Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Hið óútreiknanlega internet!!!

19. ágúst 2011 klukkan 19:10
Oft verður mér meira úr verki ef ég sleppi því algerlega að kveikja á tölvunni ...... það er alveg ótrúlegt aðdráttaraflið sem þetta kvikindi hefur ...... ekki að ég þurfi nauðsynlega að skoðaneitt merkilegt í tölvunni ..... og það er kannski ekki beint í sjálfri tölvunni en á hinu margslungna interneti!!!

Þar finnst mér Facebook vera versti tímaþjófurinn ....... ég hef oft staðið sjálfa mig að því að vera búin að skoða síðuna aftur og aftur, smelli hér og smelli þar ....... og svo skyndilega er ég komin inn í eitthvað myndaalbúm sem er úr einhverju myndaalbúmi hjá einhverju fólki sem ég þekki akkúrat ekki neitt!!!! .... og hef ekki hugmynd um hvernig í ósköpunum ég endaði þar!!!!

Á það til að detta inná Flick My Life ..... það finnst mér skemmtilegt ........ en bara heim að þar sem ég las síðast ..... nenni ekki að lesa oft sama brandarann!!!

Stundum les ég blöðin ....... það er ekki oft ....... og þá les ég bara skemmtilegar fréttir og helst þá bara af fræga fólkinu!!!! ..... hinar fréttirnar eru nú flest allar frekar niðurdrepandi ..... svo ég eyði ekki tíma mínum eða orku í að lesa það ...... skoða frekar myndir af gæludýrum hjá fólki sem ég þekki ekki neitt á Facebook!!!!

Ég á það til að detta í Bubbles ...... þori ekki að byrja á Angry Bird ...... mér skilst að það sé ávanabindandi!!!

Svo á ég það til .... bar örsjaldan til í að detta inná einhverjar spjallsíður og detta inní einhverjar umræður sem skipta mig engu máli og ég hefði ekkert verið neitt verri manneskja án þess að vita þessa hluti ...... reyndar ekki betri heldur!!! ......

....... svo var það klikk,klikk, smell, smell (svona eins og þegar maður er kominn inní sp´narferðina hjá vinkonu, vinar, frænda, systur einnar sem ég þekki og er vinur á Facebook) ..... og ég datt inn í einhverjar umræður .......

......... en hingað og ekki lengra!!!! ...... þegar ég er farin að lesa af miklum áhuga um taubleyjur .... hampbleyjur ...... nánar tiltekið um tilsniðnar hampbleiur með vasa .........


...... þá er nú fokið í flest skjól ekki satt???

p.s. fyrir áhugasama þá eru frkar upplýsingar um Happy Hempys hampbleyjurnar að finna á internetinu ....... þú getur bara gúgglað það og svo klikkað og klikkað og smellt og smellt ....... og þá endar þú örugglega á sama stað og ég!!!!
Frú Megabeib

Svindl, svik og prettir

15. ágúst 2011 klukkan 19:30
Afhverju getur Ási minn ekki bara verið einn af þessum hermönnum í Afghanistan og er að koma heim eftir næstum því fjögurra ára fjarveru? Komið heim og hundurinn fagnað honum alveg ógurlega, börnin vaðið upp um hálsinn á honum og ég hefði aldrei sleppt honum frá mér aftur ..... það hefði hentað mér alveg einstaklega vel!!!!

En þetta hentar mér einstaklega illa.


Sakna hans mikið þessa dagana ..... vildi að hann væri hérna til að vera skynsemisröddin mín ...... svo ég gæti rökrætt lífið og tilveruna við ..... fundið rétta flötinn á lífinu ...... hjálpað mér að sjá lausnir þegar ég sé þær alveg ómögulega ..... verið hjá mér svo ég gæti talað eindalaust um það sem er að pirra mig ....... og jafnframt að hann gæti verið hérna til að dáðst að börnunum okkar með mér!!!

Hann sagði SVO OFT við mig:"þegar fíflunum í kringum þig er farið að fjölga, þá er kominn tími til að líta í eigin barm" ...... svo var hann til staðar til að finna út með mér hvort það væri í rauninni fíflin sem sæktu að mér eins og mý á mykjuskán, eða hvort það var einfaldlega ég sem þurfti að taka sjálfa mig í naflaskoðun!!!

Ef hann væri hermaðurinn í Afghanistan ....... gæti ég allavega sent honum e-mail.
Ef við værum bara skilin ..... gæti ég örugglega rætt þetta við hann (ekki að ég sjái það fyrir mér að við hefðum nokkru sinni skilið ..... en ég veit að við hefðum pottþétt verið allra bestu vinir hefðum við farið út í það að skilja)

Andsk ..... "#$%&/%$"$%$#&/$#$%

..... endalaust svindl, svik og prettir!!!!
Frú Megabeib

IC/PBS = sjúkdómur

11. ágúst 2011 klukkan 17:25
Jamms ..... ég er með sjúkdóm!!!

Held að ég hafi aldrei verið jafn glöð þegar ég labbaði út frá lækninum og hún var búin að sjúkdómsgreina mig: "þú ert með sjúkdóm" ...... og það alvörunni ekta sjúkdóm!!!

Sjúkdómurinn heitir hinu flotta fræðimáli IC/PBS? ....... ég meina hver vill ekki hafa sjúkdóm sem er með svona flott nafn .... ég bara spyr!!!???

Þetta er nú ekki lífshættulegt, annars myndi ég nú eflaust ekki fagna því að vera með þennan sjúkdóm ...... og ég fagna því einfaldlega af þeirri einföldu ástæðu að núna veit ég að þetta er ekki allt saman í hausnum á mér!!! ..... og get tjáð fólki í kringum mig að þetta er ekki allt í hausnum á mér ........ hvorki sjúkdómurinn sjálfur ........ því hann er í þvagblöðrunni ..... né að þetta sé ímyndun, svona inni í hausnum á mér!!!

Nú get ég betur tekist á við þetta vandamál, þegar ég veit hvert vandamálið er. Nú get ég flett upp á Gúggúl hvað nákvæmlega þessi sjúkdómur gerir og hvernig hægt er að halda honum í skefjum. Nú get ég lagt mitt af mörkum í þessari leiðindar baráttu við að vera alltaf að pisssssssa!!!!

Sjúkdómurinn heitir semsagt á svona nokkurnveginn mannamáli: Interstitial Cystitis/Painful Bladder Syndrome .... og fyrir áhugasama má lesa meira um hann hérna: http://kidney.niddk.nih.gov/kudiseases/pubs/interstitialcystitis/

Svo nú er barátta mín við: "mér er ógisslega illt í blöðrunni" sjúkdóminn minn hafinn!!!

Over and out.

ég
Frú Megabeib

hrmpf .......

10. ágúst 2011 klukkan 21:17
Hrmpf ....... skrifaði og skrifaði eins og vindurinn og svo PÚFF ..... allt horfið!!!

Ætla að athuga hvort þetta hljóti náð fyrir augum vefheima og smygli sér í gegn ...... nenni sko ekki að skrifa og skrifa og skrifa og svo PÚFF ........ bara allt horfið!!!

Hrmpf!!!!
Frú Megabeib

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar