlega!!!

 

.......... en í það minnsta þá eru áramót, árlega ........ og á slíkum stundum er oftar en ekki kominn tími til að líta yfir árið sem á undan er gengið og meta það með kostum þess og göllum.

 

Það er ég búin að vera að dunda mér við síðan klukkan átta í morgun ........ ég gat bara ómögulega sofið lengur!!!!

 

Held að það sé allt þetta át ........ sælgætisát, snakkát, matarát!!!! ........ er þrútin og uppblásin ..... lítur eins og ég sé búin að fá mér bótox í varirnar ..... og fingurnar ...... og fæturnar ......... nei það hlýtur að vera eitthvað annað!!!! ....... það er ekki bótox .... eða hvað??? Bótox gerir mann sléttan og fallegan ..... og mér líður pottþétt ekki svoleiðis núna!!!

 

Er búin að rífa niður öll gömul markmiðsplön sem ég fann ....... stefni að nýjum og skemmtilegum markmiðum á þessu nýja fína ári!!!! ........ er það ekki alltaf það sem maður stefnir að svona um hver einustu áramót???

 

Er ekki búin að skrifa þau niður ..... en mun gera það, þar sem annars eiga þessi markmið til í að gleymast og hverfa ....... gott að hafa þau svona uppi við til að minna sig reglulega á hver þau eru!!!!

 

Fyrsta markmiðið er að geta farið í handahlaup um páskana ..... legg ekki meira á þig!!!!

 

......... en það er ALLT hægt ef viljinn er fyrir hendi ....... svo nú hefjast strangar æfingar svo markmiðinu verði náð!!!

 

Ég meina ég vann nú einusinni húllahopp keppnina ...... æfingar og ekkert annað en æfingar!!!!

 

Þeir segja (þessir sem svo svakalega mikið vit hafa á öllum hlutum) ...... að t.d. góður íþróttamaður sé bara 10% hæfileikar og 90% stanslausar æfingar og þjálfun!!!!  ........ svo ég hlýt að geta farið í handahlaup um páskana 2011 ....... ef ég æfi mig og æfi og æfi og æfi og æfi mig kannski pínu meira!!!!

Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar